Dagur - 05.12.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR S.DESEMBER 1997 - 3
FRÉTTIR
Dómur yfír Franklin
Steiner var mildaður
Franklin K. Steiner: Skal sitja inni í 20 mánudi fyrir fíkniefnasölu og vopnaeign.
í undirrétti var kveöió á um 25 mánaða dóm og græddi Franklin því 5 mánuði á
áfrýjuninni.
FrajiMin Steiner fékk
20 mánaða dóm vegna
243 gr. af amf-
etamíni, fyrir að vera
með skammbyssu og
mörg sverð, en sýkn-
aður af því að vera
með „fingrajám“ því
dómurinn vissi ekki
hvað það var!
Franklin K. Steiner var í Hæsta-
rétti í gær dæmdur í 20 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir
fíkniefnasölu og brot á lögum
um skotvopn. Athygli vekur að
Hæstiréttur mildar verulega dóm
Héraðsdóms Reykjaness, en þar
var Franklin dæmdur í 25 mán-
aða fangelsi.
Franklin var sakfelldur fyrir að
hafa í sínum fórum alls 243
grömm af amfetamíni, en athygli
vekur að í ákæru var magnið sagt
vera 252,5 grömm. Osamræmið
var metið Franklin í hag.
Franklin krafðist sýknunar af
ákæru um sölu á amfetamíni i
ágóðaskyni, sem þýðir að hann
hafi sagst ætla að neyta efnisins
sjálfur og/eða gefa það. í for-
sendum dómsins kemur hins
vegar í Ijós að um ákaflega lélegt
amfetamín var að ræða, annað
hvort verulega drýgt af Franklin
sjálfum eða þá að hann hafi
keypt svikna vöru.
Dómarar Hæstaréttar féllust
ekki á kröfu verjanda Franklins,
Hilmars Ingimundarsonar, um
að héraðsdómur yrði ómerktur,
en Hilmar hélt því fram að hann
hafi átt að vera Ijölskipaður þar
sem sakargiftir hafi ráðist af mati
á sönnunargildi munnlegs fram-
burðar. Dómararnir sögðu að í
siíkum tilvikum væri um að ræða
rétt til að kveðja tvo dómara til
setu með sér, en ekki skyldu.
I upprunalegri kæru var
Franklin ákærður vegna sautján
skotvopna, en bæði í héraðsdómi
og Hæstarétti er hann sakfelldur
fyrir að vera með í fórum sínum
eitt ólöglegt skotvopn, Valmet
skammbyssu. Við húsleit hjá
Franklin fundust auk þess fjórir
byssustingir, þrjú höggsverð og
tvö stungusverð, svo og „fingra-
járn, í umhúðum ásamt Iyldum
og leðurhulstri“. Franklin sagðist
eiga alla þessa hluti nema
fingrajárnin. I dómsforsendum
segir: „I málinu liggur ekki fyrir
lýsing á umræddum fingrajárn-
um, sem nægir til að taka af-
stöðu til þess hvort þau megi
telja til högg- eða stuðvopna" -
með öðrum orðum hvort átt hafi
verið við hnúajárn eða handjárn
sem ná aðeins til fingranna.
Hann slapp því við refsingu
vegna fingrajárnanna.
Með 20 mánaða fangelsis-
dómnum var tekið tillit til brota-
ferils Franklins, en hann var síð-
ast dæmdur fýrir fíkniefnabrot
sumarið 1989. — fþg
Halldór Blöndal, samgönguráðherra.
Einokimar-
sjónvörp
Ríkissjónvarpið og Stöð 2 ein-
oka sjónvarpsmarkaðinn hér á
landi, sagði Halldór Rlöndal
samgönguráðherra í umræðum
á Alþingi um breiðhands Pósts
og síma. Halldór sagði stöðv-
arnar tvær einoka aðganginn að
fólki hér á landi og mikilvægt að
fleiri kæmust að. „Að fólk um
allt land eigi þess kost með
nokkru öryggi að geta horft á
fjölmiðil, fréttir frá sjónvarps-
stöð, sem ekki er í fákeppni,
heldur verður að sætta sig við að
vera í opinni samkeppni og það
erum við að gera með því að
taka breiðbandið í notkun. Við
erum að gefa fleiri aðilum kost á
að reka sjónvarpsstöðvar."
Guðmundur Arni Stefánsson,
þingflokki Jafnaðarmanna, sem
hóf umræðuna, lét hins vegar í
ljós efasemdir um að milljarða
fjárfesting Pósts og síma í breið-
bandinu væri skynsamleg.
Efasemdir um
lögmann Sophiu
Efasemdir um aðferð-
ir lögmanus Sophiu
Hausen, enda þvælist
hennar mál endalaust
í tyrkneska réttar-
kerfinu á meðan
norsk kona vinnur
mál í Tyrklandi á
skömmum tíma.
Katrín Fjeldsted, læknir og skip-
aður ráðgjafi af utanríkisráðu-
neytinu í forræðismáli Sophiu
Hansen, segir að málarekstur
Mette Sollihagen Hauge í Tyrk-
landi geti auldð líkurnar á viðun-
andi lausn fyrir Sophiu. „Ef mál-
in eru hliðstæð ættu áhrifin að
verða jákvæð á málarekstur
Sophiu. Eg legg hins vegar mik-
ið upp úr að farið verði eftir ráð-
gjöf utanríkisráðuneytisins í
þessu máli,“ segir Katrín.
