Dagur - 31.07.1998, Side 20
36 — FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
...gjfr....
Krossgátanr. 98
Lausnarorðið er ....
Nafn
Heimilisfang
Póstnúmer og staður
Helgarkross-
gátanr. 98
I helgarkrossgátunni er gerður
skýr greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum. Lausn-
arorð gátunnar á að skrifa á
lausnarseðilinn og senda hann
til Dags, Strandgötu 31, 600
Akureyri merktan: Helgarkross-
gáta nr. 98. Einnig er hægt að
senda símbréf í númer 460-
6161.
I verðlaun fýrir helgarkross-
gátuna að þessu sinni er bókin:
„Andstæður" - ljóðasafn eftir
Svein frá Elivogum.
Lausnarorð krossgátu nr. 96
var Herbergi. Það er Sólveig
Fjólm, Raftahlíð 49, 550 Sauð-
árkróki, sem er vinningshafinn
og fær hún bókina: „Laríon11 eft-
ir Peter Freuchen.
Lausnarorð krossgátu nr. 97
verður tilkynnt sem og vinnings-
hafi um leið og helgarkrossgáta
nr. 99 birtist.
Stpfriir hátt
Hljómsveitin
200.000 naglbítar
stefnirhátt.Aö
minnsta kosti 24 plöt-
ur og hananú! Dagar
ungafólksins áAkur-
eyri hefjast í dag og
Villi ogfélagarverða
meðal listamanna.
„Heimsyfirráð eða dauði. Við
ætlum að gefa út að minnsta
kosti 24 plötur. Allt annað væri
tap fyrir tónlistinni,11 segir Vil-
helm Anton Jónsson, gítarleikari
og söngvari í hljómsveitinni
200.000 naglbítar, en þeir halda
tónleika í dag í tengslum við
Daga unga fólksins í Deiglunni
á Akureyri.
Plata í bígerð
Vilhelm eða Villi eins og hann er
jafnan kallaður útskrifaðist frá
Menntaskólanum á Akureyri
síðastliðið vor og vinnur nú á
sambýli á Akureyri, „og svo er ég
að rembast við að vera frægur í
sólkerfinu íyrir tónlistina okkar.
200.000 naglbítar vinna nú
hörðum höndum að fyrstu
breiðskífu sinni. „Við byijuðum
að spila saman fyrir um fimm
árum og höfum spilað undir alls
kyns nöfnurn," segir Villi en Kári
bróðir hans og Axel Arnason
skipa einnig hljómsveitina.
200.000 naglbítar urðu í
þriðja sæti í Músíktilraunum
árið 1995 og Villi var jafnframt
kosinn besti söngvarinn. Tveim-
ur árum síðar voru þeir meðal
flytjenda á safnplötunni Spírur
og gerðu lagið „Hæð í húsi“ vin-
sælt. Þá fóru hjólin að snúast.
„Við fengum samningstilboð frá
Spor og Skífunni og við skrifuð-
um undir fimm plötusamninga
við Spor.“ Fyrsta platan kemur
út í október næstkomandi. „Það
verða 12-14 lög á henni og við
erum komnir vel á veg með
hana. Þetta verður frábær plata,
sú besta."
- Hvernig tónlist spilið þið?
„Þetta er rokk og ról. Þetta er
eins og lítill pappírsbátur sem er
á heljarinnar hafi sem er dökk-
blátt og svakaleg undiraldan sést
ekki. Báturinn kastast til og
ræður ekki neitt við neitt. Oðr-
um megin á seglið á bátnum er
skrifað dapurt ljóð en hinum
megin er skrifað eitthvað
skemmtilegt. Báturinn er hvítur
en það eru djúpbláir og svartir
litir í myndinni. Svona er tón-
listin okkar."
Framtíðin er í dag
Listadagar unga fólksins heljast
í dag með opnun 200.000 nagl-
bíta kl. 17.30 í Deiglunni. Þá
spilar hljómsveitin, óháð lista-
dögum, ásamt Maus, Quarashi
og nokkrum plötusnúðum á
Renniverkstæðinu í kvöld og
annað kvöld. „Þetta er ekki í
tengslum við Halló Akureyri og
búið að vera mikið vesen og
leiðindi. Þeir sömu og lofa ein-
staklingsframtakið og atorku-
semi fara í einhvern íhalds-
mannaleik um leið og einhver
annar en þeir ríða á vaðið.“
Villi segir þýðingu listadaga
unga fólksins mikla. „Þetta er
virðingarvert og það besta sem
gert hefur verið lengi. Akureyri
er fínn bær en hann er sofandi
og það þarf að rífa hann upp úr
rúminu á nefhárunum - núna
því framtíðin er í dag.“ -JV