Dagur - 10.06.1998, Qupperneq 12
T
12-MIÐVIKUDAGUR ÍO.JÚNÍ 1998
Atvinna / smiðir
Vantar smiði til starfa.
Upplýsingar í síma 461 2603 eða
á skrifstofu.
HYRNA ehr
BYGGINGAVERKTAKI . TRÉSMIÐJA
Dalsbraut 1 ■ 600 Akureyri • Sími 461 2603 • Fax 461 2604
Að hvaða árangri er
stefnt í skólastarfi?
- Önnur ráðstefnan um gæðastarf í
menntakerfinu.
Haldin í Menntaskólanum á Akureyri 21.-22. ágúst 1998.
Skráning stendur yfir í síma 463 0900, fax 463 0999.
Nánari upplýsingar: sjá vefslóð http://ha-3.unak.is/~sigrun/rad-
stef.htm eða í síma 463 0520 / 463 0560.
Aðstandendur ráðstefnunnar eru Gæðastjórnunarfélag Norður-
lands, Háskólinn á Akureyri, Skólaþjónusta Eyþings, Menntaskól-
inn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Svæðisvinnumiðlun
Norðurlands eystra
Laust starf
Eftirfarandi starf hjá Svæðisvinnumiðlun
Norðuriands eystra er laust til umsóknar:
Starf ráðgjafa
Um er að ræða fullt framtíðarstarf sem felst m.a. í:
- að aðstoða atvinnuumsækjendur við atvinnuleit og
atvinnurekendur við að útvega hæft starfsfólk,
- að sjá til þess að atvinnulausir eigi kost á ráðgjöf
og úrræðum,
- að vinna að starfsleitaráætlunum með
atvinnuumsækjendum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi þekkingu á
vinnumarkaðnum og menntakerfinu, hafi góða hæfni til
mannlegra samskipta og góða skipulagshæfileika.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólanámi í náms-,
félags- eða starfsráðgjöf, kennaraprófi eða öðru
sambærilegu námi og/eða hafi víðtæka reynslu af þátt
töku á vinnumarkaðnum.
Laun eru skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og
starfsferil skal skila til Svæðisvinnumiðlunar
Norðurlands eystra, Glerárgötu 26, 600 Akureyri,
fyrir 23. júní 1998.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Helena Þ. Karlsdóttir,
forstöðumaður í síma 460 1470.
BELTIN 'tjjnð
ÍUMFERÐAR
RÁÐ
ÍÞRÓTTIR
600 tóku þátt í
Heilsuhlaupmu
Um sexhundruð manns tóku
þátt í Heilsuhlaupi Krabba-
meinsfélagsins, sem fram fór f
síðustu viku. Hlaupið fór fram á
sex stöðum á landinu og hlupu
40 manns á Egilsstöðum, 370 í
Reykjavík, 25 í Borgarnesi, 60 á
Hvammstanga, 90 í Rangárvalla-
sýslu (Hvolsvelli, Hellu og
Laugalandi) og 30 manns í
Reykjanesbæ.
Hlaupnir voru fimm og tíu
kílómetrar og urðu heildarúrslit
þau, að Daníel Smári Guð-
mundsson sigraði í fimm km, en
Ingólfur Geir Gissurarson í tíu
km. I kvennaflokki sigraði Rakel
Ingólfsdóttir í fimm km, en
Hafrún Friðriksdóttir í tíu km.
SteingríniiiT með þreirnu
Fjórtr síðustu leiMr
fiuuntu umferðar
Landssímadeildariim-
ar í knattspymu fóru
fram í gærkvöld.
Vestmannaeyingar fengu Valsara
í heimsókn og unnu Eyjamenn
stórsigur í leiknum, 6:1. Stein-
grímur Jóhannesson skoraði 3
mörk fyrir ÍBV og þeir Hlynur
Stefánsson, Sindri Grétarsson og
Ingi Sigurðsson eitt mark hver.
Jón Þ. Stefánsson skoraði mark
Vals.
A Akranesi fór fram leikur
Einar Þór Daníelsson átti gódan leik
með KR i gærkvöld.
Skagamanna gegn Grindvfking-
um. Skagamenn virðast nú loks-
ins komnir í gang og unnu leik-
inn 3:0 með mörkum Alexanders
Högnasonar, Sigurðar Eyjólfs-
sonar og Pálma Haraldssonar.
