Dagur - 05.12.1997, Síða 13
FÖSTVDAGUR S.DESEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
í. A
Fnunsýningar á
iiýjuni leikmönnum
Heil umferð verður
Sprewdl rekiim
leiMn í DHL-deild
iuni í körfubolta
næstkomandi sunnu-
dag. Nokkrir nýir
leikmenn verða þá í
sviðsljósinu.
Á sunnudaginn hefst 9. umferð
DHL-deiIdarinnar með stórleik í
Grindavík kl. 16. Þá taka heima-
menn, sem eru í efsta sæti deild-
arinnar, á móti KR-ingum. KR
hefur hefur ekki náð sér á strik
það sem af er vetri og einungis
sigrað í þremur leikjum. Nýr er-
lendur leikmaður mun væntan-
lega klæðast KR búningnum í
fyrsta sinn á sunnudag.
Jermaine Smith, bakvörður úr
hinum fræga UNLV háskóla í
Bandaríkjunum, átti að vera
væntanlegur til Iandsins á föstu-
dagsmorguninn. Larry Johnson,
leikmaður New York Knicks,
kemur einmitt frá þessum há-
skóla í Las Vegas og fleiri NBA
leikmenn. Það ætti því að vera
áhugavert að fylgjast með þess-
um bakverði ldjást við Darryl
Wilson í liði Grindavíkur, en
hann hefur án efa verið besti
leikmaður deildarinnar það sem
af er vetri. Fimm leikir hefjast
svo kl. 20 á sunnudagskvöldið.
IR, eina Iiðið sem hefur ekki
unnið leik á þessu tímabili, mæt-
ir með nýtt andlit í Borganes.
Nýi leikmaður IR heitir Kevin
Grandberg og kemur frá
Kanada. Þessi Grandberg hefur
æft með ÍR síðustu daga og von-
ast Anthony Vallejo, þjálfari ÍR,
til að þetta sé maðurinn sem
komi IR á réttu brautina. Borg-
nesingar eru í 10. sæti deildar-
innar og heyrst hefur að þeir séu
að leita sér að Evrópubúa til að
styrkja lið sitt. Það er alltaf erfitt
að spila í Borgarnesi og þvf eiga
IR-ingar verðugt verkefni fyrir
höndum.
Þórsarar taka á móti Eggjabik-
armeisturum Keflavíkur. Þórsar-
ar unnu sinn fyrsta útileik í vet-
ur í síðustu umferð gegn IR. Þá
spilaði nýr leikmaður Þórs, Jesse
Ratliff, sinn fyrsta leik og átti
vægast sagt stórleik og virðist
Nokkuð hefur verið um mannabreytingar f liðum i DHL-deildinni og verða nokkrir
nýir leikmenn í sviðsljósinu í kvöld. - mynd: bg
einmitt vera sá maður sem hið
unga Þórslið hefur vantað. Það
ætti því að vera gaman að sjá
hvernig hann kann við sig í
íþróttahöllinni á Akureyri á
sunnudag.
Haukar fá Isfirðinga í heim-
sókn í Strandgötuna. Haukar
töpuðu sínum fyrsta Ieik á tíma-
bilinu í síðustu umferð og skor-
uðu þá einungis 48 stig! ísfirð-
ingar hafa staðið sig vel það sem
af er móti og eru í 4. sæti, 4 stig-
um á eftir Haukunum.
Njarðvíkingar fara upp á
Skaga og takast á við Ermolinskji
og lærisveina hans. Sigurður E.
Þórólfsson er meiddur og spilar
Iíklega ekki með Skagamönnum
í þessum leik. Hins vegar er
Damon Johnson til staðar og
með hann innanborðs er ekki
hægt að bóka auðveldan sigur á
Akranesi. Njarðvíkingar eru í 5.
sæti deildarinnar.
Valsmenn mæta Tindastóls-
mönnum á Hlfðarenda. Tinda-
stóll var fyrsta liðið til að Ieggja
Hauka að velli í vetur í síðustu
umferð. Þeir eru í 3. sæti deild-
arinnar og hafa spilað mjög vel
það sem af er. Nýliðar Vals eru
nálægt botninum en unnu hins
vegar sannfærandi sigur á KR
uppi á Nesi um daginn.
