Dagur - 27.06.1998, Qupperneq 7

Dagur - 27.06.1998, Qupperneq 7
 L A U (1A Ii 1) A G U H 2,7,. J ÚJfj 1, 9 9 8,- 23 enn,“ segir Snæfríður. „Þetta var ekkert sem við sótt- umst sérstaklega eftir. Ríkið óskaði eftir því að við tækjum að okkur tvo einstaklinga sem þurftu sérstakt meðferðarúr- ræði. Það var því enn og aftur meira fyrir tilviljun að við fórum út í þetta," segir Hákon. Frá 1986 til 1992 voru með- ferðarúrræðin ekki þau sömu og eftir að heimilið var stofnað. Sálfræðingur kom á hálfs árs fresti og öll aðstaða var mun minni og lakari þó ekki væri undan neinu að kvarta. I dag er öll aðstaða stórglæsileg. Vist- plássin eru sex talsins og hafa hjónin verið að stækka heimilið í gegnum árin. Meðferðarheimilið er mjög heimilislegt og Iaust við allan stofnanabrag. Aðstaða til tóm- stunda er góð og þegar blaða- mann bar að garði voru tveir unglinganna að spila billjarð í tómstundastofunni og í sama herbergi var forláta hljómborð fyrir þá músíkelsku. Hákon seg- ist þó helst vilja auka við afþrey- ingarmöguleikana og á það sé stefnt. Heimilið er búið full- kominni tölvu og 12 starfsmenn starfa þar að jafnaði, þar af tveir kennarar frá Hafralækjarskóla yfir vetrartímann en að sögn Hákonar er einstaklega gott samstarf milli skólans og Arbót- ar. Að auki er einn sálfræðingur á staðnum í hálfri stöðu og heit- ir sá Ingþór Bjarnason, heim- skautafari með meiru. Áranguriim mjög góður „Meðferðarheimilið tekur börn á aldrinum 12-16 ára en eldri ein- staklingar hafa verið teknir inn í undantekningartilvikum. Síðan er spurning hvað gerist við hækkun sjálfræðisaldursins,1' segir Ingþór. „Þetta er ætlað börnum sem eiga við margvís- legan vanda að etja, hegðunar- vandkvæði, neysluvandkvæði og sálræn- og geðræn vandkvæði." Ingþór segir einstaklingana koma frá ýmsum stöðum eins og barnageðdeild og barnaverndar- nefndum og markmiðið sé að koma þeim út úr slæmu hegð- unarmynstri og þjálfa þau í sam- skiptum við annað fólk. Þá sé einnig lagt mikið upp úr skóla- göngu og unglingunum gert ldeift að kynnast margvíslegum störfum í búskapnum. „Meðferðin gengur mjög mik- ið út á það að vinna með sam- skipti unglinganna við starfs- fólkið og í þeim tilgangi eru not- uð þau störf sem eru hér á heimilinu og eru í kringum reksturinn á bújörðinni. Þannig þjálfast þau í því að taka á sig ábyrgð, bæði í heimilisstörfum og útistörfum," segir Ingþór. Að auki felst meðferðin í uppeldis- fundum, þar sem unglingarnir hafa orðið og segja sína mein- ingu og sálfræðifundum. Ingþór segir allan gang á því hversu löng meðferðin sé. Hún geti tekið allt frá þremur mán- uðum upp í fjögur ár, allt eftir hverjum og einum, en að jafnaði tekur hún um 2 ár. Meðferðar- heimilið í Arbót er heilsársstofn- un. A veturna er aðal áherslan lögð á skólastarfið en ungling- arnir gegna engu að síður einnig bústörfum og heimilisstörfum. „Þó er það ekki skylda," segir Snæfríður. „Skólinn gengur fyrir á veturna." I stuttri sögu heimilisins hefur árangurinn verið mjög góður. Þeir sem hafa útskrifast sækja margir hverjir mikið til heimilis- ins í formi heimsókna eða sím- tala. „En stundum hallar aftur undan fæti vegna þess þau hafa kannski ekki nægilega góðan ramma í kringum sig þegar þau En það er fleira