Dagur - 10.06.1998, Qupperneq 1
BLAÐ
Verð ílausasölu 150 kr.
81. og 82. árgangur- 106. tölublað
Bj ami geimfari heiðurs-
gestur a Islandi 17. júní
Kanadíski geimfarinn
Bjami Tryggvason
verðux í lykilhlnt-
verki við athöfn í
Ráðhúsi Reykjavíkur
á 17. júní.
Von er á Bjarna Tryggvasyni
geimfara í 10 daga heimsókn til
Islands, en hann gerði garðinn
frægan í fyrra þegar hann fór
fyrstur Islendinga í ferð út í
geiminn. Bjarni telur sig reyndar
bæði vera Kanadabúa og Islend-
ing en hann hitti forseta Islands,
Olaf Ragnar Grímsson, að máli í
fyrra, og bauð þá forsetinn hon-
um opinberlega til Iandsins.
Bjarni tók vel í það og mun hann
verða sérstakur heiðursgestur á
hátíðarhöldunum 17. júní nk. í
Reykjavík, á þjóðhátíðardegi ís-
lendinga.
Bjarni er sem kunnugt er
kanadískur ríkisborgari en hefur
aldrei áður komið til Islands en
hann á ættir sínar að rekja til
Klaufabrekkna í Svarfaðardal.
Bjarni mun ásamt systur sinni
Nínu, sem verður með honum í
för í Islandsferðinni, fara norður
og heimsækja ættaróðal sitt og
munu ættingjar hans nyrðra,
sem eru fjölmennir, taka á móti
honum. Bjarni er sonur Svavars
Bjarni Tryggvason geimfari mun
ásamt systur sinni heimsækja
ættingja sina norðaniands.
Tryggvasonar sem var alinn upp
að Hnjúki í Skíðadal en fluttist
síðan til Isafjarðar og þaðan til
Kanada þar sem Bjarni er fædd-
ur.
Ekkert hefur opinberlega verið
gefið út ennþá um heimsókn
Bjarna, en Dagur hefur öruggar
heimildir fyrir því að efnt verði
m.a. til opinberrar móttöku í
Ráðhúsinu vegna komu Bjarna.
Gert er ráð fyrir að Bjarni sitji
messu í Dómkirkjunni 17. júní
en síðan myndi athöfn fyrir al-
menning og boðsgesti heljast í
Ráðhúsinu sem kynnt verður
sem „Hátíðardagskrá í Ráðhús-
inu“ í dagskrá 17. júní. Stefnt er
að því að Bjarni flytji ávarp í
Ráðhúsinu en með honum verða
að Iíkindum borgarstjóri, forsæt-
isráðherra, forseti Islands og
aðrir helstu ráðamenn.
Þá er gert ráð fyrir að farið
verði með Bjarna í heimsókn í
Höfða þar sem honum verði
sýndur vettvangur leiðtogafund-
arins frá árinu 1986 þegar Ron-
ald Reagan og Gorbachev áttu
tímamótafund sem var upphafið
að þíðu stórveldanna.
Skrifstofa forseta og borgar-
stjórnar hafa nú málið undir
höndum og eru að ráða ráðum
sínum. Ekki náðist í Bjarna í
gær, þar sem hann var á leiðinni
frá Kanada til New York. — BÞ
Vilja stofna
sjódóm
„Það eiga t.d. eldci aðilar í litlu
sjávarplássi að sitja andspænis
hvor öðrum og dæma og rann-
saka alvarleg sjóslys. Þess í stað
eiga að koma að slíkum málum
kunnáttumenn
sem koma ann-
ars staðar frá og
eru ekki í nein-
um tengslum
við viðkomandi,
eða alveg eins
og tíðkast með
rannsókn flug-
slysa," segir
Guðmundur
Hallvarðsson, formaður þing-
nefndar um úrbætur í öryggis-
málum sjómanna.
I skýrslu nefndarinnar sem
samgönguráðherra kynnti á
blaðamannafundi í gær eru m.a.
lagðar til ýmsar úrbætur í örygg-
ismálum sjómanna til að fækka
slysum og rannsaka orsakir
þeirra. Athygli vekur sú tillaga
nefndarinnar að gjörbreyta formi
sjóprófa. I þeim efnum er lagt til
að fimm sérfræðingar skipi sér-
stakan sjódóm sem rannsaki og
kalli til viðkomandi aðila ef um
alvarleg sjóslys er að ræða. I
þeim efnum skiptir ekki máli
hver heimahöfn viðkomandi
skips er.
Guðmundur
Hallvarðsson.
Nýr bæjarstjóri tók við lyklavöldum að bæjarstjóraskrifstofunni og Ráðhúsinu á Akureyri í gær. Jakob Björnsson
(t.v.j afhenti þá arftaka sínum, Kristjáni Þór Júlíussyni, lyklana sem hann hefur varðveitt síðustu fjögur árin. Jakob
segir óráðið hvað hann taki sér nú fyrir hendur annað en að vera bæjarfulltrúi framsóknar. Sjá einnig bls. 3.
mynd: brink
Land-
græðsluvél
nauðlendir
Betur fór en á horfðist þegar Páll
Sveinsson, flugvél Landgræðsl-
unnar, nauðlenti á Selfossflug-
velli síðdegis í gær. Fjórir menn
sluppu ómeiddir en kviknað
hafði í hægri hreyfli vélarinnar
og hann bráðnað ásamt hlíf. Vél-
in var þá stödd nálægt Selfossi
og var ákveðið að reyna nauð-
Iendingu þar.
Nauðlendingin tókst vel en
flugstjórinn sveigði vélinni út af
brautinni til hægri þannig að vél-
in endaði út í móum við braut-
ina. Ekki var talið þorandi annað
en að sveigja vélinni út af braut,
þar sem ekki var hægt að stöðva
hana með öðrum hætti og stutt
eftir að enda brautarinnar og þar
með niður halla og í Ölfusá.
Aðeins munaði um 50 metrum
að vélin færi í ána.
Vélin skemmdist ekki í nauð-
lendingunni og eru einu
skemmdirnar í hreyflinum sjálf-
um og hlíf utan um hann. Eldur-
inn var svo til slökknaður þegar
vélin var lent en slökkviliðsmenn
tæmdu úr tveimur slökkvitækj-
um til öryggis. Vélin er af gerð-
inni Douglas DC-3, oft kölluð
Þristurinn.
1
|WIIL01 Neysluvntns Jælur 1 Perfectao slNÐRl yj
FJÓRFALDUR 1. VINNINGUR -sterkur í verki
t