Dagur - 06.08.1999, Blaðsíða 10
10- FÖ'S'PUB'ArQV'R 6 7* Á'GfÚRt' '19 9 9 '
SMÁAUGLÝSINGAR
Skólafólk_______________________
Til leigu á Akureyri þrjú herbegi með
húsgögnum við Þingvallastræti. Eldunar-
aðstaða og sérinngangur.Laus 15. ágúst.
Æskilegast fyrir þrjá sem vilja leigja saman.
Upplýsingar í síma 462-3742 eftir kl. 17.
Þinghúsið á Grund
Svarfaðardal______________________
Málverka- og Ijósmyndasýning er næstu
þrjár helgar.
Breyttur opnunartími: Opið verður á laugar-
dögum og sunnudögum frá kl. 14-18 og á
öðrum tíma eftir samkomulagi.
Símar 466-1526 og 855-1855.
Veiðileyfi ___________________________
Til sölu laxveiðileyfi í Reykjadalsá og Ey-
vindarlæk og silungsveiðileyfi í Vest-
mannsvatni.
Ragnar Þorsteinsson,
Sýrnesi.
S. 464-3592.
Heyrúllur__________________________
Til sölu eru heyrúllur, sem seljast beint af
túni. Einnig þurrheysbaggar, lífrænt vottaðir,
komnir í hlöðu. Landsberg heyhleðsluvagn,
sem tekur 36 rúmmetra og er þrjátíu og
eins hnífa.
Upplýsingar í síma 451 -2977.
Ýmislegt___________________
Minningarkort Slysavarnarfélags Islands
fást á skrifstofu félagsins. Kortin
eru send bæði innanlands og utan og hægt
er að styrkja hvaða björgunarsveit
eða slysavarnarsveit innan félagsins. Gíró-
og greiðslukortaþiónusta.
Slysavarnarfélag íslands, Grandagarði 14,
sími 562-7000.
inningarkort um Einar Benediktsson frá
Stöðvarfirði fást hjá Kristrúnu
Bergsveinsdóttur Höfðahlíð 14 Akureyri.
Stígamót, samtök kvenna gegn kynfer-
ðislegu ofbeldi.
Símatími til kl. 19.00 í síma 562 6868.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást i
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju,
Blómabúðinni Akri og Bókvali.
Minningar- og tækifæriskort
Styrktarfélags krabbameins-sjúkra barna
fást hjá félaginu í sima 588 7555. Enn fre-
mur hjá Garðsapóteki, sími 568
0990 og víðar um land.
Minningarkort Umhyggju, félags til
stuðnings sjúkum þörnum, fást i
síma 553 2288 og li]á Body Shop, sími 588
7299 (Kringlan)/561 7299
(Laugavegur 51).
Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöl-
dum stöðum:
(Glerárkirkju, hjá Ásrúnu Pálsdóttur
Skarðshlíð 16a, Guðrúnu Sigurðardóttur
Langholti 13 (Rammagerðinni), í
Möppudýrinu Sunnuhlíð og versluninni
Bókval.
íþróttafélagið Akur vill minna á min-
ningarkort félagsins. Þau fást á eftirtöldum
stöðum: Bjargi Bugðusíðu 1 Akureyri og
versluninni Bókval við
Skipagötu Akureyri.
Minningarkort Gigtarfélags íslands fást i
Bókabúð Jónasar.
Samúðar- og heillaóskakort
Gideonfélagsins. Samúðar- og heil-
laóskakort Gideonfélagsins liggja frammi í
flestum kirkjum landsins, einnig hjá öðrum
kristnum söfnuðum. Ágóðinn rennur til
kaupa á Biblium og Nýja testamentum til
dreifingarhérlendis og erlendis.
Útbreiðum Guðs heilaga orð.
Til sölu
Fimm herbergja íbúðarhús m/bílskúr til sölu við Stóru-
tjarnaskóla.
Tilboð berist fyrir 14. ágúst n.k. Áskilinn er réttur til að taka
hvaða tilboði sem er og/eða hafna öllum.
Upplýsingar í símum 464-3383 og 464-3327.
Sveitarstjórn Ljósavatnshrepps.
Þakkir
Hjartans þakkir sendi ég öllum vinum og vandamönnum mínum
sem minntust mín með gjöfum, blómum og skeytum á áttræðis-
afmæli mínu þann 23. júlí sl.
Sérstakar þakkir til bama minna, tengdabama og annarra
afkomenda sem gerðu þennan dag ógleymanlegan.
Lifið heil,
Guðrún Svejnbjömsdóttir.
......... ..........................-.......T--
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu hlýhug
og samúð við andlát hjartkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÍVARS KRISTJÁNSSONAR,
Hrafnagilsstræti 26, áður Steinahlíð 3c.
Rósa Sighvatz, börn, tengdabörn og barnabörn.
Okkar ástkæra
LÁRA S. VALDEMARSDÓTTIR FLYGENRING
frá Felli,
Tunguvegi 14, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 10. ágúst
kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir
sem vildu minnast hennar láti líknastofnanir njóta þess.
