Dagur - 05.12.1997, Page 2
Dggur
F - v t> » tisnto?. sn.) tt a t> (i vn t 7 ö >1
2 -FÖSTUDAGUIi S.DESEMBER 1997
FRÉTTIR
Það styttist i að tandsmenn skreyti stofujólatréð og voruHallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, og starfsmenn hans i
miklum önnum í gær þegar Ijósmyndari Dags leit við í Kjarnaskógi. Alls verða milli 2000 og 3000 tré tekin úr reitum skógræktarfélagsins í ár.
Mynd: Brink
Stofuj ólatréð
fer stækkandi
Rauðgreni er söluhæsta
íslenska tréð. Verð hefur
staðið í stað frá 1993.
Æ fleiri Islendingar kaupa lifandi jóla-
tré að sögn Hallgríms Indriðasonar,
framkvæmdastjóra Skógræktarfélags
Eyfirðinga, og fer ásókn í íslensk tré
vaxandi. „Við höfum haldið okkar hlut
og vel það þrátt íyrir vaxandi sam-
keppni. Rauðgrenið er söluhæsta ís-
lenska tréð og svo sækja bæði blágreni
og stafafura á, einu barrheldu íslensku
trén sem Islendingar geta ræktað. Þau
sækja fram eftir því sem framboðið
eykst, enda er það fyrst hin síðari ár
sem við eigum eitthvert magn af blá-
greni og stafafuru,“ segir Hallgrímur
FRÉ TTAVIÐ TALIÐ
en hann stefnir að sölu 2000-3000
trjáa fyrir jólin.
Innfluttu tréu eru dýrari
Og íslendingar vilja stærri tré en fyrr.
„Já, meðalstofutréð fer stækkandi.
Þannig eru vinsælustu trén í kringum
1,50 m en voru lengi vel um einn
metri. Þess ber einnig að geta að verð
íslensku trjánna hefur ekki breyst í 4
ár. Meðalrauðgrenitré kostar um 2.500
kr. en samsvarandi innflutt tré kostar
um 4000 kr.,“ segir Hallgrímur.
Markaðssvæði Skógræktarfélags Ey-
firðinga er eðlilega að mestu leyti
bundið við Eyjafjarðarsvæðið en nær
vestur til ísafjarðar og allt austur á
Vopnafjörð. Alls munu um 10 skóg-
ræktarsvæði á landinu framleiða jóla-
tré og er mest tekið í Skorradal í Borg-
arfirðinum.
Vantar lyktina og líflð
Ölafur Sæmundsen hjá jólatrjáasölu
Landgræðslusjóðs í Reykjavík segir að
salan hefjist um næstu helgi. „Hún
hefur haldist þrátt fyrir harðari sam-
keppni og meira framboð af gervitrjám.
Margir sakna einhvers þegar þeir fá sér
gervitré, það vantar lyktina og Iífið í
þau,“ segir Ólafur.
Hvað stærðina varðar telur Olafur
að efnahagsástandið hafi þar áhrif á
hverjum tíma. „Ef þrengir að, kaupa
menn minni tré og öfugt í góðæri. Svo
einfalt held ég að það sé.“ — BÞ
í heita pottinum í morgun var
sagt frá því að Markús Örn Ant-
onsson, framkvæmdastjóri út-
varpsins, hafi talað eins og verð-
andi útvarpsstjóri á fundi með
starfsmönnuin á dögunuin. Jafn-
framt er fullyrt að Markús sé
ákveðinn í að sækja um, en frest-
ur til þess rennur út 18. desem-
ber. Og pottverjar eru sannfærður um að sæki
Markús um eigi hann stöðuna vísa. Nema for-
ysta Sjálfstæðisflokksins sé ekki emi búin að
íyrirgcfa honmn að tapa borgimii til R-listans.
Fullyrt er í heita pottinum að
Davíð Björnsson, sem hætti ný-
lega hjá Landsbréfum, taki við
sem forstöðumaöur nýs fyrir-
tækis á vcgum Landsbankans.
Það taki við hluta af þeim verk-
cfnuin sem Landsbréf hafi sinnt
og þar verði um 30 starfsmenn.
Heyrst hefur að Gunnar Helgi
Hálfdánarson, forstöðumaður Landsbréfa, sé
ekki par hrifinn af að missa spón úr aski sínum.
Einnig var fullyrt í pottinum í
morgun að þessar breytingar
verði gerðar opinberar í dag.
