Dagur - 12.02.2000, Qupperneq 7

Dagur - 12.02.2000, Qupperneq 7
 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Væri góð fýrir villimannabyggð „Ég er í sambandi við huldar vættir í eynni og treysti því að þær reynist mér vel," segir Úlfar Þormóðsson blaðamaður. mynd: teitur. Húsið sem brann 22. desember 1951. Það var byggt afFranz Jónatanssyni og Jó- hönnu Gunnarsdóttur sem bjuggu í eynni frá 1910-14 og aftur frá 1919-1941. MYND SAFNAHÚSIÐ SAUÐÁRKRÓKI. Mannlíf í Málmey. mynd: safnahúsið sauðárkróki. Málmey á Skagafirði er önnur þeirra eyja sem íslenska ríkið hyggst selja. Hin er Elliðaey á Breiðafirði. Málmey var í byggð þartil 1951 þegar íbúðarhúsið brann ofan af heimilis- fólkinu, kvöldið fyrir Þorláksmessu. Einn þeirra sem þar missti heimilið sitt var Úlfar Þormóðsson. „Ég var bara 7 ára þegar brun- inn varð en ég man vel eftir mörgu í Málmey, t.d herbergja- skipan í húsinu. Man vetrar- kvöld þegar við sátum í stofu sem var tengd eldhúsinu. Svefnherbergin voru uppi. Undir öllu húsinu var kjallari og hann var fullur af kolum. Þegar bruninn varð þá Ioguðu eldar fram yfir þrettánda," seg- ir Ulfar og kveðst einungis eiga góðar minningar úr eyjunni, hann hafi meira að segja litið á brunann sem dálítið ævintýri. „Ég held það sé ekki vegna þess að ég sé verr innrættur en annað fólk en ég skynjaði ekki missinn og fannst bálið bara stórfenglegt. Enda var þetta engu líkt.“ Þegar eldurinn kom upp voru 15 manns í húsinu, tvær barnafjölskyldur og föðurafi Úlfars. „Þetta var um kvöld og tvö yngstu börnin voru sofnuð uppi á lofti," rifjar Úlfar upp.“Sem betur fór tókst að bjarga þeim og öðru heimilis- fólki út, en veðrið var svo vont að ekkert skip komst til okkar fyrr en daginn eftir. Við létum því fyrirberast úti í hlöðu um nóttina,“ segir hann og bætir við að útihúsin hafi staðið spölkorn frá bænum. Vindur hafi staðið af þeim svo þau hafi aldrei verið í hættu. „Við horfð- um á bálið þaðan og gátum ekkert gert.“ En hver skyldu eldsupptök hafa verið? „Nú styðst ég bara við minnið sem er mesti Iygari veraldarinnar! En ég held að eldurinn hafi komið upp við lítinn ljósamót- or. Ef ég man rétt var búið að byggja yfir hann og átti að koma honum í sérstakt hús daginn eftir en eins og í öllum krassandi sögum þá kviknaði í kvöldið áður. Við misstum allt.“ Daginn eftir kom vitaskipið Hermóður og sótti fólkið. Sigldi fyrst til Siglufjarðar og þaðan til Hofsóss. „Það voru einhverjar vikur sem fjölskyld- an var tvístruð hingað og þang- að. Ég á ágætar minningar frá þeim tíma líka,“ segir Úlfar. Uppsátrið fremur erfitt Fjölskylda Úlfars var einungis búin að búa 2-3 ár í Málmey þegar dvölinni lauk með þeim hætti sem að framan er lýst. Hann segir frá: „Við komum út í Málmey 1948 eða 49. Þá var faðir minn ráðinn þar sem vita- vörður og var auk þess með bú- skap. Við vorum þrjú systkinin sem fluttum þangað með for- eldrum okkar og það fjórða bættist við í eynni. Einnig flutti með okkur Húnvetningur en hann fór fljótlega aftur upp á land og til okkar kom fjöl- skylda úr Mýrdalnum, hjón með 6 börn.