Dagur - 31.07.1998, Síða 2
I
4-
18-FÖSTVDAGUR 31. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvaó
ætlar þú að
gera?
Það er stór helgi
framundan hjá Júlla í
Brynjuísnum.
Leggst á bæn fyrir helgina
„Eg ætla að vinna alla helgina," segir Júlíus
Fossberg Arason, eigandi verslunarinnar
Brynju.
Það er stór helgi framundan hjá Júlla í
Brynjuísnum og hann Ieggst bara á bæn svo
að veðrið batni hér norðanlands.
„Við hérna í Brynju tökum bara óbeinan
þátt í Halló Akureyri því við erum styrktarað-
ilar,“ segir Júlíus og bætir við: „En að sjálf-
sögðu vonar maður að hitinn stígi eitthvað
um helgina því salan mætti alveg vera betri.“
Við stöndum bara í þeirri trú að veðrið
verði betra.
María ætlar að leiða
borgarbúa í allan
sannleikann um listalíf.
Akureyrínga.
Gjömingar, listir og ljóð
„Eg ætla að taka fjölskylduna með á listadaga
ungs fólks í Deiglunni sem hefjast á föstudag-
inn, og fylgjast með dagskránni þar um helg-
ina,“ segir María Jónsdóttir, forstöðumaður
Kompanís.
Þátttakendur á listadögum ungs fólks hafa
verið önnum kafnir við að æfa atriði í
Kompaníi (áður Dynheimar), og því er María
mjög spennt að sjá afrakstur þeirrar vinnu.
„Það verður margt spennandi í boði svo
sem breakdans, gjörningar og ljóð,“ segir
María.
En María á líka von á heimsókn úr borg-
inni, um helgina, og ætlar að kynna borgar-
búunum menningarlíf Akureyrar. „Við kíkjum
eflaust á mannlífið á Halló Akureyri og á
Kaffi Karólínu, það er svo þægilegt að sitja
þar,“ segir María
Logi Bergmann ætlar
að eyða helginni í
sumarbústað ásamt
fjölskyldunni og jafn-
vel spila golf.
Sumarbústaðaferð og golf
„Ég ætla að bara að gera sem minnst um
helgina," segir Logi Bergmann Eiðsson,
fréttamaður hjá sjónvarpinu. Hann segist
vera vaxinn upp úr útihátíðum og stefnir á að
fara með fjölskylduna í sumarbústað, þar sem
þau ætla að eiga notalega stund saman yfir
helgina. „Við fáum eflaust einhveija vini í
heimsókn og síðan verður grillað og drukkið
rauðvín,“ segir Logi Bergmann.
„Eg hef nú aldrei skilið þegar allir Islend-
ingar þurfa að fara úr bænum bara þessa einu
helgi, eins og að gefa konunni sinni blóm
bara á konudaginn," segir Logi, sem er feginn
að komast burt útí náttúruna og friðinn um
þessa mestu ferðahelgi íslendinga.
.Da^uir
Ragga Gísla er aftur komin til landsins og byrjuð að skemmta landanum með
Stuðmönnum, um verslunarmannahelgina verður hún síðan í Eyjum, ætli þau fái
boð um að skemmta í Tívolíinu í Kaupmannahöfn núna eins og í „Með allt á
hreinu"?
■ LÍF OG LIST
Laxness og
fræðibækur
„Ég les
voða lítið á
sumrin, en
einn af
mínum
uppáhalds rithöfundum er
Halldór Laxness og Alþýðu-
bókin eru hans bestu skrif að
mínu mati,“ segir Arni Steinar
Jóhannsson, umhverfisstjóri
Akureyrar.
En Arni Steinar er líka mjög
hrifinn af sögu, Ianda- og
mannfræði og ýmsum fræði-
bókum sem hægt er að glugga
í. Arni þarf mikið að skrifa
skýrslur og ræður í starfi sínu,
en segist ekki vera mikið skáld
þrátt fyrir að hann hafi gaman
af að segja sögur.
Cabaret platan
orðin ansi eydd
Árni segist vera mikil alæta á
góða tónlist en segist þó oft vera tíu árum á eftir
hvað nýjustu stefnurnar varðar.
„Þegar ég vil v'era í rólegheitunum, kveiki ég á
kerti og hlusta á eitthvað klassískt og gott,“ segir
Árni Steinar, en hann segist líka vera hrifinn af
gömlum bandarískum dægurlögum og gömlum
góðum stjörnum.
