Dagur - 13.08.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 13.08.1999, Blaðsíða 10
 * 40 -pí*ð * rWA%«f 13»í S99 SMflflUGL YSINGflR Veiðileyfi Til sölu laxveiðileyfi i Reykjadalsá og Ey- vindarlæk og silungsveiðileyfi í Vest- mannsvatni. Ragnar Þorsteinsson, Sýrnesi. S. 464-3592. Húsnæði óskast Reglusamt par bráðvantar 2ja-3ja her- berja íbúð á Akureyri frá og með 1. sept- ember 1999. Upplýsingar í síma 697-9961. Einkamál___________________________ Eg er 33 ára karlmaður, sem vill komast í vinskap með góðri vinkonu. Ef hún vill vera svo góð að hafa samband við mig eins lengi og hægt er. Upplýsingar í simboða 842-6545. HAÞRYSTIÞVOTTUR OG SANDBLÁSTUR Tökum aó okkur lítil sem stór verk þar sem hreinsun og sandblástur leysa vandann. Hreinsum af húsþökum, veggjum, skipum o.fL. Símar 894 5551: Jóhannes - 894 5376: Freyr. Ymislegt Minningarkort Slysavarnarfélags Islands fást á skrifstofu félagsins. Kortin eru send bæði innanlands og utan og hægt er að styrkja hvaða björgunarsveit eða slysavarnarsveit innan félagsins. Gíró- og greiðslukortaþjónusta. Slysavarnarfélag Islands, Grandagarði 14, sími 562-7000. Minningar- og tækifæriskort Styrktarfélags krabbameins-sjúkra barna fást hjá félaginu i sima 588 7555. Enn fre- mur hjá Garðsapóteki, simi 568 0990 og viðar um land. Stígamót, samtök kvenna gegn kynfer- ðislegu ofbeldl. Símatími til kl. 19.00 í sima 562 6868. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöl- dum stöðum: í Glerárkirkju, hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skarðshlíð 16a, Guðrúnu Sigurðardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni), í Möppudýrinu Sunnuhlíð og versluninni Bókval. Minningarkort Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis eru seld á eftirtöldum stöðum: Blómabúðinni Akur, Blómabúð Akureyrar, Blómaval, Bókabúð Jónasar, Bókval, Möppudýrinu og fsland- spósti. Frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar. Félagar og aðrir velunnarar eru vinsamlega minntir á minningakort félagsins sem fást í Blómabúðinni Akri, Amaro og Bókvali. Morgunbænir kl. 10:00 þriðjudaga til föstu- dags. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, Daðastöðum, Reykjadal, verður jarðsungin frá Einarsstaðakirkju, laugardaginn 14. ágúst kl. 14. Svanhildur Þorgilsdóttir, Jón F. Sigurðsson, Hallgrimur Þorgilsson, Jóna I. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Föðurbróðir minn, SIGURÐUR NÍELSSON, Oddagötu 5, Akureyri, verður jarðsunginn frá Skinnastaðakirkju laugardaginn 14. ágúst kl. 14. Jarðsett verður í Snartastaðakirkjugarði. Jón Friðjónsson. ERLENDAR FRÉTTIR Ein af svonefndum forsetahöllum Saddams Hussein, sem á sinn þátt í hrakandi heiisufari landsmanna sinna. Hörmulegt ástand í írák Saddams Ný skýrsla frá UNICEF stadfestir enn hörmulega jþróun sem orðið hefur í írak frá því refsiaðgerðir SÞ voru lagðar á. Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sendi í gær frá sér skýrslu um dánartíðni barna í Irak, þar sem fram kemur að dán- artíðni barna hefur hækkað um meira en helming frá því refsiað- gerðir Sameinuðu þjóðanna voru samþykktar. Þetta á hins vegar ekki við um ástandið í norðurhluta íraks, þar sem Kúrdar eru í meirihluta og njóta verulegs sjálfstæðis í raun undir vemdarhendi Sameinuðu þjóðanna. Þetta er fyrsta ýtarlega rann- sóknin sem gerð er á barnadauða í Irak frá því Persaflóastríðið skall á árið 1991 og refsiaðgerðir vom settar á Irak í framhaldi af því. Hún staðfestir með ótvíræðum hætti að neyðarástand ríkir í raun í Irak og má rekja það að verulegu leyti til þess að refsiaðgerðir Sam- einuðu þjóðanna koma í veg fyrir að nægilegt magn af matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjum berist til landsins. Hálf miUjón bama hefði lifað Skýrslan er byggð á könnun sem gerð var annars vegar á um 24.000 heimilum í mið- og