Dagur - 20.02.1999, Síða 18
_ v i' 3 \ a í, u a s , •* " , iuiiif t :
34 - LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
POPPLÍFIÐ í LANDINU
Blondie. Snúin
aftur meö sann-
kölluðum „stæl“.
Blon
Þegar pönkið var að ná fótfestu hérlendis snemma á sfðasta áratug,
hafði þessi merka tónlistarstefna og menningarfyrirbæri, fyrir all-
nokkru náð vissu hámarki í Bretlandi og vfðar í hinum vestræna
heimi. Aðrar stefnur, svo sem þungarokk, nýrómantík, Ska, hip hop
og fleiri, voru í stað pönksins orðnar áberandi og töluðu margir um
að pönkið væri þar með „dautt“. En eins og sagan sjmir dó pönkið
ekki frekar en aðrar stefnur sem myndast. I framhaldi af því mynd-
aðist hins vegar í tónlistarlegu tilliti önnur stefna, öllu mýkri að vísu
og með poppblæbrigðum, en samt ótvírætt afsprengi pönksins sem
jafnvel harðar pönksveitir sveigðu stíl sinn að. New wave, eða ný-
bylgja nefndist fyrirbærið og er Stranglers líklega besta dæmið um
fræga boðbera pönksins, sem sveigðu stíl sinn inn á þessa braut.
Rétt eins og pönkið, náði nýbylgjan hylli víða en átti ekki þó sfst
upp á pallborðið í Bretlandi. I Bandaríkjunum var New York, líkt og
með ameríska pönkið, helsta miðstöð nýbylgjunnar þar og þar varð
einmitt ein af vinsælli sveitum stefnunnar til, Blondie. Með Ijósk-
una, sem sveitin dregur nafn sitt öðrum þræði af, og fyrrum fatafell-
una Deborah Harry í fararbroddi varð Blondie gríðarvinsæl á síðustu
árunum fyrir og fyrstu eftir 1980. Topplög víða um heim, meðal
annars í Bandaríkjunum og Bretlandi voru eigi færri en fimm auk
fleiri á topp tíu, þeirra á meðal Sunday girl, Heart of glass, Hangin’
on the telephone og Picture this. Blondie hætti 1982 og hefur lítt
farið sögum af meðlimum upp frá því.
Debbie Harry hefur að vísu alltaf verið að brölta eitthvað í tónlist-
inni og einnig komið nálægt kvikmyndaleik, en það hefur ekki vakið
ýkja mikla athygli. A síðasta ári komu Debbie og félagar hins vegar
saman að nýju og héldu í mjög vel heppnaða tónleikaferð. Að henni
lokinni var ákveðið að halda frekar áfram með plötuútgáfu í huga.
Virðist þessi endurkoma og ákvörðun um nýja plötu ætla að ganga
vel upp, því fyrsta lag sveitarinnar í 17 ár, Maria, hefur slegið ræki-
Iega í gegn, fór til dæmis rakleiðis á toppinn í Bretlandi fyrir hálfum
mánuði. Stórgott lag sem gefur fögur fyrirheit um plötuna í heild.
No Exit kallast hún og er einmitt að koma út nú eftir helgina. Verð-
ur henni að öllum líkindum vel tekið, þannig að eflaust verður talað
um endurkomu ársins hvað Blondie áhrærir þegar árið verður gert
upp.
3CR - Uinsælir en til uandræda
Pete Vukovic og hans félagar í 3 Colours Red njóta hylli þrátt fyrir slæmt líf-
erni.
Frá því breska rokksveitin 3
Colours Red gerði mikla lukku
með fyrstu plötunni sinni, Pure,
fyrir um rúmum tveimur árum,
sem meðal annars innihélt fjög-
ur smáskífulög er náðu inn á
topp 20 í Bretlandi og Iengra,
hefur frægðin og velgengnin far-
ið nokkuð illa með sveitina og
meðlimirnir sumir verið hætt
komnir vegna eiturlyfjaneyslu og
annarra miður góðra hluta.
Kraftmikil rokktónlistin, oftar
en ekki undir áhrifum frá pönki
og nýbylgju, er þó það sem fólk
virðist fyrst og fremst horfa og
hlusta á hvað sveitina varðar og
lætur þessi vandræði þeirra ekk-
ert á sig fá. Allavega var það svo
er loksins hafði tekist að koma
sveitinni á lappir til nýrra laga-
smíða og plötugerðar, að nýjustu
smáskífunni, Beautiful Day var
mjög vel tekið og er lagið mjög
vinsælt nú um stundir í Bret-
landi.
