Dagur - 06.08.1999, Blaðsíða 13

Dagur - 06.08.1999, Blaðsíða 13
 Fösf'úbÁeG(f>R) 6.• a á'ffsW'4S$j>'- 13 1 IÞROTTIR HLyniir og Stevo eru enn efstir á Dagslistamim Hlyiiur Bírgisson, Leiftri, og Stevo Vor- kapic, Grindavík, hafa oftast verið vald- ir í Dagsliðið til þessa. KR-ingar eiga flesta leikmennina og hafa einnig oftast ver- ið valdir í liðið. Þegar ellefu umferðum er Iok- ið í Landsímadeild karla í knattspyrnu hafa þeir Hlynur Birgisson, Leiftri, og Stevo Vorkapic, Grindavík, oftast verið valdir í Dagsliðið, eða hvor um sig alls sex sinnum. Hlynur telst þó í efsta sætinu þar sem hann hefur leikið færri leiki, eða átta, en Stevo tíu. Þeir Bjarki Gunnlaugs- son, KR, ogjóhannes Harðar- son, IA, eru svo í þriðja til fjórða sæti, hafa verið valdir fimm sinnum eftir tíu leiki og síðan koma þeir Ivar Ingi- marsson, IBV, Hlynur Stef- ánsson, IBV, Ivar Bjarklind, IBV, og Grétar Hjartarson, Grindavík, sem allir hafa verið valdir fjórum sinnum. KR-ingar hafa oftast verið valdir í liðið, eða alls 23var sinnum og síðan koma Eyja- menn og Grindvíkingar, sem hafa verið valdir sautján sinn- um. Alls hafa 67 leikmenn verið valdir í Dagsliðið til þessa og eru flestir á listanum frá KR, eða alls tólf. Næstir koma svo Breiðabliksmenn með átta leikmenn og síðan Framarar, Leiftursmenn og Valsarar með sjö. Staðan eftir félögum: Félag: Leikm: Sinnum: KR 12 23 Leiftur 7 17 ÍBV 6 17 Grindavík 5 15 Breiðablik 8 11 ÍA 5 11 Keflavík 7 9 Fram 7 8 Valur 7 7 Víkingur 2 3 Eftirtaldir hafa verið valdir í Dagsliðið: Sex sinnutn: Hlynur Birgisson, Leiftri Stevo Vorkapic, Grindavík Fimm sinnum: Bjarki Gunnlaugsson, KR Jóhannes Harðarson, IA Fjórum sinnum: Ivar Ingimarsson, IBV Hlynur Stefánsson, ÍBV ívar Bjarklind, ÍBV Grétar Hjartarson, Grindavík Þrísvar sinrium: Albert Sævarsson, Grindavík Hlynur Birgisson, Leiftri, og Stevo Vorkapic, Grindavík, hafa leikið vel með iiðum sínum í sumar og verið kjölfestan í vörn liðanna. Tvisvar sinnum Salih Heimir Porca, Breiðabliki Steinn V. Gunnarsson, Leiftri Sigþór Júlíusson, KR Alexandre Santos, Leiftri Einar Þór Danfelsson, KR Kjartan Einarsson, Breiðabliki Pálmi Haraldsson, IA Kenneth Matijani, IA Sigursteinn Gíslason, KR Birkir Kristinsson, IBV Sumarliði Árnason, Víkingi Guðm. Benediktsson, KR Páll Guðmundsson, Leiftri Jens Martin Knudsen, Leiftri Ágúst Gylfason, Fram Dajsliðið’ 11. uinferð Marel Baldvinsson Breiðablik Salih Heimir Porca Breiðablik Gunnar Oddsson Keflavík Kenneth Matiiane ÍA lóhannes Harðarson Hjalti Kristjánsson Breiðablik Ásgeir Baldursson lón Sveinsson Breiðablik Hlvnur Bireisson Leiftri Fram Steinn V. Gunnarsson Leiffri Biarki Guðmundsson Keflavík Þormóður Egilsson, KR Guðni Rúnar Helgason, IBV Kristján Brooks, Keflavík David Winnie, KR Hákon Sverrisson, Breiðabliki Einu sinni: Þórhallur Hinriksson, KR Atli Knútsson, Breiðabliki Indriði Sigurðsson, KR Reynir Leósson, IA Arnór Guðjohnsen, Val Hilmar Björnsson, Fram Steingr. Jóhannesson, IBV Hjörvar Hafliðason, Val Jón Þ. Stefánsson, Val Steinar Guðgeirsson, Fram Sævar Pétursson, Fram Daði Árnason, Val Þrándur Sigurðsson, Víkingi Hjörtur Fleldsted, Keflavík Kristinn Guðbrandsson, Keflavík Andri Sigþórsson, KR Ólafur Pétursson, Fram Che Bunce, Breiðabliki Sigurður Örn Jónsson, KR Einar Örn Birgisson, KR Marcel Orlemans, Fram Kristinn Lárusson, Val Hjálmar Hallgrímsson, Grindavík Sturlaugur Haraldsson, ÍA Óli St. Flóventsson, Keflavík Páll Gíslason, Leiftri Sigurbjörn Hreiðarsson, Val Une Arge, Leiftir Sinsa Kekic, Grindavík Eysteinn Hauksson, Keflavík Ragnar Steinarsson, Keflavík Hörður Már Magnússon, Val Bjarki Guðmundsson, Keflavík Asgeir Baldursson, Breiðabliki Jón Sveinsson, Fram Gunar Oddsson, Keflavík Hjalti Kristjánsson, Breiðabliki Marel Baldvinsson, Grindavík Urvalslið Daj(s eftir 11 umferðii: Grétar Hiartarson (41 Grindavík Biarki Gunnlaugsson (31 KR Guðmundur Benediktsson (31 ívar Ingimarsson (4i KR ÍBV Pdll Guðmundsson (3) lóbannes Harðarson (5) Leiftri ÍA Stevo Vorkapic (6) ívar þiarklind (4) Grindavík ÍBV Hlvnur Birgisson (6i Hlynur Stefánsson (4) Leiftri ÍBV Albert Sævarsson (3) Grindavík ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ Takmarkið að halda þriðja sætinu Ásgeir Elíasson9 þjálfarí Fram. Tólfta umferð Landsíma- deildarínnar í knattspymu hefstá morgun og lýkur með leik Fram og Breiða- hliks á þriðjudag.