Dagur - 10.06.1998, Page 6
6 - MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefán jón hafstein
elIas snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu si, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Sfmar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritsijori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 KR. Á MÁNUÐl
Lausasöluverð: iso KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAV(K)563-1615 Ámundi Amundason
(AKUREYRD460-6191 G. Ómar Pélursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Simbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjav(K)
He imsmeistarakeppiiiii
í íyrsta lagi
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu er mikill menningarvið-
burður. Það eru stórmót í íþróttum að sönnu að jafnaði, en
knattspyrnan hefur sérstakt aðdráttarafl í öllum heimsálfum,
sem engin önnur íþrótt hefur. Beinar útsendingar í sjónvarpi
munu trylla lýð í strákofum Afríku, í fátækrahverfum Suður-
Ameríku, í olíufurstaveldum Arabíu og í hátæknivæddum
japönskum ljósleiðarabæjum; alls staðar verða leikir og lærðir
að spá í hreyfingar bestu knattspyrnumanna heims. Fólk um
alla veröld á í vændum mikla skemmtun þegar gladíatorar
boltans ganga til hringleikahússins.
í öðru lagi
Stórviðburðir á íþróttasviðinu - eins og þessir - eru stórir vegna
þess að þeir eru almenningseign. Það er mikilvægt að svona
mót séu sýnd í opinni dagskrá. Almenningur hefur rétt á því
að þeir sem keppa fyrir hönd lands og þjóðar komi fram þar
sem allir hafa aðgang að. Stórmótin sjálf myndu glata mikil-
fengleika sínum væru þau færð inn á lokaðar rásir með sér-
stöku áskriftargjaldi. Sameiginleg stefna Evrópuríkja hefur
verið að skilgreina stærstu viðburði sem almenningseign. Þó
svo að við Islendingar eigum ekki eigið lið í keppninni nú, er
rétt að Ríkisútvarpið sýni frá henni, og allir sitji við sama borð:
hver sem er, hvar á landi sem er. Við viljum vera með þegar
heimurinn stendur á öndinni.
í Jþriðjalagi
Hitt er satt að svo stórt mót er Ríkisútvarpinu í raun ofviða:
Tiltölulega veigalítil dagskrá á einni rás fer gjörsamlega í kaf í
boltaleikjum vikum saman. Það er eðlilegt að sá meirihluti
sem lítinn eða engan áhuga hefur á leikjunum bregðist við
með fýlu þegar Sjónvarpið er hertekið af boltabullum. Þetta
sýnir að við eigum að bregðast við með því að útvega RUV
fleiri leiðir til að koma á framfæri dagskrárefni en þá einu rás
sem það hefur. Tæknilega kann það markmið að vera innan
seilingar, en þá þarf mannlegur vilji að vera til staðar þegar á
rcynir' Stefán Jón Hafstein.
1 nafni bygginga-
nefndar
Garri ætlar að stilla sér upp
fyrir utan Valhöll í dag með
mótmælaskilti gegn Reykjavík-
urlistanum. Síðan ætlar hann
að segja sig úr flokknum og til-
kynna inngöngu í Sjálfstæðis-
flokkinn. Þetta á að verða
ótrúlega vandlætingarfull
stund þar sem Garri bendir á
að óþolandi sé að flokkarnir
sem standa að R-Iistanum fái
ekki meira vægi en raun ber
vitni og að það sé bara eitthvað
ókunnugt fólk sem
tekur öll öruggu sæt-
in frá góðum og
gegnum flokks-
mönnum. Garri ætl-
ar að kalla til allar
sjónvarpsstöðvarnar,
útvarpsstöðvarnar og
blöðin og lýsa þessu
yfir þar og rúsínan í
pylsuendanum verð-
ur þegar Garri til-
kynnir að hann hafi
ákveðið að ganga í
Sjálfstæðisflokkinn.