Hauge, sem er norsk kona,
vann nýverið forsjármál gegn
tyrkneskum manni á tiltölulega
stuttum tfma í Tyrklandi eftir að
maður hennar stakk af með
barnið til heimalandsins. Lög-
maður hennar mun hafa unnið
með ólíkum hætti og lögmaður
Sophiu, Hasip Kaplan, og það
vekur spurningar um hvort Kapl-
an sé á rangri leið?
Sérkennilcgt
„Eg er ekki lögfræðimenntuð en
ég hef heyrt þessa gagnrýni. An
þess að ég vilji taka afstöðu til
þess þá finnst mér þetta mjög
langur tími sem hefur liðið og
það er mjög sérkennilegt að mál-
ið hafi gengið svona skrykkjótt
fyrir sig,“ segir Katrín. En finnst
henni ástæða til að Sophia íhugi
lögmannsskiptir „Það er erfitt
fundurinn sem Sophia átti við
dætur sínar í desember í fyrra
hefði aldrei orðið án afskipta
ráðuneytisins. Katrín var við-
stödd fund Sophiu með dætrun-
um og hefur nú verið óskað eftir
„Ég hef heyrt þá gagnrýni að lögmaður Soph/u kunni að vera á rangri leið. Það er
mjög sérkennilegt hve málið gengur skrykkjótt fyrír sig, “ seglr Katrín Fjeldsted,
læknir og skipaður ráðgjafi Sophiu i forræðismáli hennar.
fyrir mig að tjá mig um það en
það hafa komið upp efasemdir
um að málið væri rétt rekið,"
segir Katrín.
Ráðuneytið gert allt
Utanríkisráðuneytið hefur haft
töluverð afskipti af málinu frá
árinu 1996 og að mati Katrínar
hafa Halldór Asgrímsson utan-
ríkisráðherra ásamt Olafi Egils-
syni sendiherra gert allt sem í
þeirra valdi hefur staðið til að
liðsinna Sophiu. Hún telur að
því að hún og Ólafur Egilsson
sendiherra beri vitni þegar
næstu réttarhöld í sakadómi yfir
Halim A1 fara fram vegna um-
gengnisréttarbrota hans 5. febr-
úar nk. Katrfn vill ekki upplýsa
hvernig ástand dætranna hafi
komið henni fyrir sjónir en segist
hlíta niðurstöðu utanríkisráðu-
neytisins hver sem hún verður.
„Það hefur enn engin ákvörðun
verið tekin um hvort ég muni
bera vitni eða ekki,“ segir Katrín.
- BÞ
Ilaröiir árekstur á Hörgárbrú
Harður árekstur varð á Hörgárbrú við
Arnarneshrepp í gærmorgun. Þrennt
var flutt á slysadeild úr annarri bifreið-
inni og ökumaður hinnar bifreiðarinnar
fann til eymsla og fór sjálfur á slysa-
deild. Fólkið meiddist talsvert, en er
ekki í lífshættu.
Mannlaus bifreið rann af stað í
Brekkugötu, fór í gegnum grindverk og
trjágróður og endaðið á stúkunni við
Akureyrarvöll.
Þá lenti ung blaðburðarstúlka í því að
hundur sem gekk laus glefsaði í hana.
Hún meiddist ekki, en varð skiljanlega nokkuð óttaslegin. Eigandi
hundsins er ófundinn, en lögreglan beinir þvf til hundaeiganda að
lausaganga hunda sé stranglega bönnuð.
Þrennt var flutt á slysadeild eftir
haröan árekstur á Hörgárbrú í
gær.
Skeljimgsbensín lækkar mn krónu
Tvö olíufélaganna höfðu lækkað bensínlítrann seinnipartinn í gær.
Skeljungur lækkaði þá lítrann hjá sér um 1 krónu, nákvæmlega jafn
mikið og Olíufélagið hf., Essó, gerði daginn áður. Bensínafgreiðslu-
maður hjá Olís vissi ekki til að bensínið hefði ennþá lækkað þar á bæ.
VHja lægra verö á bjór og lé
Hagsmunaaðilar í verslun og ferðaþjón-
ustu hafa skorað á Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra að beita sér fyrir því
að verð á bjór og léttum vínum verði
lækkað. I áskoruninni er bent á að
kannanir hafi írekað sýnt að hátt verð á
þessum vörum valdi erfiðleikum og rýri
gildi kynningar og sölu á Islandsferð-
um. Verð á bjór og víni sé gjarnan not-
að sem viðmiðun um verðlag í ólíkum
þjóðlöndum og sá samanburður sé Is-
landi ákaflega óhagstæður.
Samtök kaupmanna, Samband veit-
inga- og gistihúsa, Verslunarráð og
þrjár ferðaskrifstofur mótmæla þessu
háa verði og hvetja fjármálaráðherra til
að stuðla að lækkun þess.
léttvíni
Fríðrík Sophusson,
fjármálaráðherra.