Dagur - 20.05.1999, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 2 0. MAÍ 1999 - S
FRÉTTIR
Efast um sölu á
Lands símanum
Simiir þmgmenn
Framsóknarflokksins
segjast vilja skoða
málið vel áður en haf-
ist verður handa við
að selja Landssímann.
Valgerður Sverrisdótt-
ir segir alla vinnu
varðandi það mál vera
eftir í flokknum.
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, sagði í samtali
við Dag að til greina lcæmi að
selja ætti ríkisfyrirtæki, eins og
Landssímann og ríkisbankana,
til þess að auka sparnað í þjóðfé-
Iaginu og slá með því á þensluna
í þjóðfélaginu. Ljóst er að hug-
myndin um að selja Landssím-
ann vekur litla hrifningu meðal
sumra þingmanna Framsóknar-
flokksins og að þeir vilja skoða
málið mjög vel áður en hafist
verður handa.
Mikil vinna eftir
„Það á eftir að fara fram mikil
vinna innan Framsóknarflokks-
ins áður en við getum tekið ein-
hverja ákvörðun í þessu máli og
sú vinna er mjög lítið komin af
stað enn sem komið er,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir, formað-
ur þingflokks Framsóknarflokks-
ins nýliðið kjörtímabil.
Hún segir að menn hafi vissu-
lega reiknað með að þessi um-
ræða kæmi upp og því þyrftu
menn að mynda sér skoðun á
málinu. Sá tími sé hins vegar
ekki kominn að hægt sé að kveða
upp úr með þetta.
„Við framsóknarmenn lítum
ekki á það sem eitthvert höfuð
markmið að ríkið reki sem allra
flest fyrirtæki, heldur viljum við
skoða hvert afmarkað mál út af
fyrir sig. Og salan á Landssíman-
um er ekkert einfalt mál,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir.
Maður hrekkur við
„Eg er í hópi þeirra Iandsbyggð-
arþingmanna sem hafa viljað
skoða það vel ef menn ætla að
selja og einkavæða Landssím-
ann. Menn þurfa að gera sér
grein fyrir því hvernig rekstri
ljósleiðarans verður háttað, svo
dæmi sé tekið. Eg tel því að það
þurfi að fara fram rækileg um-
ræða um þetta mál ef menn
hyggja á sölu,“ segir Jón Krist-
jánsson, þingmaður Austfirð-
inga.
Guðni Agústsson, þingmaður
Sunnlendinga, tekur í sama
streng og Jón Kristjánsson.
„Maður hrekkur sannarlega
vrð þegar maður heyrir þetta
nefnt. Eg er alveg viss um að
þingmenn Framsóknarflokksins
vilja fara yfir og skoða þetta mál
vel áður en tekin verður einhver
ákvörðun um sölu Landssím-
ans,“ sagði Guðni Ágústsson.
- S.DÓR
Elsa B. Þorkelsdóttir: Afstaða bæjar-
ráðs i máli Ingibjargar kemur á óvart
Bæjarráð
neitar
Bæjarráð Akureyrar hefur synjað
Ingibjörgu Eyfells, fyrrum deild-
arstjóra leikskóladeildar á Akur-
eyri, um afturvirkar kjarabætur.
Kærunefnd jafnréttismála hefur
ályktað Ingibjörgu í hag, en bæj-
arráð telur tilmæli nefndarinnar
ekki studd nægjanlegum rökum
til að greiða Ingibjörgu önnur
laun en umsamin voru milli
bæjarins, hennar, STAK og
launanefndar sveitarfélaga á
umræddu tímabili.
Þetta er annað málið sem
kærunefndin rekur fyrir hönd
fyrrum starfsmanna gegn Akur-
eyrarbæ. Hitt málið er fyrir
dómi, krafa Ragnhildar Vigfús-
dóttur fyrrum jafnréttisfulltrúa.
Elsa B. Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skrifstofu jafn-
réttismála, segir afstöðu bæjar-
ráðs í máli Ingibjargar koma sér
á óvart. „Maður gat frekar skilið
að mál jafnréttisfulltrúans varð-
aði stærri spurningar sem ekki
er óeðlilegt að atvinnurekandi
vilji fá svör við fyrir dómstólum.
Þetta álit er ekki þess eðlis. At-
vinnurekandi var að vissu marki
búinn að viðurkenna að um
sambærileg störf væri að ræða
og búið að leiðrétta launin." - BÞ
Fær verðlaun
fyrir listiiinfj öllun
Aðalsteiim Ingólfsson
listfræðingur er einn
fímm norrænna
menningarblaða-
manna sem hljóta
Torsten og Wanja
Söderbergs verðlaun-
in fyrir skrif sín um
list og hönnun. Verð-
launahafamir eiga að
setja saman sýningu í
Röhsska safninu í
Gautaborg í haust.
