Dagur - 10.06.1998, Side 2
2 - M IÐ V IK U DAG U R JO.JVNÍ 1998
Tkyptr
FRÉTTJR
Ratcliffe varaformaður og Cornell yfirdýralæknir Free l/Villy samtakanna á fundinum með forsætisráðherra og umhverfisráðherra,
Halli Hallssyni og Albert Jónssyni í gærdag. mynd: hilmar þór.
Keikó leikur listir sínar
á Eskifirði eða í Eyjiun
Keikó kemur til íslands í
haust. í kriugum liaim
munu 10 til 12 starfs-
menu hafa vidurværi sitt.
Flutniuguriuu kostar um
150 milljónir og hvalur-
iuu er matvaudur og vill
lax.
Nokkur hundruð kíló af hvalkjöti hafa
verið á borðum ríkisstjórnarinnar und-
anfarna daga. I kjölfarið hefur háhyrn-
ingurinn Keikó fengið einskonar vega-
bréf sem tveir ráðherrar ríkisstjórnar-
innar afhentu fulltrúum Free Willy-
Keiko Foundation í gærdag. Flutning-
ur frægasta hvals veraldar er heimilað-
ur. Það var Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra sem afhenti Robert Ratcliffe
varaformanni bandarísku samtakanna
heimildina við stutta athöfn í Ráð-
herrabústaðnum í gærdag.
Keikó kemur trúlega í september
næstkomandi. Hann flýgur í einkaflug-
FRÉTTAVIÐTALIÐ
vél og verður fluttur eftir kúnstarinnar
reglum. Búr hvalsins kemur í nokkrum
pörtum og verður sett upp hér á landi.
Dýralæknir hans í Bandaríkjunum
sagði blaðamanni í gær að Keikó hefði
komið til New Haven í kaldara vatn en
var í Flórída. Hvalurinn mun vera
nærri tuttugu ára, en Cornell dýra-
læknir segir að meðalaldur háhyrnings
sé um 30 ár. Hann telur ekkert benda
til annars en að vel fari um Keikó í ís-
lenskum sjó, þar sem hann óx upp og
fátt því til fyrirstöðu að Keikó mundi
Ieika listir sínar áfram hér á landi.
Hallur Hallsson, umboðsmaður
bandarísku samtakanna, sagði að í dag,
miðvikudag, mundu Bandaríkjamenn-
irnir fljúga til Vestmannaeyja og Eski-
Ijarðar til að skoða aðstöðuna í þeim
bæjum. Ljóst er að mikill spenningur
er ríkjandi á báðum þessum stöðum.
Arngrímur Blöndahl, fráfarandi bæj-
arstjóri á Eskifirði, sagði í gær að beð-
ið væri komu bandarísku gestanna sem
koma í dag og skoða sig um. Þeir
stoppa í nokkra klukkutíma á Eskifirði
og sama er að segja um Eyjar. Stjórnar-
fundur í Free Willy Foundation mun á
næstunni velja á milli: Eyjar eða Eski-
fjörður. Ostaðfestar fregnir segja að
Eskiíjörður sé í raun staðurinn.
Bæjarfélögin tvö hafa Iitlar upplýs-
ingar um hvað framundan er. Mikið
undirbúningsstarf þarf hins vegar að
vinna á stuttum tíma hjá þeim sem
hreppir hnossið. Menn tala um að
Keikó muni þurfa 10-12 starfsmenn.
Meðal þeirra verður þjálfari hans, sem
hefur verið lengi með honum og fóðr-
að hann með góðgæti úr lófa sínum.
Einkum mun það Iax sem dýrið er sólg-
ið í, allmörg kíló á dag.
Free Willy-Keiko Foundation hefur
safnað miklu fé til að frelsa Keikó úr
vatnsbúri sínu í New Haven í Banda-
ríkjunum. Á fundinum í gær var því
ekki svarað hversu mikið fé safnaðist, -
en gert er ráð fyrir að flutningur
Keikós til átthaganna í norðri muni
kosta um 150 milljónir króna. Ráð-
herrar sögðu í gær að þeir vildu ekki
leggja mat á hvað væri siðlegt og hvað
ekld í þessum efnum. En ljóst er að
sumt kjöt er heilagra en annað í
Bandaríkjunum, mesta kjötætusamfé-
Iagi veraldar. -JBP
í hcita pottinum í gær var
upplýst að andrúmsloftið á Ríkis-
útvarpinu væri enn lævi blandið
eftir ávirðingarnar sein bornar
voru á starfsmcnn fréttastofu Sjón-
varps á dögunum. Margir munu
vera þeirrar skoðunar að eðlilegt
væri að fara með unmiæli forsæt-
isráðherra og flciri eitthvað lengra, jafnvel að
kanna lagalega stöðu starfsmanna. Þeir hinir
sömu eru sagðir hafa orðið íýrir miklum von-
brigðuin með viðbrögð Markúsar Amar Antons-
sonar og hugmyndir hans um sérstaka könn-
Markús Örn
Antonsson.
un....
