Dagur - 01.04.1999, Blaðsíða 18
38 - FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
Halldór Laxness
leigði við Vestur-
götuna og eigand-
inn hafði látið nú-
tíma heitavatns-
kerfi í húsið.
Skáldinu, sem var
að senda frá sér
Hið Ijósa man og
semja Eldur í Kaupihafn, fannst
að ekki væri nógu vel kynt. En
eigandinn var búinn að læsa
miðstöðvarherberginu.
Þjóðin var í hátíðarskapi sumarið 1944;
sambandsslit við Dani voru staðreynd,
þjóðveldið var endurreist á Þingvöllum og
Sveinn Björnsson kjörinn fyrsti forseti Is-
lands. Að vísu geysaði heimsstyijöld, en
hún virtist þó vera að snúast við banda-
mönnum í hag.
A efstu hæð í húsinu Vesturgata 28
leigði stórskáldið Halldór Kiljan Laxness,
sem sumarið 1944 var að nálgast hátind
síns ferils, 42 ára að aldri, fráskilinn og
enn ókvæntur Auði Sveinsdóttur járn-
smiðs Guðmundssonar. Hann hafði sent
frá sér Heimsljós í fjórum bindum árin
1935-40 og þegar hér var komið hafði
hann árið áður sent frá sér hið margróm-
aða meistaraverk Sjálfstætt fólk, var um
það bil að fara að gefa út Hið ljósa man
og var að Iíkindum kominn vel á veg með
Eld í Kaupinhafn. Kannski hefur upplýs-
ingaöflunin og frásögnin um brunann
mikla vakið athygli Halldórs á því að hon-
um var kalt í íbúðinni; það var ekki nægi-
lega vel kynt. Einn daginn, um mánaða-
mótin maí-júní 1944, hugðist Halldór
fara niður í miðstöðvarherbergi til að
hækka hitann, en þá kom f ljós að hús-
eigandinn Sigurgeir hafði læst herberg-
inu. Við það sætti skáldið sig ekki.
Áfall þegar reikningurinn kom?
Húseigandinn var Sigurgeir Einarsson
umboðssali, sterkefnaður maður og var
nokkur forsaga að því að hann læsti mið-
stöðvarherberginu. Þeir Halldór gerðu
húsaleigusamning vorið 1940 og var þar
klásúla um að hitunartæki hússins skyldu
vera í góðu lagi. Húsið var þá hitað með
kolakyntri miðstöð og hélst það allt þar til
að æð frá Hitaveitu Reykjavíkur var lögð í
húsið seint í desember 1943. Var þá still-
um fyrir heita vatnið komið fyrir í her-
bergi þar sem miðstöðvarketillinn var.
Meðan hitað var með kolum sá Sigur-
geir jafnan um kyndinguna og var her-
bergið jafnan opið. Þegar hitaveitukerfið
kom setti Sigurgeir lás fyrir herbergið og
meinaði öðrum aðgang að því og hafði
augljóslega áhyggjur af hitaveitukostnað-
inum. En Sigurgeir og skáldið komust þó
að samkomulagi um að Halldór fengi að-
gang að stillunum til að byrja með, „unz
íyrstu reikningar fyrir húsið kæmu“. Sá
Halldór þá um stillingu á heitavatns-
rennslinu - þar til um áðurnefnd mán-
aðamót, að hann kom að herberginu
læstu. Eftir það „virðist heitu vatni mjög
sjaldan hafa verið hleypt á miðstöðvar-
kerfi hússins".
Eftir japl, jaml og fuður, þar sem hús-
eigandinn gaf sig ekki, leitaði skáldið til
fógetaréttar og krafðist þess að honum
yrði með beinni fógetagerð veittur að-
gangur að heitavatnsstillum hússins.
Kristján Kristjánsson borgarfógeti sat í
dómarasæti og hlýddi á rök lögmanns
skáldsins, Ragnars Ólafssonar (sem sat í
stjórn Máls og menningar og prentsmiðj-
unnar Hóla) þar sem því var mótmælt að
Sigurgeir væri „sem húseigandi réttbærri
til að ráða yfir hitavatnsrennsli miðstöðv-
arkerfisins en aðrir afnotahafar þess,
enda sé vatn það, sem í kerfið er veitt,
ekki eign húseiganda né fremur undir-
orpið umráðum hans en annarra íbúa
hússins".
----------------------------Ttwyvr
Fógeti úrskurðar skáldinu í vil
Skáldið benti á að hann hefði húsnæðið á
leigu „með hitunartækjum", sem væru
einmitt miðstöðin. Hann lýsti sig fúsan
til að greiða allan hitakostnað hússins,
sem væri umfram áætlaða meðaleyðslu,
gegn þ\a að fá frjálsan aðgang að stillun-
um.
