Dagur - 05.12.1997, Qupperneq 11
T^vr
FÖSTUDAGUR S. DESEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Börn í sovéskum fangabúdum 1943: „Á ávöxtum byltingarinnar skulu menn þekkja hana.“
Banværai mannkærleikur
Af tilefni 80 ára afmælis valda-
ráns bolsévíka í Petrograd hafa
franskir sagnfræðingar sent frá
sér um 850 blaðsíðna bók, undir
titlinum Le livre noir du
communisme - Crimes, terreur,
répression. En það mundi út-
leggjast: „Svartbók um kommún-
ismann - glæpir, ógnastjórn, kúg-
«
un.
I bókinni stendur að á þeim
átta áratugum sem liðnir eru frá
nefndu valdaráni, sem síðar var
farið að kalla októberbyltinguna,
hafi kommúnistar orðið um 100
milljónum manna að bana með
ýmsum aðferðum.
Bannhelgi rofin
Um nákvæmni þeirrar tölu má
efalaust deila, en það að komm-
únistar hafi orðið fjölda manns
að bana er ekki ný saga. Það sem
mesta athygli hefur vakið um
umrædda bók er að höfundar
hennar jafna jllvirkjum komm-
únista við illvirki nasista og fas-
ista. A því að gera slíkt hefur
hingað til hvílt bannhelgi. Enn
mega margir ekki heyra það
nefnt að illmennskan á bak við
fjöldamorð nasista og kommún-
ista hafi verið eitthvað áþekk hjá
báðum.
Kommúnistum til afsökunar í
því samhengi hefur verið fært
fram t.d. að kenningin hafi verið
ólíkt betri hjá þeim en nasistum
og „hugarfarið“ annað og skárra.
„Nasisminn var mannhatur frá
upphafi, en upphaf kommún-
ismans var mannkærleikur,"
sagði Roland Leroy, fyrrum aðal-
ritstjóri franska blaðsins
L’Humanité, nýlega í sjónvarps-
umræðu um Svartbókina.
Stéphane Courtois, útgefandi
Svartbókarinnar og til vinstri í
stjórnmálum, spyr hins vegar
hvort hugmyndafræði, sem hafi
leitt af sér annað eins og sú
kommúníska, geti talist saklaus
af glæpum kommúnismans. Ign-
azio Silone, ítalskur kommúnisti
sem sneri baki við flokki sínum,
sagði: „Á ávöxtum byltingarinnar
skulu menn þekkja hana.“ Svart-
bókarhöfundar segja þá Lenín,
Hitler og Maó hafa átt það sam-
eiginlegt að þeir hafi skarað fram
úr í þvf að einfalda veruleikann
fyrir sér. Annað sem þeir hafi átt
sameiginlegt sé að allt frá því að
þeir komust til valda hafi þeir
hneigst að því að „leysa“ vanda-
mál með morðum. Þeir hópar
fólks, sem valdhafar þessir skil-
greindu sem „vandamál,“ voru
hins vegar a.m.k. sumpart mis-
munandi; það var komið undir
„nauðsyn" eða áráttum hvers
valdhafa um sig.
Stalín kennt uin allt
Höfundar Svartbókar ráðast
einnig gegn þeim vana, sem hef-
ur verið algengur, að halda þvf
fram að kommúnisminn sem
slíkur hafi verið nokkuð góður
Baksvið
í Degi í gær var skýrt
frá útkomu „Svart-
bókar“ inii kommún-
ismairn. Þar er því
meðal aiiiiars haldið
fram að stalínismiim
hafi verið rökrétt
framhald stjdrmmar-
aðferða Leníns og
Trotskís. Dagur Þor-
leifsson fjallar hér
frekar um hókina og
deilur um hana.
en stalínisminn hins vegar illur,
enda afskræming á sönnum
kommúnisma.
