Dagur - 01.04.1999, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999 - 41
RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNA
Starfsmð ur
Óskum eftir sölumanni í verslun okkar sem selur
meðal annars gólfefni og heimilistæki. Þarf að vera
liðtækur í öll störf sem til falla. Heiðarleiki,
samviskusemi og þjónustulund eru kostir
sem við metum mikils.
Þarf að vera sjálfstæður og hafa frumkvæði í starfi.
Góð laun í boði.
Upplýsingar sendist Degi fyrir 8. apríl merktar „196“.
AKUREYRARBÆR
Tónlistarskólinn
skólastjóri
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Tónlistarskól-
ann á Akureyri.
Tónlistarskólinn á Akureyri er einn stærsti tónlistarskóli
landsins og býður upp á kennslu á öllum stigum hljóð-
færa- og söngnáms. Hljómsveitastarf er mjög fjölbreytt
og samstarf í gangi við alla grunnskóla og framhalds-
skóla bæjarins, svo og Háskólann á Akureyri og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands.
Skólastjóri hefur yfirumsjón með daglegu starfi skólans,
þar með talið fjármálastjórnun, starfsmannahaldi og
skipulagningu skólastarfsins. Því er æskilegt að umsækj-
endur hafi reynslu af ofangreindum þáttum.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Launanefndar
sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Skólafulltrúi í síma 460 1400 og skólastjóri
í síma 462 1788
Umsóknarfrestur er til 21 apríl nk.
Starfsmannastjóri.
F U N D I R
Alþýðuflokkurinn
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í Reykjanesi
Fundarboð
Fundur verður haldinn í kjördæmisráðinu þriðjudaginn 6.
apríl nk. í félagsheimili Alþýðuflokksins í Kópavogi að
Hamraborg 14a. Fundurinn hefst kl. 19:30.
Dagskrá:
1. Sameiginlegt framboð til alþingiskosninga 8. maí
nk. undir merkjum Samfylkingar.
Samþykkt framboðslista.
2. Önnur mál
Ráðgert er að fundinum Ijúki um kl. 20:30, en þá hefst
sameiginlegur fundur Samfylkingarinnar í félagsheimili
Kópavogs.
Stjórnin
Aðalfundur
KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA verður haldinn á
Fosshótel KEA, laugardaginn 17. apríl nk.
og hefst fundurinn kl. 10.00.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun stjórn
félagsins leggja fram tillögu um breytingar á
samþykktum félagsins.
Mál sem óskast tekin til meðferðar á fundinum
þurfa að berast félagsstjórn eigi síðar en 9. apríl
nk. svo unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
NAM
Menntamálaráðuneytið
Námsvist við alþjóð-
lega menntaskóla
Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við tvo al-
þjóðlega menntaskóla. Nám við skólana tekur tvö ár
og því lýkur með viðurkenndu alþjóðlegu stúdents-
prófi, International Baccalaureate Diploma (IB).
Kennsla fer fram á ensku. Skólarnir eru:
Alþjóðlegur menntaskóli í Fjaler í Noregi. íslensk
stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst
skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að
greiða uppihaldskostnað sem nemur 20.000 norsk-
um krónum á ári og auk þess ferðakostnað.
Li Po Chun United World College í Hong Kong.
Skólavist býðst fyrir einn nemanda. Nemandi þarf að
greiða 25% skólagjalda eða ísl. kr. 350 þús. á ári
(uppihaldskostnaður innifalinn), svo og ferðakostn-
að.
Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir
skólaárið 1999-2000. Umsækjendur skulu hafa lokið
sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á
ensku og vera á alþrinum 16-19 ára.
Umsóknir berist rpenntamálaráðuneytinu, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 16. apríl næst-
komandi. Framhaldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild
ráðuneytisins veitif nánari upplýsingar í síma 560
9500. Par er einni^ að fá umsóknareyðublöð.
Menntamálaráðuneytið, 29. mars 1999.
www.mrn.stjr.is
S\S\.
