Dagur - 05.12.1997, Síða 5
FÖSTUDAGUR S.D E S E MB E R 1997 - S
Dgpir
FRÉTTTR
Upp s agnaskj álfti
í fiskviimslmmi
Atvinnuöryggi fiskvinnslufólks er í hættu ef stóru fiskvinnslufyrirtækin grípa til upp-
sagna vegna hráefnisskorts. Boðad verkfall vélstjóra um áramót á stærstu skipum
flotans veldur þar mestu.
Stærstu fiskviniíslu-
fyrirtækiu hræðast
vélstjóra. Uppsagnir
ekki útilokaðar.
Næstu dagar ráða úr-
slitum. Fiskverkunar-
fólk óttast um at-
vinnu sína.
Svo getur farið að stærstu sjávar-
útvegsfyrirtæki landsins segi upp
ákvæðum kauptryggingasamn-
inga fiskverkunarfólks á næst-
unni vegna yfirvofandi verkfalls
vélstjóra á stærstu skipunum urn
áramót. Arnar Sigurmundsson,
formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, segir að ef til verkfalls
kemur fljótlega í ársbyrjun, þá
óttast hann að það muni bitna
einna helst á fyrirtækjum eins og
Granda, ÚA, Haraldi Böðvars-
syni og öðrum stórum fyrirtækj-
um sem gera út stærstu skipin.
Vélstjórar hræða
Hinsvegar hefur Vinnslustöðin í
Eyjum eitt fyrirtækja sagt upp
ákvæðum kauptryggingasamn-
inga með fjögurra vikna fyrirvara
vegna fyrirsjáanlegs hráefnis-
skorts vegna kjaradeilu vélstjóra
á stærstu skipum flotans. For-
manni Samtaka fiskvinnslu-
stöðva var í gær ekki kunnugt
um að fleiri fyrirtæki hafi til-
kynnt uppsagnir starfsfólks.
Hann býst við að fyrirtækin
muni sjá til næstu daga hverju
fram vindur í málum vélstjóra
áður en þau taka ákvarðanir í
starfsmannamálum. Hann
minnir jafnframt á að þegar
ákvæðum kauptryggingar er sagt
upp fer fólk af launaskrá við-
komandi fyrirtækis, en ráðning-
arsamningi er ekki sagt upp. Aft-
ur á móti getur verið töluverður
munur á atvinnuleysisbótum og
launagreiðslum eftir að taxta-
kaup fiskverkunarfólks hækkaði
töluvert með síðustu kjarasamn-
ingum. Þá er bónus ekki meðtal-
inn.
Vona það besta
Aðalsteinn A. Baldursson, for-
maður fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambands Islands, vonast
þó til að stjórnendur sjávarút-
vegsfyrirtækja sjái sóma sinn í
því grípa ekki til uppsagna á
grundvelli hráefnisskorts og laga
þar að lútandi frá árinu 1979.
Hann minnir á að samkvæmt
dómi Félagsdóms er ekki nægj-
anlegt að tilgreina hráefnisskort
sem ástæðu til uppsagna ef fyrir-
tæki hefur aðgang að kvóta. Þá
séu víða til birgðir af hráefni til
vinnslu, bæði af rækju og Rússa-
fiski. -GRH
Bæjarstjóra-
laus
memhluti
teidnn við
Nýr meirihluti í bæjarstjórn ísa-
fjarðar tók formlega við völdum
á bæjarstjórnarfundi í gær. Á
fundinum lagði meirihlutinn
fram tvær tillögur. Onnur var um
að auglýsa eftir bæjarritara og
hin að stofna starfshóp til að
skoða húsnæðismál grunnskól-
ans ofan í kjölinn.
Kristinn Jón Jónsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins og
forseti bæjarstjórnar, sagði fyrir
fundinn að ekki væri búið að
finna nýjan bæjarstjóra í stað
Kristjáns Þórs Júlíussonar sem
Ekki hefur enn verið ráðinn nýr bæjar-
stjóri á Isafirdi í stað Kristjáns Þórs Júl-
fussonar sem sagði af sér eftir að
meirihlutinn i bæjarstjórn sprakk í loft
upp vegna deilna um kaup á húsi
Norðurtangans.
látið hefur af störfum. Hann
bjóst þó við að það færi að stytt-
ast í að nýr bæjarstjóri verði ráð-
inn. Þá tekur Jónas Ólafsson,
annar af tveimur bæjarfulltrúum
sjálfstæðismanna sem stendur
að nýja meirihlutanum, sæti í
bæjarráði sem formaður. -GRH
Nýtt vUmblað er ekM Dagur
Boðað hefur verið að í dag muni
koma út nýtt vikublað á Akur-
eyri. Það mun flytja efni beint af
Norðurlandi og mun í útliti og
efnistökum svipa til héraðs-
fréttablaða, s.s. Feykis á Sauðár-
króki og Múlans í Ólafsfirði. Út-
gáfan er á vegum sömu aðila og
gefa út tímaritin Við karlmenn
og Gróandann í Reykjavík og
hefur hlotið nafnið „Vikudagur",
en útgáfufélag blaðsins hefur
verið skráð undir nafninu „Nýr
dagur.“ Ritstjóri blaðsins á und-
irbúningstíma þess var Sigfús E.