Ásgeir Elíasson, þjálfarí Fram, segirað sínir menn verðiað ná sigri og að allt verðigert til að það takist. - Hvað viltu segja um stöðuna hjá ykkur i deildinni? „Þetta hefur ekki gengið nógu vel hjá okkur að undanfömu. Við höf- um tapað síðustu tveimur leikjum, gegn Keflavík og Grindavfk og reyndar ekki unnið nema tvo af sjö leikjum á síðustu tveimur mánuð- um og gert tvö jafntefli. Við unnum Víldng og Leiftur, töpuðum fyrir KR, en gerðum jafntefli við Val og ÍBV og reyndar einnig gegn Skagamönn- um og Blikum f lok maí. Við erum alls ekki ánægðir með okkur eftir þessa tvo síðustu leiki og verðum því að horfa fram á við og treysta á betri árangur það sem eftir er mótsins. Við eigum að spila næsta leik gegn Breiðablild á þriðjudaginn og þann leik verðum við að vinna og munum gera allt til þess að það takist.“ - Hvaða markmið voru sett íupp- haft móts? „Það markmið sem við settum okkur í upphafi \'ar fyrst og ffemst að bvrja betur en við höfum gert undanfarin ár. Við höfum verið að lenda í ströggli í upphafi móts síð- astliðin tvö ár og það er alltaf erfitt að ná sér upp úr því, þegar mál þró- ast þannig. Við lentum t.d. í því í fyrra að byija frekar illa og vorum lengi að ná okkur á strik, en enduð- um svo um miðja deild. Það var því markmiðið í upphafi að byrja betur og ef það tækist, þá yrðum við ekki fjarri toppnum. Síðan hefur þetta þróast þannig núna að við vorum í þriðja sætinu eftir átta umferðir og erum þar enn. Við höfum sett okk- ur það takmark að halda þvi út ágúst og skoða þá stöðuna ffekar fyrir síðustu þrjár umferðirnar. Hvort við verðum þá enn í barátt- unni um það sæti á eftir að koma í ljós í næstu leikjum, en ef vel geng- ur þá væri það góður möguleild. Annars er staðan í deildinni mjög jöfn frá þriðja sætinu og niður á botninn og allt opið upp á gátt. Breiðablik og Skaginn eiga reyndar bæði einn leik á oI<kur til góða og ef eitthvert liðanna tæki upp á því að vinna tvo til þrjá leiki þá gæti stað- an breyst fljótt og jafnvel liðið í ní- unda sæti gæti verið komið upp í það þriðja eftir tvær umferðir. Þetta verður því mikil barátta." - Er tneiri þrýstingur á gott gettgi liðsins eftir hlu tajjárvæðing- utta? „Góður árangur er auðvitað það sem allir vilja, en stofhun hlutafé- Iagsins er kannski ffekar komin til vegna þess að menn vildu styrkja fjárhagslega stöðu félagsins. I ffam- haldinu, ef vel gengi, sáu menn síð- an grundvöllinn fyrir því að byggja upp sterkt lið á næstu tveimur til þremur árum.“ - Hvemig tneturðu stöðutm á toppi deildarinnar? „A toppnum em það KR og IBV sem skera sig úr. Staða þeirra í fram- haldinu mun mildð ráðast af þvf hvemig öðmm liðum tekst að kroppa af þeim stigin í næstu leikjum og hugsanlega gæti þriðja liðið blandað sér í slaginn. Þar sé ég helst fyrir mér að Skaginn gæti blandað sér í þá baráttu. Þeir hafa að mörgu leyti verið að spila ágætan bolta í sumar, en átt í erfiðleikum með markaskor- unina, en þar virðist þó vera að ræt- ast úr. KR og ÍBV hafa þó verið að spila hvað best í sumar og KR-ingar þó sérstaklega seinni partinn. En það getur þó allt gerst ennþá og ekk- ert ömggt hjá þessum liðum.“ - Hverju viltu spá utn næstu tmt/érð? „Ef við byijum á leik Leiffurs og Víkings, þá tel ég að Leiffursmenn séu lfklegri á heimavelli og spái þeim því sigri f jöfnum Ieik. A Skaganum ættu Skagamenn að vinna Keflvík- inga, en þó er það ekkert ömggt, því Keflvíkingar hafa off náð góðum úr- slitum á Skaganum í gegnum tíðina. Ég held þó að Skaginn hafa það í þetta sinn. Ef ég væri að tippa á leik Grindvíkinga og Eyjamanna, þá mundi ég selja X við þann leik. Eyja- menn em reyndar að koma úr langri keppnisferð og þreyta gæti því setið í liðinu, en ég hallast að jafntefli. A Hlíðarenda held ég að KR-ingar hafi sigur gegn Val, þó allt geti gerst. Okkar leikur gegn Blikunum á þriðjudaginn V'erður baráttuleikur og auðvitað spái ég mínum mönn- um sigrinum."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.