Dagur - 10.06.1998, Side 4
4 - MIÐVIK UDAGUR IO. JÚNÍ 1998
FRÉTTIR
Þrettan atviimiilausir útskrifast
Nýlega útskrifuðust 13 nemendur úr MFA-skólanum fyrir atvinnu-
Iausa á Sauðárkróki. Skólinn starfaði í 11 vikur og nú þegar hafa þrír
þátttakendanna fengið störf, nokkrir til viðbótar eru komnir með lof-
orð um vinnu og stefnir í að flestir þátttakendanna muni fá vinnu.
Ellefu fengu heiðursstvrki
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur veitt ellefu heiðursstyrki,
samtals 6 milljónir króna. Ferðafélag Islands og Caputhópurinn
hlutu eina milljón hvor. Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, Bókaútgáf-
an Bjartur og Sumartónleikar í Skálholti hlutu 500 þúsund krónur
en Islenska óperan, myndlistarkonan Rúrí, Bergljót Arnalds rithöf-
undur, Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndahöfundur og samtökin
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs hlutu 400 þúsund krónur hver.
Burt með kvótakerfið
Stjórn fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík samþykkti á
fundi sínum sl. mánudag, að vegna áþerandi umræðu að undanförnu
um gjafakvóta og veiðigjald, vilji fulltrúaráðið árétta að um árabil hafi
AJþýðuflokkurinn einn flokka boðað sem ófrávíkjanlega stefnu sína
að afnema gjafakvótakerfið og innleiða þess í stað greiðslur til þjóð-
arinnar fyrir afla af fiskimiðum hennar.
Sjálfsbiörg ályktar um kjaramál
29. þing Sjálfsbjargar, Iandssambands fatlaðra,
var haldið á Siglufirði 5.-7. júní. Um þessar
mundir eru liðin 40 ár frá því að fyrsta Sjálfs-
bjargarfélag landsins var stofnað á Siglufirði
fyrir tilstuðlan Sigursveins D. Kristinssonar. A
þinginu var samþykkt kjaramálaályktun þar
sem þess er krafist að fatlaðir fái tækifæri til að
Iifa mannsæmandi lífi enda hafi ríkisstjórnin
undirgengist það með samþykkt mannréttinda-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að undanfömu
hafi kjör fatlaðra verið skert. Nú Iýsi ráðamenn
yfir batnandi hag og því kreíjist fatlaðir síns
skerfs af batanum.
Varaforseti ASÍ
gagnryniim
Hervar Gunnarsson, 1. varaforseti AI-
þýðusambandasins ávarpaði 86. þing
Alþjóða vinnumálastofnunarinnar
(ILO) í Genf sl. mánudag og gerði mik-
ilvægi þríhliða samninga aðila vinnu-
markaðarins og ríkisvaldsins að um-
ræðuefni. Hann sagði að því miður
væru dæmi þess að þetta samstarf sé
ekki alltaf virt í framkvæmd og nefndi
sérstaklega setningu vinnulöggjafar á
Islandi og aðgerðar- og afstöðuleysi
stjómvalda gagnvart ILO samþykktum.
Hervar hvatti til þess að ILO fylgdist
betur með framkvæmd þríhliða sam-
starfsins.
Jafnréttis- og fjölskyldumál
Miðstjórn ASI hefur samþykkt Qölskyldustefnu ASÍ um heilstætt
réttindakerfi foreldra. Þar er lögð áhersal á Ienginu fæðingarorlofs
bæði fyrir mæður og feður. Þess er krafist að greiðslur í fæðingar- og
foreldraorlofi skuli fara eftir heildarlaunum viðkomandi síðustu 12
mánuðina fyrir töku orlofs. ASI vill fá í lög rétt foreldra til að taka sér
leyfi frá störfum af fjölskylduástæðum vegna óviðráðanlegra ástæð-
na. - s.DÓR
Hervar Gunnarsson I. vara-
forseti ASÍ ræddi um gildi
þríhliða samninga.
Starfsáætlunin var kynnt fyrir blaðamönnum en í áætluninni er lögð áhersla á að hver einasti eigandi tölvubúnað-
ar beri ábyrgð á því að hann ráði við ártalið 2000.
2000- vandamálið
á upplýsingavef
Starfsáætlim gerð fyr-
ir næstu mánuði
vegna tölvubúnaðar
um aldamót.
Nefnd um 2000-vandamáIið,
sem fjármálaráðherra skipaði
fyrir mánuði hefur mótað starfs-
áætlun fyrir næstu mánuði.
Megináherslan er Iögð á það að
hver einasti eigandi tölvubúnað-
ar sem á einhvern hátt sýslar
með tíma beri ábyrgð á því að
hann ráði við ártalið 2000. Eig-
endur slíks búnaðar eru hvattir
til að ganga sem fyrst úr skugga
um það að hann sé 2000-sam-
hæfður, enda verði þeim mun
kostnaðarsamara og erfiðara að
grípa til aðgerða sem nær dregur
aldamótunum.
Upplýsingar að finna á ein-
um 2000-vef
Asamt Ríkiskaupum hefur
nefndin sett upp vef um 2000
vandamálið (http://2000.stjr.is).
