Dagur - 31.12.1997, Page 4

Dagur - 31.12.1997, Page 4
20- MIÐVIKUDAGUR 31.DESEMBER 1997 ANNÁLL 97 Hæstiréttur hafnaði upptöku Geirfiimsmáls- ins Hæstiréttur hafnaði í júlí beiðni Sævars Ciesielski um endurupptöku Geirfinns og Guðmundarmála. Sitt sýndist hveijum um niðurstöðuna og var m.a. efnt til mótmæla- funds í Reykjavík. Nú hefur verið ákveðið að vísa endurupptöku málsins fyrir mannrétt- indanefndina í Strassborg. Fyrr á árinu var sýnd heimildarmynd eftir Sigurstein Másson um þessi sakamál sem einnig vakti mika at- hygli. Þorskkvóti stóraukinu Hafrannsóknastofnun lajgði til á árinu að þorskkvóti yrði stóraukinn frá því sem verið hefur. Arið 1998 mun Ieyfilegt að veiða 218 þúsund tonn sem er 17% aukning frá fyrra ári. Þessari ákvörðun var fagnað mjög hjá útgerðum og þykir fiskveiðistjórnun hafa verið markviss að undanförnu hvað þorsldnn varðar a.m.k. Þyugsti dómurixm fyrir hamaníð Roy Svanur Shannon, 53 ára karlmaður á Akureyri, var 22. apríl dæmdur í 4ra ára óskilorðsbundið fýrir margþætt kynferðis- brot á sex stúlkubörnum frá árinu 1991- 1996. Þetta er einn þyngsti dómurlslands- sögunnar fyrir kynferðisafbrot. Shannon áfrýjaði ekki. Mynd 23. apríl. Ný stjómmálasamtök Ný stjórnmálasamtök urðu til á stofnfundi í Loftkastalanum í Reykjavík með tilkomu Grósku. Stofnfélagar voru um þrjú þúsund og áttu ungliðahreyfingar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks formlega aðild að samtökunum en auk þess stóð Röskvufólk að aflinu, Kvennalisti, Þjóðvaki ofl. Himdur drepiim Áragamlar erjur í fjölbýlishúsinu Neðstaleiti 1 í ReykajMk vegna gæludýrahalds fengu dramatískan endi 16. maí þegar maður á átt- ræðisaldri Ienti í átökum við hundaeiganda og skömmu síðar fann lögreglan hundinn dauðan á heimili mannsins. Maðurinn bar við yf- irheyrslur að hafa tekið hundinn en sagði hann sjálfan hafa veitt sér áverkana með því að hlaupa á veggi og láta eins og vitlaus væri. Mál- ið var kært til lögreglu. Bjarni Tryggvason geimfari. Út í geimiim Fyrsti Islendingurinn til að fara út í geiminn, Bjarni Tryggvason, reyndist þegar upp var staðið Kanadamaður. En með miklar taugar til Islands. Forseti Islands var viðstaddur geimskotið og þjóðin eignaði sér hlut í Bjarna, enda á hann ættir að rekja til Norðurlands. Viðmælendum nær og Ijær kom saman um að hann hefði alltaf verið efnispiltur og hvers manns hugljúfi, nóg var af góðum vitnisburði um geimfarann! Ungmeimafélagsvínandi Borgarnesi, 8. júlt Ungmennafélagsandinn á Landsmótinu í Borgarnesi iitaðist áfengi í sumar og vakti ölvun, óspektir og ryskingar hneykslan margra skv. frétt blaðsins. „Ég var alveg gapandi hissa á þessu,“ sagði fram- kvæmdastjóri mótsins, Kristmar Olafsson. Vfsa þurfti hluta kepp- enda burt af mótssvæðinu og þótti íþróttafólk setja niður. „Gamla fólkið fór að gráta“ Ragnheiður Clausen sjónvarpsþula stóð í ströngu þegar gamla fólkið á elliheimilunum fór að gráta. Sjónvarpsþátturinn „Þorpið" var felldur niður þar sem framlengja þurfti einhvern körfuboltaleik. Skiptiborð Sjón- varpsins Iogaði vegna kvartana og þurfti _ . Ragnheiður að bregða sér í hlutverk sálfræð- Raanheiður Clausen. . ,. , , , , , ---------- íngs tu að lina kvalir landsmanna! KA varð /slandsmeistari i handbolta eftir hrikaiega spennandi úrslitakeppni og spádóma Þorleifs Ananíassonar um iiit gengi vegna