Dagur - 10.06.1998, Blaðsíða 13
MtÐVÍKUDAGUR l"0. J Ú NÍ 199 8 - tí
ÍÞRÓTTIR
FRAKKLAND98
Flautað til leiks í dag
Þá er komið að Jní sem
við höfum lengi heðið
eftir. HM í knatt-
spymu er að hefjast og
flautað verður til opn-
unarleihsins í París í
dag klukkan 15.30.
Eins og flestir vita eru
það Brasilínmenn og
Skotar sem hefja leik-
inn og er mikil spenna
í loftinu.
Þessi tvö lið Ieika mjög ólíka
knattspyrnu og eru Skotar þekkt-
ir fyrir frekar fastan leik, á með-
an Brasilíumenn Ieika með hjart-
anu, af mikilli innlifun. Þarna
mætast h'ka tveir ólíkir heimar,
þar sem Brassarnir alast upp
með boltann á skólausum tánum
á sandljörum Brasilíu. Þar er ef
til vill komin skýringin á tilfinn-
ingu þeirra fyrir boltanum og
þeirri einstöku leikni sem þeir
ráða yfir.
Nú er í fyrsta skipti leikið á
heimsmeistaramóti eftir hertum
leikreglum, þar sem dómurum er
uppálagt að taka harðar á gróf-
um brotum og tæklingum. Sam-
kvæmt þeim befur verið leikið í
undankeppninni, svo leikmenn
ættu að vera orðnir vanir breyt-
ingunum. Það þýðir að sóknar-
leikurinn verður opnari og mark-
vissari, sem ætti að nýtast vel,
léttleikandi liði eins og Brasilíu.
I fjölmiðlakönnunum undan-
farinna vika, hafa Brasilíumenn
komið best út allra liða og flestir
spá þeim sigri í keppninni. Um
önnur lið eru skiptar skoðanir og
hafa Frakkar, Englendingar, Ital-
ir og jafnvel Nígeríumenn verið
Ronaldo á að sjá um mörkin.
nefndir.
Islenskir sparkáhugamenn
munu fá keppnina svo að segja
beint í æð, en Bíkissjónvarpið
mun leggja sig fram um að sýna
sem flesta leiki keppninnar í
beinum útsendingum. Að sögn
Ingólfs Hannessonar, forstöðu-
manns íþróttadeildar, mun út-
sendingum, sem til að byrja með
hitta á fréttatíma Sjónvarpsins,
Calderwood á ad sjá um Ronaldo.
seinka um fimmtán mínútur í
seinni hálfleik. Hlé verður gert á
útsendingu og seinni hálfleikur
síðan sýndur fimmtán mínútum
á eftir venjulegum Ieiktíma.
Hefst útsending þá aftur um
klukkan 20.20, eftir fréttir. Þeg-
ar komið verður í sextán liða úr-
slitin verður fréttatími færður til
og Ieikir sýndir þráðbeint.
BRASILÍA A-riðiIl
NII NAFN STAÐA FÉLAGSLID ALDUR LEIKIR
1 Taffarel Mark At. Mineiro 31 94
2 Cafu Vörn AS Roma 27 64
3 Aldair Vörn AS Roma 32 64
4 Baiano Vörn Flamengo 27 16
5 Sampario Miðja Yokohama 30 32
6 Carlos Vörn Real Madrid 24 46
7 Giovanni Miðja Barcelona 26 14
8 Dunga Miðja Lubilo Iwata 34 83
9 Ronaldo Sókn Inter Milan 21 37
10 Rivaldo Miðja Coruna 26 10
11 Emerson Miðja B. Leverkusen 22 3
12 Germano Mark Vasco da Gama 27 9
13 Ze Carlos Vöm Sao Paulo 28 0
14 Gonsalves Vöm Botofoga 32 22
15 Cruz Vörn AC Milan 29 30
16 Ze Roberto Vörn Real Madrid 23 16
17 Doriva Miðja AC Milan 26 9
18 Harardo Miðja AC Milan 28 41
19 Denilson Miðja Sao Paulo 20 16
20 Bebeto Sókn Botofoga 34 67
21 Edmundo Sókn Vasco da Gama 27 28
22 Dida Mark Cruzeiro 24 8
1 Þjálfari: Mario Jorge Lobo Zagallo
15 sinnum tekið þátt í HM.