MCNNTflFELRG ÖVGGINGfíRIÐNRÐRRINS
AUGLYSING UM
SVEINSPRÓF í
BYGGINGAGREINUM
Sveinspróf í húsasmíði, húsgagnasmíði, bólstrun, mál-
araiðn, múraraiðn, pípulögnum og vegg- og dúklögn fara
fram í maí og júní 1999.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Ekki er tekið við um-
sóknum sem berast eftir þann tíma.
Með umsókn skal leggja fram afrit af burtfararskírteini
með einkunnum og afrit af námssamningi. Þeir, sem
Ijúka námi á yfirstandandi önn, þurfa ekki að leggja fram
burtfararskírteini.
Nemar á vegum skóla hafi samband við deildarstjóra
skólans í viðkomandi iðngrein.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð liggja frammi
hjá Menntafélagi byggingariðnaðarins,
Hallveigarstíg 1,1. hæð, Reykjavík,
sími 552-1040 og fax 552 1043.
U T B 0 Ð
í
I
I
I
_ UTBOÐ _
F.h. Órkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið „Gufuskiljur' fyrir 3. áfanga Nesjavallavirkjun-
ar. Um er að ræða efnisútvegun, forsmíði og flutning á
Nesjavelli á tveimur þrýstikútum í þrýstiflokki PN 25.
Þvermál þrýstikúts er 1,8 m og lengd 8,5 m.
Þrýstikútar eru að mestu leyti úr svörtu WstE 285
stáli. Kútarnir eru einangraðir með steinull og klæddir
álkápu. Stálþungi þrýstikúta er 2 x 12000 kg. Verktaki
leggur til allt efni til smíðinnar.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 8.
apríl 1999 gegn 15.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: 27. apríl 1999, kl. 11:00 á sama
stað.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 12l Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang:
www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
S T Y R K I R
VINNUMALASTOFNUN
Styrkir til
atvinnumála kvenna
Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til
að úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnu-
mála kvenna.
Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á verkefni
fylgi með umsókn, sundurliðuð kostnaðaráætlun
svo og að fram komi hvort leitað hafi verið til ann-
arra um fjárstyrk.
Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka fjöl-
breytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og
efla atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda
aðgang kvenna að fjármagni og að draga úr at-
vinnuleysi meðal kvenna.
Skilyrði fyrir umsókn:
• Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um
styrk.
• Aðaláherslan verður á verkefni í þremur at-
vinnugreinum; þróun á lífrænum vörum, ný-
sköpun í ferðaþjónustu og stuðningur við at-
vinnuþróunarverkefni kvennahópa, en heimilt
er að styrkja verkefni innan allra atvinnugreina.
Forgangs njóta verkefni sem þykja líkleg til að
fjölga atvinnutækifærum kvenna. Svæði þar
sem hlutfall atvinnulausra kvenna er hátt og fá-
breytni í atvinnulífi eru þar með talin.
• Styrkir ekki veittir til verkefna sem eru í sam-
keppni við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á
landsvísu.
• Til að verkefni sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn
þarf fyrir að liggja greinargerð vegna fyrri
styrkveitinga.
• Ekki eru veittir rekstrarstyrkir.
• Ekki eru veittir styrkir til listiðnaðar en tekið er
tillit til nytjalistar.
• Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25%
af stofnkostnaði til véla og tækjakaupa og
einnig vegna húsnæðis til hópa.
• Að öðru jöfnu nemur framlag af hálfu ríkisins
ekki meir en 50% af heildarkostnaði við verk-
efnið.
• Hámarksstyrkur á verkefni er kr. 2,5 milljónir.
Umsóknareyðubiöð fást á
Vinnumálastofnun, Hafnarhúsi
v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 5112500
og á heimasíðu stofnunarinnar
www.vinnumalastofnun.is
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1999
Y M I S L E G T
Byssumenn
Eru byssur ykkar komnar inn í skáp!
Hreinsun, öryggisprófun, byssuviðgerðir
og smíði hjá mér.
Högni Harðarson, byssusmiður, Kaldbaksgötu 2,
600 Akureyri. S: 899-9851 og 462-1261.
Opnunartími: Virka daga kl. 17.00-19.00
og laugardaga kl. 13.00-16.00.
www visir is
FYRSTUR MEO FRÉTTIRNAR