„Ég er líka afskaplega hrifinn af söngleikjum
og plöturnar mínar úr Cabaret og Hárinu eru
mikið eyddar," segir Arni Steinar.
Ækmm Get alltaf horft á
Pretfy Woman
Árni Steinar er mjög hrifinn af
kvikmyndum með sögulegu
ívafi eins og Titanic og góðum gamanmyndum
með leikurum á borð við Walter Mattheau og
Jack Lemmon, en er ekki mikið fyrir hasar-
myndir. „Ég hata blóðsúthellingar, ég skil ekkert
í geimmyndum; ég gæti alveg eins horft á þok-
una úti,“ segir Árni Steinar. En ævintýralegar
myndir með góðan endi eiga upp á pallborðið
hjá Arna Steinari sem segist alltaf geta horft á
myndina Pretty Woman.
■ fra degi til dags
Eftir góða máltíð getum við fyrirgefið
öllum - meira að segja ættingjum okk-
ar. Oscar Wilde.
Þettagerðist 31. júlí
• 1992 Fyrsta barnið fæddist eftir glasa-
frjóvgun hérlendis. 1991 Börn náttúr-
unnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, frumsýnd.
• 1944 hvarf franski rithöfundurinn og
flugmaðurinn Antoine de Saint-
Exupery, á flugi yfir Suður-Frakklandi.
Þessi fæddust 31. júli
• 1900 Antoine Saint-Exupéry, flugmað-
urinn og höfundur sögunnar um litla
prinsinn.
• 1944 Geraldine Chaplin, bandarísk
Ieikkona, dóttir Charlie Chaplin.
Vísa dagsins
Við skulum vona að ekki verði margir
þannig á sig komnir að þeir geti ekki
greint á milli götujaðra, eins og lýst er í
þessari ágætu ferskeytlu Guðmundar
Inga Kristjánssonar, frá Kirkjubóli!
Hef égfundið heyrt og reynt
hestsins vit og snilli;
þegar ehki gat ég greint
götujaðra milli.
Merkisdagur
Fyrir 500 árum kom Cristopher Col-
umbus á land á eyjunni Trinidad, lyrstur
Evrópumanna. Trinidad tilheyrir ríkinu
Trinidad og Tobago sem heitir eftir sam-
nefndum eyjum í Vestur-Indíum, undan
strönd Venesúela. Spánverjar Iögðu Trini-
dad undir sig, en Bretar unnu hana af
þeim árið 1797. Ríkið fékk heimastjórn
og varð sjálfstætt lýðveldi í breska Sam-
veldinu árið 1976. fbúar eru rúm milljón
og er enska ríkismál, þingbundið lýðræði
er á eyjunum. Helstu atvinnugreinar
tengjast olíuvinnslu, efnaiðnaði og ferða-
mannaiðnaði.
Hvað erpennavinur?
Á fundi hjá krökkum í skátaflokki í
Kalíforníu stakk foringinn upp á því að
krakkarnir veldu sér pennavini f Bosníu
af nafnalista sem hann var með. Einn
krakkanna spurði strax: „Hvað er penna-
vinur“. Annar var betur upplýstur og
svaraði á undan foringjanum: „Það er
eiginlega alveg eins og tölvupóstur, nema
maður verður að nota blað og penna.“
Afmælisbam dagsins
Hagfræðingurinn Milton Friedman
á 86 ára afmæli í dag. Hann fékk
Nóbelsverðlaun í hagfræði árið
1975. Þekktasta bók hans er Fram-
tak og frelsi, sem út kom 1982.
Friedman er þekktur fyrir kenning-
ar í peningamálum og hugmyndir
sínar um frjálshyggjuna. Hann hafði
áhrif á efriahagsstefriu Margaret
Thacher og Ronald Reagan.
Veffang dagsins
Hver kannast ekki við það vandamál þeg-
ar sokkar hverfa, án nokkurra skýringa?
Yfirleitt hverfur þó ekki heilt par, heldur
aðeins helmingur parsins. Þeir sem settu
upp vefinn á: http://www.jagat.com/-
joel/socks.html/ hafa leitað lausna á
þessum vanda og sett upp The Bureau of
Missing Socks eða Embætti týndu sokk-
anna.