Dagur - 01.04.1999, Síða 5
T>a^mr
FIMMTUDAGUR í. APRÍL 1999 - 25
Menningarlífið
Það er sitthvað hægt að gera í borginni yfir pásk-
ana til að svala menningarþörfinni. Þó eru margir
leikarar í fríi og engar sýningar verða í Borgarleik
húsi né Þjóðleikhúsi...
FOSSAR - Freyja Önundardóttir opnar
sýninguna fossar í Galleríi Listakoti á
laugardaginn en sýningin stendur til
24. apríl og er opin frá kl. 12-18 virka
daga en kl.11-16 á laugardögum.
Passíusálmarnir
Hinn árvissi maraþonlestur á
Passíusálmunum eftir Hallgrím
Pétursson í Hallgrímskirkju
verður á föstudaginn langa.
Lesturinn hefst kl. 13.30 og gert
er ráð fyrir að hann standi til
18.30. Sautján kirkjunnar menn
lesa sálmana, þ.á.m. eru Helga
Soffía Konráðsdóttir, Jón Bjarm-
an, Jón Dalbú Hróbjartsson,
Kristín Þórunn Tómasdóttir,
Olafur Skúlason biskup og dr.
Sigurbjörn Einarsson sem les
síðustu 3 sálmana. Douglas A.
Brotchie leikur á orgel á milli
Iestra. Þennan dag gefst einnig
tækifæri til að berja augum ein-
stakt altarisldæði. Altarisklæðið
er svart, ber mynd pelíkanans
sem er tákn píslanna og frið-
þægingarinnar og er eftir Unni
Ólafsdóttur listakonu.
Wagner og grafík
Á laugardaginn geta Wagner að-
dáendur kæst því kl. 13 verður
ópera hans Parsifal verður sýnd
af myndbandi í Norræna hús-
inu. Parsifal var síðasta verk
Wagners og hefur skapast hefð
hjá Richard Wagner félaginu á
Islandi að sýna óperuna á pásk-
um. Sú hefð verður ekki rofin
nú. Kvikmyndin er 255 mínútur,
sungið er á þýsku en enskur
texti fylgir.
Þennan dag verður einnig
opnuð sýning í Gerðarsafni,
Listasafni Kópavogs, í tilefni af
30 ára afmæli Félagsins Islensk
grafík. Yfir 30 félagsmenn sýna
ný verk og verður sýningin opin
alla daga frá kl.12-18 nema
mánudaga. Lokað verður á
páskadag en opið á annan í
páskum.
LISTASAFN ÍSLANDS - Erró er einn
þeirra sem á verk á sýningu Listasafns
íslands Nýraunsæi í myndlist 8. áratug-
aríns.
MIÐNÆTURHROLLVEKJA -Leikritið
SKURÐUR - llmur María Stefánsdóttir
opnar sýningu á Mokka miðvikudaginn
7. apríl á 6 lágmyndum og þrívíðum
veggmyndum úr Ijósleiðurum, matar-
lími, vír, gúmmíi o.fl. Myndirnar eru all-
ar unnar út frá starfsemi líkamans og
heita t.d.: Bifhár, Heili, Hvít blóðkorn
o.s.frv. Verkið sem hér sést heitir
Skurður. Sýningin stendur til 7. maí.
Nýraunsæi 8. áratugarins
Nýraunsæið á 8. áratugnum í ís-
lenskri myndlist er þema sýning-
ar sem opnar í Listasafni Islands
á Iaugardaginn og stendur til 24.
maí. Þar verða sýnd málverk,
grafík og skúlptúr sem bera með
sér áhrif nýrra hugmynda um
form og inntak myndlistar á 8.
áratugnum. Eins og Ólafur
Kvaran á Listasafninu segir þá
eiga listamennirnir „það sam-
merkt að taka til endurskoðunar
formhyggju módernismans og
leita aftur í fígúratíft myndmál,
þar sem oftar en ekki er vísað til
hins pólitíska og samfélagslega
veruleika sem einkenndi um-
brotatíma á Vesturlöndum.“ Þá
bendir Ólafur einnig á að áhrif
höfðu borist hingað frá popplist-
inni og flúxus-hreyfingunni í
gegnum Erró og SÚM-hópinn
en einnig hafi kvenfrelsisbarátt-
an haft talsverð áhrif á íslenska
svartlist.
Messías á ísafirði
Að lokum má geta þess að á
föstudaginn langa verður stór-
viðburður í vestfirsku tónlistar-
lífi en kl. 20.30 verður óratórían
Messífls eftir Georg Friedrich
Handel flutt í ísafjarðarkirkju.
