Dagur - 27.06.1998, Blaðsíða 14
30 - L A UGARDAGVR 27. JÚNÍ 199&
HEILSULÍFIÐ í LANDINU
Sjálfshjálp við síþreytu
Meðferð við síþreytu er erfið þar sem sjúk-
dómurinn herjar bæði á líkama og sál og
einkenni eru mörg. En þar má nefna lang-
vinna þreytu, þráláta hálsbólgu og vöðva-
verki; höfuðverki; eitlabólgur; þróttleysi;
óþægindi í maga; meltingartruflanir; ein-
beitingarskort; sjóntruflanir og þunglyndi.
Samkvæmt „Heilsubók fjölskyldunnar" má
benda á sem sjálfshjálp léttar æfingar, góð-
an svefn og að sleppa unnum matvörum,
sykri, koffíni, áfengi og reykingum. Mælt
er með kolvetnaríkri fæðu s.s. pasta til
þess að fá næringaríkan orkugjafa og
ávöxtum milli mála til að halda blóðsykrin-
um stöðugum, t.d. banana. Fæðuofnæmi
tengist oft síþreytu og er því best að hafa
samband við sérfræðing til að ganga úr
skugga um það.
í Heilsubók fjölskyldunnar er bent á léttar
æfingar og svefn.
Glútenóþol
Glúten er prótín sem finnst í hveiti, höfr-
um, byggi og rúg. Sjúkdómurinn dregur úr
færni þarmanna til þess að vinna næringu
úr fæðunni og veldur því vannæringu sem
lýsir sér í þyngdartapi, eða lítilli þyngdar-
aukningu hjá börnum, harðlífi eða miklum
og illa þefjandi og tíðum hægðum, slakir
vöðvar, framstæður kviður og slen. Ein-
kenni glútenóþols líkjast oft einkennum
annarra kvilla s.s. mjólkursykuróþols og
ofnæmis, ónæmisskorts eða sálræns
vanda. Mikilvægt er að útiloka slíka sjúk-
dóma fyrst hjá lækni. Til þess að halda
einkennunum í skefjum þarf að fjarlægja
allt glúten úr fæðunni sem getur leynst
víða, s.s. í sósum, kryddi, kexi, flestu sæl-
gæti, öllu brauðmeti, grautum og flestum
unnum matvörum. En allar þessar fæðu-
tegundir fást án glútens og er hægt að leita
sér upplýsinga í apótekum og heilsubúð-
um.
Baimaát og magapína
Hvernig er hægt að forðast magapínu þeg-
ar maður borðar baunir? Það er hægt og
þá á að skola baunirnar og leggja þær í
bleyti í þrjá hluta vatn á móti einum hluta
bauna. Látið þær liggja í bleyti í tólf tíma
og sjóðið þær síðan í nýju vatni í minnst
hálftíma. Það eru efni í baunum sem
nefnist lektiner sem valda magaóþægind-
unum en verða óskaðleg eftir þessa með-
ferð. Bæði grænar og maísbaunir hafa
þessi efni líka þó í minna mæli og þess-
vegna er mælt með suðu á þeim fyrir fólk
sem er sérstaklega viðkvæmt í maga. Það
er engin ástæða til þess að hætta að borða
baunir af ótta við efnið lektiner því baunir
eru prótín-, trefja-, járn- og b-vítamín rík-
ar og nánast fitulausar.
Magnús Ólafsson læknir á Akureyri.
Kynlíf roskiima kvenna
KYNLIF
Halldóna
Bjarnadóttir
skrifar
í síðasta pistli mínum
fjallaði ég um kynlíf rosk-
inna karlmanna og að
sjálfsögðu skil ég ekki við
þetta efni án þess að fjal-
la líka um kynlíf roskinna
kynsystra minna.
Það vill stundum
bregða við hjá fullorðnum
konum sem komnar eru
yfir breytingaskeiðið að
líta jafnvel svo á að þær
séu búnar að vera kyn-
ferðislega og er það kannski ekki óeðliiegt
að sú hugsun iæðist að fullorðnu fólki f ís-
lensku samfélagi í dag í allri þeirri æsku-
dýrkun sem viðgengst í þessu þjóðfélagi.
Því fer fjarri að líta beri á rosknar kon-
ur sem kynlausar. Það er bæði alrangt og
grimmilegt, því fram að sextugu breytist
kynferðislegt næmi kvenna ekkert og þær
breytingar sem verða eftir sextugt eru
bæði hægar og óverulegar.
Ýmsar breytingar
Þær líkamlegu breytingar sem verða með
aldrinum eru að bleyting legganga við
kynferðislega örvun tekur eitthvað lengri
tíma. Bleyting legganga tekur 15-30 sek-
úndur hjá yngri konum við örvun kynfær-
anna, en 2-5 mínútur hjá þeim eldri og
þurfa þær þar af leiðandi lengri forleik fyr-
ir samfarir.
Veggir legganganna geta þynnst með
aldrinum og teygjanleiki þeirra minnkað,
auk þess sem leggöngin geta styst og
þrengst, en þessar breytingar hafa lítil
sem engin áhrif á snertinæmi og fullnæg-
ingu konunnar.
Sú bábilja hefur verið lífseig, að samfar-
ir valdi rosknum konum óþægindum. Þó
kvarta um 80% roskinna kvenna ekki um
sárindi eða óþægindi við samfarir. Blotni
leggöngin ekki nægjanlega getur þurrkur-
inn valdið sárindum og núningi í upphafi
samfaranna. I dag bjóðast konum ýmis
efni svo sem hlaup til að smyrja leggöngin
og eins er upplagt að nota unaðsolíuna frá
Purity Herbs því hún er lífræn og og því
óhætt að nota hana beint á kynfærin.
