Dagur - 10.06.1998, Blaðsíða 5
MIDVIKUDAGUR ÍO.JÚNÍ 1998 - S
FRÉTTIR
Um 100 km imdir
sliflag í sumar
Á þessu ári eiga að fara 7,6 milljarðar til vegagerðar og viðhalds, samkvæmt vegaáætiun sem samþykkt hefur
verið á Alþingi. Samtals munu um það bil 100 km af vegum landsins verða lagðir varanlegu slitlagi í sumar.
Þingvallavegiir frá
Steingrímsstöð að
Gjábakkavegi imdir
varanlegt slitlag sem
og það sem eftir er af
Laugarvatnsvegi að
Geysi. Veitt er 7,6
milljörðum króua til
vegagerðar og við-
halds í ár.
„Þetta er ekki nákvæm tala en
um það bil 100 kílómetrar af
vegum landsins fara undir varan-
legt slitlag í sumar. Samkvæmt
vegaáætlun, sem samþykkt hefur
verið á Alþingi, er veitt 7,6 millj-
örðum króna samtals til vega-
gerðar og viðhalds á þessu ári,“
sagði Eymundur Runólfsson hjá
Vegagerðinni í samtali við Dag í
gær.
Hjá Vegagerðinni er unnið eft-
ir 5 ára áætlun og raunar er líka
til 12 ára áætlun. Eymundur var
beðinn um að segja frá því helsta
sem unnið verður að í ár. Hann
sagði að þar mætti fyrst nefna
Þingvallaveginn frá Steingríms-
stöð og upp á Gjábakkaveg. Þar á
að hefjast handa við að leggja
varanlegt slitlag og gert ráð fyrir
að verkinu ljúki á tveimur árum.
Þá er fjárveiting til að Ijúka við
að setja varanlegt slitlag á Laug-
arvatnsveg alveg að Geysi.
Vegagerð 1 Búlandshöfða
Eitt af stóru verkefnunum sem
hafist verður handa við í sumar
er vegagerð í Búlandshöfða, milli
Ólafsvíkur og Grundarfjarðar.
Þessi vegagerð er mikið og dýrt
verk og eru 500 milljónir áætlað-
ar í verkið sem á að Ijúka við á 3
árum.
Lokið verður við vegagerð
vestan við Búðardal, sem staðið
hefur yfir sl. 2 ár. Nær öll Ijár-
veiting til vegagerðar í Vest-
fjarðakjördæmi fer í veginn og
brúna yfir GilsQörð sem er á
lokastigi. Aðeins verður þó um
varanlega vegagerð í Djúpinu
aðallega nærri Ögri. Þá á að
ljúka varanlegri vegagerð á
Barðaströnd frá Brjánslæk að
Kleifaheiði á þessu og næsta ári.
Siglufj arðarleiðin
A Norðurlandi vestra verður að-
alverkið við Siglufjarðarveg frá
Hofsósi og til Siglufjarðar. Eftir
er að setja varanlegt slitlag á 20
km og á að Ijúka því á næstu 3
árum.
Ljúka á við að leggja varanlegt
slitlag á Fljótsheiði og er það
stærsta verkefnið í vegagerð á
Norðurlandi eystra ásamt vega-
og brúargerð við og yfir Fnjóská
en þ\'í verki á að Ijúka eftir 2 ár.
Miklar vegaframkvæmdir
verða í sumar við svo kallaða Há-
reksstaðaleið á Möðrudalsöræf-
um. Þá á að setja varanlegt slit-
lag á vegi fyrir ofan Egilsstaði við
Heiðarenda til Egilsstaða. I Suð-
ursveit er smá kafli á hringvegin-
um sem ekki er með varanlegu
slitlagi og úr því á að bæta í sum-
ar.
Eymundur sagði að byrjað yrði
á brúargerð á hringveginum en
þó verður ekki hafist handa af
fullum krafti við að bæta úr ein-
breiðum brúm á þjóðvegi 1 fyrr
en árið 2000. -s.DÓR
Svanhildur Árnadóttir, fulltrúi
D-lista.
Árdalsvík
til ömafna-
nefndar
Bæjarstjórn sameinaðs sveitarfé-
lags Arskógshrepps, Dalvíkur og
Svarfaðardals samþykkti í gær á
fyrsta fundi sínum á þessu kjör-
tímabili að vísa úrslitum kosn-
inga um nafn á hið nýja sveitar-
félag til umsagnar Örnefna-
nefndar. Nafnið Ardalsvík fékk
flest atkvæði eða 232, illu heilli
að sögn Svanhildar Arnadóttur
(D), en Víkurbyggð fékk 227 at-
kvæði.
„Eg er mjög ósátt \ið að þeir
sem kusu utan kjörfundar og
utan sveitarfélagsins, t.d. í
Reykjavík, fengu ekki að kjósa
um nafnið. Eg hef grun um að ef
þau atkvæði hefðu verið tekin
gild hefði niðurstaðan orðið
önnur. Félagsmálaráðuneytið var
búið að ákveða að það væri sveit-
arstjórnum í sjálfsvald sett hvort
þær leyfðu utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslu um nafn á sveit-
arfélagið og það var ákveðið án
þess að staflcrókur finnist um
samþykkt þess efnis innan sveit-
arstjórnanna þriggja. Það er full
ástæða til að upplýsa þetta svo
svona mistök endurtaki sig ekki.
