Dagur - 27.06.1998, Síða 16

Dagur - 27.06.1998, Síða 16
32 — LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 LÍFID í LANDINU LJÓS- BROT flnton Brink myndar Við stofusnillingamir verðum heimsmeistarar! ■■■■■■■■ Öll þurfum við JÓHANNESAR- á uppörvun og hvatningu að halda. Við þurf- um að geta hreykt okkur annað veifið eins og hanar á haug og sagt eins og Jón sterki forðum: Sáuði hvernig ég tók hann! Við og við er okkur nauðsyn að fá hrós og klapp á bakið til að hressa upp á sjálfsímyndina. Og ef fólkið sem er í kringum okkur er ekki tilbú- ið til að lofa okkur og prísa nokkuð reglulega, þá verðum við sjálf að verða okkur úti um þessa lífsnauðsynlegu andiegu umbun og bröltum þá gjarnan upp á þann góða sjálfs-hól og horfum þaðan á andlega flatneskjuna fyrir neðan. Þetta gerum við m.a. með því að horfa á sjónvarpið. T.d. amer- ískar sápuóperur sem sannfæra okkur um að við séum hluti af hómo sapíens en óperuliðið af einhverju allt öðru sauðahúsi. Einnig er vinsælt að horfa á ís- lenska stjórnmálamenn eða bankastjóra og fyllast um leið aðdáun á eigin heiðarleika og vammleysi. Sjálfsupplyftingarsjónvarp Sjónvarpsefni er reyndar mjög misheppilegt í sjálfsupplyfting- arskyni. Þannig er t.d. í gangi þáttur í ríkissjónvarpinu sem heitir Kontrapunktur og hefur afar slæm áhrif á tilfinningu flestra áhorfenda fyrir eigin gáf- um og þekkingu. Þarna sitja nokkrir skandínavískir furðu- fuglar og ryðja úr sér fróðleik um tónlist á ýmsum tímum á meðan maður stendur sjálfur uppstyttuiaust á gati heima í stofu og líður afar illa yfir eigin fáfræði. Afturámóti er á sömu sjón- varpsstöð efni sem er eins og sniðið fyrir uppbyggingu sjálfsí- myndar margra Islendinga, það er að segja Heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu. Hún er sannkallaður hvalreki fyrir and- lega styrkingarstarfsemi. Blindir og fattlausir Þegar maður horfir á HM þá skynjar maður fyrst hvernig Súperman hlýtur að líða svona dags daglega. Maður upplifir það svo sterkt að Brasilíumenn og Argentínumenn eru ekki bestu liðin, Zagallo og Drillo eru ekki bestu þjálfararnir, Ronaldo og Batistuta ekki bestu leik- mennirnir og Collina ekki besti dómarinn. Þetta eru allt saman hálfvitar, aumingjar, ræflar og rugludallar sem ekki hafa hundsvit á fótbolta og eru gjör- samlega ófærir um að þjálfa, dæma eða spila þessa göfugu íþrótt. Svo ekki sé talað um íþróttafréttamenn og aðra sér- fræðinga sem Iýsa leikjunum og fjalla um þá frá ýmsum hliðum. Þeir eru hvorki talandi né hugs- andi, heldur fattlausir, blindir og síblaðrandi fávitar sem misskilja allt sem hugsanlega er hægt að misskilja í leikjunum. Ég er langbestur! Það er að sjálfsögðu aðeins einn aðili sem hefur sig upp úr þess- ari andlegu fótboltaflatneskju í sjónvarpinu, er Iangbestur, upp- lýstastur, ldárastur, íyllstur af þekkingu á Ieiknum, skilningi á leikkerfum og veit alltaf hvað heppilegast er að gera hverju sinni til að vinna leikina og hverngi dæma skal þá mistaka- laust frá upphafi til enda. Þessi aðili er auðvitað enginn annar en ég sjálfur. Og raunar skil ég ekki hvers- vegna ég er ekki fenginn til að þjálfa þessi lið á HM, dæma leikina og lýsa þeim í sjónvarp- inu, þegar lyrir liggur að allt þetta geri ég óaðfinnanlega og mistakalaust. Ég er ósigrandi Eg hefði t.d. getað sagt Zagallo gamla að til þess að vinna Norð- menn var ekki glóra í því fyrir hálft Brassaliðið að reyna sífellt að troða sér í gegnum massífa varnarmiðju Nojara, þar sem þeir voru eins og úlfaldar fyrir framan nálarauga. Þetta fattaði hinn elliæri þjálfari auðvitað ekki og hálfvitarnir inni á vellin- um ekki heldur. Og að sjálfsögðu hefði ég ekki dæmt vítaspyrnu þegar helsti Ieikari Norðmanna fór hlægileg- an kollskít í lok leiksins. Og ég hefði sleppt vítaspyrnunni sem Itölum var gefin gegn Chile. Og marga menn hefði ég rekið út af sem aðrir dómarar hlífðu og leyft öðrum að spila áfram sem ranglega voru burt reknir. Og svo framvegis. Mér telst raunar svo til að ég hafi ekki gert ein einustu dóm- aramistök í allri keppninni og er sannfærður um að ef ég hefði verið þjálfari allra liðanna á HM, þá hefðu þau unnið hvern einasta leik, því ég hef sem stofuþjálfari átt svar við öllum próblemum sem upp hafa komið og sú taktík sem ég beiti í hverj- um leik, hefur gengið fullkom- Iega upp. Óskeikulir Það er vissulega merkilegt að ég skuli vera klárari en allir þjálfar- ar, leikmenn og dómarar á HM, að ég skuli vera langbestur og raunar eina raunverulega stjarn- an í þessari keppni. Það sem er enn undarlegra er að ég er reyndar ekki sá eini sem er lang- bestur. Við skiptum sem sé þús- undum hér á landi og milljónum út um allan heim sem sitjum daglega heima í stofu og líður afskaplega vel. Af því að við erum Iangbestir og vitum allt betur en þessir kálfar sem eru að gera sín stykki á skjánum úti í Frakklandi. Það erum við, stofusnílling- arnir, sem verðum hinir raun- verulegu heimsmeistarar þegar upp verður staðið þann 12. júlí nk., því við höfum ekki stigið eitt feilspor i allri keppninni. Við höfum verið óskeikulir í öllum okkar plönum og aðgerðum. SPJALL Johannes Sigurjónsson skrifar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.