Dagur - 31.07.1998, Page 19
» • i> i i ,i tii >■t anair.ii •>' M
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 - 3S
LÍFIÐ í LANDINU
Fluguveiðar að sumri (78)
Draugasaga
íyrir fluguveiðifólk
í tilefni af langri
helgi og von-
andi góðri veiði
birti ég nú á
vettvangi flugu-
veiðinnar stutta
sögu sem gerð-
ist um þetta
leyti sumars fyr-
ir nokkrum
árum. Til
skemmtunar og
upprifjunar fyrir
þá sem hafa komist í kast við
hulin öfl á veiðum. Víst hafa
mergjaðri sögur heyrst, af draug-
um og fiskum og flugum. En
þessi er bara svo fáránleg. Og
gjörsamlega óútskýranleg. En
hún byrjaði nógu sakleysislega:
Sagan
Það var síðdegis á heitum föstu-
degi. Ég sat við ritstörf heima.
Opnaði glugga og fann hita-
svækju koma á móti, hugsaði
með mér að nú væri lygnt við
Elliðavatn. Heyrði fiskana kalla.
Eg yfirgaf tölvuna, en skaut
mér niður við fluguhnýtinga-
borðið á leiðinni út. Vissi að ef
logn væri yfir vatninu gæti svört
þurrfluga komið að góðum not-
um, en ef gáraði lítillega væri
gott að eiga Watson fancy púpu
með kúluhaus. Hnýtti tvær af
hvorri.
Það sem næst gerðist er mikil-
vægt fyrir frásögnina. Ég náði
mér í örlítinn plastpoka, tóman,
utan af fluguhnýtingarefni.
Þetta eru litlir pokar á stærð við
eldspýtnastokk, að „flatarmáli",
en læstir saman með hálfgerð-
um „plastrennilási". í hann
renndi ég flugunum sem ég var
að enda við að hnýta. Ég hirti
ekki um að loka pokanum, enda
féll hann þétt að flugunum;
þessir pokar eru ekki ósvipaðir
samlokupokum, nema mildu
minni. Fara vel í brjóstvasa, góð-
ir fyrir fínlega smáhluti. í þetta
setti ég sem sagt flugurnar fjór-
ar, skellti mér út í japanska smá-
bílinn og lagði pokann við hlið
mér í farþegasætið frammí. A
næsta rauða ljósi gjóaði ég aug-
um að flugunum í plaspokanum
og hugsaði mér gott til glóðar-
innar.
Föstudagsumferðin í Reykja-
vík var þung, brækjan stóð úr
bílunum og við stórmarkaði
þröng - en ég var á Ieið á vit
móður náttúru. Þetta yrði gott
kvöld.
Ók af stað á grænu ljósi með
sól í hjarta.
Við vatnið
Þar sem ég fer niður að vatninu
hlykkjast malarvegur meðfram
hvammi; ég tók eftir að þar gekk
þungbúinn og ósjálegur bak-
pokamaður, greinilega útlend-
ingur. Ekki hirti ég um að bjóða
honum far, en hélt sjálfur niður
að mínum áningarstað: mal-
arplani milli sumarbústaða.
Vatnið var eins og rjómi í skál,
fiskar að vaka um allt, fuglar á
steini, kvak í mó. Mér hló hugur
í brjósti þegar ég leit á Iitla
plastpokann sem geymdi flugun-
ar mínar. Nú kæmu þær sér vel
þurrflugurnar.
Þegar hér er komið sögu er
mikilvægt að hafa í huga að ég
sat inni í bíl, ekki hreyfðist hár á
höfði, ég hafði ekki snert pok-
ann frá því ég fór að heiman.
Þarna lá hann. I honum voru
tvær þurrflugur, svartar, en eng-
inn púpa með kúluhaus. Þær
voru horfnar. Höfðu þær skopp-
að úr pokanum út af hristingi?
Ég sat grafkyrr og rýndi á sætið -
þær hlytu að Iiggja þar. Þetta var
ullaráklæði, hvaða fluga sem
lenti á því hlyti að festast. En
ekki þessar. Minnugur margra
stunda sem maður hefur átt við
að leita að flugum eða smáhlut-
um í möl eða móa hreyfði ég
mig ekki og gætti þess að strjúka
ekki hönd yfir neitt. Þær GATU
ekki hafa komist annað en á
gólfið, úr því að þær voru ekki í
sætinu. Gúmmímottan fyrir
framan sætið var auð. Ég
skimaði milli sætanna, þreifaði
svo ofurvarlega. Ekkert. Þá hlytu
þær að liggja milli sætis og
hurðar, hinum megin. Ég fór út,
opnaði dyrnar farþegamegin, of-
urvarlega, og gætti að hvort þær
dyttu nokkuð út. Mér var bara
alls ekki sama um þessar púpur.
Þær hvorki duttu út né lágu á
gólfinu, hvorki fyrir framan né
aftan né undir sætinu, ekki
heldur á því. Þær hlutu þá að
hafa dottið út þegar ég opnaði
hurðina þótt ég hefði ekki tekið
eftir því. Ég skreið um planið við
bílinn.
Eins og lesendur grunar víst
nú fann ég hvergi púpurnar. Ég
endaði með því að snúa öllu á
haus í bílnum, strauk og grand-
skoðaði, fór jafnvel inní hanska-
hólfið. Opnaði öskubakkann
eins og fáviti. Strauk hvern lófa-
stóran blett í þeirri von að stinga
mig. Loks gafst ég upp. Reis á
lappir. Yfir mér stóð bakpoka-
maðurinn.
Þjóðverjiim
Hann reyndist Þjóðveiji. Spurði
hvað ég hefði verið að gera, ég
gaf lítið út á það, spurði meira
um hans ferðir. Það var dapur-
um, og rambað upp að þessu
vatni.