Akvörðun yfirkjörstjórnar er víti
til varnaðar upp á seinni tíma,“
segir Svanhildur Arnadóttir. —GG
Kvótasala á ekkt að
vera gidlgerðarvél
Opinber
heimsókn
Herra Forné Molné for-
sætisráðherra Andorra
sem hér er staddur í opin-
berri heimsókn, kom til
Akureyrar í gær, eftir að
hafa skoðað sig um í Mý-
vatnssveit. Hann byrjaði
á að fara í Lystigarðinn,
en heimsótti síðan Verk-
menntaskólann stuttlega,
en þar sýndi Bernharð
Haraldsson skólameistari honum skólann. Þá fór forsætisráðherra
Andorra og fylgdarlið í skoðunarferð um bæinn í fylgd Arna Steinars
Jóhannssonar, garðyrkjustjóra, en í gærkvöld snæddu gestirnir kvöld-
verð í boði bæjarstjórnarinnar þar sem Davíð Oddsson og Astríður
Thorarenssen voru meðal gesta.
Forsætisráðherra Andorra og fylgdarlið
koma að hliði Lystigarðsins á Akureyri.
Nýtt aðalskipulag Garðabæjar
Samþykkt hefur verið nýtt aðaiskipulag fyrir Garðabæ og gildir það
til ársins 2015. Alls bárust 39 athugasemdir sem skipulagsnefnd og
bæjarstjórn hafa fjallað um.
Helsta breytingin frá fyrra aðalskipulagi er á sviði samgöngumála
og tengingu byggða. Vífilsstaðavegur er t.d. framlengdur til vesturs
frá Hafnarfjarðarvegi að Garðaholti á Alftanesi. Með því nást teng-
ingar við Grundir, Asa og Garðaholt án þess að farið sé út á stofn-
brautakerfið. Þá er Alftanesvegur settur í nýja legu frá Engidal að
Bessastaðahreppi og Hraunsholt eystra tengist Vífilsstaðavegi í fram-
tíðinni. Með því verður unnt að fækka tengingum \ið Hafnarfjarðar-
veg. Auk þess hafa samgöngumál íbúðasvæða við Urriðavatn verið
leyst. Þar fyrir utan hafa orðið allnokkrar breytingar á landnotkun á
Hraunsholti, Garðaholti, við Urriðavatn og Vífilsstaði. -GRH
„Verði áfram stuðst við fiskveiði-
stjórn sem byggir á framseljan-
Iegum veiðiréttindum af ein-
hverju tagi, sem auðvitað er ekk-
ert sjálfgefið, tel ég eðlilegast að
gera í grófum dráttum upptækan
allan sérstakan hagnað, eða sölu-
hagnað sem veiðiréttindunum
tengist. Það var aldrei, er ekki og
á ekki að vera markmiðið með
fiskveiðistjórnkerfi að búa til ein-
hverja gullgerðarvél fyrir hand-
hafa veiðiréttarins," sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður
Alþýðubandalagsins og formaður
sjávarútvegsnefndar Alþingis, í
Neskaupstað á sjómannadaginn.
Hann hafnaði hugmyndum
um auðlindaskatt „svo milljörð-
um eða milljarða tugum nemur"
Steingrímur J. Sigfússon.
á sjávarútveginn, en lagði
áherslu á mikilvægi þess að sett-
ar verði „sanngjarnar leikreglur"
um framsal á veiðirétti og eðli-
lega skattlagningu á söluhagnaði
afnotaréttarins eða veiðiheimild-
anna. „Sennilega er ekkert eitt
hagsmunamál jafn brýnt fyrir
sjávarútveginn sjálfan og að taka
á þeim málum með skynsamleg-
um hætti.“
Steingrímur hvatti forsvars-
menn sjávarútvegsins til að hafa
forystu um að taka á þessum
málum sjálfir. „Annars stefnir í
að upp úr sjóði og óánægjan með
lottóvinninga einstakra aðila
valdi því að kerfið í heild verði
hrópað af,“ sagði hann.
Loggan fagnar Stones
„Við fögnum alveg sérdeilis The
Rolling Stones í ágúst," segir
Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn, sem er einn af
íjölmörgum aðdáendum hljóm-
sveitarinnar.
Hann segir að komandi tón-
leikar muni hafa í för með sér
mjög mikla skipulagningu á sviði
öryggis- og umferðarmála, enda
viðbúið að tónleikagestir muni
skipta tugum þúsunda. Hinsveg-
ar sé ekkert farið að huga að allri
þeirri \innu sem fyrirsjáanleg er
vegna þess hvað stutt er um liðið
síðan tilkynnt var um komu
hljómsveitarinnar til landsins.
Það á aftur á móti ekki að verða
neitt vandmál fyrir lögregluna að
koma að því máli eins og öllu
öðru. -GRH