Dagur - 20.02.1999, Side 5
LAUGARDAGUR 20. FEBRtíAR 1999 - 21
MENNINGARLIFIÐ I LANDINU
Mamikynbætur á íslandi
Mannkynbótastefnan
varð til nokkrum ára-
tugumfyrir valdatöku
nasista og hafði áhrifá
lagasetningu héreins
og víða annars staðar.
Unnur Birna Karlsdóttir sagn-
fræðingur hefur nýlega sent frá
sér bókina Mannkynbætur -
Hugmyndir um bætta
kynstofna hérlendis og er-
lendis á 19. og 20. öld.
Bókin er sú fyrsta sem reyn-
ir með skipulögðum hætti
að gefa yfirlit yfir hylli stefn-
unnar bér á Iandi en áður
hafa menn komið inn á
þetta svið í skrifum um nas-
ista á Islandi.
Ofuxtrú á vísiiulin
Utitekna og sællega, eftir
nokkurra vikna hvíld á Spáni
frá fræðunum, fundum við
Eyfirðinginn Unni á kaffihúsi
í Hafnarfirði. Hún segir upp-
hafsmann stefnunnar hafa
verið breska vísindamanninn
Francis Galton en hugmyndir
hans tóku að breiðast út eftir
aldamótin 1900 og náðu víða
slíkri hylli fræðimanna og al-
mennings að stofnuð voru
mannkynbótasamtök um allan
heim auk alþjóðlegrar hreyfing-
ar. Ahangendur stefnunnar ótt-
uðust m.a. að vegna mannúðar
og læknislistar nútímans
kæmust of margir sjúkir eða
veikburða einstaklingar á legg.
Þessu fólki leyfðist síðan að ala
börn sem það hlyti óhjákvæmi-
lega að erfa að veiklun sinni.
Kynbótasinnar töldu að með
þessu væru nútímamenn að
stuðla að úrkynjun komandi
kynslóða þar eð þeir trufluðu
eðlilegt náttúruval.
„Kynbótasinnar áttu sér þá
draumsýn að kynbæta mætti
mannkyn með hjálp réttrar lög-
gjafar og innrætingar. Stuðla
þannig að auknu og almennara
heilbrigði og gáfum. Þeir trúðu
að arfbótastefna þeirra byggði á
traustum vísindalegum grunni,“
segir Unnur, og telur að hrifn-
ingarkennd vísindatrúin í bland
við gildismat samtímans hafi
blindað margan fræðimanninn á
þessum tíma.
Ófrjósemisaðgerðir til vam-
ar úrkynjiui
Mannkynbótastefnan náði eyr-
um löggjafans. Fyrstu merki
þess voru bandarísk lög, sett á
árunum 1907-27, sem heimil-
uðu ófrjósemisaðgerðir á fólki
sem talið var að úrkynjunar-
hætta stafaði frá. Efstir á Iista
voru þroskaheftir og geðsjúkir.
Norðurlöndin sigldu í kjölfarið
um og upp úr 1930 með sína út-
gáfu af Iögum um ófrjósemisað-
gerðir til að „hreinsa þjóðina af
óæskilegum arfberum“. Island
rak lestina með lögum frá 1938
sem heimiluðu „afkynjanir og
vananir" í „viðeigandi tilfellum.“
Þótt krafan um mannkynbæt-
ur hafi víða haft áhrif á löggjöf
var blæbrigðamunur á hug-
myndafræðinni, t.d. milli
Bandaríkjanna og Norðurland-
anna. Viðhorf bandarískra arf-
bótasinna voru gjarnan mjög
einstrengingsleg til að byrja
með, segir Unnur. Þeir töldu
m.a. að hinir „genetískt hæfu“
væri mið- og efri miðstéttarfólk
(í þeim hópi voru þeir sjálfir) en
hinir óhæfu lágstéttarmenn.
„Ohæfastir voru svo andlega og
líkamlega sjúkir, afbrotamenn,
betlarar, vændiskonur og
drykkj u sj úklingar. “
Á Norðurlöndum snertir arf-
bótastefnan hins vegar hug-
myndir sósíaldemókrata um
uPphyggíngu
segir Unnur. Þau skrif voru þó
fremur stopul. Sá er hvað ítar-
legast ritaði um stefnuna var
Ágúst H. Bjarnason, heimspek-
ingur og prófessor við Háskóla
Islands. „Hann taldi brýnt að
landar sínir hygðu að kynbótum
eigin ættar ella myndi hættan á
úrkynjun steðja að íslenskri þjóð
líkt og öðrum vestrænum þjóð-
um. Því bæri að vanda makaval
með ætterni komandi kynslóða í
huga,“ segir Unnur.
„En hér á
velferðarríkis og reyndu
ýmsir arfbótasinnar úr röðum
jafnaðarmanna að hreinsa
mannkynbótastefnuna af
stéttaslagsíðunni. Þeir töldu
ekki að arfborinn mismunur
skipaði fólki í þjóðfélagsstéttir
heldur efnahags- og félagsleg
mismunun. Margir þeirra höfn-
uðu einnig arfbótastefnu sem
boðaði kynbætur og ræktun á
Draumsýn kynbóta-
sinna varað auka
mætti heilbrigði og
gáfnafar mannkyns
með réttri löggjöf
hreinum (norrænum) kynþætti
eins og nasistar boðuðu hástöf-
um á þessum tíma.
