Dagur - 31.07.1998, Blaðsíða 4
rD^tr
*• r»
20 -FÖSTVDAGUR 3 1. J V L í 19 9 8
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
bókaBl
TöfrarAstrid
Maður þarf svo sannarlega ekki
að vera barn til að ganga fullur
eftirvæntingar inn í sagnaheim
Astrid Lindgren. Einungis er
nauðsynlegt að hafa varðveitt
einhverja ögn af barninu í sér.
Það sem upp á vantar tekst Lind-
gren að endurskapa og fyrr en
varir er maður orðinn glatt barn
á nýjan leik.
Omótstæðilegir töfrar leika
Iausum hala á rúmum sexhundr-
uð síðum í stórbók, fallega
myndskreyttri, sem Mál og
menning hefur sent frá sér og
ber heitið Sögur og ævintýri.
Bókin geymir kafla úr nokkrum
sögum Lindgren og einnig heilar
sögur. Þarna er einnig stutt leik-
rit, Aðalatriðið er að vera hress,
og smásaga, Tu, tu, tu. Leikritið
skortir spennu og sterka per-
sónusköpun og smásagan, sem
hefur yfir sér þjóðsagnakenndan
blæ, er laus við þá einlægni sem
alla jafna einkennir verk Lind-
gren og gerir þau svo hugstæð.
Leikritið og smásagan koma á
óvart einfaldlega vegna þess að
þau er rétt við meðallagið hvað
gæði varðar, en á vissan hátt er
notalegt til þess að vita að af-
burðarithöfundar geta átt sína
hversdagslegu daga rétt eins og
við meðalmennin.
En fyrir utan daufar fjörutíu
blaðsíður þá er bókin yndisleg
Iesning. Það er endalaust hægt
að dást að meistaraverkinu Bróð-
ir minn Ljónshjarta sem þarna er
birt í heild sinni. Verkið er ríkt af
angurværð og hlýju ásamt
spennu og trú á mátt þess góða í
tilverunni. Þetta er ein fegursta
barnabók sem skrifuð hefur verið
á þessari öld og það barn sem
ekki á þess kost að lesa hana fer
mikils á mis. Myndir Ilon
Wiklands eru sérlega góðar og
þýðing Þorleifs Haukssonar er
einfaldlega frábær.
Hvar er Lína?
Hetjan úr barnæsku okkar, Lína
langsokkur, er fjarri góðu gamni í
þessu verki en engin saga af
þessari ofurkvenslu hefur ratað í
þessa stórbók. Eg kann enga
skýringu á fjarveru hennar en
kannski er hin andfélagslega
Lína orðin stofnun út af fyrir sig
og á ekki samleið með öðrum. En
í þessari bók er enginn skortur á
börnum sem hafa gnægð per-
sónutöfra og láta hugmyndaflug-
ið ráða, enda er skapari þeirra
kona sem veit að börn eru besta
fólkið. Þarna er j>rakkarinn Emil
að flagga með Idu systur sinni,
hin skapbráða Madditt sem selur
Betu systur sína fyrir slikk og
Ronja ræningjadóttir og börnin á
Saltkráku ásamt fleira smáfólki
sem full forvitni kanna Ijölbreyti-
leika tilverunnar, varpa reglufest-
unni fyrir róða og valda uppnámi
í samfélagi hinna fullorðnu.
Brot af því besta
I þessari ágætu bók er auk heilla
sagna að finna brot úr nokkrum
verka Lindgren. Kaflarnir eru úr
Á Saltkráku, Leynilögreglu-
manninum Karli Blómkvist,
Elsku Míó minn og Ronju ræn-
ingadóttur. Vandræðin sem fylgja
slfkum stökum köflum er mögu-
Ieikinn á að Iesendur fyllist
gremju og telji sig svikna því sag-
an stingur af rétt í þann mund
sem hún er að hefjast. Þetta á
einkum við þegar kemur að þætti
Karls Blómkvist en sagan er að
Stórbók með sögum Astrid Lindgren. Sennilega besta sumarlesningin
þetta áríð og því einnig besta sumargjöfin.
vekja forvitni þegar endirinn tek-
ur við. Það má vissulega réttlæta
þessa ráðstöfun með því að þarna
sé verið að gefa sýnishorn af því
besta sem þessi afburðahöfundur
hefur látið frá sér fara. Gremju-
fullum börnum þykja slíkar skýr-
ingar þó sennilega þunnur þrett-
ándi og vilja fá sögu sína en eng-
ar refjar. Þar sem heimildir mín-
ar segja að sögurnar af Karli
Blómkvist séu uppseldar hjá for-
laginu held ég það væri heillaráð
að endurútgefa þær fyrir næstu
jól svo aðdáendur hans, á öllum
aldri, geti gengið úr skugga um
hvað gerðist eftir að punktur var
settur %dð sögu hans í stórbók-
inni.
En það var sérlega gaman að fá
þessa skemmtilegu bók inn á
horð. Sennilega er bókin besta
sumarlesningin þetta árið og því
einnig besta sumargjöfin.
Yfir hafið til Hofsóss á Islendingadag
Vesturfarasafnið á
Hofsósi heldurhátíð á
svokölluðum íslend-
ingadegi á laugardag.
