Dagur - 12.02.2000, Page 2
18
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
Xfc^inr
HELGARPOTTURINN
Hinn háæruveröugi forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, undirbýr nú opinbera
heimsókn sína vestur á Strandir í sumar. Hvert
hérað landsins á fætur öðru hefur Ólafur lagt að
fótum sér í forsetatíð sinni og nú eru Strandirn-
ar sumsé næstar, en aðrar byggðir Vestfjarða
hefur hann áður heimsótt. Strandamenn hyggj-
ast sitthvað gera í tilefni heimsóknar forsetans
og meðal annars undirbúa þeir nú galdrasýn-
ingu sem verður opnuð á Hólmavik um jóns-
messuna. Skömmu síðar er von á Ólafi til að
kynna sér það magnaða fjölkyngi og kukl Strandamanna sem segir frá í
fornum bókum og hver veit nema að úr ferðinni muni hann hafa með sér
heim á Bessastaði rekaviðardrumb úr Trékyllisvík.
Stundum getur verið gott að vera útlendingur í
fjarlægum löndum, þar sem enginn þekkir
mann. Þannig þekkja Lundúnabúar alls ekki
þann mann sem stundum sést sportlega
klæddur skokka um í Hyde Park í Lundúnum -
frísklegur og fjörugur. Sá heitir Þorsteinn
Pálsson og er sendiherra íslands í heims-
borginni. Eftir að hann settist að þar ytra hefur
hann tekið upp nýja lífshætti og nú er Ifkams-
rækt orðin hluti af hans daglega lífi og í hinum
fræga garði borgarinnar sprettir hann úr spori.
Leikarinn Benedikt Erlingsson leiðir að
því líkum að Shakespeare hafi verið undir
sterkum íslenskum áhrifum við ritun helstu
verka sinna og telur sig geta bent á fjölda
vísbendinga þess. efnis. Benedikt vinnur nú
hörðum höndum að undirbúningi sýningar-
innar Sjeikspír eins og hann leggur sig sem á
að frumsýna í Iðnó þann 1. mars. Leikhópinn
skipa þau Halldóra Geirharðsdóttir,
Halldór Gylfason og Friðrik Friðriks-
son og hafa þau fengið til liðs við sig
Shakespeare sjálfan sem bætist í hópinn
eftir að myrkva tekur!
Ásmundur Ásmundsson bróðir Snorra
Losta, er líka myndlistarmaður þótt hann láti
fara aðeins minna fyrír sér en stóri bróðir. Nú í
dag ætlar Ási að opna sýningu í einu fram-
sæknasta galleríi höfuðborgarinnar, Oneoone,
sem ber yfirskriftina Video ergo sum, en það
gæti útlagst: Ég bý til myndband, þess vegna
er ég til. Yfirskriftin er tilvísun í fræga setningu
franska heimspekingsins Descartes, Cogito,
ergo sum (Ég hugsa, þess vegna er ég til). í
fréttatilkynningu um sýninguna stendur hins
vegar að setningin sé ein af „gullmolum gríska heimspekingsins
Ratóns". Það er greinilegt að Ási þarf að lesa heimspekina sína - nema
hann sé að stríða eins og stóri bróðir.
Menn velta því nú fyrir sér hvort það sé til-
viljun að Margrét Frímannsdóttir tók
ákvörðun um að gefa kost á sér sem vara-
formaður Samfylkingarinnar nokkrum
klukkustundum eftir að Ólafur Ragnar
Grímsson ákvað að gefa kost á sér sem for-
seti annað kjörtímabil. Gárungar spyrja hvort
Margrét hafi verið farin að huga að forseta-
embættinu ef Ólafur Ragnar hefði hætt!
Miklar breytingar hafa nú verið gerðar á dag-
skrá Skjás eins, þáttum hent út og öðrum
bætt inn og fréttatímar færðir til. Meðal þeirra
þáttastjórnenda sem tekið hafa pokann sinn
er Axel Axelsson, sem var með Axel og fé-
laga. Þá er Nonni sprengja (Gunnar Helga-
son) kominn í frí en Gunnar hins vegar kom-
inn með annan grínþátt. Á sömu slóðum
verða Davíð Þór Jónsson og Bjarni
Haukur Þórsson, Hellisbúi með meiru. Þá
ætlar fréttastofan, með Sigurstein Másson
í broddi fylkingar, að vera með aðalfréttatím-
ann kl. 10 á kvöldin. Þá er bara að sjá hvort þessar breytingar auka
áhorfið, sem ku ekki hafa verið mikið samkvæmt nýjustu mælingum ...
Það eru fleiri sprækir leikarar f hinu djarfa
leikriti Komdu nær í Þjóðleikhúsinu sem
frumsýnt verður í næstu viku en Baltasar
Kormákur, Brynhildur Guðjónsdóttir,
Elva Ósk Ólafsdóttir og Ingvar E. Sig-
urðsson. Þar er líka feikilega frískur gull-
fiskur af stærri gerðinni sem setti bílstjóra
leikhússins í stóran vanda. Fiskurinn var í
fötu f aftursæti bílsins en undi illa vistinn og
hoppaði upp úr fötunni, ekki einu sinni held-
ur tvisvar. Á einum götuljósum stökk hann
upp á hnakka böstjórans og þaðan út um allan bíl. Bístjórinn sá sitt
óvænna og hljóp út til að fanga fiskinn öðru sinni. Böstjórarnir fyrir
aftan hann sátu agndofa og fyldust með úr fjarlægð og gleymdu að
flauta þótt græna Ijósið væri löngu komið.