Arnþórsson en hann hætti störf-
um í skyndingu áður en blaðið
kom út, en útgefandinn, Hjör-
leifur Hallgríms, sagði í blaða-
viðtali í gær að allt eins væri lík-
legt að þann mundi taka sjálfur
við ritstjórninni.
Gengið hefur verið frá því að
fyrsta tölublaðið verði prentað í
Asprenti en í auglýsingasöfnun
er Vikudagur í harðri samkeppni
við Dagskrána, sem þar er einnig
prentuð.
Aðstandendur hins nýja viku-
blaðs hafa gert sér far um að
tengja blaðið við dagblaðið Dag
og fortíð þess. Þetta kemur bæði
fram í nafnavali og auk þess hafa
bæði útgefandi og fyrrum rit-
stjóri látið í veðri vaka að blaðið
sé með einhverjum hætti arftaki
„gamla Dags“. „Dagur frábýður
sér allar slíkar tengingar og
harmar að menn skuli sigla með
þessum hætti vfsvitandi undir
fölsku flaggi. En þar sem borið
hefur á þeim misskilningi að hið
nýja blað tengist eða sé á vegum
Dags er óhjákvæmilegt annað en
undirstrika að vikublaðið, þar
með talinn útgefandi og ábyrgð-
armaður, tengist á engan hátt
Degi eða er á Dags vegum. Dag-
ur býður nýtt vikublað velkomið
í norðlenska fjölmiðlaflóru en
óskar þess að blaðið sanni sig á
eigin forsendum, en reyni ekki
að skreyta sig með annarra
manna Ijöðrum," sagði Marteinn.
Jónasson, framkvæmdastjóri
Dags.
Akureyringar þurfa hér eftir að losa sig við sorp upp við Réttarhvamm, en í gær var tekið f notkun nýtt gámasvæði um leið og
hið gamla við Þingvallastræti var lagt niður. Kostnaður við nýja svæðið nemur um 10 milljónum króna. Á myndinni er Jakob
Björnsson bæjarstjóri eftir opnunina. Mynd:Brink
Guðrún Helga-
dóttir.
Brotið á lífeyris-
þegum
Guðrún Helga-
dóttir, Alþýðu-
bandalagi, hyggst
kæra til Trygg-
ingaráðs brot sem
hún telur framið
á lífeyrisþegum
sem leggjast inn á
sjúkrahús. Guð-
rún gagnrýndi
það harðlega í fyrirspurnatíma á
Alþingi að sjúklingum eldri en
67 ára sem lagðir væru inn á
langlegudeildir almennra sjúkra-
húsa væri gert að greiða fyrir
sjúkrahúsdvölina. Vísaði hún þar
til reglna um að dvelji sjúklingar
lengur en 4 mánuði samfellt á
sjúkrastofnun missi þeir niður
lífeyrisgreiðslur.
Guðrún telur þetta brot á Iög-
um um almannatryggingar, sem
kveði á um að öllum skuli tryggð
ókeyjtis vist að ráði læknis á
sjúkrahúsi.
Heilbrigðisráðherra sagði að
verið væri að endurskoða lög um
málefni aldraðra og þar yrði
þetta skoðað.
Spara 400
inilljónir
Atvinnutryggingagjald verður
Iækkað um 0,15%, samkvæmt
frumvarpi um ráðstafanir f ríkis-
fjármálum, bandorminum svo-
kallaða. Atvinnuleysistrygginga-
sjóður þarf ekki eins mikið fé og
undanfarin ár þar sem dregið
hefur úr atvinnuleysi. Því hefur
ríkisstjórnin ákveðið að lækka
þetta gjald. Það mun spara
launagreiðendum um 400 millj-
ónir króna á næsta ári.
Lúðvik Berg-
vinsson.
Strangari reglur
uiii ábyrgðir
Lúðvík Bergvins-
son er fyrsti flutn-
ingsmaður frum-
varps um bætta
réttarstöðu
ábyrgðarmanna.
Hér á landi eru
um 47% íslend-
inga 18 ára og
eldri í persónu-
legum ábyrgðum fyrir þriðja að-
ila og er það mun liærra hlutfall
en þekkist víða.
Samkvæmt frumvarpi Lúðvíks
verður lánadrottnum bannað að
gera fjárnám í heimili ábyrgðar-
manns eða krefjast gjaldþrota-
skipta á fasteign sem er heimili
ábyrgðarmanns.
Einnig er gert ráð fyrir að það
verði bannað að krefjast við-
skiptabréfs svo sem tryggingar-
víxils til að tryggja kröfu sem
kann að stofnast í framtíðinni,
eins og hefur t.d. verið gert
vegna kreditkorta.
Sóknar- og kirkju-
garðsgjöld hækkuð
Kirkjugarosgjöld eiga að hækka
um 6,7% og sóknargjöld um
6,3% um áramótin, samkvæmt
frumvarpi sem dómsmálaráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi.
Þetta á að auka tekjur kirkju-
garðanna um rúmar 15 milljónir
króna og er gert til þess að þeir
geti áfram sinnt lögboðnum
verkefnum sínum.