Dagur - 05.12.1997, Qupperneq 10
10- FÖSTUDAGUR S.DESEMBER 1997
FRÉTTIR
Þriðjimgur landsmanna
hefur keyrt fulliir
■ / .'j ■ r. .|
Ólafur Thors, forstjóri Sjóvár-Almennra, og Axel Gfslason, forstjóri I/ÍS, hafa sam-
einað krafta þessara tveggja tryggingarisa gegn stútum undir stýri. Á Ingólfstorgi í
dag, föstudag, verður haldinn útifundur og tónieikar gegn þessari vá sem ölvun
ökumanna er. Þar munu koma fram iandsþekktir tónlistarmenn ásamt borgarstjóra
og fieirum. Þá mun ýmis konar áróður gegn ölvunarakstri birtast í fjölmiðlum á
næstunni. - mynd: hilmar
Stærstu tryggingafé-
lögin sameinast gegn
ölvunarakstri. Lög-
reglan herðir eftirlit.
Jólagleði íyrirtækja
iindir smásjá.
Um þriðjungur landsmanna virð-
ist hafa ekið bíl eftir neyslu
áfengis, samkvæmt könhun sem
GaJlup gerði fyrir Vátryggingafé-
lags Islands og Sjóvá-Almennar. I
könnun sem síðastnefnda félagið
lét gera meðal 837 ökumanna á
aldrinum 17-20 ára höfðu 51,6%
þeirra ekið ölvaðir. Þá benda
kannanir til þess að hátt í 60%
hafi verið farþegar með ölvuðum
ökumanni. Olvun ökumanna er
mest meðal karla og einkum í
aldurshópnum 25-34 ára.
Skelfilegt
„Þetta eru skelfilegar tölur,“
sögðu talsmenn tryggingafélag-
anna á blaðamannafundi í gær,
sem haldinn var í húsakynnum
slökkviliðsins í Reykjavík. Þeir
meta ástandið þannig að ölvun
meðal ungra ökumanna hafi auk-
ist á seinni tfmum. Á fundinum
boðaði lögreglan hert eftirlit með
ölvunarakstri í jólamánuðinum
og í janúar. I því sambandi lét
lögreglan í það skína að Iögreglu-
bílar yrðu hafðir í grennd við þá
staði þar sem vitað væri að íyrir-
tæki eða aðrir væru með jóla-
gleði. Það sem af er árinu hefur
lögreglan í borginni haft afskipti
af um 800 ökumönnum sem
grunaðar hafa verið um ölvun.
Viðbúið að þeir verði á milli 900-
1000 áður en árið er allt. Á öllu
landinu eru teknir hátt í 2 þús-
und ökumenn grunaðir um ölv-
un.
Sameinaðir kraftar
Á blaðamannafundinum kom
fram að tvö stærstu tryggingafé-
lög landsins, VIS og Sjóvá-Al-
mennar, hafa sameinað krafta
sína gegn ölvun við akstri undir
kjörorðunum „Endum ekki jóla-
gleðina með ölvunarakstri." Talið
er að rekja megi fimmta hvert
banaslys í umferðinni til ölvun-
araksturs og um 60 manns
slasast árlega af sömu ástæðu. Þá
er meðaltjón vegna ölvunarakst-
urs um 600 þúsund krónur.
Tryggingafélögin, lögregla og
slökkvilið leggja áherslu á að í
stað þess að keyra ölvaður sé
hægt að ferðast með strætó eða
Ieigubíl. Það vakti hins vegar at-
hygli á fundinum að engin
áhersla var lögð á þann kost sem
felst í því að ferðast gangandi,
eftir að hafa fengið sér neðan í
því. Það helgast kannski af því að
á fundinum voru fulltrúar frá
SVR og frá Frama, stéttarfélagi
Ieigubílstjóra, sem eiga hags-
muna að gæta að fólk ferðist með
þeim. — GRH
Esra
skilar
leyfmu
Esra S. Pét-
ursson
læknir hef-
ur skilað
lækninga-
leyfi sínu og
sagt sig úr
Læknafé-
laginu. Esra
hefur verið
harðlega
gagnrýndur
undanfarið
fyrir að
greina í
æviminningum sínum frá atrið-
um úr sjúkraskrá konu sem var
sjúklingur hans og hafa m.a.
stjórn Geðlæknafélagsins,
Læknafélagsins og Landlæknir
sakað hann um að brjóta ákvæði
læknalaga um þagnarskyldu.
Esra segist sjá það nú að það
orki tvímælis að greina frá bak-
grunni sjúklingsins fyrrverandi
sem hann átti síðar barn með,
en hann hafi talið það nauðsyn-
Iegt til skilnings á sambandi
sínu og konunnar.
„Viðbrögð landlæknis og
starfsbræðra minna hafa verið
með þeim hætti að ég álít að við
áframhaldandí umfjöllun þess-
ara aðila muni ég ekki geta not-
ið sammælis,“ segir í tilkynn-
ingu frá Esra.