Sigurgeir sagði hins vegar að þótt
skáldið ætti rétt á að fá heitt vatn þá ætti
hann engan rétt á aðgangi að stillum alls
miðstöðvarkerfisins og ótakmörkuðum
umráðum um hve miklu heitu vatni væri
hleypt á það. Honum væri ekki skylt að
veita skáldinu meiri hita en sem svari
venjulegum hita í íbúðarherbergjum.
Hann hafnaði því og mótmælti að skáldið
ætlaði sér aukinn rétt miðað við aðra
íbúa með því að greiða hugsanlega um-
frameyðslu.
Borgarfógeti leit til þess að Halldór
einn íbúa hússins yrði að stjórna hitanum
hjá sér í gegnum stillana, meðan aðrir
íbúar gætu lokað fyrir eða lækkað hitann
í herbergjum sínum, yrði þeim of heitt.
Niðurstaða Kristjáns var ótvíræð; Halldór
Kiljan Laxness skyldi í Ijósi leigusamn-
ings aðilanna fá aðgang að heitavatns-
stillunum, enda yrði ekki séð að húseig-
andinn hefði meiri rétt en aðrir að ráða
vatnsrennslinu umfram rétt leigjenda.
Var Sigurgeiri gert að greiða skáldinu 130
krónur í málskostnað. Þetta var 12. ágúst
1944.
Sannaðu hitaskortinn, skáld!
Halldór gat fagnað, en málinu var ekki
lokið, því Sigurgeir skaut úrskurðinum til
Hæstaréttar. Þar féll dómur 5. desember
1945 eða nær 16 mánuðum síðar, en
málið fór þó ekki þangað fyrr en daginn
fyrir Friðardaginn 8. maí, þegar síðari
heimsstyrjöldinni lauk í Evrópu.
Niðurstaða Hæstaréttar: „[Halldór Kilj-
an Laxnessj hefur ekki í máli þessu leitt
sönnur að því, að [Sigurgeir Einarsson]
hafi látið honum í té óhæfilega lítinn
hita, og verður [Laxness] þegar af þessari
ástæðu ekki veittur með fógetavaldi að-
gangur að hitaveitukerfi f húsi [Sigur-
geirs]“. Var skáldið síðan dæmt til að
greiða húseigandanum 1.000 króna máls-
kostnað. Til samanburðar má nefna að
þetta árið var Sigurgeir meðal skatthæstu
manna borgarinnar með rúmlega 1.600
króna eignaskatt og aðallega Thorsarar og
slíkir menn sem stóðu þar framar. Aftur á
móti fékk Halldór töluverða sárabót þetta
árið, því 1945 kvæntist hann Auði sinni
og hefur án alls vafa fengið hjá henni
þann yl sem á vantaði. Og eldur brann í
Kaupinhafn.
Söguleg átök. Einhver sögulegustu
átök (slandssögunnar urðu 30. mars
1949 þegar Alþingi samþykkti að
ganga í NATO. Hver var forsætisráð-
herra stjórnarinnar sem stóð að þess-
ari samþykkt og hver utanríkisráð-
herra?
Yngsti þingmaðurinn. Enginn hefur
jafn ungur tekið sæti á Alþingi og
Gunnar Thoroddsen. Hvenær var hann
fyrst kjörinn á þing og hvenær lauk
stjórnmálaferli Gunnars?
Vitringarnir. Lið MR vann liö MH í
spumingakeppni framhaldsskólanna (
Sjónvarpinu sl. föstudagskvöld. Hverjar
voru lokatölur keppninnar og hvað
heita vitringarnir þrír í liði MR, frá
vinstri talið miðað við þessa mynd?
Hornsteinn. Mynd þessi var tekin sl.
haust þegar lagður var hornsteinn að
virkjun, sem hefur lengi verið í notkun
en var í fyrra fyrst fullbyggð. Hver er
hún og hver sést hér leggja hornstein-
inn?
A leiksviðinu. Leikfélag Akureyrar
frumsýndi á dögunum nýtt íslensk
leikrit sem byggt er á sagnfræðilegum
heimildum. Hver er söguþráðurinn í
stuttu máli, hverjir eru höfundar verks-
ins og hver er leikstjóri?
LAND OG
ÞJÓÐ
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
1. Hvað hét félag Péturs J. Thorsteins-
sonar sem á fyrstu árum þessarar aldar
leigði austurhluta Viðeyjar og byggði
þar mikla hafskipahöfn og fiskverkun-
arstöð, þannig að þar reis 100 manna
þorp?
2. Hvaða skáld sendi frá sér um miðbik
aldarinnar Ijóðabókina Rósir í mjöll?
