Dagur - 17.10.1998, Side 13
I
LAUGARDAGUR 17. OKTÚRER 1998 - 29
Kókosrækjur
Þessi réttur er léttur og góður,
ekki mjög sterkur. Berið fram
með hvítum hrísgrjónum sem
krydduð hafa verið með smá
tumeric og 2 tsk. kókosrommi.
Einnig má leggja rúsínurnar í
bleyti í 30 mín. í romminu áður
en þær eru matreiddar. Réttur-
inn passar tveim og er fínn að
kvöldi eftir Ieikhús eða við önn-
ur tækifæri.
250-300 g rækjur, pillaðar og
hreinsaðar
2 karlottulaukar, sneiddir
2 msk. ósaltað smjör
1 msk. olífuolía
3 msk. kókosromm
'A bolli ljósar rúsínur
smávegis af allspice (allrahanda)
Steikið laukinn í olíunni og
smjörinu. Bætið rommi og rús-
inum við ásamt kryddinu og
sjóðið í 2 mín. Setjið rækjurnar
samanvið og sjóðið í um 4-5
mín.
Rækjur á franska
vísu
Frakkar kunna að meta rækjur
líkt og aðrir og þessi uppskrift
kemur frá suðurhluta Frakk-
Iands.
250 g rækjur í millistærð, pillað-
ar og hreinsaðar
2 msk. ósalt smjör
2 msk. olía
2 hvítlauksrif
6 tómatar, gróft skornir
2 lárviðarlauf
'h tsk sítrónusafi
7» tsk thyme
1 msk. fersk steinselja
pipar og salt ef vill
Blandið olíu og smjöri saman í
potti og hitið. Setjið hvítlaukinn
útí og brúnið hann. Fjarlægið
hvítlaukinn. Setjið tómata og
lárviðarlauf í olíuna og hitið í
um 5 mín. Bætið þá rækjum,
sítrónusafa og kryddi við'. Sjóðið
í um 5 mín. Berið fram strax.
Hvítlauksrækjur
Þessi uppskrift kallar á wok eða
góða pönnu til að steikja á. Hún
er svolítið kínversk í sér og hent-
ar tveim.
12 ferskar rækjur frekar stórar
6 hvítlauksrif
4 vorlaukar
1 msk. af hvítlaukssósu
hnetuolía eða ólífuolía til steik-
ingar
Hreinsið rækjurnar og pillið ef
það er ekki búið. Skerið laukinn
í 2 sm bita. Skerið hvftlaukinn í
þunnar sneiðar. Látið I msk. af
olíu í wok eða pönnu og hitið
vel. Steikið helminginn af hvít-
lauknum í 30 sek. Bætið við vor-
lauknum og steikið í 90 sek., og
setjið að Iokum afganginn af
hvítlauknum og steikið í 30 sek.
í viðbót. Bætið rækjunum útí og
steikið í 2 mín. Setjið sósuna
samanvið og hitið í um 1 mín.
Berið fram strax.
Karrý og kókósmjólk passa vel saman. Gott er að bera fram banana með karrýréttum.
Þrír öflugir máttarstólpar sem saman byggja upp
varnir líkamans, auka þol og stuðla að hreysti.
Mætum vetri vel undirbúin!
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyri
r