Messías er gríðarlega Mnsælt
kórverk en það er hátíðarkór
Tónlistarskóla Isafjarðar sem
flytur verkið ásamt einsöngvur-
unum Guðrúnu Jónsdóttur, Ing-
unni Ósk Sturludóttur, Snorra
Wium og Lofti Erlingssyni og
hljómsveit undir stjórn Ingvars
Jónassonar. Akveðið var á síð-
asta ári að flytja þetta verk í
minningu Ragnars H. Ragnars,
fyrrum skólastjóra Tónlistarskól-
ans, en hann átti aldarafmæli
árið 1998 og átti sér þann
draum að þetta stórbrotna kór-
verk yrði einhvern tímann flutt á
ísafirði. Sá draumur rætist nú á
föstudaginn.
Svartklædda konan verður sýnt á mið-
nætti föstudagsins langa í Tjarnarbíó.
Viðar Eggertsson [tók við af Arnari
Jónssyni) og Vilhjálmur Hjálmarsson
leika íþessari draugasögu sem hentar
öllum aldurshópum.
HÁSKÓLABÍÚ - Dóttir hermanns
grætur ei heitir páskamynd Háskóla-
bíós en þar segir frá bandarískri fjöl-
skyldu sem búsett er í París á 7. ára-
tugnum. Aðalhlutverk leika
Krist Kristofferson, Barbara Hershey
og Leelee Sobieski.
Myndlist, leiklist, tónlist..
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listagilinu á Akureyri um pásk-
ana. Ýmislegt annað í boði.
Laugardaginn 3. apríl nk. kl. 16 verða opn-
aðar tvær myndlistarsýningar í Listagilinu á
Akureyri.
í Ketilhúsinu opnar Gunnar Kr. málverka-
sýningu. Gunnar Kr. Jónasson er fæddur
1956 og er búsettur á Akureyri. Hann lærði
járnsmíði í Slippnum á Akureyri en söðlaði
um eftir nokkurra ára starf þar og keypti
auglýsingastofuna Stíl.
Sýning Gunnars mun aðeins standa um
páskahelgina. Opið verður laugardaginn 3.
apríl frá klukkan 16 en páskadag og annan í
páskum frá kl. 14-18.
Tvísýni í Deiglunni
í Deiglunni opna Erlingur Jón Valgarðsson
og Aðalsteinn Svanur Sigfússon myndlistar-
sýninguna Tvísýni.
Á sýningunni flétta þeir verk sín saman í
tvíþætta innsetningu. Annarsvegar er þrívítt
verk Erlings sem nefnist Rými fyrir hugsanir.
í sýningarskrá segir Erlingur meðal annars:
„Þessi sýning er tileinkuð litlum dreng sem
sótti sér koll, vafði yfir hann laki og stakk
höfði sínu inn undir kollinn - skapaði sér
rými, næði, sinn eigin heim - milli fóta stóls-
ins, innan veggja Iaksins.“
Hinsvegar eru ljósmyndir Aðalsteins Svans
í tveimur myndröðum, Utsýn og Innsýn.
Báðir hafa þeir Erlingur og Aðalsteinn
stundað myndlist um alllangt skeið og ein-
beittt sér að málverki en reyna nú fyrir sér
með öðrum miðlum.
Sýniningin Tvísýni verður opin laugardag-
inn 3. apríl frá kl. 16 -18. Síðan verður hún
opin daglega frá kl. 14 -18 uns henni lýkur
sunnudaginn 11. apríl.
Fuglalíf Gerðar og fleira
Ýmislegt fleira geta Akureyringar og gestir
þeirra dundað sér við í Gilinu um páskana. í
Gallerí Svartfugli stendur yfir sýning á textíl-
verkum Gerðar Guðmundsdóttur. Verkin eru
öll unnin á þessu ári með blandaðri tækni,
einkum silkiþrykki, útsaumi og málun.
Nú er vorið skammt undan og fuglar
Gerðar eru snemma á ferð. Þeir eru litríkir
sem fyrr og virðast flestir njóta lífsins og
vera gefnir fyrir loftfimleika. Norðlendingar
og aðrir geta virt þá fyrir sér daglega klukkan
14-18 nema mánudaga.
I Samlaginu listhúsi stendur yfir kynning
á textfllist Grétu Arngrímsdóttur í apríl.
Opið klukkan 14.00-18.00 daglega. Lokað
skírdag, föstudaginn langa og páskadag. Að-
gangur ókeypis. Á Café Karólínu sýnir Þór-
arinn Blöndal. Aðgangur ókeypis. Á Lista-
safninu á Ákureyri stendur yfir sýningin
„Draumurinn um hreint form“.
Á annan dag páska spilar Siggi Björns trú-
bador í Deiglunni ásamt Keith Hopcroft frá
Englandi, sem spilar á gítar og Roy Pascal
frá Trinidad og Tobago. Þeir verða með létta
blöndu af nýútkomnum diski og fleiru.