Ingvar £ Sigurðsson.
Bjarni Haukur
Þórsson.
Halldóra
Geirharðsdóttir.
Úlafur Ragnar.
Pað var mjög gott að vera innan um unga fólkið í Menntaskólanum," segir Jóhanna Þóra Jónsdóttir, sem er 100 ára í dag.
MYND'.BRINK
„Hélt ég yrði kátari
af reykingum“
Jóhanna Þóra Jónsdóttir, sem er 100 ára í dag, hefur ekki farið
á skemmtun síðustu 65 árin.
I lágreistu húsi í Aðalstræti 32 á Ak-
ureyri, sem byggt er 1888, búa tvær
heiðurskonur sem nálgast það að
vera jafngamlar húsinu. A eftri hæð-
inni býr Jóhanna Þóra Jónsdóttir frá
Illugastöðum í Fnjóskadal, en þar
voru foreldrar hennar vinnuhjú, en
hún var þar fram yfir fermingu. Jó-
hanna verður 100 ára í dag, 12. febr-
úar. A neðri hæðinni býr Kristín E.
Ólafsdóttir sem fædd er 6. júlí 1901.
Hún var gift Jóni Pálssyni smið sem
lést árið 1972, og síðan hafa þær
stöllurnar verið einar í Aðalstræti 32.
Meðalaldur íbúa er því hartnær 100
ár. Jóhanna Þóra Jónsdóttir flutti til
Akureyrar með syni sínum, Birgi
Helgasyni kennara, sem býr á Akur-
eyri og fyrstu tvö árin var faðir henn-
ar einnig hjá henni.
„Eg held miklum tengslum við
Fnjóskadalinn, finnst alltaf að ég sé
að koma heim þegar ég kem þangað,
en þangað kem ég á hverju ári,
stundum oftar en einu sinni, og svo
á sonur minn þar bústað í Snæbjarn-
arstaðalandi. Mér finnst ég aldrei
vera að koma heim þegar ég kem til
Akureyrar þó ég sé búinn að vera hér
í 65 ár. Mér hefur ekki dottið í hug
að fara á dvalarheimili fyrir aldraða
meðan ég hef fótaferð og skaparinn
leyfir mér að halda fullum sönsum.
Við Kristín drekkum ævinlega
saman kaffi á morgana og síðdegis
en í vetur hef ég fengið sendan mat
hingað frá félagsþjónustu vegna þess
að ég Iá um tíma á spítala í fyrravet-
ur og læknirinn vildi ekki að ég væri
Jóhanna ásamt nágranna sínum Kristinu
E. Úlafsdóttur 99 ára.
að elda. Við ræðum yfirleitt fyrst um
veðrið og síðan eitthvað sem er að
gerast í bænum. Eg ræði helst aldrei
um pólítik en Kristín er dálítið póli-
tísk. Ég kýs alltaf og kaus auðvitað
forsetann. Allt mitt vinafólk, fyrir
utan fjölskylduna, er dáið svo ég hitti
ekki marga. Þegar ég kom til Akur-
eyrar var mjög vont að fá vinnu og ég
í ýmsum verkum en síðustu 24 árin
sem ég var að vinna gerði ég hreint í
Menntaskólanum. Það var mjög gott
að vera innan um unga fólkið og
aldrei sagði það neitt við mig nema
eitthvað gott og var ábyggilega ekki
að reka hornin í mig. Ég hef Iifað
baráttulitla ævi og því fátt minni-
stæðara en annað.
Ég hef aldrei reykt, en var einu
sinni að hugsa um það því ég hélt að
ég yrði eitthvað kátari af því því fólk
var svo ánægt þegar það settist niður
með sígarettu. Ég hef smakkað
áfengi, en aldrei fundið á mér, enda
finnst mér áfengi vont. Ég hlusta
mikið á útvarp, s.s. fréttir og danslög
en ég dansaði mikið í gamla daga,
svo sannarlega, en hef ekki farið á
skemmtun síðustu 65 ár. Ég þoli ekki
að horfa á sjónvarp nema það sé eitt-
hvað sérstakt, fæ verk í augun af
því,“ segir Jóhanna Jónsdóttir. GG
MAÐUR VIKUNNAR ER FORSETI!
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, skýrði
frá því í gær að hann myndi sækjast eftir endur-
kjöri sem forseti næsta kjörtímabil, en það hefst
1. ágúst næstkomandi. Þetta þótti flestum fjöl-
miðlum slík tíðindi að þeir birtu viðtöl við forset-
ann - nema Mogginn. Þótt ekki sé enn Ijóst hvort
einhver verður til að bjóða sig fram á móti honum,
má víst telja að Ólafur Ragnar verði forseti íslands
næstu fjögur árin. Hvort sem hann verður sjálf-
kjörinn í sumar eða ekki, þá er hann vissulega
sjálfkjörinn maður vikunnar!