en meðferðar- heimili og galloway gripir í Ar- bót. Hluti úr tveimur laxveiðiám liggur á Árbótarlandinu, hesta- rækt, svín, kindur, endur og gæsir svo eitthvað sé nefnt. „Síðan meðferðarheimilið kom höfum við sniðið búreksturinn að því. Mér finnst hestarnir og holdanautaræktin falla best að meðferðarheimilinu og fyrir það skárum við féð og í dag erum við bara með 60 kindur sem ein- göngu eru notaðar í meðferðar- tilgangi. Eins er með svínin. Þau eru sérstaldega fyrir unglingana. Þeir fá tækifæri til að kaupa grísinn og fylgja honum nánast frá vöggu til grafar. Þau ala hann upp til slátrunar og fá fyrir pening. Þetta höfum við gert í mörg ár og reynst afar vel. Þarna bera þau vissa ábyrgð. Þau eiga grísinn og geta fengið nokkurn arð,“ segir Hákon. Einnig hafa unglingarnir möguleika á að ala upp endur og gæsir og einnig einstaka kálfa og lömb. „Þessir tekjumöguleikar þeirra eru samt algerlega fyrir utan hin hefð- bundnu laun sem þau vinna sér inn í tengslum við búið.“ Arnar og hestarnir eru einnig notaðir sem meðferðarúrræði. „Við veiðum mikið á vorin fyrir veiðitímann. Unglingarnir hafa gagn af þessu. Þau læra að leggja net og fara með stöng en þetta er afþreying fyrst og fremst," segir Hákon. Snæfríður segir þau vera með töluvert af hestum. Hestarnir séu notaðir í útreiðar og ferðalög fyrir ung- lingana en einnig í ræktun og sölu til útflutnings. Þá sjái ung- lingarnir einnig um hirðingu á hestunum að hluta til. Ekki verk eins mamis Snæfríður segir hlut þriggja sona þeirra stóran. „Þeir hafa hjálpað mikið og tveir þeirra eru í vinnu við heimilið." Hákon tekur undir orð Snæfríðar. „Hlutur strákanna var mikill í uppbyggingunni á Ar- bót. Þeir þurftu að sýna þessum unglingum og börnum tillitsemi. Það var líka samkeppni við þá að vera hér með mikið af óviðkom- andi börnum. Þá var einnig hlut- ur þeirra stór, vinnulega séð. An þeirra hefði þetta ekki verið hægt.“ Hákon og Snæfríður þakka einnig góðu samstarfsfólki árangurinn. „Þetta er ekki verk neins eins manns. Þetta er sam- vinna margra." Snæfríður og Hákon eru ánægð með árangurinn og Iíta björt fram á veginn. Snæfríður hefur orðið: j,Ég er mjög ánægð með þetta. Eg sé nú ekki fyrir mér að við fjölgum vistplássum en auðvitað munum \dð halda áfram að bæta við aðstöðuna. Það er margt sem okkur langar til að gera eins og að rækta um- hverfið hér í kring. Við höfum verið að gróðursetja nokkuð mikið og ætlum að halda því áfram.“ Ingþór segir þau mega vera stolt af þessu starfi. Gott orð fari af staðnum og miklu fleiri umsóknir berist en unnt sé að anna. „Arbót hefur upp á margt að bjóða fyrir unglingana. Það eru svo fjölbreytt verkefni sem þau geta fengið hérna og ég held að staðurinn dragi fram það góða í hverjum og einum." Og Hákon á lokaorðin: „Sem sannur Þingeyingur er ég nátt- úrlega gríðarlega montinn yfir þessu. Eg er mjög stoltur yfir því að fara úr verkamannavinnu í að eignast stóra jörð þrátt fyrir allar fortölur. Mér finnst þetta stór- kostlegur staður, mér hefur hvergi liðið betur og mér finnst það forréttindi fyrir þessa ung- linga að fá að koma hingað. Það eru ekki allir unglingar sem fá slíkt tækifæri." -JV Hákon og Snæfríður fyrir utan meðferdarheimilið. „Þetta er ekki verk neins eins