Það er af og frá, skrifa höfund-
ar Svartbókar og ýmsir sem um
það rit fjalla í fjölmiðlum. Aðalá-
stæðan til þess að Krúsjov, eftir-
maður Stalíns sem aðalvaldhafi
Sovétríkjanna, afhjúpaði Stalín í
leyniræðu svokallaðri 1956, hafi
verið sú að Krúsjov hafi viljað
létta af samstarfsmönnum
Stalíns - einkanlega sjálfum sér -
ábyrgðinni á glæpum Stalínstím-
ans, og jafnframt fría sovéska
kommúnistaflokkinn og hetju-
sögnina um byltinguna, sem völd
þeirra félaga byggðust á, við alla
sök á téðum glæpum. Það hafi
Krúsjov gert með því einfalda
bragði að yfirfæra svo til öll ill-
virki sovéskra stjórnvalda frá
októberbyltingunni til 1953 á
reikning eins manns - Stalíns.
En Nicholas Werth, höfundur
kaflans um Sovétríkin í Svart-
bókinni, segir ógnarstjórn Stalíns
hafa verið beint og rökrétt fram-
hald stjórnunaraðferða þeirra
Leníns og Trotskís. Werth styðst
í þessu við fyrir skömmu fram
komin skjöl úr sovéskum skjala-
söfnum auk rithöfunda eins og
Arthur Koestler, George Orwell
ogAleksandr Solshenítsyn.
„Þúsundir nafnlausra graf-
reita“
Lev Rasgon, sovéskur rithöfund-
ur sem var 17 ár í gúlaginu,
átaldi árið 1989 það sem hann
kallaði almenna tilhneigingu til
þess að horfa fram hjá eða
gleyma glæpum kommúnismans.
„Við [í Sovétríkjunum] höfum
engin hryllingsvekjandi söfn eins
og þau sem eru í Auschwitz og
Mauthausen ... Hér eru þúsund-
ir og aftur þúsundir nafnlausra
grafreita sem fyrir löngu eru
horfnir undir kjarr og gras.“
Hvorki í fyrrverandi sovétblokk
né á Vesturlöndum fer mjög mik-
ið íyrir áhuga á hryllingi komm-
únismans. Fyrir kemur þó að
einn og einn af gleymdu grafreit-
unum, sem Rasgon talaði um,
kemur í leitirnar. I skógum rússn-
esku Karelíu, um 400 km norð-
austur af Pétursborg, fundust í
sumar fjöldagrafir með beinum
um 9000 „óvina alþýðunnar",
sem myrtir höfðu verið fyrir um
60 árum. Flestir þeirrá höfðu
verið skotnir í hnakkann. Þannig
fóru morðsveitir sovétstjórnar
oft að. Grígoríj nokkur Níjasov,
sem var í einni slíkri sveit, sagði
Rasgon að á morgnana, áður en
„vinna“ hófst, hefði hver mörð-
sveitarmaður fengið fullt stórt
staup af vodka og eftir „vinnu“
áfengi að vild. Níjasov sagði um
síðustu viðbrögð þeirra sem voru
líflátnir: „Margir þögðu alveg, en
margir æptu að þeir væru komm-
únistar og dæju saklausir ...
Konurnar vældu og hjúfruðu sig
hver upp að annarri." Þessar
endurminningar höfðu aldrei
staðið Níjasov fyrir svefni.
Rasgon virtist hann hvorki
vera „betri né verri en aðrir
gamlir menn á eltirlaunum, sem
sitja á bekkjum í almennings-
görðum og horfa á börn leika
Wiirnie Mandela neitar
ásökunum
SUÐUR-AFRÍKA - Winnie Madikizela-
Mandela sagðist í gær ekki hafa fyrirskip-
að nein morð á fólki sem grunað var um
samstarf við hvítu minnihlutastjórnina á
tímum aðskilnaðarstefnunnar, hvað þá að
hún sjálf hafi framið eða tekið þátt í morð-
um og líkamsárásum. Allar ásakanir í þá
átt hljóti að stafa af ofsjónum eða ein-
hverju þvílíku. Fullyrðingar fyrrverandi líf-
varðar síns, Jerry Richardson, um að hún
hefði gefið honum skipun um að myrða
Stompei Seipei sagði hún hlægilegar og
brjálæðiskenndar. Sjálf virtist hún hin rólegasta þegar hún svaraði
spurningum lögfræðings síns við vitnaleiðslur Sannleiksnefndarinn-
ar.