„Listfræðingurinn Aðalsteinn
Ingólfsson hefur í mörg ár verið
einn af virkustu listgagnrýnend-
unum í íslenskum dagblöðum og
erlendum tímaritum"..., segir
meðal annars í rökstuðningi með
viðurkenningunni. „I gagnrýni
sinni um sýningar og aðra at-
burði á sviði hönnunar hefur A.
I. íjallað um Iisthandverk og iðn-
aðarhönnun í samanburði við
aðrar sjónrænar listgreinar." Að-
alsteinn er talinn sá virkasti í
skrifum og gagnrýni um hönnun
á íslandi auk þess sem kennsla
og hönnunarverðlaun DV eru
talin honum til telcna.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
hefurhlotið sænska viðurkenningu
fyrir skrifsín um list og hönnun.
„Þetta kom fyrst og fremst flatt
upp á mig því að ég er þarna í
hópi fólks sem hefur skrifað urn
hönnun og listir í áratugi," sagði
Aðalsteinn þegar Dagur hafði
samband við hann.
- Finnst þér vidhorf til menn-
ingarumfjöllunar hér ú lancli
hafa breyst eitthvað í úranna rás?
„Ég er ekki viss. Ég óttast að
þessi skrif séu ekki nógu mál-
efnaleg og risti ekki nógu djúpt á
heildina litið. Það kemur niður á
þeim að þau eru aukageta hjá
flestum sem fást við þetta.
Sjaldnast er tími til að hugsa
lengi og vel um þessa hluti. Ég
held að við séum ennþá tiltölu-
lega frumstæð í umíjöllun um
listir og hönnun hér á Iandi. Það
eru fleiri um hituna en það þýð-
ir ekki að gæðin séu ofboðslega
mikil."
Röhsska safnið í Gautaborg
hefur veitt Torsten og Wanja
Söderbergs verðlaunin frá árinu
1994. Afar sjaldgæft er að gagn-
rýnendur fái viðurkenningu fyrir
framlag sitt en nú hefur sænska
safnið ákveðið að ríða á vaðið og
veita verðlaunin fimm norræn-
um gagnrýnendum og blaða-
mönnum sem hafa skrifað um
hönnun og list. Fimmmenning-
arnir fá verðlaun, sem nema
100.000 sænskum krónum eða
um 900.000 íslenskum krónum
á hvern. Auk Aðalsteins Ingólfs-
sonar fá viðurkenningu Kaj Kal-
in frá Finnlandi, John Vedel-
Rieper frá Danmörku, Jorunn
Veiteberg frá Noregi og Kerstin
Wickman frá Svíþjóð.
Gagnrýnendurnir fimm eiga
að velja fimm hluti hver á sýn-
ingu í safninu í haust. Hlutirnir
eiga að vera dæmi um framúr-
skarandi og hugmyndaríka
hönnun. Aðalsteinn segir að
áhersla sín verði á veganesti fyr-
ir nýja öld, hugsanlega hönnun
sem snerti endurvinnslu hluta.
- GHS
msmi
Söímiii fyrir íbúa
Hjálparstarf kirkjunnar og
Rauði kross Islands efna til
söfnunar fyrir fórnarlömb átak-
anna á Balkanskaga vikuna
17.-29. maí. Atakið er unnið í
samstarfi við Stöð 2 og Bylgj-
una. Söfnunin nær hápunkti
nk. fimmtudag þegar fréttaefni
verður fléttað inn í dagskrána
ásamt sjónvarpsþáttum sem
tengjast ástandinu í Kosovo.
Söfnunarsími er 750 5050.
Safnað verður á reikning í
SPRON nr. 11502656789. - bþ
Stjómendur hjálpi reykingamöimimt
Málþing Fagdeildar hjúkrunarfræðinga um leiðir til að hjálpa fólki að
hætta að reykja, var haldið 14. maí sl. og var samþykkt eftirfarandi
ályktun: „I kjölfar nýrrar reglugerðar um reykingar á vinnustöðum
sem taka mun gildi 15. júní nk., þar sem heilbrigðisstarfsmönnum er
bannað að reykja í og við heilbrigðisstofnanir, vill málþingið beina
þeim tilmælum tii stjórnenda heilbrigðisstofnana, að þeir komi hið
fyrsta á laggirnar skipulagðri aðstoð til reykleysis við starfsmenn sína.
- BÞ
Tvær milljónir í alþjóðlegt heilbrigði
Da\'íð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytinu, gekk í gær á fund Gro Harlem Brundtland, fram-
kvæmdastjóra Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO), og afhenti
fyrir hönd Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðisráðherra tvær milljón-
ir króna í endurreisnarsjóð WHO. Gro Harlem sagðist fagna því sér-
staklega að Islendingar skipuðu sér í hóp þeirra þjóða sem Iegðu fram
til endurreisnarstarfsins. Ríkisstjórnin ákvað að leggja þessa upphæð
fram. - bþ
Kosovo