Dagur - 10.06.1998, Blaðsíða 11
MIDVIKIJDAGUR 10. JÚNÍ 19 9 8 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Enn em að fmnast
mstir af þorpum
Börn í Afganistan. Læknar og hjálparstarfsmenn eiga í gífurlegum erfið-
leikum með að komast til þorpa og bæja á jarðskjálftasvæðinu, þar sem
brýn þörf er á aðstoð þeirra.
Meira en viku eftir að
jarðskjálftinn mikli
reið yfir bíða margir
Afganar enn eftir að-
stoð.
Þeir sem Iifðu af jarðskjálftann í
þorpinu Kol Darrah stóðu í
hnapp uppi á berangurslegri
hæð og litu yfir rústirnar af þorp-
inu þar sem þeir bjuggu áður en
jarðskjálftinn mikli í síðustu viku
olli því að allt þorpið, sem stóð á
klettasyllu í hrjóstrugri Ijallshlíð,
hrundi niður hlíðina.
Þær 50 fjölskyldur, sem
bjuggu í þorpinu, höfðu beðið í
sjö daga - matarlausar - eftir að
björgunarfólk rækist á þennan
afskekkta stað í fjallahéraðinu í
norðausturhluta Afganistans.
Þorpið þeirra var svo lítið og ein-
angrað að það var ekki komið á
nein kort þegar starfsmenn
hjálparstofnana flugu fyrst yfir
þetta hrjóstruga landslag í leit að
skemmdum eftir jarðskjálftann.
Þegar fyrsta aðstoðin barst
þangað loks með þyrlu á laugar-
daginn var átti leiðsögumaður-
inn, sem var heimamaður á þess-
um slóðum, í mestu erfiðleikum
með að finna rústirnar af þorp-
inu. Loks kom hann þó auga á
skærlitaða höfuðklúta þorps-
kvenna, þar sem þær sátu þétt
saman efst á fjallstoppi þar
skammt frá.
Óárennilegra landsvæði ekki
víðatil
10 þorpsbúar létu Iífið í jarð-
skjálftanum. Einn þorpsbúa,
Mohammad Marad, missti tvær
dætur sínar, 5 og 10 ára gamlar.
Hann sagðist hafa farið að heim-
an daginn sem jarðskjálftinn
varð til að kaupa hveiti í öðru
þorpi. A heimleið fann hann fyr-
ir skjálftanum en taldi hann ekki
hafa verið jafn afdrifaríkan og
raun var á. „Þegar ég kom heim
sá ég að allt þorpið var eyðilagt,"
sagði hann. „Eg sprakk næstum
þvf af sorg. Eg sá engan í þorp-
inu. Eg fann börnin mín tvö
dáin, þau höfðu kramist undir
húsinu.“
Sennilega er erfitt að finna á
jörðinni óárennilegra landsvæði
en Hintu Kush íjallgarðinn í
Afganistan. Ferðamenn, ævin-
týramenn og heilu hersveitirnar
hafa orðið að lúta í lægra haldi
fyrir þessum fjöllum um margra
alda skeið.
Heilli \'iku eftir að jarðskjálft-
inn reið yfir hafa starfsmenn al-
þjóðlegra hjálparstofnana ekki
náð að brjótast til nema um
þriðjungs af þeim 84 þorpum og
bæjum sem vitað er að hafi orð-
ið fyrir tjóni af völdum skjálft-
ans. Jarðskjálftinn mældist 6,9
stig á Richterkvarða og talið er
að hann hafi orðið um 5.000
manns að bana og tugur þús-
unda að auki hafi slasast. Þetta
er annar jarðskjálftinn af þessari
stærð sem ríður yfir þarna á
fimm mánuðum.
Fjallið klofnaði
Langsamlega flest þorpanna
liggja þannig að hjálparstarfs-
fólk kemst þangað einungis með
þyrlu. 34 þorp eða húsaþyrping-
ar eyðilögðust algerlega, og í 21
þorpi í viðbót er a.m.k. helming-
ur húsanna hruninn. Sá bær
sem verst varð úti hét Dashtak,
en þar létu 1.200 manns - um
fimmtungur þorpsbúa - lífið þeg-
ar fjaliið klofnaði hreinlega í
tvennt og stóð annar helmingur-
inn eftir en hinn hrundi niður
með þorpi og öllu saman.