Tilgangurinn er að safna saman
á einn stað upplýsingum um
lausnir í upplýsingakerfum og
tækjabúnaði á vandamálum sem
tengjast ártalinu 2000. A vefn-
um geta opinberar stofanir, fyrir-
tæki og almenningur með auð-
veldum hætti nálgast yfirlýsingar
sölu- og þjónustuaðila upplýs-
ingakerfa og tækjabúnaðar um
2000-hæfni og þannig auðveld-
að yfirferð á eigin kerfum og
búnaði. A vefnum eru líka teng-
ingar á aðra vefi þar sem enn
frekari upplýsingar er að finna
um 2000-vandann og hvernig
aðrar þjóðir eru að taka á hon-
um.
Orkan, fjarskiptin og féð
allra mikilvægast
Starfsáætlun nefndarinnar
skiptist í Ijóra þætti: Innviði, ríki
og sveitarfélög, fyrirtæld og félög
og síðan almenn atriði. Mikil-
vægastur þessara þátta eru „inn-
viðirnir", en undir þá falla þætt-
ir sem skipta sköpum um að inn-
viðir þjóðfélagsins gangi áfalla-
laust fyrir sig hvað varðar ártalið
2000 í tölvu- og tækjabúnaði.
Innviðirnir skiptast í þrennt:
Orku (framleiðslu og dreifingu á
raforku, heitu vatni, olíu og
bensíni), íjarskipti (útvarp, sjón-
varp og síma) og Qármuni (Qár-
máíastarfsemi og hvers konar
greiðslumiðlun). „Ef þessir þrír
þættir eru í lagi getur þjóðfélag-
ið gengið nokkuð snurðulaust
yfir aldamótin," sagði Haukur
Ingibergsson, formaður nefndar-
innar, sem mun meta þessi
vandamál og viðbrögð við þeim í
samráði við hagsmunasamtök og
fyrirtæki á hverju þessara sviða.
Varðandi ríki og sveitarfélög
miðast starf 2000-nefndarinnar
við að koma í veg fyrir að trufl-
anir verði á starfsemi opinberra
aðila vegna ártalsins 2000 í
tölvu- og tækjabúnaði. M.a. er
stefnt að þvi að Ríkiskaup end-
urtaki 2000 könnun sína meðal
ríkisstofnana í september í haust
og mars næsta vor. — HEi
Umferðanniðstöð
verði að flugstöð
Helgi Pétursson borg-
arlúlltrúi vill gera
Umferðarmiðstöðina
að flugstöð og að af-
greiðsla langferðabif-
reiða verði þar áfram.
Hann segir til vansa
hve lélegur aðbúnað-
ur fyrir innanlands-
farþega er í Reykja-
vík.
„Ég fagna því að sjálfsögðu að
menn skuli loks ætla að setja
peninga í að byggja Reykjavíkur-
flugvöll upp. Það fer um það bil
hálf milljón manna á ári um
þessa rottuskúra frá stríðsárun-
um, sem notaðir eru sem flug-
stöð. Þess vegna hef ég haldið
því fram lengi og legg til að húsi
Umferðarmiðstöðvarinnar verði
breytt í flugstöð. Afgreiðsla lang-
ferðabifreið-
anna getur ver-
ið þar áfram
Iíka. Segja má
að þessi hug-
mynd hafi legið
í salti á meðan
menn voru að
átta sig á því
hvað þyrfti að
gera fyrir flug-
völlinn en nú
þegar það hefur
verið ákveðið er sjálfsagt að viðra
hana,“ sagði Helgi Pétursson
borgarfulltrúi í samtali við Dag.
Helgi hefur lengi verið þeirrar
skoðunar að efla ætti og bæta á
allan hátt ReykjavíkurflugvöII og
segist afar ánægður með að
ákveðið hefur verið að veita til
hans 500 milljónum króna á
næstu 4 árum, eins og skýrt var
frá í Degi í gær.
Reykjavíkurflugvöllur hefur
setið eftir
Helgi bendir á varðandi þá hug-
mynd að breyta Umferðarmið-
stöðinni í flugstöð að þar sé um
vannýtt húsnæði að ræða og því
þyrfti ekkert að byggja við það
svo hægt væri að koma upp flug-
stöð. Sömuleiðis segir hann van-
nýtt landsvæði í kringum Um-
ferðarmiðstöðina til að byggja á
flughlöð og annað sem þarf og
að auki séu greiðar leiðir að hús-
inu.
„Það liggur fyrir að hjá því
verður ekki komist að koma upp
almennilegri flugstöð. Ég tel það
til hreinna vansa hvernig búið er
að farþegum í innanlandsfluginu
á Reykjavíkurflugvelli. A sama
tíma hafa risið upp nýjar og
glæsilegar flugstöðvar út um allt
land og nú er komið að Reykja-
vík,“ segir Helgi Pétursson.
Hann segist ekki vilja missa
æfinga- og ferjuflugið úr borg-
inni enda sé þjónusta við ferju-
flugið vaxandi atvinnugrein í
Reykjavík. — s.dór
Helgi Pétursson
borgarfulltrúi.