Dagur - 10.06.1998, Side 8
8- MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998
FRÉTTASKÝRING
Fótboltafárið fran
FRIÐRIK
ÞORGUÐ-
MUNDSSON
SKRIFAR
HM-æðið er brostið á.
Að vísu eru iiieim ekki
helteknir ennþá og
framleiðnin í þjóðfé-
laginu in uii að líkind-
um halda sér. En um-
ræðan er vaxandi og
Ronaldo er umtalað-
astur. Næsta mánuð-
inn mun æstur lýður-
inn setjast niður með
snakk, bjór og aðra
óhollustu í nafni heil-
hrigðrar íþróttaá-
stundunar.
Þegar Ronaldo, dýrasti fótbolta-
maður veraldar, gengur með
brasilískum félögum sínum inn á
franskt grasið í dag til að Ieika sér
með skosku tréhestunum hefur
hann vafalaust flest annað um að
hugsa en hvort íslenskt samfélag
sé á öðrum endanum. Ronaldo er
persónugervingur heimsmeistara-
keppninnar og er sagður bók-
haldslegt verðmæti upp á vel á
þriðja milljarð króna. Hver ein-
asta fjölskylda á Islandi þyrfti að
leggja fram yfir 30 þúsund krónur
til að geta keypt hann. Svo mikil
eru verðmæti hans og hans líka að
fótboltareglunum hefur verið
breytt til varnar þessum verðmæt-
um. Svo segir í reglum; hver sem
brýtur á verðmætunum aftan frá
(reynir að skemma vöruna) skal
brott rekast.
Það eru náttúrulega örgustu
ýkjur að segja að þjóðfélagið fari á
annan endann vegna heimsmeist-
arakeppninnar í fótbolta. Af sam-
tölum \ið talsmenn ófárra fyrir-
tækja að merkja er ekki búist við
miklum truflunum á vinnuferlinu
vegna Ieikja sem heíjast um nón-
bilið; framleiðnin ætti að halda
sér að mestu, að minnsta kosti
fram að úrslitaleikjunum. Þótt Is-
land verði seint talið agað samfé-
lag er búist við að vinnuaflið sinni
sínum skyldustörfum að deginum
til og trufli frekar fjölskyldulífið
yfir kvöldleikjunum. Eitthvað er
um að menn hafi skipulagt orlof
með tilliti til keppninnar, en þó
ekki þannig að til vandræða horfi.
Löggan er róleg og lítil sjón-
vörp uppseld
Kannski eru fangar landsins í
einna bestu aðstöðunni til að
fylgjast með herlegheitunum. Þeir
eru fæstir rígbundnir yfir skyldu-
störfum og á Litla-Hrauni hafa
allir fangar sjónvarp í klefum sín-
um.
Hvað segja laganna verðir um
viðbúnað vegna keppninnar? Þor-
grímur Guðmundsson á umferð-
ardeildinni í ReykjaHk gerði lítið
úr öllu saman. „Reynslan hefur
sýnt að það dregur úr umferðinni
meðan leikirnir eru í gangi, sér-
staklega þegar dregur að lokum
keppninnar. Og alltaf er eitthvað
um að menn séu að flýta sér heim
eða annað til að horfa á leiki og
Ienda í því að aka of hratt. En við
tókum 118 fyrir hraðakstur um
síðustu helgi og ætli góða veðrið
hafi ekki meiri áhrif en það hvort
fótboltaleikur sé að byrja í sjón-
varpinu,“ segir Þorgrímur. Hann
er sjálfur áhugasamur, þótt vinn-
an hafi forgang. „Eg held alltaf
með Norðurlandaliðunum og það
getur allt gerst. En það myndi
ekki koma mér á óvart þótt Brasil-
ía ynni þetta."
Til að horfa á leikina þarf gott
sjónvarp og víst er að sala á sjón-
varpstækjum hefur aukist gríðar-
lega mikið að undanförnu. En það
er ekki endilega vegna HM. „Það
hefur verið miklu meiri sala á
sjónvörpum en vanalega, en það
var fyrst og fremst vegna opnunar
nýrra verslana, Iækkandi verðlags
og aukinnar samkeppni. Þessi
mikla sala hefur haldist og erfitt
að tengja það við HM, en hins
vegar get ég bent þér á að undan-
farið höfum við selt mikið af inni-
loftnetum og
það er áreið-
anlega vegna
keppninnar.
Eins hefur
verið mikil
sala á 14 og 20
tommu tækj-
um og þar er
fólk áreiðan-
Iega að fá sér
aukatæki á
heimilið og
tæki á vinnu-
staðina, sjálf-
sagt oft vegna
keppninnar.
Það er ekki
mikið mál
núna þegar
tækin eru á al-
gjöru lágmarksverði," segir Eirík-
ur Haraldsson, sölumaður hjá
Sjónvarpsmarkaðinum.
Jón Steinar Gunn-
laugsson: Brasil-
íumenn leika frá-
bæra knattspyrnu
og eru frá öftustu
iínu til þeirrar
fremstu með
menn sem eru
engum iíkir.
Meö bjórkútana heim og í
vúmirna?
