Dagur - 31.12.1997, Síða 12
28 — MIÐVIKUDAGUR 31.DESEMBER 1997
ANNÁLL 1997
l
■ Ðíujur
Það er tími smárétt-
anna. Gamlárskvöld
og nýársnótt kalla
nefnilega á gimilega
ogfljótlega rétti sem
allirhafa ánægju afað
borða. Hérá eftireru
nokkrirréttirsem vert
erað mæla með á
þessu kvöldi.
I glæsilegri Veislubók Hagkaups
er að finna margar girnilegar
uppskriftir sem enginn verður
svikin af.
Osta- og skinku-
salat
6 dl brauðostur í teningum
2 dl skinkustrimlar
1 dl ólífur í bátum
'á rauð paprika, í teningum
'á græn paprika, í teningum
2 vorlaukar, í sneiðum
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 'á dl ólífuolía
2 msk. söxuð steinselja
Öllu er blandað saman. Gott er
að bera salatið fram með ristuðu
brauði.
Rækjuostatoppar
í böku
20 stk. smjördeigsbökur
200 g rækjur
110 g rækjusmurostur
salt og pipar
20 stk. stórar úthafsrækjur til
skrauts
1 dl alfa spírur til skrauts
ElIas Bj£g|4lason
'Rí - SÍMI 460 2000 - FAX 460 2060 - E-MAlL: hotel@kea.is
Þerrið rækjurnar og maukið í
matvinnsluvél ásamt rjómaostin-
um. Kryddið með salti og pipar.
Setjið í sprautpoka og sprautið
fallega toppa í bökurnar. Skreyt-
ið með rækjunum og baunaspír-
um.
Sniglar í hvítlauks-
sósu
16 stk. litlar smjördeigsbökur
16 stk. sniglar úr dós
50 g rifinn ostur
20-30 g hvítlaussmjör
Sósa:
'/ dl majones
1 msk. mjólk
1 msk. vatn
1 tsk. sykur
'á tsk. dijon sinnep
1 stk. hvítlauksgeiri, pressaður
1 stk. steinselja, þurrkuð
1 tsk. sítrónusafi
salt og pipar
Öllu er blandað saman og smá
sósa sett á botninn á hverri
böku. Sniglarnir eru pönnu-
steiktir upp úr hvítlaukssmjöri
og síðan er einn snigill settur í
hverja böku. Rifnum osti stráð
yfir og sett undir grill þar til ost-
urinn verður gullinn.
smáréttabók frá 1980 sem aldrei
klikkar.
Ostakubbar
Heilt franskbrauð, ósneitt
'/ bolli smjör
4 bollar óðalsostur
2 tsk. dill
1 tsk. Worcestersósa
1 msk. laukur, saxaður
2 egg, hrærð Iítillega
Skorpan er fjarlægð af brauðinu.
Brauðið er skorið í væna ten-
inga. Smjör og ostur er sett í
pott og brætt við vægan hita.
Dillið sett út í ostablönduna, þá
sósan og loks laukurinn. Næst
eru eggin sett út í og best að
berja það með handþeytara eða
pískara. Brauðteningunum er
dýft í ostablönduna og þeir þakt-
ir vel. Settir á bökunarplötu.
Bakaðir á 175°C hita í 10 mín.
áður en þeir eru bornir fram en
auðvelt er að geyma þá óbakaða
í frysti.
Innbakað brie
1 brie ostur
2 smjördeigsplötur
Deigið er flatt út, má ekki verða
of þunnt. Skorið í tvo hringi sem
ná vel rúmlega utan um ostinn.
Hann lagður ofan á annan
hringinn og hinn hringurinn
ofan á ostinn. Deiginu þrýst vel
niður meðfram ostinum og fal-
Iegt að skreyta með afgangs
deigi. Bakað á rúmlega 200°C
hita f 15-17 mín. Gott að strá
sesamfræjum yfir.
Gráðaostaídýfa
2 bollar hrein jógúrt
1 Iítill gráðaostur, skorinn smátt
1 tsk. Worcestersósa
1 msk. saxaður blaðlaukur
örlítill pipar
Allt hráefnið er hrært vel sam-
an. Idýfan er góð með græn-
meti.
Ostaídýfa
2 bollar kotasæla
1 bolli rifinn óðalsostur
'á bolli smátt skorinn gráðaostur
3 msk. majones
1 tsk. sinnep
3 vorlaukar, smátt saxaðir
örlítið salt og pipar
2 epli
2 perur
Allt hráefnið er hrært vel saman
og ídýfan er borin fram með epl-
um og perum sem skornar eru í
báta.
Hér eru nokkrir smáréttir úr
mynd: brink.