Winnie segir ásakanir byggj-
ast á ofsjúnum.
Kosningar á Indlandi
INDLAND - Forseti Indlands, K.R. Narayanan, leysti í gær upp þing
landsins og greiddi þar með götu fyrir því að kosningar verði haldnar
þar. Samsteypustjórn undir fosæti Indar Kumar Gurjals fór frá völd-
um á föstudaginn, en það er þriðja ríkisstjómin sem setið hefur á Ind-
landi á tveimur árum. Vangaveltur hafa verið um að hindúskir þjóð-
ernissinnar gætu myndað nýja stjórn.
Óvæntir endurfundir
BRETLAND - Karl Bretaprins hitti í gær fyrrverandi skólafélaga sinn
við heldur óvæntar aðstæður. Karl var að skoða miðstöð fyrir heimil-
islaust fólk í London þegar einn hinna heimilislausu, Clive Harold,
vatt sér að honum og sagðist hafa gengið í sama skóla og Karl fyrir 44
árum. Karli virtist nokkuð brugðið við þessa endurfundi.
Vilja ekki að talað sé
við Wei
KINA - Kínversk yfirvöld kröfðust þess í
gær að bandaríska ríkisstjórnin sjái til þess
að embættismenn hennar hitti ekki kínv-
erska andófsmanninn Wei Jingsheng að
máli meðan hann er í útlegð í Bandaríkj-
unum. Talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins sagði Kínverja vera andvíga
því að Bandaríkin noti Wei í þágu and-
kínverskra hagsmuna.
Öryggisráð í klípu
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR - Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er
undir töluverðum þrýstingi að heimila írökum frekari sölu á olíu í
skiptum fyrir matvæli til þess að hæta eitthvað úr skelfilegu ástandi
írösku þjóðarinnar. Það setur Öryggisráðið hins vegar í vanda að írak-
ar hafa endurnýjað kröfur sínar um að setja skilyrði fyrir starfi vopna-
eftirlitsnefnda í landinu.
Ný réttarhöld í Palmemálmu
SVIÞJÓÐ - Klas Bergenstrand, ríkislögmaður Svíþjóðar, mun í dag
fara fram á það við Hæstarétt landsins að réttað verði að nýju í máli
Christer Pettersson sem grunaður er um morðið á Olof Palme, þá-
verandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Pattersson hefur áður verið hæði
dæmdur sekur um morðið og sýknaður. Talið er fullvíst að Hæstirétt-
ur muni fallast á beiðnina, og reiknað er með því að réttarhöldin
hefjist næsta sumar.
Grunnskóla fyrir múslima hafnað
NOREGUR - Borgarstjórnin í Osló samþykkti ekki að gefa leyfi sitt
til þess að komið verði á fót sérstökum grunnskóla fyrir múslima í
borginni. Þrátt fyrir það er talið hugsanlegt að ríkisstjórn Noregs veiti
skólanum starfsleyfi. Fulltrúar Hægri flokksins og Kristilega þjóðar-
flokksins, sem eru í stjórnarandstöðu í borgarstjórninni, sökuðu
meirihlutann um mismunun gagnvart múslimum með afstöðu sinni.
Jeltsín kveður Svía
SVIÞJÓÐ - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, og eiginkona hans Naina
luku opinberri heimsókn sinni til Svíþjóðar í gær með því að kveðja
konimgsfjö 1 sky 1 duna með virktum. Fyrr um daginn hafði Jeltsín lagt
blómsveig á gröf Olofs Palme.