“ Hann telur að foreldrar hans hafi viljað hafa fleira fólk með sér í eyjunni til að verjast ein- angruninni og einnig hafi verið erfitt fyrir einn rnann að sjá um bátinn því uppsátrið hafi verið fremur erfitt. Það snúi beint í vestur og þar standi oft upp á en austan á eynni, þar sem sjór er kyrrari sé illa gengt upp. „Einu sinni þegar pabþi var að koma frá Hofsósi fót- brotnaði hann þegar hann var að ganga frá bátnum og varð að fara aftur upp á land að fá lækni til að gera að brotinu.'1 Líkist yxna kú í lögun Málmey er 2.4 ferkílómetrar að stærð. „Hún var stór fyrir litla fætur og mjög þýfð,“segir Úlf- ar. „En hún er geysilega falleg náttúrusmíð. Að lögun má segja að hún líkist yxna kú með sigið bak. Hún er nokkuð há syðst, lækkar í miðjunni og hækkar svo og breikkar til norðurs. Eftir á að hyggja er manni ljóst að Málmey hefur verið kostajörð. Þar hefur eng- inn þurft að svpjta, Hún, pr grösug og góð undir bú þótt lít- il sé og þar var krökkt af berj- um. Yfir sumarið var farið með féð upp á land. Svo gaf sjórinn mikið af sér. Það var rauðmagi og fugl á vorin og fiskur uppi í fjörusteinum. Arin sem við vor- um í eynni var síld um allan fjörð og við höfðum gaman af að fylgjast með skipunum. Þeg- ar veður versnaði þá komu þau í var.“ Draugasafn og villinaut Nú berst talið að rammri hjá- trú og bönnum sem fylgdu Málmey. Þar var talið að ekki mætti vera hestur, þá átti hús- freyjan að missa vitið. Úlfar segir það hindurvitni þvf móð- ur sín sé enn ógalin og hafi fjölskyldan þó verið með hest í eynni. Hjón máttu heldur ekki búa þar lengur en 20 ár þá átti konan að vera tekin af tröllum og færð í björg. Til er fræg saga um slíkan atburð frá 1 5. öld. Úlfar segist ekki efast um mikla huldufólksbyggð í eynni og allskonar vættir þar í kring. „Þeir sem sáu í aðra heima vissu alltaf hvenær von var á kaupskipunum á Hofsós, því skip huldufólksins komu að eynni viku áður.“ Hann segir Málmey kjörinn stað fyrir þjóð- sagnamiðstöð, rannsóknarsetur eða jafnvel villimannabyggð. „Þarna gæti verið draugasafn og villinaut á beit. Svo mætti selja aðgang að eyjunni og lofa mönnum að athuga hvort þeir lifðu af!“ Þetta síðasta segir Úlfar dálítið hrekkjóttur á svip en skyldi hann ætla að bjóða í Málmey? „Mér finnst Davíð ætti nú bara að gefa mér hana, fyrir allt það sem ég á eftir að gera fyrir þjóðina,“ segir hann stríðnislegur en bætir svo við: „Ef Málmey fer á almennan markað mun ég ekki láta það afskiptalaust. Þótt ég eigi enga peninga þá mun ég galdra þá fram. Ég er í sambandi við huldar vættir í eynni og treysti því að þær reynist mér vel. Þessi eyja er gimsteinn og ég vona að bara að sveitarfélagið Skagafjörður eignist hana. Það gæti síðan gert mig að jarli þar!“ Þegar allt þagnar Úlfar sér fyrir sér eyjuna sem paradís - nákvæmlega eins og hún er. „Þar sem ekkert er nema jörðin sem þú stendur á, himinninn yfir þér og hafið í kring. Fyrir fólk í nútímasam- félagi er það einstök upplifun. Það eina sem heyrist eru nátt- úruhljóð, brimhljóð, fuglasöng- ur. Svo getur kyrrðin orðið allt að því áþreifanleg. Það vitum við sem höfum vakað ögur- stundina þegar allt þagnar, líka brimið, vindurinn og fuglarnir. Það eru andartök sem maður á að eilífu og kannski deyr mað- ur inn í þau - ég veit það ekki. Ég hefði svo sem ekkert á móti því“ segir Úlfar Þormóðsson dreyminn á svip og er greini- lega kominn í huganum norður í Málmey - gott ef ekki á jóns- messunótt. GUNÍ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.