Leikir sunnudagsins:
Grindavík-KR kl. 16
Þór-Keflavík kl. 20
ÍA-Njarðvík kl. 20
Skallagrímur-ÍR kl. 20
Haukar-KFÍ kl. 20
Valur-UMFT kl. 20
Lið Golden State Warriors hefur
sagt upp samningi sínum við
Latrell Sprewell. Þar með er
ljóst að þessi stigahæsti og besti
leikmaður Warriors síðustu fjög-
ur ár spilar ekki fyrir liðið aftur.
Samningur Sprewell var til fjög-
urra ára og hefði gefið honum
35 milljónir dollara. Þetta voru
því ansi dýr kjaftshögg sem leik-
maðurinn lét dynja á þjálfara
sínum!"
Við hefðum getað selt
Sprewell til einhvers annars liðs
en við ákváðum að hið rétta í
málinu væri að rifta samningum
hans. Lið höfðu sýnt áhuga á
leikmanninum en það dvínaði
heldur hetur eftir atvikið með
Carlisemo þjálfara," sagði Garry
St. Jean frkvstj. Golden State.
Sprewell segist harma það sem
hafi á gengið og segir að ef eng-
inn NBA lið sýni honum áhuga
muni hann hverfa frá Bandaríkj-
unum og spila annárs staðar í
heiminum.
Nelson tekur við
Fréttir herma að Don Nelson,
framkvæmdastjóri Dallas Mav-
ericks, taki við þjálfun liðsins
næstu daga. Dallas byrjaði tíma-
bilið vel og vann þrjá fyrstu leiki
sína. Síðan hefur einungis einn
sigur komið í síðustu þrettán
leikjum og staða liðsins því 4-12.
Nokkrir leikmenn liðsins hafa
einnig lýst yfir óánægju með
þjálfarann og leikskipulagið.
Þegar Jim Cleamons þjálfari var
spurður um þetta mál svaraði
hann: „Liðið hefur verið í smá
Iægð en ef menn myndu bíða ró-
legir þá batnar þetta. Ef þeir
halda hins vegar að einhver ann-
ar geti gert betur með þennan
mannskap, gangi þeim vel!“
Eftir að Latrell Sprewell gaf þjálfara
slnum á kjaftinn var hann rekinn frá
Golden State Warriors.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. —
LOKAÐ
Skrifstofur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verða lokaðar eftir hádegi í dag, föstudaginn
5. desember frá kl.13:00 vegna jarðarfarar
Guðrúnar L. Jónsdóttur.
Verzlunarmarmafélag Reykjavíkur.
Okkur vantar lyftuverði til starfa í
vetur. Upplýsingar veittar í
síma 462 2280.
Skíðastaðir, Hlíðarfjalli.
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna innflutnings á smjöri, ostum og eggjum.
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verð-
lagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu með lögum nr.
87/1995 og með vísan til rg. útgefinni 3. desember 1997, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innflutn-
ings á smjöri, ostum og eggjum.
Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðuneytinu
á skrifstofutíma frá kl. 9-16.
Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi eða með
símbréfi til landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík, og skulu hafa borist fyrir kl. 15
föstudaginn 12. desember 1997.
Landbúnaðarráðuneytinu, 3. desember 1997.
Atvinna í boði
Okkur vantar röskan starfskraft
til starfa á Degi.
Um er að ræða krefjandi starf í prófarkalestri,
innslætti og frágangi efnis. Viðkomandi þarf
að hafa fullkomið vald á íslenskri tungu, góða
almenna tölvukunnáttu og öryggi og hraða
í innslætti á tölvu.
Áhugasamir vinsamlega sendið umsóknir með
helstu upplýsingum um menntun og fyrri störf í
afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri,
merkt Próförk fyrir 13. desember.
UMFERÐAR
RÁÐ
BELTIN