Dagur - 05.12.1997, Page 1
Föstudagur 5. desember 1997
Verð í lausasölu 150 kr.
80. og 81. árgangur - 231. tölublað
Iimheiinta eldsnevtis
gjalds sett í raimsókn
Flugmálastjóm ranu-
sakar iniihcimtu og
skil á eldsneytisgjaldi
af flugvélabensíni.
Samkeppnisráð fund-
ar um erindi Cargolux
um sama skatt. Flug-
leiðir losna við að
greiða gjaldið.
ítarleg rannsókn er að fara af
stað á innheimtu eldsneytis-
gjalds af flugvélabensíni, en á
síðasta fundi Flugráðs voru lagð-
ar fram upplýsingar um inn-
heimtuna sem komu flugráðs-
mönnum verulega á óvart. Flug-
ráðs- og Flugmálastjórnarmenn
hafa staðið í þeirri trú að elds-
neytisgjald sé innheimt af öllu
millilandaflugi nema Amer-
íkuflugi Flugleiða, sem hefur
sérstaka undanþágu. En Flug-
Ieiðir hafa komist hjá því að
greiða gjaldið af öllu flugi sínu -
gjald sem öllum samkeppnisaðil-
um er gert að greiða. Erindi Car-
golux vegna þessa máls verður
tekið fyrir á fundi samkeppnis-
ráðs í næstu viku.
Guðmundur Sigurðsson hjá
Samkeppnisstofnun staðfesti að
erindi um eldsneytisgjaldið hefði
borist frá Car-
golux á síðasta
ári og ítrekað í ár
með kröfu um
úrskurð urn
hvort þetta fyrir-
komulag sé sam-
keppnis-
hamlandi.
Þórarinn
Kjartansson hjá
Cargolux segir
að í þessu máli
væri misræmi
sem þeir vildu að
yrði kannað.
„Misræmið vegna eldsneytis-
gjaldsins blasir við, bæði hvað
varðar undanþágu bandarískra
flugfélaga, sem getur vart verið í
anda EES-reglna, og svo stöðu
Flugleiða sem losna \dð gjaldið
vegna orðalagsins um að gjaldið
eigi að innheimta af eldsneyti
sem selt er á Keflavíkurflugvelli.
Við stöndum höllum. fæti gagn-
vart þessum aðilum," segir Þór-
arinn.
Munar tugum milljóna
Eldsneytisgjald var lögleitt 1987
og skyldi innheimta gjaldið af
öllu eldsneyti sem „selt“ er á
Keflavíkurflugvelli. Hér er um
mikla hagsmuni að ræða fyrir
Flugleiðir og samkeppnisaðila
þeirra í millilandaflugi.
Þrátt fyrir hækkun gjaldsins og
aukna umferð í millilandaflugi
hefur innheimta eldsneytisgjalds
ekki farið hækkandi. 1988 voru
innheimtar 62 milljónir á núvirði
og talan var komin upp í 71
milljón á núvirði 1990. A þess-
um árum fóru Flugleiðir að
kaupa eldsneytið erlendis og
geyma í eigin tönkum á Keflavík-
urflugvelli, en olíufélögin sjá
samt um viðskiptin og flutning-
ana - og skila inn gjaldinu. Flug-
leiðir segja um leið að þær „selji“
sér ekki eldsneytið, heldur fái af-
greitt af eigin eldsneyti. Engin
lög teljast brotin með þessu fyr-
irkomulagi.
Snarlækkaði 1994
Árið 1994 snarlækkaði inn-
heimta eldsneytisgjalds niður í
36,7 milljónir á núvirði og hafði
því lækkað að raungildi um nær
helming. Á síðasta ári var inn-
heimt 51 milljón króna en heim-
ildarmenn blaðsins fullyrða að
þessi tala ætti að vera minnst 40
til 50 milljónum króna hærri og
jafnvel allt að 100 milljónum
króna hærri.
Flugráðsmaðurinn Gunnar
Hilmarsson hefur allt frá apríl
1996 haft uppi fyrirspurnir um
innheimtu eldsneytisgjaldsins,
en árangurslítið. Gunnar stað-
festir þetta, en vísar málinu að
öðru leyti til formanns flugráðs,
Hilmars Baldurssonar. Degi
tókst ekki ná í Hilmar í gær.
- FÞG
Aðventan
ekkiem-
tóm sæla
Aðventan er ekki bara tími jóla-
undirbúnings, kertaljósa og köku-
baksturs. Það fá stúdentar og
framhaldsskólanemar landsins að
reyna þessa dagana. Þeir sitja nú
flestir sveittir við að rifja upp
fræðin sem þeir lærðu í vetur til
þess að standa sig sem best á jóla-
prófunum sem nú standa yfir.
Menntaskólinn á Akureyri er
reyndar svolítið sér á parti í þess-
um efnum. Haustmisserisprófin
eru haldin í janúar en ekki des-
ember eins og víðast annars stað-
ar.
Janúarprófin voru reyndar regl-
an í mörgum skólum til skamms
tíma, m.a í Háskóla Islands, en
nemendum þótti það spilla nokk-
uð jólagleðinni að eiga prófin yfir
höfði sér og varð að samkomulagi
að breyta þessu fyrirkomulagi.
Hrafn Jökulsson: Ekki refsað fyrir ad
kalla Harald Johannessen glæpa-
mannaframleiðanda.
fírafn
sýknaður
Hrafn Jökulsson, fyrrum ritstjóri
Alþýðublaðsins, var í Hæstarétti
sýknaður af kröfum um refsingu
fyrir hörð ummæli í garð Haralds
Johannessen, fyrrum fangelsis-
málastjóra.
í Alþýðublaðinu vorið 1996
sagði Hrafn : „Haraldur Johann-
essen er ekki fangelsismálastjóri.
Hann er glæpamannaframleið-
andi ríkisins.11 Hæstiréttur stað-
festi dóm undirréttar, og sýkna
Hrafns byggir á því að hann hafi
fjallað um Fangelsismálastofnun
og í ummælunum hafi Haraldur
verið samsamaður stofnuninni.
„Eg tileinka þennan sigur öllum
þeim kollegum mínum sem hafa
verið dæmdir til þessa fyrir að
segja skoðanir sínar,“ segir
Hrafn. „Mér þykir miður að
embættisferli ríkissaksóknara
skyldi ljúka með þessu máli. Eg
er bæði steinhissa og himinlif-
andi, því þetta sparar mér ferða-
lög til Strassborgar, sem virtust í
uppsiglingu." — FÞG
Anndkihjá
Akureyrar-
logreglu
Talsvert annríki var hjá Lögregl-
unni á Akureyri í gær, enda fyrsti
hálkudagurinn sem orð er á ger-
andi. Auk umferðaróhappa
þurfti lögreglan að koma mörg-
um til aðstoðar sem höfðu læst
lykla inni í bílum sínum og íbúð-
um. Einnig hefur verið kvartað
nokkuð undan því að ökumenn
aki gegnt rauðu ljósi við gang-
brautarljós. Geta menn sér þess
til að jólastressið sé farið að gera
vart við sig og menn utan við sig.
Lögreglan í Reykjavík átti hins
vegar rólegan dag og þar á bæ
verða menn ekki enn varir við
eril aðventunnar.
■nnnnnnH
Landvinnslan
,_.i réttir úr
kútnum
St-, Bls. 8 9
19
dagar
til jóla
Vnrmaskiplnr
SINDRI
-sterkur í verki
Alfa Laval
;o
;o
-Os
■\o