Reykjavíkurborg er einn fjöl-
mennasti vinnustaður Iandsins og
þar er ekki að merkja að uppi séu
fótur og fit. „Það eina sem ég verð
var við er að einhveijir starfsmenn
eru byrjaðir á getraunaleik um
hverjir sigra. Eg verð ekki var við
að starfsmenn hafi breytt orlofs-
dögum sínum, nema þá Magnús
Oskarsson, sem er farinn í fulla
vinnu við að fylgjast með keppn-
inni. En það má gera ráð fyrir því
að síðar meir komi leikir sem tru-
fla og þá fara menn kannski að
hliðra til hjá sér,“ segir Ólafur
Jónsson, upp-
lýsingafulltrúi
borgarinnar.
Hvað hafa
menn við
hendina þegar
horft er á HM-
leiki? Auðvitað
ó h o 11 u s t u ;
snakk, gos og
bjór. Enn er
ekki hægt að
tala um langar
biðraðir í rík-
inu. „Við verð-
um ekki varir
við nokkurn
skapaðan hlut
hér hvað
heimsmeist-
a r a m ó t i ð
Heigi Pétursson:
Ég horfi aldrei á
fótbolta og þó ég
ætti að bjarga lífi
mínu gæti ég ekki
sagt hvernig lín-
urnar leggjast í
þessu móti. Ég
læt þetta fara al-
gjörlega framhjá
mér.
snertir. Það eykst alltaf salan á
léttvíni og bjór um hásumarið, en
ég get ekki sagt að keppnin spili
þar inn í,“ segir Höskuldur Jóns-
son, forstjóri ATVR.
En nýr valkostur á bjórmark-
aðnum er almennt að sækja í sig
veðrið. Hjá Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni er boðið upp á
bjórdælur og kúta í heimahús og
fyrirtæki. „Það er erfitt að segja til
um hvernig
þetta mun þró-
ast, en við von-
umst vissulega
eftir auluiingu
í sölunni hjá
okkur," segir
Arnar Haukur
O t t e s e n ,
GuðmundurÁrni markaðsfull-
Stefánsson: Ætla trúi hjá Agli.
að gerast svo. .-Það gerist
djarfur að spá aHtaf þegar
vinum okkar og svona íþrótta-
fjandvinum Norð- kepprm eru í
mönnum titlinum. SanSb ínni
----------- og júlí eru
annamestu
tímarnir í þessu hjá okkur og vin-
sældir kútanna hafa vaxið ört. Það
er því erfitt að segja til um bein
áhrif HM á bjórsöluna," segir
Arnar.
A þriðja himdrað með miða
til Frakklands
Einar Sigurðsson, aðstoðarfor-
stjóri Flugleiða, segir í samtali við
Dag að fyrirtækið hafi bjargað
eitthvað á þriðja hundrað Islend-
ingum til Frakklands með miða á
HM-leiki. „Þetta eru hefðbundn-
ar pakkaferðir en með miða á mis-
munandi marga Ieiki. Sumir Iáta
einn leik duga, en þeir eru til sem
ætla á allt að 10 leiki og þá flaklta
um Frakkland í heilan mánuð,“
segir Einar. Sjálfur segist hann
fylgjast með
leikjum án
þess að um
trúarbrögð sé
að ræða hjá
sér.
„Eg reikna
með að slást
með í för ef
vinnufélagarn-
ir finna stóran
skjá. Ég held
ekki með
neinu sérstöku
liði, en ef eitt-
hvað er þá er
helst að maður
haldi með
E n g I a n d i,
enda fallegt að
halda með lít-
ilmagnanum," segir Einar.
Rétt fyrir þinglok urðu menn
varir við að þingmenn væru sumir
hverjir farnir að tala jafnmikið um
fótbolta og um heitustu landsmál-
in; menn eins og Lúðvík Bergvins-
son, Árni Mathiesen, Árni John-
sen, Hjálmar Árnason og Guð-
mundur Árni Stefánsson. Sá síð-
astnefndi segist ekki heltekinn af
HM. „En hjá drengjunum mínum
þremur er allt undirlagt og ég sé
fram á þaulsetur fyrir framan
sjónvarpið. Ég sé mína sæng út-
breidda í fleiri hundruð ldukku-
tíma,“ segir Guðmundur Arni.
Hann segist alltaf halda með
Norðurlandaþjóðunum og vonast
eftir góðum árangri Danmerkur
og Noregs. „Ég á ekki von á neinu
sérstöku hjá Brasilíu og ætla að
gerast svo djarfur að spá vinum
Einar Sigurðsson:
Ég held ekki með
neinu sérstöku
liði, en ef eitthvað
er þá er helst að
maður haldi með
Englandi, enda
fallegt að halda
með lítilmagnan-
um.
Ronaldo af Brasilíu; snillingur með verðmiða upp á þriðja milljarð króna, sagðui
hæfileika, sem hundruðir milljón.
okkar og Ijandvinum Norðmönn-
um titlinum.“
Brasilía hest en Danir leika
með hjartanu
Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
fræðingur er annálaður knatt-
spyrnuáhugamaður og hann seg-
ist hvarvetna verða var við mikinn
áhuga á HM. „Mér sýnist að mik-
il og góð kynning í sjónvarpinu
skili sér, auk þess sem vegur
knattspyrnunnar hefur farið ört
vaxandi. En brjálæðið er ekki byrj-
að enn,“ segir Jón Steinar, sem
spáir því að Brasilía verji titil sinn.
„Þeir leika frábæra knattspyrnu
og eru frá öftustu línu til þeirrar
fremstu með menn sem eru eng-
um líkir. Og frammi eru þeir með
þann frábæra sóknarmann Ron-
aldo, sem býr yfir feiknarlegum