Dagur - 17.10.1998, Page 5
MENNINGARLÍFIÐ t LANDINU
Listaverk ganga
aldrei upp
„Ég geng ekki frá heldur er allt mitt í brotum. Maður sér betur innviði alls í brotunum en í hinu slétta, fellda og frá-
gengna. Það sem er frágengið er eins og dauðinn “
GuðbergurBergsson
sendirfrá sérþrjár
bækurfyrírþessijól.
Ein þeirra erbók þar
sem hann rýnirí
myndaflokkinn
Kenjamar eftir
spánska málarann
Goya.
Auk bókarinnar um Goya sendir
Guðbergur frá sér bók um lista-
manninn Sæmund Valdimarsson
og annað bindi skáldendurminn-
inga sinna. Þótt viðalinu sé ætlað
að snúast um Goya getur blaða-
maður ekki stillt sig um að spyxja
hvort endurminningabókin sé
lokabindið og fær þetta svar:
„Það er ekki til neitt sem heit-
ir lokaverk. Það eru einungis
miðlungs listamennirnir sem
ganga algjörlega frá verkum sfn-
um. Verk mikilla snillinga eru
alltaf ófullgerð. Þeir vita að það
er ekki hægt að ganga frá neinu
þó hægt sé að ganga frá lífinu."
- Og þú gengur ekkifrá?
Eg geng ekki frá heldur er allt
mitt í brotum. Maður sér betur
innviði alls í brotunum en í hinu
slétta, fellda og frágengna. Það
sem er frágengið er eins og
dauðinn."
- Snúum okkur að bók þinni
um Goya. Þú liefur ætíð haft
mikinn álmga á myndlist.
Rithöfundur sem hefur ekki
áhuga á myndlist er ekki rithöf-
undur þótt hann kunni að kalla
sig þ\d nafni. Maður sem hefur
ekki gott formskyn getur ekki
verið góður rithöfundur. Undir-
stöðu sagnalistarinnar er að
finna í myndlistinni enda er
myndlistin miklu eldri en frásag-
an. Það hafa til dæmis aldrei
fundist nein handrit í hellum.“
- Snúum okkur að Kenjunum.
A sínum tíma skrifaði ég um
Kenjarnar fyrir Þjóðviljann. Eg
hafði reyndar meiri áhuga á
myndaröð Goya Hörmungum
stríðsins sem aldrei hefur verið
skrifað um. Eg skrifaði nokkrar
greinar um þann flokk og ætlaði
að fá þær birtar í Þjóðviljanum
en eftir birtingu Kenjanna
fannst þeim nóg komið. Það tók
mig tuttugu og fimm ár að koma
Kenjunum út svo kannski þarf
ég að lifa tuttugu og fimm ár í
viðbót til að koma út Hörmung-
um stríðsins. En það er vel þess
virði að lifa í tuttugu og fimm ár
til þess.“
- Hvað heillar þig við Goya?
Ahugi Goya á hinu djöfullega
hefur lengi heillað mig. Goya
virtist vita að í öllum englum
búa dulkóðaðir andskotar. Það
er mjög erfitt að leysa upp þessa
dulkóðun og koma auga á and-
skotann í englunum en það gera
rithöfundarnir ef þeir eru góðir.“
- Leitastu eftir því að sjá eitt-
hvað í þessum myndum sem
Goya hefur kannski aldrei ætlað
sér að setja t þær?
“Auðvitað. List sem menn
geta ekki túlkað á sinn eigin hátt
er einskis virði. Listin er ekki
eins og dæmi í skólabók þar sem
allt gengur upp. Listaverk ganga
aldrei upp. Þau eru alltaf ófrá-
gengin."
- Er þá ekki hægt að misskilja
listaverk?
