Dagur - 17.10.1998, Qupperneq 10
*»>" x n
tj
^ i w í. í»xt# ,
26 - LAUGARDAGUR 17. OKTÚRER 1998
LÍFIÐ t LANDINU
Hún erheimsborgari á
heimsenda. Sunna
Viðarsdóttir er í alþjóð-
legum menntaskóla
einhvers staðar í eyði-
byggðumNoregs, en
húin að kenna röppur-
um afblámannakyni
mikilvægustu orðin:
„þokkalega kúl“.
Það eru 50 kílómetrar í næstu
pizzu, sjónvarp næst ekki á
staðnum og maður þarf að læra
heima meira en nokkru sinni
fyrr. Hver vill vera á svona stað?
Sunna Viðarsdóttir. Hún varð
meira að segja að berjast fyrir
því. Aðeins snjöllustu nemendur
komast á þennan alþjóðlega
menntaskóla sem er einhvers
staðar fyrir norðan Bergen í
Noregi, fyrst tekur maður ferju í
þrjá tíma, svo rútu, og'ef maður
er óheppinn og enginn tekur
mann uppí þá tekur við 45 mín-
útna gangur í skólann eftir
óupplýstum þjóðvegi. Sem þýðir
að þessir krakkar fara ekki oft í
bæinn.
Þarna eru menntaskólakrakk-
ar frá 82 þjóðlöndum. „Eða 83“
segir Sunna, það er eitthvað á
reiki hvernig á að telja. Alls um
200 nemendur.
Stúdent á þreinur ánun
Hún lauk einu ári í menntaskóla
heima og sótti um með fínar
einkunnir til að komast í þenn-
an „United World College“ sem
eini fulltrúi íslands í „busa-
bekk“. Þeir sem koma inn fá tvö
ár til að ljúka stúdentsprófi, á
seinna ári er einn Isendingur,
Tinna Rán Ægisdóttir frá Hvera-
gerði. Sunna er mjög ánægð.
Ekki það að lýsingin batni.
Hún er í herbergi með fjórum
öðrum stelpum (sem eru dug-
legar að taka til eftir sig svo
Sunna verður að vera það Iíka,
þvert gegn upplagi!). Herbergis-
félagarnir eru frá heimshornum
sem eiga fátt sameiginlegt:
Chile, Bosníu, Sviþjóð og
Indónesíu. Mestu viðbrigðin að
koma í þennan skóla úr MR
voru „rosalega ólíkt fólk“ segir
Sunna. Það er auðvelt að móðga
einhvern sem kemur langt að
með framkomu sem heima væri
túlkuð sem frekar vinaleg. Nem-
endur frá Líberíu og Islandi
þrífa sig á ólíkan hátt. (Sumir
þrífa sig eiginlega ekki og lykta
meira en aðrir). Múslimarnir
eru mikið á móti áfengi, en það
á ekki við um Norðurlandabú-
ana og nokkra aðra. Þessi skóli
er eiginlega eins og Allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna og
kynnin sem takast eru mikil og
góð, einkum þó óskipulögð eins
og gerist hjá ungu fólki á þess-
um aldri. Samskipti kynjanna?
„Ekkert vandamál“ segir Sunna
og bætir við að samdráttur
þeirra „sé ótrúlegur". Svo ástin
blómstrar? „Jájá“.
Og fleira. Afrísku rappstrák-
arnir „pikka upp frasa“ sem eru
heppilegir í rappið. Sunna sér
þeim fyrir einum: „Þokkalega
kúl“. Svo kann hún ógrynni
blótsyrða og svívirðinga á næst-
um öllum heimsmálum. Þessi
líka blíðlega stúlka.
Eins og íslensk mjólk
Sunna er eins íslensk í útliti og
mjólk úr Mjólkurbúi Flóamanna
og það fer ekki framhjá útlend-
ingunum sem þurfa að strjúka
ótrúlega fínlegt hár hennar (sem
þætti ekki mjög merkiegt í MR).
Og þeir spyrja jú um Island: „er
það jafn kalt og dimmt og Nor-
egur, með svona miklum IjöII-
um?“ Stundum er gripið til
formlegra umræðufunda þegar
heimsmálin vaxa að mikil-
vægi,Rússarnir voru með opinn
fund um ástandið heima og
leiddu hópinn í sannleikann
eins og hann blasir við þeim.
Námið er öðruvísi.
Það sem Sunnu fannst öðruvísi
við námið var þátttakan sem
krafist er af öllum og kennararn-
ir segja víst aldrei að einhver
hafi rangt fyrir sér, bara að þeir
hafi ekki rekist á „þetta í sinni
bók“. Kennt er á ensku í mis-
stórum bekkjum; Sunna er í
þriggja manna rússneskubekk
svo dæmi sé tekið. Allir verða að
læra eigið tungumál, og fyrir þá
sem koma frá smáum samfélög-
um er um að ræða sjálfsnám.
Sunna les bókmenntir móður-
málsins. Síðan verða allir að
taka eina vísindagrein, eina fé-
lagsvísindagrein, stærðfræði og
val, sem getur verið myndlist
eða aukagrein. Hún er í “þró-
unarfræðum", sem Iúta eins og
nafnið gefur til kynna að heims-
~málum, sem þau ræða út frá því
sem er efst á baugi hverju sinni.
Sunna segir að námið felist mun
minna í staðreyndalærdómi en
heima, frekar að setja sig inní og
miðla og mynda sér skoðun. I
bókmenntum verði hún til dæm-
is að setja á svið, segja frá og
segja sitt álit á því sem hún er
að lesa um.
Og meira nám, auknar skyld-
ur
Fyrir utan þetta hefðbundna eða
óhefðbundna bóklega nám verð-
ur hver nemandi að hafa „svið“.
„Ábyrgðarsvið" lýtur að bóklega
náminu og sýnir hver áherlsan
er, en svo kemur „ögrunin11 sem
felst í þrennu: að velja eina
„skapandi grein“, aðra sem felur
í sér að vera „gerandi" og sú
þriðja að „þjóua“. Ogrunin á að
vera jafn mikilvæg og bóklega
námið. Hjá Sunnu þýðir þetta
að með bóknáminu er hún í
klassískri tónlist í flautu- og pí-
anósveit, einnig í kajakróðri og
leiklist. Einangrun skólans þýðir
líka að allt sim krakkanir vilja
gera verða þau að gera sjálf. Því
kemur „þjónustusviðið“ til skjal-
anna. Sumir reka kaffihús, aðr-
ir moka snjó, eða hirða hesthús-
in. Það kemur í Ijós þegar litið
er yfir öll sviðin og möguleikana
innan hvers að krakkarnir hafa
nóg að gera. Meira en nóg.
Þetta er erfiður skóli. En
skemmtilegur, segir Sunna.
Maturinn...
... er víst ekkert sérstakur í
mötuneytinu. Þau hafa einu
sinni skroppið þessa 50 kíló-
metra í pizzu og „hún var góð“
segir Sunna. Þau eru með ball,
bíó og kaffihús sjálf, baka og
selja það sem við á að éta.
Kennararnir eru víst fínir, þau
hafa aðgang að Netinu, og fá
fimm vikna jólafrí svo allir kom-
ist heim. Námsárið er svipað að
lengd og heima, svo þau pakka
meiru inn í þrengri umbúðir en
þar tíðkast: taka þrjú ár á tveim-
ur. Og Iæra að blóta á öllum
helstu heimsmálum. Og rappa.
Þetta hljómar „þokkalega kúl“.
Svo ekki sé meira sagt. -SJH