Onnur platan, Revolt, er svo
að koma út nú um þessar mund-
ir og verður að sögn söngvarans,
Pete Vukovic, um enga logn-
mollu þar að ræða. Svo var held-
ur ekki um frumburðinn, Pure,
þannig að aðdáendur og
rokkunnendur almennt ættu að
gefa Revolt gaum. Eru miklar
vonir bundnar við gott gengi
plötunnar, en hvort það þýði svo
að vandræði Vukovic og félaga
séu þar með að baki er hins veg-
ar annað mál.
Töluutónar
Með örri tækniþróun, tölvuleikj-
um og fleiru slíku hefur opnast
alveg nýr heimur f tónlistarsköp-
un. Það er til að mynda orðin
sérgrein núorðið fyrir tónlistar-
menn, að skapa tónlist eingöngu
fyrir leiki og fleira 6r viðkemur
tölvum. Nintendo Gameboy fyr-
irbærið gerir til dæmis notend-
um sínum kleift að uppfæra sína
eigin tónlist og setja mynd af
þeim á skjáinn að auki.
Snillingurinn Alec Empire úr
Atari Teenage Riot, fékk sér ein-
tak fyrir áramótin og heillaðist
svo, að hann Iá í tölvunni í mán-
uð. Utkoman er platan Nin-
tendo Teenage Robots, sem
DHR gaf svo út nú í byrjun
þessa mánaðar. Seint verða slík-
ar tölvutónasmíðar taldar mikil
tónlist sem slík, en fyrir harða
aðdáendur Alec og aðra sem for-
fallnir eru í víðáttum tölvu-
heimsins, er þessi gripur líkast
til forvitnilegur. Annars er það af
Alec að frétta, að langþráð ný
plata frá honum og félögum í
Atari, er nú væntanleg í maí.
Auk þess vinnur Alec svo að
ýmsum samvinnuverkefnum,
meðal annars með Björk Guð-
mundsdóttur, en með henni hef-
ur Alec reyndar unnið fyrr.
Spurnir af þessu verki Alecs
með Björk hefur umsjónarmað-
ur Poppsíðu Dags fengið beint
frá DHR útgáfunni.
Eitthvað fyrir tölvuhunda frá Alec Empire.
SDægur
Magnús Geip
Guðmundsson
skrifar
Hikils
að
uænta
Engum blöðum er um að
fletta, að fyrir utan stór-
stjörnuna Björk, er
Gusgus hópurinn kominn
lengst íslenskra tónlistar-
manna í að öðlast eitt-
hvað sem kalla mætti fót-
festu á hinum víðu lend-
um alþjóðapoppsins. Mik-
ill dugnaður við tónleika-
hald og þrotlaus vinna á
fleiri sviðum við að koma
hópnum á framfæri, hefur
smátt og smátt verið að
skila árangri og þá ekki
bara í plötusölu upp á um
200-250 þúsund eintök af
fyrstu plötunni, heldur
einnig ákveðinni virðingu
Gusgus. Önnur platan tilbúin.
innan poppheimsins
sjálfs, eins og dæmið með
Martin Gore og félaga
hans í Depeche Mode,
sem flestir þekkja auðvit-
að, sannar. Nú er svo
næsta vers að hefjast hjá
hópnum. Nýja platan,
This is Normal, er tilbúin
og kemur út í apríl að öllu
forfallalausu. Nú um
helgina er svo að heQast
ferð til að hita upp fyrir
útgáfuna með stórtónleik-
um í flugskýlinu á Reykja-
vfkurflugvelli. Af fyrri tón-
leikum hópsins að dæma
verður enginn svikinn af
að mæta, um mikla sýn-
ingu verður áreiðanlega
að ræða. Þar er semsagt
mikils að vænta og þá
ekki síst vegna þess að
stíllinn er að breikka að
sögn með nýju plötunni,
sem meðal annars mun
birtast í rokkáhrifum í
einhverjum mæli. Mun
Dr. Gunni, Gunnar
Hjálmarsson, til dæmis
semja allavega eitt af lög-
um plötunnar í samvinnu
við Gusgus.