Samkomulag
Allt er þetta auðvitað háð þ\i'
að Garri nái samkomulagi við
Ingu Jónu um að hún muni
umbuna honum rfkulega fyrir
greiðann. Sæti í bygginga-
nefnd Reykjavikur er nokkuð
sem um árabil hefur heillað
Garra ómótstæðilega. Hins
vegar hefur tækifæri aldrei al-
mennilega gefist til að láta
þennan draum rætast. Garri
studdi þó Reykjavíkurlistann
síðast en var ekki umbunað
fyrir, enda var einhver Gunnar
Gissurarson þá um Ieið búinn
að taka þennan stól frá handa
sjálfum sér. Nú virðast
framsóknarmenn vera búnir
að planta einum af sínum
gæðingum í sætið og fer vel á
að sá gæðingur sé sjálfur
þekktur fyrir hestamennsku
sína. Garri fær hins vegar að
sitja óbættur hjá garði eins og
fyrri daginn, utan nefndarinn-
ar.
Varamannssætið
Síðasta vonin er að ná samn-
ingum við þá Valhallarmenn.
Garri gerir sér að
vísu grein fyrir að
samningsstaðan
hefði verið mun
betri ef hann hefði
talað við þá fyrr. Til
dæmis fyrir kosning-
arnar. Auðvitað
hefði verið sterkara
ef mótmælastaðan
og fjölmiðlafárið í
kringum úrsögn
Garra úr flokknum
og inngönguna í
Sjálfstæðisflokkinn hefði kom-
ið þegar kosningabaráttan stóð
sem hæst. Það má svo sem
viðurkenna það. En hvernig
átti Garri svo sem að vita að
nefndarsætið væri falt?! Það
var aldrei sagt neitt um það.
En úr því sem komið er verður
Garri að sætta sig við að kom-
ast kannski ekki í bygginga-
nefnd sem aðalmaður. En
mótmælastaða núna, eftir
kosningar, gæti kannski gefið
varamannssæti í bygginga-
nefndinni. Hver veit? Það er í
trausti þess og í nafni bygg-
inganefndarinnar, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn fær nýjan
liðsmann í dag! GARRI.
Gunnar Gíssurarson.
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
*-**'**' skrifar
Misrétti krókmakara
Landsbankamálið, laxveiðisukk-
uð, uppljóstranir Sverris Her-
mannssonar og eldri mál af sama
toga, s.s. brennivínskaup hæsta-
réttardómara á sínum tíma og
fleira og fleira, sanna enn og aft-
ur það sem flestir hafa reyndar
talið sig vita, að þeir maka krók-
inn sem til þess bafa aðstöðu.
I raun og veru eru þetta ekki
flókin mál og snúast ekki fyrst og
fremst um endurskoðaða árs-
reikninga, dagpeninga, laxveiði-
leyfi, frjálsleg framtöl o.s.frv.
Þarna er í raun ekki verið að
fjalla um þ'ármál og tölur skipta
ekki höfuðmáli. Málið snýst ein-
faldlega um mannlegt eðli.
ölið frítt
Bankastjórar, ráðherrar, dómar-
ar, þingmenn og forstjórar, sem
helst eru bendlaðir við margvís-
Iegt sukk og misnotkun á að-
stöðu, eru í sjálfu sér ekkert
öðruvísi en sauðsvartur almúg-
inn. Þeir eru í raun aðeins að
gera það sem okkur
öll dreymir um og
reynum stöðugt í að
komast, þ.e.a.s. að fá
mikið fyrir lítið eða
meira fyrir ekkert. Að
fá eitthvað gratís,
Iáta einhverja aðra
borga brúsann.
Við þekkjum þetta
af sjálfum okkur á
ýmsum stigum. Þeg-
ar við tryllumst á út-
sölum og kaupum
allt of mikið af því að
við höldum að við
séum að græða. Þeg-
ar við gleypum eins og fávitar við
kostaboðum á borð við tveir fyrir
einn og sönkum að okkur rusli
sem okkur vanhagar alls ekkert
um. Og þegar við lendum óvænt
og óverðskuldað í boðum á veg-
um fyrirtækja eða hins opinbera
þar sem ölið er frítt
og við drekkum og
drekkum þar til ölið
þrýtur og við liggjum
ælandi og afvelta,
einungis af því að
brennivínið var
ókeypis. Nú eða þeg-
ar við notum bil fyr-
irtækisins til að
skutlast hingað og
þangað í eigin þágu
eða hringjum prívat-
samtöl á vinnustað.