Allir helstu fjölmiðlar landsins
þustu í Hæstarétt í gær í þeirri
von að hitta þar fyrir hinn uintal-
aða Franklin Steiner, en gripu í
tómt. Kveðinn var upp 20 mán-
aða fangelsisdómur yfir Franklin að honum íjar-
stöddum og fjölmiðlahaukarnir héldu svekktir
af vettvangi.
Franklin
Steiner.
Davíð Björns-
son.
Þorsteinn A.
Jónsson
fangelsismálastjóri ríkisins.
Óvenjufáirfangarsitja nú
inni ífangelsum landsins,
en það segirenga sögu um
að alvarlegum afbrotum hafi
fækkað. Aðeins öifáir verða
verri menn við áfplánun að
matifangelsisstjóra.
Hráefnisskortur í
fangelsum landsms!
— Eru fangelsi landsins „illa mönnuð"
sem stendur, Þorsteinn?
„Það orðalag er e.t.v. ekki til neinnar fyr-
irmyndar, en ég hef þó sagt það í gamni að
nú væri hráefnisskortur og Iítil nýliðun í
geiranum! Jú, það er rétt, það hefur fækkað
verulega."
— Hve, mikið?
„Nú sitja 99 fangar inni en í fyrra voru öll
fangapláss meira og minna sneisafull. Við
rúmum 138 fanga alls þannig að nú væri
hægt að bæta við 40 föngum í fangelsin.
Svo eru menn í afplánun hjá Vernd og í
meðferð utan við þetta. Einnig má benda á
að af þessum 99 sem nú sitja inni eru 14
gæsluvarðhaldsfangar og 5-6 til viðbótar að
afplána vararefsingu vegna fésekta."
— Hvaða skýringar eru á þessari fækk-
un. Þýðir þetta að minna sé um alvarleg
afbrot?
„Nei, ég myndi alls ekki draga þá ályktun
að alvarlegum brotum hafi fækkað. Þótt
föngum fækki nú um 2ja-3ja mánaða skeið
er það enginn grundvöllur til að dragá slík-
ar ályktanir." Þetta þarf frekari athugunar
við.“
— Fyrir hvað eru menn einkum settir
inn á Islandi?
„Ef litið er á síðasta ár þá sat tæpur helm-
ingur fanga inni fyrir auðgunarbrot, þ.e.a.s.
þjófnaði, gripdeildír og skjalafals. 16% fyrir
umferðarlagabrot, 13% fyrir fíkniefnabrot,
8% fyrir kynferðisbrot, 6,5% fyrir önnur of-
beldisafbrot en manndráp og 1,4% fyrir
manndráp, sex einstaklingar alls. Það er
engin sérstök ástæða til að ætla að þetta sé
öðruvísi nú.“
— Samfélagsþjónusta er tveggja ára fyr-
irhæri. Hefur hún reynst vel?
„Já. Nú hafa um 100 dómþolar fengið að
afplána allt að 3ja mánaða dóma og reynsl-
an hefur verið mjög góð. Þeir þurfa að upp-
fylla tilteldn skilyrði s.s. að sýna sæmilegan
stöðugleika, þeir mega ekki eiga óafgreidd
mál í kerfinu, brotið má ekki vera það alvar-
legt að það stríði gegn almennum hagsmun-
um - þannig koma kynferðisafbrotamenn og
ofbeldismenn ekki til greina."
— Hefur þjóðfélagið tekið þessum hópi
fordómalaust?
„Já. Svona hlutur gengur eklti nema sam-
félagið fallist á það.“
— Hvernig er aðbúnaður fanga á Is-
landi?
„Eg held því fram að hann sé óvíða betri.
í fyrsta lagi eru aðeins 2 eða 3 fangaklefar á
landinu sem fangar þurfa að deila. Þeir eru
í Hegningarhúsinu. Meirihluti fangaklefa er
nýr, allir klefar með salerni og vaski, þeir
eru af þokklegri stærð og aðstaða til vinnu
og tómstunda í þokkalegu standi, nema þá á
Akureyri og í Hegningarhúsinu. Þá eru
heilbrigðismál í góðu Iagi.“
— Koma menn betri út úr fangelsum
hér, en áður en þeirfara inn?
„Ég svara þessu þannig að það eru mjög
fáir menn sem koma verri út úr fangelsum
en áður en þeir fóru inn.“ — bþ