suður- hluta íraks, og naut UNICEF að- stoðar írakskra stjórnvalda til þess, og hins vegar á um 16.000 heimilum í norðurhluta landsins. Það voru fullgildir heilbrigðis- starfsmenn sem tóku öll viðtölin, og voru þau gerð á tímabilinu febrúar til maí á þessu ári. ■ Samkvæmt skýrslunni létust á árunum 1984 til 1989 56 af hveijum 1.000 börnum í Irak áður en þau náðu fjmm ára aldri, en á árunum 1994 til 1999 var dánartíðnin komin upp í 133 af hveijum 1.000. Ef litið er á ung- böm á fyrsta ári þá hækkaði dán- artíðnin úr 47 af hveijum þúsund á fyrra tímabilinu í 108 af hveij- um þúsund á seinna tímabilinu. Að sögn UNICEF er þetta ein hæsta dánartíðni bama sem þekk- ist í heiminum, og er hún álíka há og í Haítí og Pakistan. Þetta er ekki síst alvarlegt í ljósi þess að á níunda áratugnum var dánartíðn- in á niðurleið, og telur höfundur skýrslunnar að ef sú þróun hefði getað haldið áfram hefðu að öll- um Iíkindum um 500.000 færri böm yngri en fimm ára Iátið lífið á ámnum 1991 til 1998 en raun varð á. Kiírdar í norðrinu vel settir I norðurhluta landsins hefur dán- artíðni yngri en fimm ára bama hins vegar lækkað úr 80 bömum af hveijum 1.000 í 72 af 1.0000, og er talið að þetta megi að veru- legu leyti þakka fjármagni sem Hættu að raka d þérfótleggina! Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg aðferð sem skýrir vinsælair One Touch á íslandi 112 ár. 1 Svo einfalt er það Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið það síðan afmeð rökum þvottaklút. (Sjá leiðbeiningar.) Húðin verður mjúk, ekki hrjúf! One Touch er ofnæmisprófað Margra ára reynsla segir stna sögu! Fæst í apótekum og stórmörkuöum. Sensitive fyrir viðkvæma húð Regular fyrir venjtdega Bikini fyrir „bikini" svæði Kúrdar í norðurhlutanum fengu í lok Persafióastríðsins. Sameinuðu þjóðirnar sam- þykktu árið 1996 að leyfa Irökum að selja olíu fyrir rúmlega 5 millj- arða bandarískra dala á sex mán- aða fresti í skiptum fyrir matvæli og lyf, og hefur það hægt nokkuð á hækkun dánartíðninnar en þó ekki dugað til að stöðva þessa óheillavænlegu þróun, hvað þá snúa henni við. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur sagt að þessi áætlun um olíu fyrir mat- væli hvorki geti, né hafi henni nokkru sinni verið ætlað, að bæta úr öllum þörfum Iraka fyrir brýn- ustu nauðsynjar jafnvel þótt mat- væli og lyf fyrir milljarða dala hafi komist til landsmanna fyrir til- verknað hennar. UNICEF hvetur ríki heims til þess að veita meira fé í mannúð- araðstoð í Irak. Bæði Sameinuðu þjóðirnar og stjómvöld í Irak eru hvött til þess að leggja meginá- herslu á að bæta heilsufarsástand og velferð bama í Irak. Margt veldur Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, er höfundur skýrslunn- ar, og hún hikar ekki við að kenna refsiaðgerðum Sameinuðu þjóð- anna að vemlegu leyti um ástand- ið. „Eg held að alþjóðasamfélagið geti ekki bara gert ráð fyrir að það Seri enga ábyrgð og reiknað með að áætlunin um olíusölu fyrir matvæli leysi allt,“ er haft eftir henni í bandaríska dagblaðinu Washington Post. „Um leið vil ég heldur ekki fría íröksku stjómina allri ábyrgð." Bellamy segir að þótt refsiað- gerðir Sameinuðu þjóðanna hafi valdið miklu um versnandi heilsufar í Irak, þá hafi stjórnvöld í landinu með ýmsum hætti gert illt enn verra. Hún segir að það séu í raun margir þættir sem hafi haft þau áhrif að dánartíðni barna í írak hefur hækkað, þar á meðal refsiaðgerðirnar, tvær styrjaldir, efnahagslegt hrun og auk þess viðbrögð landstjórnar- innar. Bellamy segir að UNICEF fall- ist á að refsiaðgerðunum sé í raun ætlað að auka líkur á friði °g öryggi í heiminum. Hins vegar segir hún, að því er AP fréttastof- an hefur eftir henni, nauðsynlegt að „skipuleggja og framkvæma þær með þeim hætti að komið sé í veg fyrir neikvæð áhrif á börn. -GB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.