Ólafur Haukur Flygenring,
Ingibjörg Flygenring, Páll Guðjónsson,
Ásthildur Flygenring, Friðrik Garðarsson,
barnabörn og langömmubarn.
Véla - Pallaleiga
Skógarhlíð 43, 601 Akureyri
fyrir ofan Húsasmiðjuna
•s
461-1386 og
892-5576
Útboð
Skólaakstur í Eyjafjarðarsveit
Óskað er eftir tilboðum í akstur nemenda í Hrafnagilsskóla í
Eyjafjarðarsveit næstu þrjú skólaár. Um er að ræða eina af 6
akstursleiðum á þjónustusvæði skólans.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar frá og
með þriðjudeginum 10. ágúst 1999. Tilboðin verða opnuð á
sama stað kl. 11.00 þriðjudaginn 17. ágúst.
Sveitarstjóri.
w
íþróttakennarar
íþróttakennara vantar að Grenivíkurskóla næsta skólaár. Þetta
er fámennur og þægilegur skóli í næsta nágrenni Akureyrar.
Aðstaða til kennslu er öll hin besta og gott húsnæði á lágu
verði er til reiðu fyrir kennara.
Vegna samkennslu bekkja þarf íþróttakennarinn að kenna bók-
legar greinar með íþróttunum.
Nánari upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skólastjóri í síma
463-3118 eða 463-3131.
Heildverslun
Óskar eftir heilsuhraustum og samviskusömum
starfskrafti í tímabundiö starf með möguleika á
framtíðarráðningu.
Starfssvið: Umsjón með vörum fyrirtækisins í stór-
mörkuðum og verslunum norðanlands. Viðkomandi
aðili verður að geta starfað sjálfstætt og geta tekið
þátt í að móta vöruframboð fyrirtækisins í samvinnu
við höfuðstöðvar fyrirtækisins í Reykjavík.
Áhugasamir sendi umsóknir til afgreiðslu Dags í
Reykjavík fyrir 10. ágúst með upplýsingum um
menntun og starfsreynslu.
Umsóknir merkist „H - 1999“.
Atvinna á Akureyri
og í Fellabæ
Leitum að dugmiklum starfskrafti á smurstöð, þvottastöð
og hjólbarðaverkstæði á Akureyri og Fellabæ, einnig í
byggingavinnu á Akureyri. Reynsla æskileg. Fjölbreytt
störf.
Upplýsingar á Dekkjahöllinni Draupnisgötu 5, Akureyri.
Sími 462-3002.
SDEKKJA
HÖLLII
Leigi út álvinnupalla.
Henta vel við málningu
og viðgerðir á litlum og
stórum húsum.
Krókódila-
Dundee skotinn
Ansell: fyrirmynd Krókódíla-
Dundee.
Rodney Ansell. sem var fyrir-
myndin að Krókódíla-Dundee í
samnefndri kvikmynd, var skot-
inn til bana í gær í átökum við
áströlsku lögregluna sem var að
reyna að handtaka hann vegna
gruns um morð. Einn lögreglu-
maður féll í átökunum. Ansell,
sem var 44 ára, varð frægur í
Astralíu fyrir meira en tveimur
áratugum þegar hann lýsti því í
bók og sjónvarpsviðtölum
hvernig honum tókst að halda
lífi fjarri mannabyggðum í tvo
mánuði þegar bátur hans eyði-
lagðist.
Hundruð féUu í
sprengjuárás
Meira en 500 manns féllu í
sprengjuárás á skæruliða í
Kongó. Að sögn leiðtoga upp-
reisnarmanna, Jean-Pierre
Bemba, sem undirritaði friðar-
samkomulag við Kabila forseta
Kongó á sunnudaginn, var 18
sprengjum varpað á bæina
Makansa og Bogbonga. Meðal
hinna föllnu eru að sögn hátt í
fjögur hundruð óbreyttir borgar-
ar.
Endummmmgar
Eidunanns birt-
ar?
Dómsmálaráðuneyti ísraels hef-
ur borist krafa um að endur-
minningar sem Adolf Eichmann
ritaði í ísraelsku fangelsi verði
gerðar opinberar. Eichmann,
sem skipulagði flutning og af-
töku milljóna gyðinga í útrým-
ingarbúðir nasista á stríðsárun-
um, var tekinn af lífi í Jerusalem
árið 1962. Áður hafði hann
skrifað 1300 blaðsíðna
sjálfsævisögu og varnarrit.
Fræðimenn hafa krafist þess að
fá aðgang að handritinu, sem
írsaelsk stjórnvöld hafa geymt á
bak við lás og slá í fjóra áratugi
eða svo.
Sókn gegn Tali-
bönum
Uppreisnarmenn í Afganistan
skýrðu frá því í gær að þeim
hefði tekist að sækja fram gegn
stjórnarher Talibana og væru nú
í aðeins 50 kílómetra fjarlægð
frá höfuðborginni Kabul. Þeir
fullyrða að um 500 stjórnarher-
menn hafi fallið í árásinni.