Dagur - 31.12.1997, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 31.DESEMBER 1997 - 35
ÍÞRÓTTAANNÁLL
Hvernig var íþróttaárið?
Þegar upp er staðið og litið um öxl: hvemig stóðu íþróttaintiiiiimir sig í baráttunui? Dagur fékk fjóra
fræðinga til að segja kost og löst á mönnunt og málefnum innan vaHar og spá í stöðuna.
Gott og slæmt
Jón Arnar Magnússon er án efa okkar
fremsti frjálsíþróttamaður og alhliða
íþróttamaður í dag. Jón Arnar náði 3.
sæti í tugþraut á Evrópumótinu inn-
anhús á þessu ári. Jón Arnar var val-
inn íþróttamaður ársins á síðasta ári
og margt er á döfinni hjá þessum
mikla kappa á komandi ári.
- Hvemig var árið 1997 í íþróttun-
um hér heima?
„Bæði gott og slæmt sem ég upp-
lifði sjálfur. Það er að sjálfsögðu 3.
sætið á Evrópumótinu innanhúss sem
situr hátt. Meiðslin á heimsmeistara-
mótinu utanhúss eru svo vonbrigði
sem seint gleymast. 3. sætið er nú
samt skemmtilegri minning. Kristinn
Björnsson fer nú Iíka ekki fram hjá
manni þessa dagana, gaman að sjá
hvað hann er að gera núna. Hann var
að vísu óheppinn nú síðast.“
- íþróttamaður ársins að þessu sinni?
„Þar skutuð þið mig nú alveg niður.
Þetta er alltaf erfitt að velja, hópar
hafa verið að standa sig vel sem og
einstaklingar og það er kannski ekki
mitt að dæma um það. Það verður
samt forvitnilegt að sjá niðurstöð-
una.“
- Komandi ár í íþróttunum?
„Það byrjar með stóru móti í janúar,
IR mótið sem verður í Laugardals-
höllinni og ég hlakka mlkið til. Stra\
helgina eftir það fer ég til Tallinn í
Eistlandi og keppi á móti þar og þetta
er svona aðdragandinn að Evrópu-
meistaramótinu. Það er kominn tími
til að standa sig þar og ég á harma að
hefna frá því síðast."
Verja titilinn
Erábært í Japan
Guðrfður Guðjónsdóttir spilaði og
þjálfaði handknattleik með Fram til
margra ára. Framstúlkur hafa ekki
náð sér á þessu ári en Guðríður kem-
ur ekki nálægt því. Guðríður kennir
nú íþróttir í Fjölbrautaskólanum við
Armúla.
- Hvernig leist þér á síðasta ár í ís-
lenskum íþróttum?
„Landsliðið í handknattleik og þeir-
ra frábæri árangur í Japan stendur
uppúr. Ég er kannski hlutdræg í því
máli, en er það ekki bara betra? Eg
veit ekki hvort maður eigi að nefna
Kristin Björnsson og árangur hans
upp á síðkastið. Það er rosalega skrýt-
ið að fá íslenskan skíðamann allt í
einu á verðlaunapall og það er að
sjálfsögðu frábært. Sundfólkið unga
hefur líka verið að standa sig vel á síð-
ustu mótum og gaman verður að
fylgjast með þeim í komandi framtíð."
- Iþróttamaður ársins að þínu mati?
„Er ekki kom-
inn tími á Geir
Sveinsson, fyrir-
liða hand-
boitalandsliðsins.
Hann er búinn að
standa sig vel í
gegnum árin og
var frábær í vor.“
- lþróttirnar á
næsta ári?
„Það er nú
erfitt að svara
þessu. Eigum við ekki bara að segja
að það sé kominn tími á að Stjarnan
vinni Islandsmeistaratitilinn í
kvennaboltanum. Þær hafa tapað fyr-
ir Haukunum síðustu tvö ár og von-
andi breyta þær þ\a. Síðan mætti
kannski nefna KR-ingana í fótboltan-
um en þeir vinna nú sennilega ekki,
en hver veit?“
Guðríður Guðjóns-
dóttir.