manns. Þetta er samvinna allra." koma út,“ segir Ingþór og segir jafnframt að einhver eftirmeð- ferðarúrræði vanti í samfélagið fyrir unglingana eftir að þeir út- skrifast. Tengslin eru rofin I meðferðinni felst ákveðin ein- angrun. Símtölum er til að mynda stýrt inn og út af heimil- inu. „Við erum að taka þessa krakka út úr ákveðnum klíkum, ákveðnu umhverfi og þessi stýr- ing símtala er hluti af meðferð- ir að aliir unglingarnir sem í Ár- bót hafa komið hafi hingað til útskrifast. „Við gefumst ekki upp hér.“ Galloway ræktun Það hefur ekki reynst áfallalaust og síður en svo auðvelt fyrir þau Hákon og Snæfríði að byggja Ár- bót upp að því stórbýli sem það er í dag. Strax sama ár og þau fluttu í Arbót þurftu þau að stækka við búið. Þau keyptu því fara á hausinn og niðurlæging- una að láta segja sér að þetta væri ekki hægt var svo mikil að hún rak okkur áfram. Það höfðu allir sajgt að þetta væri ekki hægt, Arbót væri of dýr. Þetta allt saman rak okkur áfram." önnum ekki markaðinum Galloway gripirnir frá Gunnars- holti reyndust ekki alltof vel. „Þeir voru svo skapillir og mann- illir með afbrigðum, að stundum inni. Við reynum þannig að koma í veg fyrir að til dæmis fyrrum neyslufélagar hafi sam- band eða öfugt. Við náum ekki árangri í meðferðinni nema rjúfa þessi tengsl," segir Hákon. Ymislegt er gert unglingunum til gamans. Farið er í bíó, í kaup- stað, á kappleiki og svo er boðið upp á hestaferðir, gönguferðir, veiðiferðir og sleðaferðir svo fátt eitt sé nefnt. Allt er þetta einnig stór hluti af meðferðinni. „Við reynum að finna ákveðið jafn- vægi á milli þessa tómstunda- starfs, skóla og vinnu á búinu. Og svo að sjálfsögðu samskiptin við starfsfólkið. Meðferðin felst aðallega í þessu og meðferðar- tækið er fyrst og fremst starfs- fólkið," segir Ingþór. Hákon seg- íslenska kálfa en ekki reyndist mikil arðsemi í því og kjötið var ekki nægilega gott. Þau fóru því út í kaup á Galloway kyninu og keyptu 20 kýr og eitt naut úr Gunnarsholti á Rangárvöllum og hófu ræktun. „Þetta gekk samt ekki nógu vel. Jörðin var óhemju dýr svo það varð að leita leiða til að afla jörðinni meiri tekna,“ segir Hákon. Snæfríður fór því út á vinnumarkaðinn og rak m.a. kaffiteríu við Vest- mannsvatn og Hákon vann með- al annars hjá KÞ í 16 ár með bú- rekstrinum og á meðan öllu þessu stóð voru þau í sífelldum framkvæmdum á bújörðinni og ólu upp þrjá drengi. „Það var allt reynt því hræðsl- an við niðurlæginguna við að átti maður fótum sínum fjör að launa, segir Hákon. Það var því ræktað úr þessum gripum en síðan voru þeir felldir. Snæfríð- ur og Hákon gáfust þó ekki upp heldur keyptu 118 Galloway gripi úr Sólheimum í Blöndu- hlíð sem áður voru í Hrísey. Það reyndist góður stofn. „Við selj- um okkar kjöt sjálf, ekki í gegn- um milliliði og í dag önnum við engan veginn þeim kjötmarkaði sem við höfum. Við þetta stórjókst arðsemin af bújörð- inni,“ segir Hákon en þorir ekk- ert að fullyrða um hvort hann sé stærsti Galloway ræktandinn á landinu. Gripunum er slátrað á Akureyri og Sauðárkróki og af- urðunum er mestmegnis dreift á höfuðborgarsvæðinu. Hákon notar hestana sína bæði til ræktunar og ekki siður sem meðferðarúrræði.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.