Dags-Timans. Dags er sárt saknað DagiLr-Tímiim varö Dagur á árinu og KA varð íslandsmeistari en samhengið er öllum hulið. Nemahöfundi eftirminnilegasta les- endahréfs ársins. Maðurinn heitir Þorleifur Anan- íasson og blaðagrein hans: „Dags er sárt saknað," vakti mikla at- hygli. Þorleifur virtist kenna sameiningu Dags og Tímans um lélegt gengi KA (á þessum tíma- punkti) í handbolta og skrif hans um ritstjóra Dags-Tímans vöktu einnig lukku hjá mörgum: „Feng- inn var uppþornaður skemmti- kraftur úr Reykjavík til þess að ritstýra hinu nýja blaði og blanda þeim saman á einn hátt, þ.e.a.s að gera eitt blað úr tveim. Ekki vafðist blöndunin fyrir kappan- um, en hún varð þó í sömu hlut- föllum og „róni“ myndi blanda vodka í kók þar sem vodkinn samsvaraði Tímanum." Fóru fjölmiðlarýnar víða um land nú að fylgjast grannt með hand- bolta. Fylgst með KA A ritstjórn Dags (-Tímans) varð mikill léttir þegar KA varð Is- landsmeistari eftir eina mest spennandi úrslitakeppni síðustu ára. Kóngur bæjarins, Alfreð Gíslason þjálfari, hvarf til sams konar starfa í Þýskalandi, en ör- Iög blaðsins og Þorleifs Ananías- sonar voru fráleitt ráðin. Um sumarið voru flokksblöðin Al- þýðublaðið og Vikublaðið lögð niður og gert samkomulag um að efla Dag-Tímann, sem stytti nafn sitt í DAG. Dags var samt sakn- að því Þorleifur gerðist íþrótta- fréttamaður á nýju blaði sem heitir Vikudagur. Þó virðist KA spila álíka vel og áður. Eyðilögöu sönnimar- gögn förbylgjuofni Rannsóknarlögregla ríkisins rannsakaði meinta spillingu á blóðsýnum sem send voru frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum á Þorláksmessu til Rannsókna- stofnunar Háskólans í lyfjafræði. Þegar blóðsýnin bárust Háskól- anum var búið að vinna á þeim skemmdarverk og að Iíkindum hafði þeim verið stungið í ör- bylgjuofn með þeim afleiðingum að þau urðu ónýt. Málið þótti mjög vandræðalegt fyrir Iögregl- una en alls komu fimm örbylgju- ofnar til greina á leiðinni frá lög- reglunni í Eyjum til rannsókna- stofunnar. Olvuðu ökumennirnir sluppu með skrekkinn, ekki var hægt að svipta þá ökuleyfi, en talið var að þeir fengju sekt. Kvóti í sMlnaðarmáli Togari á sjó: „Sameign" eða forréttindi? Kvótamálið er deilumál ársins og nú komið inn í hjónaherbergin. „Sameign þjóðarinn- ar“ var hitbein ársins. Harðar deilur um kvótann, líka í skiln- aðarmálum. 5. september Dagur-Tíminn reið á vaðið í haust með fyrstu fréttir af skiln- aðarmáli þar sem eiginkona út- gerðarmanns gerir 130 milljóna króna kröfu í fiskveiðikvóta. Hún krafðist 50% kvótans og var um algjört einsdæmi að ræða á ís- landi. Ólafur Birgir Arnason hrl. sagði í viðtali við blaðið að þetta dæmi sýndi að litið væri á fisk- veiðikvótann sem eign. Allur kvóti landsmanna er talinn jafn- virði 150 milljarða króna. Pólitíkin líka Kvótamálið var líka rökrætt af hita í öllum málstofum og fjöl- miðlum landsins. Helstu and- stæðingar tóku dæmi af því að „sameign þjóðarinnar" væri að færast á færri hendur og verða eignarígildi útgerðarmanna. Krafa um útboð, leigu, veiðigjald eða einhvers konar leið til að ná „afrakstrinum af auðlindinni til þjóðarinnar" verður háværari. A móti er bent á að arðsemi í sjáv- arútvegi hafi aldrei verið meiri, vegna kvótakerfisins, en atvinnu- vegurinn standi ekki undir frek- ari álögum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.