Upplagt er að nota nudd með unaðsolíu á
Iíkama hvors annars sem hluta af forleikn-
Kynkvöt kvenna jafnari
Kannanir hafa leitt í Ijós að kynhvöt kven-
na er jafnari en kynhvöt karla. Konur 65
ára og eldri eru því ekki síður líklegar til
að bregðast jákvætt við tækifærum til ást-
arfunda, dreyma lostafulla drauma og fá
fullnægingu og það jafnvel margfalda líkt
og þær gerðu á yngri árum. Talið er að lík-
amleg hæfni áttræðrar konu til að njóta
fullnægingar sé sú sama og þegar hún var
tvítug. Líkamlega bregst hún eins við,
geirvörturnar halda áfram að verða stinn-
ar og nautnin við snertingu snípsins er
söm og áður.
Konur ná hámarki kyngetu sinnar sein-
na á ævinni en karlar. Talið er að konan
nái hámarki kyngetu sinnar um þrítugt og
haldist á því stigi allt fram yfir sextugt.
Karlar hinsvegar ná hámarki kyngetu
sinnar um tvítugt og dala smátt og smátt
úr því.
Oft gerist það á þessum aldri þegar kon-
an er farin að njóta fulls kynferðislegs
þroska, að kynorka maka hennar er farin
að dvína. Það getur því reynst konu á
þessum aldri erfitt að fá útrás kynorku
sinnar, án þess að makinn finni til van-
hæfni eða vangetu. Hafi þær takmarkaða
möguleika á að lifa reglulegu kynlífi vegna
veikinda eða getuleysis maka, eða séu þær
ekki í föstu sambandi eða ekkjur, getur
sjálfsfróun verið nauðsynleg til að halda
Iifandi kynörvun og kynvitund roskinna
kvenna.
Halldóra Bjarnadóttir er hjúkrunarfræÖ-
ingur og skrifar um kynltffyrir Dag.
Frj ókomaofnæmi
Ofnæmi eralgegnt á íslandi
og virðist hrjá marga sér-
stakleqa yfir sumartímann.
„Bráðaofnæmi er algengur sjúkdómur og
ofnæmi fyrir frjókomum er algengasta or-
sökin á Islandi. Ofnæmisvaldar, bæði
gras- og birkifrjókorn eru til staðar allt
sumarið, birkifijókom frá seinni hluta
maí og fram undir miðjan júnf en þá taka
grasfrjókom við og eru í andrúmsloftinu
fram í september. Ofnæmisvaldurinn
berst með andrúmsloftinu og veldur
hvarmabólgu og einkennum líkt og í kvefi
og þegar verst lætur astma,“ segir Magnús
Olafsson, heilsugæslulæknir, á Akureyri
Borgar sig að leyfa börnunum að
verða veik
Magnús segir ennfremur að ofnæmi geri
vart við sig í 70 % tilvika fyrir tvítugt og
þess vegna er mikilvægt að huga að
áhættuþáttum með börnin í huga.
„Það er ekki vitað með vissu hvað veld-
ur frjóofnæmi eða öðru ofriæmi, en hins-
vegar getum við gert ráð fyrir ýmsum þátt-
um s.s. erfðaþáttum. Aðrir áhættuþættir
eru m.a. reykingar nálægt
börnum og eykur það
hættu á að ofnæmið komi
fram. Sennilega verja um-
gangspestir hjá litlum
börnum, svo sem kvef, þau
fyrir ofnæmi síðar og því er
það trúlega bara hollt fyrir
þau að taka út sín veikindi.
A þann hátt má hugsa sér
að þau geti byggt upp ónæmiskerfíð sem
gerir þau þannig sterkari gegn ofnæmi og
hugsanlega öðrum kvillum síðar meir.“
Er hægt að lækna frj ókornaofnæmi?
„Það er hægt að lækna frjókornaofnæmi í
vissum tilvikum, að verulegu leyti með
sprautumeðferð sem getur tekið nokkur
ár. Þá er ofnæmisvaldinum sprautað í við-
komandi í litlu mæli og smá aukið við
skammtinn í hvert skipti.“
En þegar það dugir ekki hvað þá?
„Lyf við ofnæmi eru gefin í töfluformi,
púst í nef og augndropar. Þessi lyf fást nú
mörg hver í apóteki ólyfseðilsskyld og síð-
an þarf að reyna að forðast
ofnæmisvaldana sem getur
jú oft verið erfítt, sérstak-
lega þegar um gróðurof-
næmi er að ræða. Það þyrfti
þá helst að fara upp á jökul
meðan gróðurinn er í blóma
yfir sumarið og fram á
haust.“
Ofmæmi er að aukast hér
á landi sem annarsstaðar í heiminum. Það
verður því áhugavert að fylgjast með rann-
sóknum þessu tengdu í framtíðinni.
Ætli Iöng bið verði eftir lyfí sem læknar
ofnæmi fyrir fullt og allt? „Ný lyf eru í
þróun og gera má ráð fyrir betri meðferð í
framtíðinni, en lækning á ofnæmi eins og
fijókornaofnæmi er ekki sjáanlegt í allra
nánustu framtíð," segir Magnús Olafsson,
heilsugæslulæknir á Akureyri. -Rut
„Áhættuþættir eru
meðal annars
reykingar
nálægthömum. “