Heimsmeistarar fjórum sinnum: 1958, '62, '70 og '94
1 Númer 1 á heimslistanum.
SKOTLAND A-riðiIl
NR NAFN STAÐA FÉLAGSLIÐ ALDUR LEIKIR
1 lin Leiehton Mark Aberdeen 39 85
2 lachie McNamara Miðja Celtic 24 4
3 Tom Bovd Vöm Celtic 32 53
4 Colin Calderwood Vöm Tottenham 33 26
5 Colin Hendry Vörn Blackburn 32 30
6 Tosh McKinlev Vörn Celtic 33 19
7 Kevin Gallacher Sókn Blackbum 31 35
8 Craig Burley Miðja Celtic 26 23
9 Gordon Durie Sókn Rangers 32 39
10 Darren Jackson Sókn Celtic 31 22
11 John Collins Miðja Monaco 30 47
12 Neil SuIIivan Mark Wimbleton 28 2
13 Simon Donnelly Sókn Celtic 23 6
14 Paul Lambert Miðja Celtic 27 10
15 Scot Gemmill Miðja Nott. Forest 27 13
16 David Weir Vörn Hearts 27 5
17 Billy McKinley Miðja Blackburn 29 24
18 Matt EHiott Vörn Leicester 29 3
19 Derek Whyte Vörn Aberdeen 29 0
20 Scott Booth Sólui Bor. Dortmund 26 15
21 Jonathan Gould Mark Celtic 29 0
22 Christian Dailly Vörn Derby 24 8
Þjálfari: Craig Brown 7 sinnum tekið þátt í HM. Aldrei komist áfram í riðlakeppninni. Númer 41 á hcimslistanum.
HM-PUNKTAR
Forsetinn í fangelsi
Forseti knattspyrnusambands
Kamerún, Vincent Onana, verð-
ur að fylgjast með gengi sinna
manna úr fangelsi í heimaland-
inu. Hann var tekinn fastur f vik-
unni fyrir svartamarkaðsbrask
með aðgöngumiða á HM. Þijú
þúsund miðar sem ætlaðir voru
Kamerúnum fóru á svartamark-
aðinn í Evrópu. Onana er sjálfur
talinn ábyTgur og á meðan yfir-
völd í Kamerún rannsaka málið
verður hann á bak við lás og slá.
Argentímunaóur felldur á
lyfjaprófi
Allir muna eftir því þegar argent-
ínska knattspyrnugoðið Diego
Maradonna féll á lyfjaprófi á HM
í Bandaríkjunum árið 1994.
Lyfjavandamálið virðist Ioða við
Argentínumenn, því í fyrradag
féll einn leikmanna liðsins á
lyfjaprófi.
Landsliðsþjálfarinn, Daniele
Pasarella, hefur sett sjálfan sig og
alla argentínsku HM-hjörðina í
ijölmiðlabann næstu daga og því
var ekki enn opinbert hver hinn
seki er, þegar þetta var skrifað.
FIFA er niafía
I Þýskalandi er komin út bók, þar
sem alþjóða knattspyrnusam-
bandinu FIFA er Iíkt við Mafíuna
og fyrrum forseta þess,
Havelange, við einræðisherra. í
bókinni er því lýst hvernig
Havelange hefur keypt menn til
liðs við sig með peningum, sem
fengust fyrir ólöglega vopnasölu
til skæruliða í Bólivíu og allskon-
ar fyrirgreiðsluloforðum. Þá er
nýr forseti FIFA sagður skósveinn
Havelange, sem eigi hann með
húð og hári. Þá er í bókinni dreg-
ið fram i dagsljósið, hvernig
Havelange kom tengdasyni sín-
um í forsæti brasilfska knatt-
spyrnusambandsins og í stjórn
FIFA.
Fyrstu leiMmir á HM
Miðvikud. 10. júní
Kl. 15:30 Brasilía - Skotland
Kl. 19:00 Marokkó - Noregur
Fimmtud. ll.júní
Kl. 15:30 Italia - Chíle
Kl. 19:00 Kamerún - Austurríki
iÞRÓTTA VIÐ TALIÐ
Ég stend með Norðmönnum
Vanda
Sigurgeirsdóttir
þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í
knattspymu.
Knattspymuáliugamenn
um víða veröld setja sig nú
í stellingarfyrír opnunar-
leik heimsmeistarakeppn-
innar, sem hefstíFrákk-
landi í kvöld. Konurékki
síðuren karlarhafa mik-
inn áhuga á knattspymu
ogfengum við Vöndu Sig-
urgeirsdóttur, landsliðs-
þjálfara kvenna, til að
ræða við okkurum keppn-
ina og spá í spilin.
- Hvaða þjóðir telur þú að eigi
eftir að kotna mest á óvart á HM
og hverjir eru þtnir menn í
keppninni?