Borgin klakstðð hiima úr-
kynjuðu
Strax á öðrum áratug aldarinnar
fara nienn að skrifa um mann-
kynbótastefnuna hér á Iandi,
nafni, einfaldlega vegna þess að
mannkynbótastefna, sem opin-
ber og viðurkennd hugmynda-
fræði Iagðist af um miðja þessa
öld. Ástæðan var bæði sú að
erfðafræðingar hröktu ýmsar
arfgengiskenningar hennar og
hún samræmdist illa breyttu
gildismati eftirstríðsáranna.
Nasistar áttu ekki síst stóran
þátt í því að hún féll í ónáð
meðal almennings og fræði-
manna. Við höfum líka horfið
frá heildarhyggju mannkynbóta-
HTLEIKFÉLAGlfi
landi átti stefnan greiða
samleið með hugmyndum um
íslendinga sem einstaka þjóð af
norrænum og keltneskum upp-
runa með sérstaka sögu og
menningu. Islenskir kynbóta-
sinnar boðuðu varðveislu ís-
lenska kynstofnsins vegna sér-
stæðs uppruna, arfgengs heil-
brigðis og andans atgervis sem
varðveist hefði með þjóðinni
vegna landfræðilegrar einangr-
unar og harðræðis - einkum
með því að forðast blöndun við
útlendinga og varðeita byggð í
sveitum því bændur væru besti
erfðastofn hverrar þjóðar en
þéttbýli væri klakstöð þeirra úr-
kynjaðri. Þetta síðarnefnda
hlaut góðan hljómgrunn meða
ýmissa hérlendra manna á fyrri
hluta þessarar aldar því andúð á
þéttbýlismyndun var töluverð."
- Má ekki segja að hugmyndir
um mannkynbætur séu sprelllif-
andi í dag, í t.d. læknis- og erfða-
fræði? Svo er enn bannað að gift-
ast náskyldum ættingja sínum -
er forsendan fyrir því banni ekki
af sama toga og rök mannkyn-
bótasinna?
„Eg myndi ekki kalla það því
©^REYKJAVIKURJ®
BORGARLEIKHÚSIÐ
Stóra svið kl.14:00
Pétur Pan
eftir Sir J.M. Barrie
lau. 20/2 - uppselt
sun. 21/2 - uppselt
lau. 27/2 - uppselt
sun. 28/2 - uppselt
lau. 6/3 - uppselt
sun. 7/3 - nokkur sæti laus
lau. 13/3 - nokkur sæti laus
sun. 14/3 - örfá sæti laus
Stóra svið kl. 20.00
Horft frá
brúnni
eftir Arthur Miller
5. sýn. fim, 25/2 - gul kort
- nokkur sæti laus
6. sýn. fös, 5/3, græn kort
7. sýn. lau, 13/3, hvít kort
Stóra svið kl. 20.00
Sex í sveit
eftir Marc Camoletti
í kvöld lau. 20/2 - uppselt
fös. 26/2 - uppselt
sun. 28/2 - nokkur sæti laus
lau. 6/3 - örfá sæti laus
fös. 12/3 - nokkur sæti laus
Stóra svið kl. 20.00
íslenski
dansflokkurinn
Diving eftir Rui Horta
Flat Space Moving eftir Rui Horta
Kæra Lóló eftir Hlíf
Svavarsdóttur
3. sýning sun. 21/2, rauð kort
4. sýning lau. 27/2, blá kort
5. sýning sun. 7/3, gul kort
sinna til ríkrar einstaklings-
hyggju. Eg tel að sá einstakling-
ur sem í dag er reiðubúinn til að
láta vísindi og tækni grípa inn í
varðandi heilbrigði eða fæðingu
barns síns geri það á forsendum
sem snúa að honum sjálfum og
þörf hans fyrir heilbrigði og
hamingju eftirkomenda sinna en
ekki með það í huga að þjóðin
eigi rétt og kröfu til að hann ali
„góðkynja“ börn eins og arfbóta-
stefnan gekk út á.“ - LÓA
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 12 -18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
í
■15
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sýnt á Stóra sviði kl. 20.00
Tveir tvöfaidir
Ray Cooney
í kvöld Id. - uppselt
fid. 25/2 - örfá sæti laus
föd. 5/3
Id. 6/3 - nokkur sæti laus
Brúðuheimili
- Henrik Ibsen
á morgun sud. - nokkur sæti laus
föd. 26/2 - Id. 27/2 - sud. 7/3
Bróðir minn
Ijónshjarta
- Astrid Lindgren
á morgun sud. kl. 14:00
- nokkur sæti laus
sud. 28/2 kl. 14:00 - nokkur sæti laus
sud. 7/3
Sýnt á Litla sviði kl. 20.00
Abei Snorko
býr einn
Erik-Emmanuel Schmitt
í kvöld Id. - uppselt
fid. 25/2 - Id. 27/2 - fid. 5/3 - Id. 6/3
A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning hefst.
Sýnt á Smíðaverkstæði kl. 20.30
Maður í mislitum
sokkum
- Arnmundur Backman
í kvöld Id. - uppselt
á morgun sud. - uppselt
föd. 26/2 - uppselt
Id. 27/2 - uppselt
sud. 28/2 - uppselt
fid. 4/3 - uppselt
föd. 5/3 - uppselt
Id. 6/3, 60. sýning - uppselt
sud. 7/3 kl. 15:00. - uppselt
fid. 11/3-föd. 12/3
A.t.h. ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning hefst.
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Mád. 22/2, kl.20:30
Noche latina, Suður-Amerískt kvöld.
Hljómsveitin Sex-pack spilar undir
salsa og tangódansi. Ljóð Pablo
Neruda lesin. Chileanskur trúbador
mætir með gítarinn.
Miðasalan er opin mánud. -
þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud.
13-20. Símapantanir frá kl.10
virka daga.
Sími 551-1200.