Körfuboltalands-
tiðið frábært
Einar Bollason
er einn af þeim
sem öllum dett-
ur í hug þegar
talað er um
körfubolta.
Hann hefur lýst
NBA boltanum
með stakri
snilld á Stöð 2
síðustu ár.
Hann hefur
einnig þjálfað mörg lið hér heima
með góðum árangri.
- Síðasta ár i íþróttunum hér heima?
„Eg verð nú að bytja á því að minn-
ast á frábært gengi íslenska körfu-
boltalandsliðsins á þessu ári. Við
komumst í Evrópukeppnina í fyrsta
sinn og síðan leikirnir í riðlakeppn-
inni sem hafa verið skemmtilegir og
kórónaðir með frábærri frammistöðu
gegn Króötum hér i Laugardalshöll-
inni. Eg verð líka að minnast á
Stjörnuhelgi NBA deildarinnar í
Cleveland, sem ég var svo heppinn að
verða vitni að. Þar voru 50 bestu
körfuboltamenn NBA deildarinnar
frá upphafi kynntir og var frábært að
hitta persónulega gömlu stjörnurnar.
Síðan eru að sjálfsögðu vonbrigðin
með mína menn í fótboltanum, KR-
ingana, en það hlýtur að fara að skána
á þeim bæ!“
- lþróttamaður ársins?
„Það koma nú þrír strax í hug. Jón
Arnar Magnússon stendur alltaf fyrir
sínu, Kristinn Björnsson er búinn að
vera mikið f umljöllun núna og svo
kannski Geir Sveinsson sem fyrirliði
íslenska landsliðsins í handknattleik."
- Næsta ár í íþróttunum?
„Það er nú pínulítill kvfði f mér
gagnvart íþróttunum á komandi ári og
þá á ég við erfiða fjárhagsstöðu félag-
anna hér heima. En ég held nú samt
að nýja árið verði mjög bjart og ég á
von á miklum framförum í íslenskum
körfubolta. Eg vona að bikar- og Is-
Iandsmeistarar í körfuboltanum fái að
taka þátt í Evrópukeppnum en þar
getur le>mst mikill peningur ef liðin
komast upp úr forkeppninni og upp í
fyrstu umferð."
Atli Hilmarsson
var ráðinn þjálf-
ari íslandsmeist-
ara KA í hand-
boltanum og tók
við af Alfreð
Gíslasyni sem
fór til Þýska-
lands. KA- liðið
tók á sig nýja
mynd og Atli og
strákarnir hans
hafa staðið sig
vel. Atli var einnig með landsliðinu í
handknattleik í heimsmeistarakeppn-
inni í Kumamoto fyrr á þessu ári.
- Hvernig var síðasta ár hér heima í
íþróttunum?
„Eg minnist nú strax Kumamoto.
Heimsmeistarakeppnin í handknatt-
leik ojg fimmta sætið sem við náðum
þar. Eg var með í þeirri för og allt í
kringum það var að sjálfsögðu frábært
og gleymist ekki. Það er líka vert að
minnast Kristins Björnssonar skíða-
manns sem er að standa sig vel þessa
dagana. Síðan tók ég við KA- liðinu á
þessu ári og líður mér mjög vel þar.“
- Iþróttamaður ársins 1997?
„Eg verð nú að velja handknattleiks-
mann. Geir Sveinsson er náttúrulega
fyrirliði landsliðsins og myndi vera vel
að þeirri nafnbót kominn. Það er Iíka
kominn tfmi á það og vona ég að aðr-
ir séu sammála mér þar.“
- Komandi ár í íþróttunum hér
heima?
„Við í KA erum í góðri stöðu eins og
er, í öðru sæti og það er vonandi að
það gengi haldi áfram. Við ætlum að
komast sem lengst og langar mig til að
verja íslandsmeistaratitilinn með KA-
mönnunum. Síðan verður gaman að
taka þátt í Evrópukeppni meistaraliða
sem við byrjum árið á 4. janúar.“