Þá má einnig geta leiksýninga sem boðið
er uppá um páskana. Leikfélag Akureyrar
sýnir Systur í syndinni eftir Kristínu og Ið-
unni Steindsdætur, Freyvangsleikhúsið sýnir
Hamingjuránið eftir Benght Alfors og á
Renniverkstæðinu verður hinn geisivinsæli
Hellisbúi sýndur alla páskahelgina.
Iðnaðarsafnið opið
Iðnaðarsafnið á Akureyri var opnað 17. júní
á liðnu ári en þar hefur Jón Arnþórsson
safnað ýmsum merkum munum sem tengj-
ast sögu iðnaðar á Akureyri. Nú í vetur hefur
safnið verið opið á sunnudögum kl. 14-16
en Akureyringar og gestir þeirra fá gott tæki-
færi til að skoða safnið nú um páskana, því
safnið verður opið frá skírdeig til annars
páskadags kl. 16-18 alla dagana. Frá 1. júní
verður safnið síðan opið alla daga kl. 14-18
en mögulegt er að opna safnið sérstaklega
fyrir hópa sem geta haft samband við Jón í
síma 462 3550. - Hl
MENNINGARLÍF
I
HMúsík
Mvvatns-
Laufey Sigurðar-
dóttir og félagar
halda tón/eika í
Mývatnssveit um
páskana.
Tónlistarmenningin
blómstrar í Mývatns-
sveitinni um páskana.
Laufey Sigurðardóttir fiðluleik-
ari, Herdís
Jónsdóttir
víóluleikari,
Bryndís Björg-
vinsdóttir
sellóleikari,
Brjánn Inga-
son fagott-
leikari, Sól-
veig Anna
Jónsdóttur
pfanóleikari
og Sólrún
Bragadóttir
sópransöngkona
halda tónleika í
Reykjahlíðar-
kirkju á föstu-
daginn langa
klukkan 21. Þar verður flutt
margskonar tónlist sem hæfir
stað og stund, og má þá nefna
Adiago eftir Albinoni,
Intermezzo eftir Mascagni og
verk eftir Bach.
Daginn eftir ldukkan 16 í
Skjólbrekku, félagsheimili Þing-
eyinga, verða kammertónleikar
þar sem Ieikin verða verk eftir
Mozart, Danzig, Brahms og
Beethoven.
Þetta er í annað sinn sem tón-
leikar af þessu tagi fara fram á
þessum stað. í fyrra spilaði hóp-
urinn reyndar í Safnaheimilinu
á Húsavík í boði Guðna Hall-
dórssonar safnvarðar en ekki í
Skjólbrekku þar sem flygill fé-
lagsheimilisins var í lamasessi.
„Þetta er gamall Petrof flygill
með sál,“ segir Laufey Sigurðar-
dóttir fiðluleikari," sem MýH'etn-
ingar hafa látið gera upp þannig
að nú verða tónleikarnir haldnir
í Skjólbrekku.“
Pétur Snæbjörnsson hótel-
haldari í Reynihlíð átti frum-
kvæðið að páskatónleikahaldinu,
sem allt stefnir f að verði árviss
viðburður. „Ég óskaði eftir því
við Laufeyju, sem er Mývetning-
ur, að við fengjum að njóta
krafta hennar og félaga hennar
um páskana. Fyrir 1994 voru
engir gestir hér á hótelinu um
páska en síðan hefur gestum
Ijölgað jafnt og þétt. Jafnframt
höfum við reynt að hafa á
boðstólum dagskrá sem byggist
á náttúruskoðun, gönguferðum
og menningu. Tónleikarnir eru
hluti af þessari dagskrá," segir
Pétur. „Viðtökurnar í fyrra voru
góðar,“ segir Laufey, „og við von-
umst til að Þingeyingar og aðrir
ferðamenn íjölmenni, rétt eins
og þá.“
Eyfirskt
á Pollinum
Eyfirskir músíkantar munu láta
gamminn geisa og fremja tónlist
af ýmsum toga á veitingastaðnum
Við Pollinn á Akureyri, frá klukk-
an 21.00 og framundir miðnættið
í kvöld. Þar munu meðal annarra
koma ffarn hljómsveitin 1 & sjö-
tíu, snaggaralegir stubbar og fjall-
myndarlegir, Helgi og hljóðfæra-
leikaramir, alþýðuskáld og algaul-
ur, Sara og sóknarbörnin, blús-
gengi framan úr firði, hljómsveit-
in Opíum, nýkomnir úr músíktil-
raunum, Freyvangsleikhúsfólk
með atriði úr Hamingjuráninu í
farteskinu, Sigrún Arngrímsdóttir
söngkona, Ema Hrönn Olafsdótt-
ir söngkona og Kristbjörg Jakobs-
dóttir söngkona.