3. Hvar á landinu er Kötiufjali?
4. Hverjir eru tveir innstu bæirnir i
Lundareykjadal og þeir fyrstu sem kom-
ið er að þegar farin er Uxahryggjaleið
frá Þingvöllum og á hvorum þessara
bæja fæddist Kristmann Guðmundsson
rithöfundur árið 1901?
5. Smiðjuhóll, Leirulækur, Vogalækur,
Akrar, Hundastapi og Stóri-Kálfalækur.
Hvar á landinu eru þessir bæir?
6. Eitt þekktasta Ijóð Tómasar Guð-
mundssonar er Ég leitaði blárra blónia,
sem tvö tónskáld hafa gert lag við. Hver
eru þau?
7. Hvar á landinu er Meðalland?
8. Hvar á Austurlandi er Gautavík?
9. Hvar á landinu er Eyrarsveit?
10. Hverjir voru það sem léku Mikka ref
og Lilla klifurmús í ódauðlegri upp-
færslu Þjóðleikhússins á þessu leikriti
fyrir tæpum aldarfjórðungi?
'J3J B>|>|!|/\1 >|?| UOSBUJBfg
jssog 6o sniujnj!|>( B||n >|?| ujos uosba66% rnjy jba qbcJ 'Ol 'QJofpEpunjg jgA jæu ujbs su!s6b|Qjjbi!3as ujbu jb i!3ASJBj/fg '6 'spuB| |ii qb6u!lj !uu|S QjsjsQoqwisuii i puB| isjAj Giuujs jnpuBjq6uBq >|9l >!JABinB9 j p|o '9L ? wbjj jbc| un|SJ8A
is|?q 6o wnpjofjisnv b uj0L|e6u!|6!s Bis|aq ws uínuAj jba ‘pjofjnjog ubqjbaubqjou qja jb >i!ABinB9 g 'U!>(oqpuBqB6aA jí6ss „'unEjq ujojö bqb íuopÁw bqia sjbuuv puo|B|9w |!>(!W 6ofw 'bupjbas wn paAUBisnB 6o ofs isæu jbpubs jit^iuinuPQjA
junsjqpig jb jnpns ‘bijb>is 6o qojqpuBq qb jnisnB !i9f|jBpn>| bjj ubisoa wiisas...............jo puB||BQ9|/\| y BJB>|!a| jbuossuijujv sijoqog !6u|uin|j j lSB}>|>|ac| QBAq js subq 6b| ua ‘BjjaqpBJ aj 'uosB|sjg q ij|Ao oas 6o jbsbwox pof| euacj qia 6b| q|6|8 jn
-jaq p|6uns was uosBpoy jnpjgn j|0c| nj@ piQqsuoi jssáq 'g n|sfeBjA|A| j wmA|A| ? njs J|æq jjssoc) jjhv s 'uubwisu» is^ppæj wnuæq BpujsuuXj b 6o jwXsjjsng 6o ||sp0Ac| njs jiæq Jisssq y pugj]SBW|Bg qia jnqB jnpusis jn6o>|S!j6Bj us ‘pjgfj
-BKg p!A !6o>|SBj6Bg jb ddn js ||Bfjn|ig» £ '!l|oqB»s QJj JnwipfqnA 'Z 'P!6e|pjeuof||!i/\j l jnuppsjop||BH nunjq|o» jb pAisiqsi js 6o jniæpsujsis nujis|j» 6o rnunpi jqjs js psq JBp|B '6L Bin|q ubqis b »iABf>|/lsa i buusa» BJjnqqou 6gpg 6o wæ wn
jb||b[) 6o wujpuXs j jnisXs Jjqsq busc) }u»!ST , pujsun|jgj» j jnQBWspn 6o Bjjsqppj aj uosb|SJ9 jba6u| ujsjsujoq jn66s| juusq qb 6o unf»jiAn|joj» wn pnds js jqh , uosspunwpng jujsas 6o uossubjsis jbujv 'uossiög/ jæus !)|b[h ‘pi|Bi uisuw
pjj ‘Bd|»s giAi pn '9Z-bZ nJOA jBUjn|0)B»oq , jp bwbs isp| 6o n»suusw6u|cl jb pcj ípq -£961 I!1086L BJJsqppJS|iæsjog |6us| jnpBw6wcj 6o 6961 I!1 Dj61 uo[isjB6joq b w jba 'bub6bp wn wn|pwujo[is j qia bqia wo» uubh bjq efez 'y£6l !Buicj|v
p mss |!) uuuo[» isjAj jba ussppojoqi jsuung, |6niBjp nisnpjs )6|Xj Bjsq jB6u]pus|sj wss nujS]SS!»uuB)n jBjjmcj i»sii»jb jis|sq uws uuqBi js uusq us 'BjjsqpBJSjqjjuBin uoss)»!psusg iujefg 6o BjJsqpBJSjiæsjoj jba uossjpcjujsis jnwjjöujsis»
:JOAS
skrifar