Dagur - 09.12.1997, Page 10
10 -ÞRIÐJUDAGUR 9 .DESEMBER 1997
FRÉTTIR
Tæples*
löifresS
a 400 mál til
lögreglu um helgina
varasamt. Efnið er í fljótandi
formi. Ekki þarf að hafa mörg
orð um það hversu hættulegir
ökumenn geta reynst sér og öðr-
um við akstur undir áhrifum
hvers konar vímuefna.
Lagt hald á landa
Okumaður var stöðvaður í Breið-
holti eftir að grunur hafði komið
fram um að hann væri að selja
unglingum landa, eða „sveita-
snakk“ eins og unglingar kalla
það. Karlmaðurinn viðurkenndi
að hafa ætlað um 50 lítra af
vökvanum til sölu. Lögreglan
hefur að undanförnu haft tals-
vert eftirlit með sölu þessa varn-
ings til unglinga og mun gera svo
áfram. Oft eru þessi sömu aðil-
ar einnig að útvega unglingum
fíkniefni. Borgarar sem búa yfs r
vitneskju um slíka sölumenn eru
hvattir til að láta lögreglu vita og
má í því sambandi benda á sím-
svara fíkniefnadeildar 5699090.
Átt þú rétt á
endurgreiðslu?
Peir sem voru yngri en 21 árs þegar tannréttinga-
meðferð með spöngum eða teinum hófst, geta átt
rétt á endurgreiðslu hluta kostnaðar. Um tannrétt-
ingar, sem hófust þann 1. desember 1997 eða síðar,
gildir eftirfarandi um þátttöku Tryggingastofnunar:
Sjúkratryggingar veita styrk að upphæð kr. 100.000
vegna tannréttingar sem krefst meðferðar með föst-
um tækjum í a.m.k. annan góm.
Ekki er veittur styrkur vegna endurtekinnar meðferð-
ar sem áður hefu verið styrkt samkvæmt reglum
þessum eða eldri reglum.
Endurgreiðsla vegna tannréttinga hefst ekki fyrr en að lokinni
ísetningu fastra tækja. Framvísa skal reikningum sem eru
jafnháir eða hærri en eftirfarandi greiðslur og eru styrkir þá
greiddir samkvæmt neðangreindu.
1. að hámarki kr. 40.000 að lokinni
upphafsmeðferð.
2. að hámarki kr. 30.000 a.m.k. 12 mánuðum
eftir fyrstu greiðslu.
3. að hámarki kr. 30.000 að meðferð lokinni
eða a.m.k. 12 mán. eftir aðra greiðslu.
Hafi meðferð hafist á tímabilinu 1. janúar til 30. nóvember
1997, er greitt fyrir fyrsta hluta meðferðar samkvæmt reglum
tryggingaráðs frá 21. febrúar 1997. Um greiðslu annars og
þriðja hluta fer samkvæmt ofangreindum reglum sem trygg-
ingaráð samþykkti þann 27. nóvember sl.
Sótt er um styrki til Tryggingastofnunar ríkisins
eða umboða utan Reykjavíkur á eyðublöðum sem
þar fást.
Nánari 'upplýsingar veitir tannlæknadeild Trygginga-
stofnunar.
TRYGGINGASTOFNUNt$? RÍKISINS
©
Dagbðk lögregluimar
í Reykjavík helgina 5.
til 8. desember 1997
Mikið annríki var hjá lögregl-
unni um helgina og ölvun mikil.
Alls voru 393 mál færð til bók-
unar. Aðfaranótt laugardags voru
fangageymslur lögreglunnar yfir-
fullar og mikið annríki við mót-
töku ölvaðra borgara sem lög-
reglan varð að hafa afskipti af.
Var vel á fimmta tug borgara
handtekinn vegna ölvunará-
stands.