„Við erum enn að finna ný
þorp sem eru ekki á neinum
kortum," sagði Rupert Colville,
talsmaður hjálparstarfs Samein-
uðu þjóðanna. „Við héldum að
jarðskjálftinn í febrúar væri
slæmur. En a.m.k. var þá hægt
að komast til þorpanna. Þessi
skjálfti olli fimm eða sex sinnum
meira tjóni." Talið er að um
2.300 manns hafi látið lífið í
stóra skjálftanum sem varð í
febrúar.
Barist um hvert sæti í
þyrluniun
Hjálparstarfið hefur verið erfitt
af ýmsum ástæðum, sem rekja
má bæði til manna og náttúru.
Þrálátt illviðri hefur valdið
skriðuföllum víða um svæðið og
gert það að verkum að þyrlurnar
þrjár og þær fáu flugvélar, sem til
umráða eru, hafa verið ónothæf-
ar dögum saman. Fyrirtækin
sem eiga þyrlurnar hafa Iíka
reynt að kreQa hjálparsamtök
um greiðslur, allt að 7000
bandaríska dollara á hverja
klukkustund fyrir notkun á þyrl-
unum. Sumar áhafnanna hafa
Iíka neitað að fljúga í Afganistan,
vegna þeirrar hættu sem stafar
af borgarastyijöldinni þar. Elds-
neyti skortir einnig sárlega og
brýn þörf væri á fleiri þyrlum.
Allt þetta gerir það að verkum að
mikil ringulreið hefur ríkt í
bækistöðvum hjálparsveitanna í
Feyzabad, rétt utan við jarð-
skjálftasvæðin, þar sem hjálpar-
starfsmenn, læknar og frétta-
menn berjast um hvert einasta
sæti.
„Það er komin meira en vika
frá því jarðskjálftinn varð og við
getum ekki komið læknasveitum
okkar á staðinn," sagði Panna
Erasmus, læknir sem starfar hjá
írsku hjálparsamtökunum Irish
Medical Emergency Relief
International. „Fólkið þarna úti
er slegið örvæntingu."
Reiði guðs, segja Talibanar
I Afganistan eru engin stjórnvöld
sem eru fær um að veita þjóðinni
nauðsynlega hjálp. Landið er tví-
klofið vegna borgarastyrjaldar
sem staðið hefur í sjö ár. Hinir
múslimsku Talibanar ráða yfir
80% landsins, en þó ekki fjalla-
héraðinu í norðaustri þar sem
jarðskjálftinn reið yfir. Leiðtogar
Talibana létu hafa það eftir sér
nú í vikunni að jarðskjálftarnir
tveir væru hefnd guðs, vegna
þess að íbúarnir hafi ekki viljað
ganga þeim á vald.
„I næstum því hverju einasta
Iandi, þar sem jarðskjálfti verður,
er til her og einhvers konar sam-
göngukerfi,“ sagði Colville frá
SÞ „Þetta er eini staðurinn þar
sem jafn gífurlegar náttúruham-
farir og utanaðkomandi stofnan-
ir og samtök þurfa að sinna nán-
ast öllu sem gera þarf. Endur-
uppbyggingin frá þvi fyrri skjálft-
inn reið yfir var ekki einu sinni
hafin.“
Washington Post
Jeltsín andvígur hem-
aðaríhlutun
Boris Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í
Þýskalandi í gær að hann væri andvígur er-
Iendri hernaðaríhlutun í Kosovo-héraði í
Júgóslavíu. Hann og Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, voru þó sammála um að koma
verði í veg fyrir frekari blóðsúthellingar í
Kosovo. Líklegt þykir að Rússar muni reyna
að beita pólitískum áhrifum sínum á ráða-
menn íjúgóslavíu.