“Það er hægt að misskilja lé-
legt listaverk en það er ekki
hægt að skilja gott listverk full-
komlega. Þess vegna er það
veikleiki listar sem skrifuð er
eftir formúlum að þar gengur
allt upp. En þar gengur allt upp
í afar stuttan tíma, einungis
meðan formúlurnar og kenning-
arnar eru við lýði og þær eru við
lýði í fimm til sex ár. Síðan tóra
þær í tíu ár og eftir það gengur
fólk út í frelsið. Maður sér til
dæmis hvernig Kristín Ástgeirs-
dóttir hefur kúgað sjálfa sig og
verið kúguð með dvöl sinni í
Kvennalistanum. I nýlegum
sjónvarpsumræðum frá Alþingi
kom greinilega í ljós að þær kon-
ur sem ennþá eru í Kvennalist-
anum eru enn að staglast á því
sama meðan Kristín notaði vitið
í fyrsta sinn á ævinni. Eins er
það í bókmenntunum, á meðan
menn fylgja ákveðinni stefnu
eða kennisetningu eru þeir að
staglast á því sama en um leið
og þeir losna við kennisetning-
una blómstra þeir.“
K enjarnar
- Lo.< Cttjtricfjos -
cftir Francisco Gop y Lucicntcs
i tútkuii Cuobergs Ikrgssonar
„Goya virtist vita að í öllum englum
búa dulkóðaðir andskotar. Það er
mjög erfitt að leysa upp þessa
dulkóðun og koma auga á andskot-
ann í englunum en það gera rithöf-
undarnir efþeir eru góðir."
- Fræðingamir eru því fangar
kenninganna?
Já, þeir eru svo vanir skólun-
um þar sem allt gengur upp. Og
það er svo þægilegt þegar allt
gengur upp. En svo kemur að
því að menn sjá að útreikningar
þeirra eru rangir. En það tekur
venjulega langan tíma fyrir þá
að koma auga á það.“
- En hvað tekur svo við eftir út-
komu þessara þriggja bóka sem
þú sendirfrá þér í ár?
Þá tekur við Leyndarmálið
mikla.“ — KB
17. O K TÚ B E H 1 9 9 8 -
Leikfélag
Akureyrar
Verkefni leikársins 1998-1999
Rummungur
ræningi
Ævintýri fyrir börn með
tónlist og töfrum eftir
Otfried Preussler.
Næstu sýningar
6. sýning laugard. 17. okt. kl. 14.00
7. sýning sunnud. 18. okt. kl. 14.00
8. sýning laugard. 24. okt. kl. 14.00
9. sýning sunnud. 25. okt. kl. 14.00
10. sýning fimmtud. 29. okt. kl. 15.00
11. sýning laugard. 31. okt. kl. 14.00
12. sýning sunnud. 1. nóv. kl. 14.00
13. sýning fimmtud. 5. nóv. kl. 15.00
14. sýning laugard. 7. nóv. kl. 14.00
15. sýning sunnud. 8. nóv. kl. 14.00
síðasta sýning
Önnur verkefni
leikársins
Pétur Gautur
eftir Henrik Ibsen.
Eitt mesta leikna sviðsverk
allra tíma.
Frumflutningur nýrrar þýðingar
Helga Hálfdánarsonar.
Tónlist: Guðni Fransson.
Búningar: Hulda Kristín
Magnúsdóttir.
Lýsing og leikmynd:
Kristín Bredal.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Frumsýning
28. desember.
Systur í
syndinni
eftir Iðunni og
Kristínu Steinsdætur.
Tónlist: Hróðmar Ingi
Sigurbjörnsson.
Aðalflytjendur tónlistar:
Tjarnarkvartettinn.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Leikmynd og búningar:
Elín Edda Árnadóttir.
Leikstjórn:
Kolbrún Halldórsdóttir.
Frumsýning
áformuð 12. mars.
Sala áskriftarkorta er hafin.
Notið ykkur frábær kjör á
áskriftarkortum og
eigið góðar stundir í
fallegu leikhúsi á
landsbyggðinni.
Miðasalan er opin frá
kl. 13 -17 virka daga nema
mánudaga og fram að
sýningum sýningardaga.
Listin er löng er lífið stutt.
Sími 462-1400.