Neyttu smjörsýru
A föstudagskvöld voru tveir karl-
menn, 24 ára, fluttir meðvitund-
arlausir á slysadeild eftir að
borgari hafði komið að þeim í
ökutæki á Háaleitisbraut. I ljós
hefur komið að karlmennirnir
höfðu neytt vímuefnis sem kall-
að er „smjörsýra“ og er talið mjög
Á sunnudagsmorgni var ráðist á mann í miðborginni og sparkað í hann þannig að
fiytja varð hann á slysadeild með sjúkrabifreið.
Kynferðisbrot - blygðunar-
semibrot
Höfð voru afskipti af karlmanni
eftir að hann hafði farið inn í
kvennaklefa einnar af sundlaug-
um borgarinnar og sýnt kven-
mönnum þar kynfæri sín. Karl-
maðurinn sem er um þrítugt var
handtekinn og færður á lög-
reglustöð.
Þá var annar karlmaður um
þrítugt handtekinn eftir að upp
komst að hann hafði haldið
konu á þrítugsaldri nauðugri í
íbúð í vesturbænum. Málsaðilar
höfðu hist á veitingahúsi og þau
síðan farið að heimili mannsins.
Konan var flutt á slysadeild
Borgarspítala en hún hefur lagt
fram kæru um kynferðisbrot og
frelsissviptingu. Karlmaðurinn
var vistaður í fangageymslu lög-
reglu og hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 23. janúar nk.
Innbrot - þjófnaður
Brotist var inn í Ij’ögur fyrirtæki í
Skeifunni um helgina. Skemmd-
ir voru unnar á hurðabúnaði og
nokkru stolið úr einu fyrirtækj-
anna. I hinum var rótað og unn-
ar skemmdir án þess að um
þjófnað hafi verið að ræða.
Að morgni laugardags upp-
götvaði kona að talsverðu hafði
verið stolið af heimili hennar um
nóttina. Hún hafði kvöldið áður
farið á veitingahús og þaðan
boðið heim til sín tveimur karl-
mönnum. Svo virðist sem karl-
mennirnir tveir hafi notað tæki-
færið eftir að konan sofnaði og
fjarlægt þaðan helstu verðmæti
hússins. Mennirnir tveir hafa
verið handteknir og hefur annar
þeirra verið úrskurðaður í gæslu
í eina viku og hinn í sex vikur
vegna annarra brota einnig.
Nytjastuldui ökutækja
Tilkynntur var nytjastuldur
tveggja ökutækja um helgina.
Lögreglumenn á eftirlitsferð
veittu athygli annarri bifreiðinni
en þá voru í henni þrír piltar.
Tveir fjórtán ára og einn sextán
og því enginn þeirra með öku-
réttindi. Þeir voru fluttir á lög-
reglustöð þangað sem þeir voru
sóttir af forráðamönnum eftir
skýrslutöku.
Likamsmeiöingar
Að morgni sunnudags var ráðist
á mann í miðborginni og hann
laminn þannig að hann slasaðist
á höfði. Maðurinn var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið en
þrír karlmenn og ein kona, öll
rúmlega tvítug, eru grunuð um
verknaðinn.
Að morgni sunnudags var ráð-
ist á annan karlmann í miðborg-
inni og sparkað í hann þannig að
flytja varð hann á slysadeild með
sjúkrabifreið. Einnig slasaðist
stúlka í þessum átökum. Sautján
ára piltur er grunaður um verkn-
aðinn.
Annað
Verkefni lögreglu geta verið
margvísleg og svo virðist sem
sumir borgarar brjóti gegn venju-
bundnu hegðunarmynstri þegar
þeir eru undir áhrifum áfengis.
Til staðfestingar því má nefna að
í liðinni viku voru tveir karlmenn
handteknir eftir nokkuð sér-
kennilegar innbrotstilraunir.
Annar mannanna gerði heiðar-
lega tilraun til að brjótast inn í
höfuðstöðvar lögreglunnar við
Hverfisgötu. Hafði hann reynt
að spenna upp glugga í kjallara
en var þá handtekinn af laganna
vörðum. Manninum sem ekki
gat gefið skýringu á athæfi sínu
né heldur hvað hann héti var
veitt gisting í fangageymslu.