Keflvíkingar fengu Framara í
heimsókn og lauk þeim leik sigri
Keflvíkinga, 1:0. Markið skoraði
Þórarinn Kristjánsson eftir horn-
spyrnu í lok Ieiksins.
I Frostaskjóli léku KR og IR og
sigruðu KR-ingar sem sóttu lát-
laust í leiknum, 3:0. Mörkin
skoruðu Sigþór Júlíusson, Besim
Haxhiajdini og Guðmundur
Benediktsson.
Bjarkí kominn á skotskóna
Bjarki Giumlaugsson
skorar í öðrum lefkn-
um í röð. Helgi Sig-
urðsson átti mjög góð-
an leik og skoraði fyrir
Stabæk. Auðun Helga-
son er að ná sér aftur á
strik eftir meiðsli.
Molde, lið Bjarka Gunnlaugs-
sonar, skaust á topp norsku úr-
valsdeildarinnar í níundu um-
ferðinni þegar það burstaði
Válerenga 4:1 á heimavelli á
sunnudaginn. Bjarki átti góðan
leik, fékk fimm í einkunn og
skoraði annað mark Molde.
Brynjar Gunnarsson lék ekki
með Válerenga þar sem hann var
á ferð með íslenska landsliðinu,
eins og Ríkharður Daðason,
markahæsti Víkingurinn.
Misjafnt gengi íslensku
strákanna
Rúnar Kristinsson og félagar
hans í LiIIeström náðu sér ekkj á
strik, þegar þeir heimsóttu Sogn-
dal. Jafntefli, 2:2, varð niður-
staðan og Rúnar fékk einkunn-
ina þrjá fyrir sinn leik.
Tryggvi Guðmundsson náði
ekki að skora þegar Tromsö tap-
aði 2:3 fyrir Moss á útivelli. Það
var ekki dagur Tryggva á sunnu-
daginn og fékk hann aðeins þrjá
í einkunn og var skipt út af
snemma í seinni hálfleik.
Brann frá Bergen, sem spáð
var öðru til þriðja sæti norsku
deildarinnar í sumar, varð enn að
sætta sig við jafntefli, eftir að
hafa verið með unninn leik í
höndunum. Nú var það Hauga-
sund sem jafnaði, 2:2, eftir að
Brann hafði náð tveggja marka
forystu. Ágúst Gylfason kom inn
á ( upphafi seinni hálfleiks og
fékk fjóra í einkunn. Stórveldið
frá Bergen situr nú á botni deild-
arinnar með aðeins fjögur stig
eftir níu umferðir.
Auðun Helgason og Helgi Sig-
urðsson áttu báðir góðan leik fyr-
ir lið sín, Viking og Stabæk, er
þau mættust í Stavangri. Auðun
sem fékk fimm í einkunn gat þó
ekki komið í veg fyrir að Helgi
skoraði annað mark Stabæk með
glæsilegum hætti. Hann fékk
Ianga sendingu frá hægri kanti
inn á vítateig þar sem hann tók
frábærlega við boltanum, lagði
hann fyrir sig með vinstri fæti og
hamraði hann síðan í netið með
þeim hægri. Frábært mark og
Helgi fékk sex í einkunn. Þeim
var báðum skipt út af seint í
seinni hálfleik.
Molde komið á toppinn
Leikjum Rosenborgar gegn
Kongsvinger og Bodö/Glimt gegn
Strömgodset var frestað vegna
HM í Frakklandi þar sem Rosen-
borg og Strömgodset eiga nokkra
menn í norska landsliðshópnum.
Þegar tveir leikir eru eftir af um-
ferðinni er Molde komið á topp-
inn með 23 stig. Liðið hefur ekki
tapað leik og er með markatöl-
una 29:6. Rosenborg er í öðru
sætinu með 20 stig og leikinn við
Kongsvinger til góða. Víking og
Stabæk eru síðan í þriðja og
fjórða sæti. Á botninum sitja
Sogndal og Brann með Ijögur
stig, bæði lið án sigurs.
Ekkert verður leikið í norsku
úrvalsdeildinni fyrr en 1. júlí.