Harðir hardagar miHi Eþíópa og
Erítrea
Þúsundir manna flýja nú frá bardagasvæðunum \áð landamæri
Eþíópíu og Erítreu. Fjölmargir hafa látist eða særst í bardögunum
sem staðið hafa yfir frá þvf í síðustu viku. Meira en 1.500 útlending-
ar hafa yfirgefið landið.
Gjaldmiðilsskiptin í Evrópu kosta
12.000 miUjarða
Fyrirtæki og stofnanir í aðildarríkjum Evrópusambandsins telja sig
þurfa að greiða samanlagt um 12.000 milljarða króna á næstu fimm
árum vegna þeirra breytinga sem verða þegar skipt verður um gjald-
miðil og sameiginleg mynt tekin upp. Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem töh'ufyrirtækið IBM lét gera. Könnunin náði til 12.000
framkvæmdastjóra, og töldu þeir að um þriðjungur fyrirtækja í Evr-
ópu hafi enn ekki gert nauðsynlegar ráðstafanir til undirbúnings
gjaldmiðilsskiptunum.
Boris Jeltsín.
Geislamenguu í írlandshafi
Umhverfisverndarsamtökin Greenpeace segja geislamengun af völd-
um endumnnslustöðvarinnar í Sellafield í Irlandshafi, sem er milli
Bretlands og Irlands, vera svo mikla að Ioka þyrfti fyrir alla umferð
um hafið. Geislamælingar hafa verið gerðar á sýnum úr botni ír-
landshafs, og mælist mengunin við endurvinnslustöðina mun meiri
en ráðlegt þykir.
NATO þyrfti ekki umhoð frá
Sameinuðu þjóðunum
Embættismenn NATO í Brússel sögðu í gær að NATO þyrfti ekki sér-
stakt umboð frá Sameinuðu þjóðunum til þess að grípa til hernaðar-
aðgerða í Kosovo-héraði, þótt vissulega væri æskilegra að slíkt umboð
væri fyrir hendi.
Þjóðaratkvæðagreiðsla
íIsrael?
Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Isra-
els, veltir því nú fyrir sér að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu þar sem ákvcðið verði hvort
frekari brottflutningur ísraelskra her-
manna verði frá Vesturbakkanum. Þjóðarat-
kvæðagreiðslan færi fram ef gerður yrði nýr
samningur við Palestínumenn, en Netanja-
hu telur ekki nóg að samþykkja slíkan
samning á þingi eins og þegar Oslóarsamn-
ingurinn var gerður, heldur þurfi samþykki
mikils meirihluta þjóðarinnar.
Air France hafnar tilhoði flugmauua
FRAKKLAND - Franska flugfélagið Air France hafnaði í gær tilboði
flugmanna félagsins, sem eru í verkfalli, um að fljúga kauplaust með
farþega sem hafa keypt sér miða á heimsmeistaramótið í fótbolta.
Mótið hefst í dag, en talsmenn flugfélagsins sögðu tilboð flugmanna
óframkvæmanlegt.
Ahuhakar tók við af Ahakha
NIGERIA - Yfirmaður herráðsins í Nígeríu, Abdusalam Abubakar,
var í gær valinn eftirmaður Abakhas hershöfðingja í forsetaembætt-
ið, en Abakha Iést óvænt á mánudag. Verulegur órói hefur ríkt í
Nígeríu undanfarna mánuði og stjórnarandstæðingar hafa hvatt til
fjöldamótmæla og vilja að lýðræði verði komið á í landinu.
Rasmusseu ræðir við
Færeyiuga
DANMÖRK - Viðræður Færeyinga og Dana
um bankamálið hófust í gær, og ræða fær-
eysku fulltrúarnir fyrst við Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra en síðan verða
frekari viðræður við Mogens Lykketoft fjár-
málaráðherra. Jafnframt bankamálinu verð-
ur samband Færeyja og Danmerkur einnig
til umræðu í þessum viðræðum. Færeyingar
vilja endurskoðun heimastjómarlaganna. Poú/ Nyrup Rasmussen.
Benjamin Netanjahu.