Misrétti til mis-
notkunar
Við sem sé notum og misnotum
aðstöðu okkar til að maka krók-
inn, skara eld að eigin köku, fá
eitthvað gratís, hvenær sem
tækifæri gefst.
I hugum okkar margra snúast
þessi mál fyrst og fremst um mis-
rétti til misnotkunar á aðstöðu.
Þeir sem hæst tróna í samfélag-
inu, þeir eiga kost á að misnota
sér aðstöðu sína í svo stórum stíl
að þeir græða hundruð þúsunda
eða milljónir. Við aftur á móti
fáum sjaldan tækifæri til mis-
notkunar á aðstöðu og þá í svo
smáum stíl, að á ársgrundvelli
skiptir þetta kannski í mesta lagi
nokkrum þúsundköllum.
Það er sem sé ekki eðlismunur
á okkur óbreyttum og toppunum
í samfélaginu, heldur stigsmun-
ur. En sá stigsmunur hleypur
kannski á nokkrum milljónum.
Og það er munur sem við getum
illa sætt okkur við.
Sverrir Hermannsson.
i óhav utv.'jti lil ‘lul'jfl mulGrnnjói i ugmiivibhlnv íuIiji; 6g mu Itt:
.D&pu-
Ætlar þú á tónleikana
með Rolling Stones?
Smári Geirsson
bæjaifulltrúi, Neskaupstað:
„Mig langar
alveg ofboðs-
lega, enda er
ég auðvitað
mikill aðdá-
andi hljóm-
sveitarinnar.
Það er hins-
vegar ekki al-
veg útséð
hvenær tónleikarnir verða, en
löngunin er til staðar. Maður fer
ekki á svona tónleika nema einu
sinni á ævinni og því skiptir
miðaverðið ekki stórmáli. Ég
held að fáir hafi átt von á því að
berja hetjurnar augum á klakan-
um og það í Sundahöfn."
Sigríöur Diina Kristmimds-
dóttir
dósent:
„Mig langar
alveg rosa-
lega, en það
getur verið
að ég verði
ekki á land-
inu ef tón-
leikarnir
verða 22.
ágúst. Eg
veit ekki hvort miðaverðið muni
hafa áhrif á afstöðu mína, en ég
hef ekki keypt mér miða á álíka
tónleika í ein 25 ár. Þar fyrir
utan er ekki sama hvað kostar
inn á tónleikana. Þótt ég sé af
þessari kynslóð þá hef ég alveg
komist af án þess að hlusta á
Stones í gegnum tíðina.“
Ari Skúlason
framkvæmdastjóri ASÍ:
„Já, það eru
sko alveg
hreinar línur
vegna þess
að ég er al-
veg gífurleg-
ur Stones
aðdáandi. Eg
sá þá í Kaup-
mannahöfn
síðast þegar þeir voru þar. Miða-
verðið mun ekki þvælast fyrir
mér í ljósi þess að ég hef farið er-
lendis til að sjá þá spila. Hins-
vegar vonast ég til þess að mið-
inn verði ekki svo dýr að ég geti
ekki boðið börnunum mínum
með.“
Simiia Borg
leikkona:
„Ég gæti vel
hugsað mér
það og miða-
verðið skiptir
þar litlu til
eða frá. Þótt
ég hafi verið
miklu meiri
Bítlaaðdá-
andi en
Stones á sínum tíma, þá yrði það
vafalaust mikil upplifun að sjá þá
í fyrsta skipti á tónleikum sem
þessum. Þannig að það er mikil
tilhlökkun í loftinu.11
nugötilil go tiú'j ,ióhJe g'jlináæ)
6n'J7 aliifí Jzgaa ttrjt rntaq mu