Stóra sviðið kl. 20.00
fim. 6/8, uppselt
fös. 7/8, uppselt
lau. 8/8, uppselt
Aukasýning 9/8 laus sæti
Skoðið GREASE
vefinn www.mbl.is
Miðasaian er opin daglega
frá kl. 13 -18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
íslendingadagur verður haldinn
hátíðlegur í fyrsta skipti á Hofs-
ósi laugardaginn 1. ágúst. „Þetta
hefur verið í undirbúningi frá því
við fréttum af því í vetur, að von
væri á stórum hópi fólks af ís-
Ienskum ættum frá Bandaríkjun-
um og Kanada til Iandsins í sum-
ar,“ segir Vigdís Esradóttir, upp-
Iýsingafulltrúi Vesturfarasafnsins
á Hofsósi. „Við ákváðum að
halda hátíð, því það hafa ekki
komið hingað fleiri Vestur-ís-
lendingar í einu síðan á þjóðhá-
tið 1930 og 1974. Okkur langaði
til að heiðra fólkið með hátíðar-
höldum, en síðan er ætlunin að
gera Islendingadaginn að árleg-
um viðburði.
Ástæðan fyrir því hve margir
eru á ferðinni einmitt núna er sú
að Bændasamtökin tóku á Ieigu
vél, sem fór með 360 Islendinga
vestur í vikunni. Þeir ætla að
taka þátt í hátíðarhöldum á ís-
lendingadeginum vestanhafs, en
hann hefur árlega verið haldinn
fyrstu helgina í ágúst síðan 1874.
Tania Axelsson, starfsmaður
Þjóðræknifélagsins í Gimli, hefur
séð um að skipuleggja ferðir
Vestur-íslendinganna hingað
með þessari sömu vél. Undirtekt-
ir hafa verið góðar, eflaust vegna
þess hve mikið er orðið um það í
Bandaríkjunum og Kanada að
fólk leiti uppruna síns. Áhugi
fólks á upprunanum hefur orðið
til að styrkja tenglsin á milli ís-
Iands og fólks af íslensk-
um ættum vestanhafs, á
undanförnum árum."
Tvö ár eru síðan Vest-
urfarasetrið var opnað á
Hofsósi, en það skipu-
leggur daginn. „Opnun
Vesturfarasetursins hef-
ur gerbreytt staðnum,“
segir Vigdís. „Fólk sækir
hingað mun meira en
áður, og jafnvel ferða-
mannastraumur í ná-
grannabyggðunum hef-
ur aukist með tilkomu
safnsins.“
Þjóðleg myndlist að
vestan
Vesturfarasetrið ætlar að
þjófstarta hátíðinni
kvöld, föstudag, því þá
heldur Magnús Ólafs-
son bóndi frá Norður-
Dakóta fyrirlestur í safninu.
„Magnús tók á móti Karlakórn-
um Heimi þegar hann fór í heim-
sókn vestur í fyrra. Erindi hans
fjallar um búskaparhætti í Norð-
ur-Dakóta og verður flutt á ís-
lensku,“ segir Vigdís.
Á undan setningarathöfninni á
laugardag býður Bernd
Ogrondnik öllum sem vilja á leik-
brúðusýningu í Pakkhúsinu.
Bernd kemur hingað frá New
York en hann hefur meðal annars
unnið á Islandi, við að teikna og
stjórna Pappírs Pésa. Síðan verða
hátíðarhöldin formlega sett með
fánareið.
I Vesturfarasetrinu verður opn-
uð myndlistarsýning Patriciu
Guttormson Peacock. „Patricia
er fædd og uppalin í Bresku
Kólombíu, en hún er ættuð frá
Austljörðum og af Skagaströnd.
Hún málar afar þjóðlegar vatns-
litamyndir af konum í íslenska
þjóðbúningnum," segir Vigdís og
bendir á að sýningin mun aðeins
standa yfir í eina viku. Við opn-
unina leikur Marín Tumadóttir
15 ára tónlistarmaður frá Hólum
á flautu.
Hátíðarkvöldverður £ Félags-
heimilinu Höfðaborg verður öll-
um opinn en sérstakur gestur
þar, í forföllum forsetahjónanna,
er Helgi Ágústsson, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu.
Veislustjóri verður Guðrún Pét-
ursdóttir, dósent og Skagfirðing-
ur. „Guðrún er vel kunnug vest-
anhafs, því hún vann í mörg ár
við samanburðarrannsóknir á
hjartasjúkdómum Islendinga og
Vestur-Islendinga, ásamt Jóhanni
Axelssyni," segir Vigdís og bætir
því við að hún sé samt fyrst og
fremst veislustjóri vegna þess hve
skemmtileg hún er.
Með kvöldverðinum verður
boðið upp á létta dagskrá. Bill
Holm, rithöfundur frá
Minnesota, segir sögur og spilar
á hljóðfæri, Hjörleifur Hjartar-
son og Kristjana Arngrímsdóttir,
meðlimir Tjarnarkvartettsins,
syngja lög sem spanna sögu ís-
Ienskra sönglaga og Jón Þor-
steinn Reynisson 9 ára spilar á
harmoniku. Hátíðinni lýkur með
dansleik. -MEÓ