Dagur - 27.06.1998, Blaðsíða 11
LAVGARDAGUR 27. JÚNÍ 1938 - 27
A i I . !i . v i
I / I l i c 1 f
UMSJÓN:
RUT HER-
MANNSDÓTTIR
Strákar, nú er komið að
okkur að vera góðir við
konurnar okkar sem við
erum búnir að vanrækja
alveg síðan heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu
byrjaði. Þá er rétt að láta
hana vita að við sjáum
um matinn í kvöld en til
að það verði að veruleika
þurfum við að fá gott
næði til að elda og undirbúa matinn, ráð-
legast er að við fáum íbúðina útaf fyrir
okkur á meðan, þá sérstaklega á milli tvö
og fjögur og á milli sjö og níu, en varist
að ræða um sjónvarpsdagskrána í þessu
sambandi. Um er að ræða þríréttaðan
rómantískan kvöldverð fyrir tvö.
Laxamoussé á fersku salati
100 gr lax
50 gr reyktur lax
1 msk. smjör
'h dl þeyttur rjómi
örl. Pipar
'h msk. koníak
1 tsk. fáfnisgras (estragon) saxað
3 msk. sýrður rjómi
1 msk. Iaxahrogn
blandað salat (t.d. lolló, frisse og lamb-
________________haga)________________
2 msk. graslaukur (saxaður)
2 msk. steinselja (söxuð)
Ferski laxinn er soðinn í léttsöltu vatni,
tekinn upp úr og látinn kólna í íjórar til
fimm mínútur áður en hann er maukaður
í matvinnsluvél ásamt reykta laxinum,
pipar, smjöri og þeytta ijómanum. Varist
að mauka of mikið. Setjið maukið í
sprautupoka og sprautið í fallegar doppur
í miðjuna á tveimur diskum, rífið salatið
gróft niður, skolið vel og raðið í kring um
laxamoussina. Setjið sýrða rjómann
ásamt laxahrognunum ofan á doppuna,
stráið steinseljunni og graslauknum yfir,
athugið að hægt er að gera moussina með
góðum fyrirvara, sprauta henni á disk og
geyma í kæliskáp, og setja salatið og allt
hitt á diskinn um leið og maður ber það
fram með góðu hvítvíni og ristuðu
brauði.
Nauta buffsteik með
grœnpiparsósu
^ ■ ■ >
í
Smyijið bökun-
arplötu vel og setj-
ið sex matskeiðar
af deigi með góðu
millibili á hana og
bakið í 200°C ofni
í tvær til fjórar
mínútur eða þar til
deigið er fallega
brúnt. Þá er það
tekið af plötunni
og látið kólna,
þetta má baka með
góðum fyrirvara og
geyma í lokuðu
íláti á þurrum stað.
Chantilly
rjómi
2 dl ijómi
30 gr flórsykur
örl. vanilla
Maukið helminginn af beijunum í mat-
vinnsluvél ásamt flórsykri og vinnið í
gegnum millifínt sigti þannig að steinarn-
ir verði eftir. Kælið maukið vel áður en
rétturinn er borin fram. Gott er að gera
það með góðum fyrir vara og geyma í
kæli.
Rétturiim bortnn frarn
Setjið maukið á diskana og dreifið vel úr því
áður en deig plata er sett á miðjan diskinn
og chantilly ijóma sprautað ofan á. Raðið
síðan nokkrum hindbeijum í ijómann og
setjið deigplötu ofan á og síðan ijóma, ber
og aðra deigplötu, að lokum sprautum við
ijóma á toppinn og skreytum með beri og
mintulaufum og berum fram.
Eg er viss um að þessi fyrirhöfn á eftir að
skila sér í auknum skilningi konunar á
beinum útsendingum og mikilvægi þess að
vera rétt staðsettur fyrir ffaman sjónvarpið
meðan á þeim stendur, jafnvel þó að hún
sjái í gegnum ráðabruggið í dag þegar sext-
án liða úrslitin eru að byrja.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu.
2 x 200 gr nautasteikur úr framhryggjar-
vöðva
2 tsk. grænpiparkorn (úr Iegi)
örl. Salt
1 -2 msk. olía
'h 1 msk. smjör
2 msk. koníak
2 dl nautasoð (af teningi)
1 dl rjómi
Meijið piparkornin og nuddið á steikurn-
ar sem síðan eru geymdar í tvo til fjóra
tíma í kæli. Hitið olíuna og smjörið á
pönnu og brúnið steikurnar vandlega,
snúið þeim við, saltið og brúnið vel á
hinni hliðinni, varist að hafa of mikinn
hita. Hellið koníakinu yfir og berið eld
að, ekki er nauðsynlegt að kveikja í vín-
inu en ef það er gert skal það gert var-
lega. Þegar logarnir deyja út eru steikurn-
ar teknar af pönnuni og settar í 100°°C
heitan ofn á meðan sósan er gerð. Hellið
soðinu og rjómanum út á pönnuna, hitið
vel og hrærið vel í botninum þannig að
steikarskófirnar blandist vel og gefi bragð
í sósuna sjóðið sósuna niður um helming,
smakkið til með salti og piparvökva. Berið
steikina fram hjúpaða í sósu með pönnu-
steiktum kartöfluskífum, fersku salati eða
soðnu grænmeti og góðu rauðvíni.
Hindberjaturn með chantilly
rjóma
__________________Deig__________________
35 gr smjör, lint
65 gr flórsykur
40 gr hveiti
1-2 eggjahvítur
1 -2 dropar vanilla
Hrærið vel saman smjöri og sykri þar til
blandan verður loftkennd. Þá er hveitinu
og vanillunni blandað saman við og þeytt
vel áður en eggjahvítan er þeytt létt í
annarri skál og síðan blandað saman við.
Þeytið ijómann,
blandið flórsykri
út í, smakkið til
með vanillu og
setjið í sprautu-
poka.
Þetta má ekki
gera fyrr en u.þ.b.
einni klukkustund
áður en rétturinn
er borinn fram.
Hindberja
mauk
1 askja fersk
hindber (u.þ.b
200 gr)
50 gr flórsykur
fersk mintulauf í
skraut