„Maður má ekki alltaf halda
með þessum hefðbundnu þjóðum
sem alltaf sigra. Þess vegna vona
ég svo sannarlega að Norður-
landaþjóðirnar tvær, Norðmenn
og Danir, eigi eftir að standa sig
vel í keppninni. Norðmenn eru
mínir menn og ég stend með
þeim, sama hvernig fer. Þeir hafa
verið að byggja upp gott og
skemmtilegt landslið og eru á
mikilli uppleið. Annars er mjög
erfitt að gera sér grein fyrir því,
hveijir eiga eftir að springa út í
riðlakeppninni. Við þekkjum það
frá fyrri keppnum að það eru
alltaf einhver lið sem koma veru-
lega á óvart og má þar nefna ár-
angur Kamerún í síðustu heims-
meistarakeppni.
Bandaríkjamenn hafa verið á
góðri siglingu og hafa sett sér það
markmið, að vinna heimsmeist-
aratitilinn árið 2010. Þeir gætu
hugsanlega komið á óvart.
Olympíumeistarar Nígeríu eru
líka líklegir til að ná Iangt í
keppninni, en sjálfur Péle hefur
einmitt spáð þeim góðu gengi og
jafnvel heimsmeistaratitli.
Annars er hið óvænta alltaf
skemmtilegast við þessa keppni
og vonandi eiga einhver af þeim
liðum, sem ekki eru í befð-
bundna hópnum, eftir að standa
sig.“
- Telur þú að nýjar og hertar
leikreglur eigi eftir að bæta
knattspymuna setn leikin verð-
ur á HM?
„Ég vona svo sannarlega að svo
verði. Það er alltaf leiðinlegt og
niðurdrepandi að fylgjast með allt
of skipulagðri varnarknattspyrnu.
Ég vona að með nýju leikreglun-
um eigi leikirnir í keppninni eftir
að verða opnari og skemmtilegri
og að skapandi knattspyrnumenn
eigi þar af Ieiðandi eftir að njóta
sín betur. Ég sé fyrir mér leik-
menn eins og Ronaldo, sem ör-
ugglega munu njóta sín betur, þar
sem harðara verður tekið á gróf-
um varnarbrotum. Það mun opna
leikinn til muna og við fáum þá
vonandi að sjá fleiri mörk.“
- Hvaða þjóðir telur þú að
muni standa upp úr í keppninni
og hverju viltu spá um úrslitin?
„Það er erfitt að spá um úrslitin
í keppninni, þar sem hún er Iöng
og ströng og margt sem spilar inn
í. Liðin eru alltaf að verða jafnari
og jafnari og alltaf einhveijir sem
koma á óvart. Ég tel þó að Brasil-
íumenn séu með sterkasta Iiðið og
muni standa upp úr. Þeir eru með
stjörnum prýtt lið og leikmenn
sem hafa öðlast reynslu með
toppliðum í Evrópuknattspyrn-
unni og ég spái því að þeir muni
verja titilinn. Frakkarnir verða
einnig sterkir á heimavelli og ættu
þess vegna að komast í úrslitaleik-
inn. Mfnir menn, Norðmenn,
koma þar stutt á eftir og munu
leika við Spánverja um þriðja sæt-
ið.“
- Hvaða leikmenn telur þú að
muni slá ígegn á HM?
„Ég sé fyrir mér Ieikmenn eins
og Ronaldo, sem örugglega á eftir
að standa sig. Einnig vona ég svo
sannarlega að Italinn Baggio eigi
eftir að fá uppreisn æru eftir leið-
indin frá sfðustu keppni. Þar fer
góður leikmaður sem vænta má
mikils af. Annars eiga einhveijir
nýir og efnilegir Ieikmenn örugg-
lega eftir að slá í gegn.“
- Hvaða þjóð telur þú að sé
bjartasta vonin í knattspyr-
nunni t dag?
„Eins og ég sagði áðan, eru lið-
in alltaf að verða jafnari og jafn-
ari. Ef við tökum sem dæmi
bandaríska landsliðið, þá hafa
þeir Iagt í mikla uppbyggingu og
hafa sett sér ákveðin markmið.
Þeir gerðu það f kvennaboltanum
og uppskáru heimsmeistaratitil.
Nú eru þeir að vinna sömu vinn-
una með karlaliðið og því skyldi
þeim ekki takast það, með skipu-
Iögðum vinnubrögðum og nægu
fjármagni."
- Hverju viltu spá utn opnun-
arleikinn í kvöld?
„Skotarnir munu Ieggja alla
áherslu á varnarleikinn og reyna
síðan skyndisóknir. Það verður
erfitt fyrir þá að veijast hinu létt-
leikandi liði Brasilíumanna og þá
er það spurningin hvernig þeim
tekst að leika eftir nýju reglunum
og hvað þeir yfirleitt hanga lengi
inni á vellinum. Mikill munur er á
leikstíl þessara Iiða og Brasilíu-
menn ættu að ná auðveldum
sigri.“