Hinn maðurinn gerði hins vegar
tilraun til að að komast inn í
fangelsið við Skólavörðustíg án
þess að vitað sé hvert erindi
hann átti þangað. Hingað til hef-
ur þurft boðvald yfirvalda til að
flytja brotamenn til vistunar en
kannski er þetta vísir að nýjum
viðhorfum. Hverju sem því líður
var karlmaðurinn handtekinn og
veitt næturvist í fangageymslu
lögreglu við Hverfisgötu. Tekið
skal fram að báðir mennirnir
voru mjög ölvaðir við iðju sína.
MilrilT mannsöfnuður
og ölvun tmi helgina
Úr dagbók lögregl-
iiiinar á Akiireyri vik-
ima 1. til. 8. des.
1997.
Vikan var á ýmsan hátt öðruvísi
en undanfarnar vikur. Með
breyttri tíð urðu aðstæður öðru-
vísi og kemur það glöggt fram í
verkefnaskrá lögreglunnar sem
alls taldi 304 mál.
Fá íunferðarbrot en mörg
óhöpp
Sé litið á umferðina þá er þar
mikil breyting á því einungis 5
eru teknir fyrir of hraðan akstur
og endurspeglar það slæm akst-
ursskilyrði, en hálka var á götum
og vegum flesta daga vikunnar.
Onnur umferðarlagabrot voru og
með minna móti.
Verri akstursskilyrði komu hins-
vegar fram í meiri fjölda umferð-
aróhappa en við höfum séð
Iengi. Þannigvar21 umferðaró-
happ skráð í vikunni og slys í 6
þeirra, en sem betur fer minni-
háttar. Þetta sýnir að þótt ekið
hafi verið rólega í heildina þá
hafa þó of margir ekið of hratt
miðað við aðstæður enda þótt
ökuhraðinn hafi verið innan við
löglegan hámarkshraða. Þetta
sýnir enn og aftur að ökuhraða
verður alltaf að miða við aðstæð-
ur hverju sinni.
Harður árekstur á brú
Á fimmtudaginn varð harður
árekstur á Hörgárbrú á Ólafs-
fjarðarvegi og voru 4 fluttir á
sjúkrahús en enginn þó alvarlega
slasaður. Þá var einnig ekið á
hross á Eyjafjarðarbraut vestri og
skemmdist bifreiðin mikið og af-
Iífa varð hrossið. Nokkuð eril-
samt var hjá lögreglunni á
fimmtudaginn og mikið að gera á
ýmsum sviðum. Ekki var þó öku-
mönnum um að kenna í öllum
tilfellum því bifreið ein í Brekku-
götunni tók allt í einu upp á því
fara af stað ökumannslaus á eig-
in vegum og rann sem leið lá
niður Brekkugötu, þar útaf og
hafnaði á vesturvegg áhorfenda-
stúku Akureyrarvallar. Brotnaði
þar rúða i skrifstofu vallarhúss-
ins og talsvert tjón varð á bifreið-
inni. Ekki varð séð hvað þessu
olli því bifreiðin var læst, í gír og
með handhemil á þegar að var
komið.
MiMl ölvun
Helgin var nokkuð erilsöm og
hafði lögreglan í nógu að snúast
einkum aðfaranótt laugardags-
ins. Talsvert var um slagsmál og
líkamsárásir þótt ekki væri um
alvarlega áverka að ræða. Mikil
ölvun var og mannsöfnuður í
bænum og er það jafnan örugg
ávísun á að lögreglumönnum
leiðist ekki á vaktinni vegna að-
gerðarleysis. Þannig var fjölda
fólks komið til síns heinra og for-
eldrum gert að sækja of ung eða
ölvuð ungmenni á Iögreglustöð-
ina. Laugardagskvöldið var ró-
legra og virtist sem mesti móður-
inn væri runninn af mönnum en
talsvert var þó af fólki á
skemmtistöðum enda tími litlu
jóla í fyrirtækjum í hámarki.