Esra. S. Pétursson.
Toyota Corolla XLI A/T ‘96
blár ek. 40 þ. km.
V: 1.180.000,-
Honda Civic LSI 1500 ‘97
rauður ek. 18 þ. km. álf.
V: 1.400.000,-
MMC Space Wagon 4x4 A/T ‘94
blár/grár ek. 60 þ. km. álf. ofl.
V: 1.520.000,-
Bílaskipti • Bílasala
Bflasala • Bflaskipti • Bflasala
Hyundai Elantra GT 1800 ‘95
rauður ek. 54 þ. km.
V: 1.040.000,-
Renault 21 Nevada 4x4 ‘92
rauður ek. 96 þ. km.
V: 890.000,-
MMC Pajero V6 3. d. ‘90
silfur ek. 102 þ. km. brk. ofl.
V: 1.000.000,-
Bflasala • Bflaskipti • Bflasala
MMC Pajero V6 5. d. A/T ‘89
blár/grár ek. 133 þ. km. álf. ofl.
V: 1.150.000,-
Toyota Hilux D-C díesel ‘91
blár ek. 133 þ. km. 5:29 m/maeli
m/hús ofl.
V: 1.400.000,-
LR Discoveru DTI A/T ‘97
grænn ek. 23 þ. km. sóll. álf. ofl.
V: 3.200.000,-
Munið válsleðamarkað okkar, góð inniaðstaða fíö/rfur ehf
ATH! Opið á laugardögum frá kl. 13-17 bIlasala
við Hvannavelli, Akureyri
Símar 461 3019 & 461 3000
Tregt hjá Svalbák
vid V-Grænland
ÚA-togarinu Sólbakur
er nú á rækjuveiðum
en hann er á söluskrá
og hefur legið hund-
inn við hryggju iiiii
alllangt skeið.
Þegar komið var á miðin var ekki
hægt að lesa á botnstykkin og
fylgjast með því sem var að ger-
ast kringum trollið og því var
haldið til Dalvíkur á mánudag og
skipt um stykki. Sæmundur
Friðriksson, útgerðarstjóri UA,
segir rækjuflotann allan austan
við Kolbeinsey en afli er tregur
og rækjan smá. Því fer minna af
rækjunni heilfrystri til Japan en
meira til rækjuverksmiðjanna til
vinnslu. Sólbakur er að veiða
upp í þann kvóta sem frystitog-
arinn Svalbakur hefur ekki nýtt
síðustu tvo mánuði sem skipið
hefur verið í útleigu hjá Meck-
lenburger Hochseefischerei
(MHF) undir þýskum fána.
Svalbakur hefur að undan-
förnu verið á grálúðuveiðum við
Vestur-Grænland og gekk veiðin
vel framan af meðan verið var á
karfaveiðum á Reykjaneshrygg
en að undanförnu hefur veiðin
verið mjög treg. Leigutímanum
hjá MHF lýkur um 10. desem-
ber og þá fer skipið á botnfisk-
veiðar að nýju fyrir UA hér við
land fram undir jól.
Harðbakur landaði á þriðjudag
um 100 tonnum (1.700 kössum)
af blönduðum fiski, mikið ýsu og
steinbít, sem fer til vinnslu í
fyrstihúsum ÚA. Hráefnisöflun
gengur vel en kaupa þarf einnig
fisk af mörkuðum. Harðbakur
landaði á Isafirði fyrir skömmu i
gáma, og sá fiskur var síðan
fluttur með Eimskip til Akureyr-
ar. Árbakur er á veiðum fyrir
austan land og Kaldbakur fyrir
vestan land. — GG
Ótengt Kaffi Akureyri
Að gefnu tilefni er rétt að taka
fram að fyrirtækið Kaupfélag
verkamanna ehf. sem á húsnæð-
ið þar sem veitingahúsið Kaffi
Akureyri er til húsa við Strand-
götu, er ekki rekstraraðili veit-
ingahússins. Það er Strandkaffi
sem rekur Kaffi Akureyri og
Strandkaffi leigir aðstöðu af
Kaupfélagi verkamanna. Því á
Kaffi Akureyri eða Strandkaffi
enga aðild að dómsmáli sem sagt
var frá í Degi í gær og snýst um
að arkitektastofa vill fá greitt fyr-
ir teikningar sem ekki reyndust
unnar af manni með tilskilin
réttindi og fengust ekki sam-
þykktar hjá hyggingafulltrúa.
Jafnframt er Magnús Sigur-
Strandkaffi, sem rekur Kaffi Akureyri,
leigir aðstöðu í húnæði Kauþféiags
verkamanna við Strandgötu.
björnsson, framkvæmdastjóri
Kaupfélags verkamanna, en ekki
Strandkaffis/Kaffi Akureyrar.
Beðist er velvirðingar á þessu
ranghermi.