Þá eru starfsmenn hjá RÚV ekki
síður forvitnir að fá upplýsingar
um hvaða fréttamenn það eru sem
kvörtuðu undan vhistri slagsíðu
við sjálfan forsætisráðherra, en
skilja mátti orð Davlðs Oddssonar
þannig að einhverjir fréttamenn
hefðu komið að máli við hann.
Þykir mönnum það með ólíkindum ef menn
kvarti undan slíku við sjálfan forsætisráð-
herrall...
Davið
Oddsson.
Gísli Mart-
einn Bald-
ursson.
En í fyrrakvöld sáu inenn gagn-
merkan þátt Gísla Marteins Bald-
urssonar um höfundarrétt en pott-
verjar fullyrða að þeim þætti hafi
hvað eftir annað verið frestað
vegna yfirvofandi kosninga.
Ástæðan? Jú, talað var við sex
menn: Bjöm Bjamason, ráðherra
Sjálfstæðisflokks; Eyþór Amalds,
frambjóðanda Sjálfstæðisflokks; Knút Braun,
frambjóðanda Sjálfstæðisflokks í Hveragerði;
Andrés Magnússon, yfirlýstan sjálfstæðismann
og bróður Kjartans Magnússonar, sem var í bar-
áttusæti sjálfstæðismanna í Reykjavlk, og síðan
er Gísli Marteinn sjálfur vitaskuld vel þekktur
sjálfstæðismaður....
Sigríður
Bjömsdóttir
séifræðingur í
hrossasjúkdómum.
Yfirdýrálæknir hefur
ákveðit) að fella úrgildi út-
flutningsbann á hrossum,
enda hefur Evrópusamband-
ið ákveðið að taka við hross-
um héðan.
Bjartnr dagur í hrossarækt
- Verður útflutningur nú heimilaður af
öllu landinu?
„Já, en það verður farið eftir ákveðnum
reglum og eftirliti. Við höfum verið að rinna
að fyrirkomulagi sem á að tryggja að hvorki
smitberar né veik hross verði flutt út. Það er
lykilatriðið í þessu.“
- Hvernig er það hægt?
„Það getum við með því í fyrsta lagi að
velja aðeins til útflutnings hross sem ekki
hafa verið sjálf veik eða innan um veik hross
í a.m.k. 4 vikur. Því til viðbótar eru þau svo
höfð í 10 daga sóttkví hér heirna."
- Getur útflutningur hafist strox?
„Já. Við munum setja reglugerð upp úr
helginni en menn geta strax farið að velja
hross o.s.frv. Við eigum reyndar eftir að
finna betur út hvaða staðir verða notaðir til
að geyma hrossin í samráði við útflytjendur
en sú vinna er hafin."
- Hvað veldur þessari afstöðuhreytingu
hjá Evrópusambandinu?
„Við höfum unnið mjög lengi að rann-
sóknum, ekki síst faraldsfræðilega, og höf-
um komið ítarlegum gögnum frá okkur um
þetta. Ekki síður hafa svo komið fram mjög
ákveðnar vísbendingar um hvaða veira veld-
ur veikinni. Hún er okkur tiltölulega hag-
stæð ef svo má að orði komast."
- Er hún þelikt?
„Já, hún er það í eðli sínu en mjög lítið
rannsökuð. Hún er talin vera mjög útbreidd
en veldur sjaldan sjúkdómum."
- Áttu nafit á hana?
„Það má kalla hana Entero-veiru.“
- Hve lengi hefur útflutningur legið
niðri?
„Frá miðjum febrúar. Þetta eru að verða
fjórir mánuðir."
- Hafa markaðir skaðast á þessuni tíma?
„Það held ég örugglega já, án þess að ég
sé rétta manneskjan til að svara því. Við
vonum að kaupendurnir hafi haldið ró sinni
og nú færist aftur líf í útflutninginn."
- Hvað þýðir þetta fyrir landsmótið?
„Við erum ákaflega ánægð með að þetta
hafi gengið í gegn núna fyrir Iandsmótið.
Það er mjög gott í markaðslegu tilliti og
þetta er mjög jákvætt fyrir mótið og móts-
haldara."
- Hvað er að frétta af útbreiðslu
veirunnar?
„Hún er lítil eins og er. Reyndar kom upp
nýtt tilfelli í Dölunum í þessari viku en
þetta eru örfá tilfelli eins og er. Það er Iíka
mikilvægt í þessu samhengi. Nú er kominn
sá árstími að stór hluti hryssna hefur kastað
og hrossin virðast þola þetta vel. Það er líka
gott til þess að vita fyrir hrossaræktendur að
þótt veikin komi upp er aðeins um að ræða
mánaðarstopp í útflutningi. Síðan er hægt
að selja aftur.“
- Er enn aðeins vitað um tvo „sýkta“ bæi
í Skagafirði?
„Já svo óyggjandi sé.“
- Hve mörg hross hafa drepist eóa skað-
ast vegna lirossasóttarinnar?
„Það hefur verið á bilinu 1-2 prómill. Þau
sem drepast hafa drepist úr fylgikvillum.
Mörg fengu líka læknishjálp og komust
þannig í gegnum þetta.“
- Líturðu svo á að framtíðin sé beinlín-
is björt seni stendur?
,Já, þetta er bjartur dagur í íslenskri
hrossarækt." — bþ