Og hvar eru veiðigræjurnar?
spurði ég, með meiri áhuga á
fluguveiðum hans en ástum.
Fínasta stöng
Það birti yfir okkar manni. Ur
bakpokanum tók hann fágætlega
fagran stuttan leðurhólk og
sýndi mér „smuggler' gerð af
flugustöng, setta saman úr sex
hlutum. Hún féll haganlega í
bakpoka, og þar geymdi hann
lítið hjól og flugnabox. Stöngin
vakti aðdáun mína. Fagur grip-
ur sem hann sagði mér að hefði
kostað allan sparnað sinn. Ein-
hvern grúa marka. Miðað við
klæðaburð og annað gat ég ekki
betur séð en þar færi maður
sem ekki eyddi og spennti í ann-
hún færi í hendi. Hvílíkur kosta-
gripur.
Nú var komið í Ijós að við vor-
um bræður í hinni alþjóðlegu
reglu fluguveiðimanna. Tókum
tal, sögðum sögur, og áður en
langt hafði Iiðið vorum við
komnir út með vatni, því ég
sagði honum að kærastan væri
jú við Goðafoss, en fiskarnir og
stöngin væru hér. Svo sýndi ég
honum hvernig á að veiða
Elliðavatnsbleikjur og hann var
hæstánægður með lífið á ný.
Hafði aldrei komist í færi við
svona spræka smásilunga. Sagð-
ist vera í veiðifélagi ytra sem
krefðist hárra félagsgjalda gegn
þeim forréttindum að fá að
veiða smásíli á flugu í heitum
tjörnum eða díkjum sem manns-
höndin hefði skapað. Eitthvað
annað en þetta ósnortna Iand,
þessi fögru vötn, þessir fínu fisk-
ar. Vinurinn sá meira að segja að
ef hann ætlaði að Ianda fiski á
Islandi yrði hann að fá sér háf,
því fiskarnir hér væru engar
skurðalontur að drepast úr hita
eins og í Þýskalandi; ég sagði
honum að fara til Steina í Ar-
mótum næsta dag.
Kvöld
Síðla kvölds gengum við vinir
aftur tilbaka, og nú tók ég eftir
að axlirnar sigu og sporin urðu
þung, kærastan var komin í
hjartað sem bleikjurnar höfðu
verið einráðar. Nei, hann vildi
ekki Ieita gistingar, ætlaði að
tjalda í Heiðmörk. Við tókum
saman, spjölluðum og kvödd-
umst og þetta hefði átt að verða
endir á degi sem þar með hefði
orðið næsta óminnisstæður.
En svo var nú ekki.
Morgtum
Hringir ekki síminn. Það er
Steini í Armótum, staddur með
hnugginn Þjóðveija sem var bú-
inn að týna fremsta hlutanum af
dýrustu og fínustu sex hluta
„smuggler" stöng sem til lands-
ins hafði komið. Hvort ég hefði
nokkuð séð toppinn þar sem ég
ók á braut?
Nú sagði ég Steina eins og
var: ég hefði í einhverri þijósku
ákveðið að leita aftur að púpun-
um mínum góðu á planinu og
kembt það fram og aftur við bíl-
inn. Ef þar hefði legið spegilgljá-
andi toppur af fagurri stöng þá
hefði ég fundið hann; bætti við
að púpurnar hefðu ekki komið
fram.
Þjóðveijinn var óhuggandi.
Sat með grátstafinn í kverkun-
um allan þennan Iaugardag hjá
Steina, sem hringdi í Magnús á
Vatnsenda, lét mig auglýsa á Rás
2 í krafti klíkuskapar; þessi mað-
ur átti bágt: búinn að týna
toppnum af þessari líka frábæru
stöng, og kærustunni sem var
einhvers staðar við Goðafoss.
Þreyttui
Satt að segja var ég orðinn
þreyttur á þessum Þjóðverja og
er hann úr sögunni. Ég fór
reyndar upp að vatni sama dag
og litaðist um fyrir siðasakir,
fann hvorki púpur né topp, kom
aftur á sunnudag og allt fór á
sömu leið. A mánudagsmorgni
snaraðist ég snemma til vinnu.
Sól skein í heiði. Ekki blakti hár
á höfði. Ég hljóp út í bíl, opnaði,
og skaut mér í sætið... eða svo
gott sem. Um leið og ég var að
tylla mér sá ég eitthvað í sætinu.
Snarstoppaði. Sté varlega út aft-
ur og fann hvernig kalt vatn
rann milli skinns og hörunds
þegar ég sá hvað lá í bílstjóra-
sætinu.
Tvær Watson fancy púpur
með kúluhaus.
FLUGUR
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
Elliðavatn: vettvangur dularfullra atburða.
leg saga. Þau höfðu komið sam-
an, hann og kærastan, til að
ferðast með bakpoka um landið
og veiða. Við Goðafoss hafði
þeim orðið sundurorða, í fyrsta
skipti í 20 ár, hann hoppað um
borð í rútu, komið til Reykjavík-
ur síðdegis ákaflega dapur,
ákveðið að fara út fyrir bæinn til
að vera einn með sorgum sín-
að en brýnustu nauðsynjar. En
stöngina meðhöndlaði hann eins
og sannan dýrgrip, sem hún
vissulega var, og hvílíka nær-
færni og gleði í auga manns út
af einni veiðistöng hafði ég
aldrei áður séð - né síðar. Hef
þó mörgu kynnst í þeim efnum.
Við strukum hvern bút og spáð-
um í samsetninguna og hvernig
I
’
••; ■ -1; •
Tvær Watson fancy með kúluhaus - hvað olli hvarfi þeirra?