Dagur - 10.11.1998, Blaðsíða 12

Dagur - 10.11.1998, Blaðsíða 12
ÍTT'lTl m o ■-i~i ■■■■■■■■■■■■■■!■ n ■ Jg m ■■■■■■■ rm n ■ n ■■■■■■ 11 ■■■■■■■■■■■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■ n ■■■■ ■ rnin ■ i-rrr 12- ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1998 □: I9« n Arljic a 462 3500 ÞAÐ ERU ALLIR UITLAUSIR í MARV! S MÍlHiNG /IhouT Það eru allir vitlausir í Mary. Óborganleg gamanmynd frá Farelly bræðrum, leikstjórum Dumb & Dumber og KingPin. Þriðjud. kl. 19, 21 og 23. □□) DOLBY 1 D I G I T A L THERE’S SOMETHINC fíBOUT MfíRV Þriðjud. kl. 19 & 22. 170 min. B.i. 16 ára nn 1 DOLBY I D I G I T A L Tom Hanks Saving private ryan dward burns matt damon tom sizemon m óbreytts Ryans er stórmynd sem lætur engan ósnortinn. Nýjasta kvikmynd meistarans Steven Spielberg. ÍÞRÓTTIR Framstelpurnar unnu öruggan 18:24 sigur á Val. Stéttin erfyrsta skrefiö iim... Mikiðúrval afhellum og steinuin. Mjög gott verð. STÉTT HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700-FAX 577 1701 Haukastelpumar enn á toppnum Haukastelpurnar eru nú sem fyrr efstar á toppi 1. deildar kveuna, eftir 17:22 sigur gegn KA á Akur- eyri. Þó Hauka vanti enn þijá af mátt- arstólpum sínum í liðið, var KA þeim engin hindrun á sigurgöng- unni í 1. deild kvenna. Hanna Stefánsdóttir, sem hefur verið á mikilli uppleið með Iiðinu, skor- aði nú grimmt eins og í síðasta leik, en hún varð markahæst með 6 mörk ásamt Tinnu Halldórs- dóttur, sem einnig skoraði 6 mörk. Hekla Daðadóttir hefur líka verið iðin við að skora að undanförnu og gerði hún 5 mörk. Eins og í síðasta leik vantaði í Iið Hauka þær Judit Esztergal og Auði Hermannsdóttur, sem eru meiddar, og Thelma Arnadóttir var heldur ekki með, þar sem hún var stödd erlendis. Það munar um minna, en breiddin virðist næg hjá Haukum og maður kemur í manns stað. Litháskar systur verja mark- ið hjá FH og Stjömunni Stjaman í Garðabæ tók á móti hinu Hafnarfjarðarliðinu, FH, í Garðabænum og endaði leikurinn með jafntefli, 22:22. Það vakti at- hygli að tvær litháskar systur, þær Jolanta Slapihene hjá FH og Lij- ana Sadson hjá Stjörnunni, Iéku með liðunum og hafði systirin í FH-markinu sigur í keppninni um varin skot og varði alls fimmt- án, en Stjömumarkvörðurinn ell- efu. Leikurinn í Garðabænum var mjög spennandi og voru liðin mjög sein í gang. FH-ingum gekk þó öllu betur og höfðu þær náð þriggja marka forskoti í hálfleik. Leikurinn jafnaðist í seinni hálfleiknum og tókst Stjörnunni að jafna leikinn í 17:17 um miðj- an hálfleikinn. Síðan var jafnt á öllum tölum til loka og hafði Stjarnan þá frumkvæðið, þar til á síðustu mínútunum að FH komst einu marki yfir. Ragnheiður Stephensen jafnaði sfðan Ieikinn úr vítakast og þar við sat. Herdís Sigurbergsdóttir lék ekki með Stjörnunni í þessum leik og saknaði Stjarnan hennar greinilega. Markahæstar hjá Stjörnunni voru þær Nína K. Björnsdóttir með 6 mörk, Hrund Grétarsdóttir 4 og Ragnheiður Stephensen, sem tekin var úr umferð allan leikinn, skoraði 4/3. Fyrir FH skoruðu mest þær Hildur Erlingsdóttir og Þórdís Brynjólfsdóttir, 5 mörk hvor. Öruggt hjá Fram gegn Vál Að Hlíðarenda fór fram leikur Reykjavíkuliðanna Vals og Fram og sigruðu Framstelpurnar örugg- lega 18:24. Leikurinn var jafn framan af, en um miðjan fyrri hálfleikinn skiptu Framstelpurnar um gír og náðu öruggri forystu í leiknum, sem þær héldu til leiks- loka. Það sem skipti sköpum í leikn- um var sterkur varnarleikur Fram og sterkur leikur þeirra Marinu Zovela og Jónu Bjargar Pálma- dóttur. Marina var markahæst Framara með 9/6 mörk, en Jóna Björg sem átti stórleik skoraði 8/2. Hjá Val voru markahæstar þær Sigurlaug Rúnarsdóttir með 6/3 mörk og Gerður Jónsdóttir með 4/1. Halla Maiía með tóH mörk gegn ÍBV Halla María Helgadóttir átti stór- leik f Eyjum og skoraði tólf mörk, þegar Víkingar unnu Eyjastelpur í miklum markaleik 26:31. Guð- munda Kristjánsdóttir var einnig atkvæðamikil hjá Víkingi og skor- aði 7 mörk. Hjá Eyjastelpum voru útlend- ingarnir í liðinu atkvæðamestar, en Amele Hejic var markahæst með 8 mörk, Marie Axelsson með 7 og Jenna Martinsson 5. Fyrsti sigurleikur Gróttn/KR Grótta/KR vann léttan 13:20 sig- ur á reynslulitlum ÍR-ingum í leik liðanna í Austurbergi. IR-stelp- urnar byrjuðu leikinn vel og voru 9:7 yfir í hálfleik, en Grótta/KR sigldi örugglega framúr í seinni hálfleik og vann öruggan sigur. Þetta var fyrsti sigur Gróttu/KR í deildinni, sem nú er í þriðja neðsta sæti deildarinnar á undan KA og IR sem hafa ekkert stig. Markahæst IR-inga var Katrín Guðmundsdóttir með 5 mörk, en Harpa Ingólfsdóttir var marka- hæst Gróttu/KR með 6 mörk. Dregið í Bikar- keppni KKÍ Um helgina var dregið um það hvaða lið leika saman í 16-liða úr- slitum Bikarkeppni Körfuknatt- leikssambands Islands og Renault. Leikir: Breiðablik - Haukar Njarðvík - Grindavík Golfkl. Grindav. - Stjarnan Keflavík - ÍS Skallagrímur - IA Tindastóll - KR Snæfell - Smári, Varmahlíð Þór, Þorlh. - Þór, Ak. Leikirnir fara fram sunnudag- inn 13. desember.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.