Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 16

Dagur - 31.12.1997, Blaðsíða 16
32-MIDVIKUDAGUR 31.DESEMBER 1997 Thgf*r VIÐ ÁRAMÓT k. a Enn skortir á vilja rádamanna til virkra aðgerða til að breyta því hugarfari, sem ræður iaunamisrétti kynjanna, “ segir Kristin Haiidórsdóttir m.a. í grein sinni. Þrátt fyrir jákvæða þróun er hins vegar rík ástæða til að ótt- ast afturför, ef Kvennalistinn verður ekki lengur sjálfstætt framhoðsafl. Spor til framtíðar KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR þingkona Kvennaiistans skrifar Kvennalistinn kom eins og hres- sandi gustur inn í staðnaða stjórnmálaumræðu fyrir hálfum öðrum áratug og hefur haft áhrif langt umfram kosningafylgi. Við getum horft stoltar um öxl, þegar við metum áhrifin af þessu djarfa tiltæki. Þau lýsa sér meðal ann- ars í fjölgun kvenna á sviði stjórnmálanna og víðar, þar sem ráðum er ráðið, þau lýsa sér m.a. í breyttri umræðu með auknum áherslum á réttindi kvenna, og þau koma fram í ýmsum úrbót- um á því sviði. Enn er þó margt óunnið, og áhyggjur af breyttri varðstöðu lita umræðuna í okkar röðum. Umbrotin innan Kvenna- listans á þessu ári hafa ekki farið fram hjá landsmönnum. Þau stafa ekki af ágreiningi um mál- efni eða áherslur, heldur um leiðir að settu marki. Urslit þeirr- ar umræðu ráðast á næsta ári. Þokast í launabaráttunni Fáir einstakir atburðir Iiðins árs rísa upp úr sem vörður á vegi baráttunnar til raunverulegs kvenfrelsis og jafnrar stöðu kynj- anna. Hins vegar er ýmislegt að gerast, sem vonandi markar spor til framtíðar i þeim efnum. Konur hafa sótt rétt sinn af mikilli einurð í kjaradeilum und- anfarin ár, og á liðnu ári hafa ýmsir starfshópar, þar sem konur eru fjölmennar, náð athyglisverð- um árangri í launabaráttu. Þar má telja ýmsar heilbrigðisstéttir og kennara, sem fengu hlutfalls- lega meiri launahækkanir en flestir aðrir, þótt enn séu laun þeirra Iangt frá því að vera í sam- ræmi við mikilvægi starfanna. Enn skortir á vilja ráðamanna til virkra aðgerða til að breyta því hugarfari, sem ræður launamis- rétti kynjanna. Fjárhagslegt sjálfstæði er ein af mikilvægustu forsendunum fyrir frelsi og möguleikum kvenna til að ráða sínu lífi. Því þarf enn að sækja fast fram á því sviði. Lítið en nukilvægt skref Baráttan gegn ofbeldi gagnvart konum og börnum fékk verðuga athygli fyrri hluta árs, þegar nokkur félagasamtök ásamt kon- um úr flestum stjórnmálaöflum efndu til vikulegra málþinga um hin jhnsu birtingarform ofbeldis. Skömmu síðar fékk tillaga Kvennalistans um aðgerðir f þeim efnum jákvæða afgreiðslu á Alþingi. Nefndir eru nú að störf- um til að vinna að úrbótum, og á fjárlögum næsta árs er sérmerkt framlag til rannsókna á dómum í málum af þessu tagi. Mikilvæg hreyfing komst á bar- áttuna fyrir bættu fyrirkomulagi Þau stafa ekki af ágremingi um mál- efni eða áherslur, heldur um leiðir að settu marki. Úrslit þeirrar umræðu ráð- ast á uæsta ári. fæðingarorlofs, þegar ríldsstjórn- in samþykkti að tryggja feðrum sjálfstæðan rétt til tveggja vikna launaðs leyfis vegna barnsfæð- ingar. Kvennalistinn hefur hins vegar sett fram mun metnaðar- fyllri tillögur um það efni í frum- varpi, sem nú er til umljöllunar á Alþingi. Hér er auðvitað fyrst og fremst um hagsmuni barns að ræða, en einnig mikilvægan lið í því að jafna ábyrgð foreldra og undirbyggja viðhorfsbreytingu til hlutverka kynjanna. Akvörðun ríkisstjórnarinnar er Iítið, en þýð- ingarmikið skref í þá átt. Töfraorðið samþætting Að öðru leyti hefur árið ein- kennst af leit að nýjum leiðum í baráttunni fyrir kvenfrelsi og jafnrétti, og þar hefur töfraorðið samþætting slegið í gegn. Með því er átt við að flétta beri jafn- réttisbaráttuna sem mest inn í alla þætti mannlegra samskipta, stjórnunar og hvers konar starf- semi í stað þess að afgreiða hana sem einhvers konar sérfyrirbæri og einkamál kvenna. I þessari út- færslu birtist stefna Kvennalist- ans í nýjum búningi og býður upp á ýmsa möguleika. I þeim anda hefur Alþingi nú til umfjöll- nar lagafrumvarp um skyldu ingmanna til að leggja mat á stöðu kynjanna í hverju einasta þjngmáli og hvaða áhrif sam- þýkkt þess gæti haft á þá stöðu. Einnig hafði Kvennalistinn frum- kvæði að tillögu um jafnréttis- fræðslu fyrir æðstu ráðamenn þjóðarinnar, sem Alþingi mun ræða á nýju ári. Vegna dætra okkar og sona Þá er gott til þess að vita, að þessi mál hafa ekki lengur hallæris- stimpil í augum ungs fólks, sem vill taka þátt í baráttunni á eigin forsendum. Stofnuð voru ný samtök ungs fólks um jafnréttis- mál á árinu, og Gróska hefur sett jafnrétti kynjanna ofarlega á blað í stefnumótun sinni. I hefð- bundnu flokkunum eru vaxandi kröfur um aukin áhrif kvenna, og verður fróðlegt að sjá árangurinn í komandi sveitarstjórnakosning- um. Þrátt fyrir jákvæða þróun er hins vegar rík ástæða til að óttast afturför, ef Kvennalistinn verður ekki Iengur sjálfstætt framboðs- afl. Engin aðgerð fyrr né síðar hefur ýtt jafn hressiíega við þró- un mála. Það eru hagsmunir samfélags- ins alls, að mismunandi reynsla kynjanna nýtist til jafns við úr- lausn mála. Vegna dætra okkar og sona og allra sem á eftir koma þarf að marka fleiri og dýpri spor til framtíðar á þessu sviði á næsta ári. Fyrir hönd Kvennalistans óska ég landsmönnum öllum árs og friðar og þakka samskiptin á liðnu ári.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.