Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 19

Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 - 35 Farfuglaheimilið að Laufásvegi á sjöunda áratugnum. Finninn með jenin Eldsnemma á föstudagsmorgni 23. júní 1972 vaknaði finnskur túristi á farfugla- heimilinu á Lauf- ásvegi við að ókunnur og heldur óálitiegur maður stóð við rúm hans. Aðkomu- maðurinn óvelkomni hraðaði sér burtu í skyndi og var annar maður með, sem hann greindi óljóst, en sá bar tösku. Finninn sá að mikilvæg taska hans var horfin og hljóp á eftir mönnunum út. Stóð annar þeirra á miðjum Laufásvegin- um og yppti bara öxlum þegar hann var spurður um töskuna. Finninn, Tage Vilhelm Jönson, hraðaði sér á Iögreglustöð með sínar ósléttu farir. Hann lýsti innihaldi töskunnar og var þar ekkert slor á ferðinni; tvær japanskar bankabækur (með alls 1 10 þúsund jena innistaeðum), ein sænsk bankabók frá Stockliolms Sparbank (með 273 sænsk- um krónum), um það bil 21.500 japönsk jen (um 14 þúsund krónur á núverandi gengi), átta kanadískir dollarar, nokkrar Ijósmyndir, rafmagnsrakvél, ein Kodak kvikmyndatökuvél, orðabókin „Teach Yo- urself Icelandic", tannbursti og fleira. Sjálf taskan var sérstök, brún-græn og upphaflega ætluð undir hæggengar híjómplötur. Finninn gaf eftir bestu getu lýsingu á aðkomumanninum; hann var dökkhærð- ur meðalmaður með nokkuð mikið hár, án þess að vera síðhærður, um það bil 27 ára og klæddur brúnni stormblússu. Lög- reglan Ieitaði árangurslaust í námunda við farfuglaheimilið og var haft samband við banka, leigubifreiðastöðvar og Um- ferðarmiðstöðina. Tíðindin í talstöðinni Útlitið var ekld gott fyrir finnann óheppna, en samt fór það svo að um kl. 18.30 sama dag var hringt til rannsóknar- lögreglunnar og tilkynnt, að frést hefði af ungri stúlku sem hefði í banka reynt að fá skipt japönskum jenum. Stúlkan sú hafði verið í leigubíl frá Hreyfli og kom fljótlega í ljós hvaða bíll það var. Hafðist uppá honum og var stúlkan enn farþegi, Soffía, greinilega undir áhrifum áfengis. Leigubílstjórinn bar að auk hennar hefðu áður verið í bifreiðinni tveir karl- menn og önnur stúlka. Hefðu þau látið hann aka að tveimur bönkum og hin stúlkan farið þar inn. Þau hefðu heyrt þegar kallað var á hann í talstöðinni og hann beðinn um að koma með farþega sína til lögreglunnar, en honum ekki tek- ist að halda hinum þremur í bifreiðinni; karlmennirnir og hin stúlkan hefðu yfir- gefið bifreiðina í skyndi við gatnamót Há- teigsvegar og Nóatúns, þegar hann þurfti að hægja á ferðinni. Bæði bílstjórinn og Soffía skoðuðu myndasafn lögreglunnar og bar saman um hverjir mennirnir í bifreiðinni voru; síbrotamennirnir Einar og Tryggvi. Soffía vissi ekki deili á hinni stúlkunni, en síðar kom í ljós að það var stúlka að nafni Sól- rún. Ekki tekið við jenum Með þá vitneskju í farteskinu að þjófarnir væru góðkunningjarnir Einar og Tryggvi var aðeins spurning hvenær lögreglan hefði hendur í hári þeirra. Báðir áttu skrautlegan feril að baki og marga dóma í safni sínu. Ekki síst fyrir þjófnaði og svik ýmiss konar, en einnig fyrir nauðgun og annað ofbeldi. Tryggvi kom nokkrum árum síðar við sögu frægustu morðmála Islands. Einar var 1998 dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa með „iðrunarlausum og ósvífnum hætti“ haft samfarir við þroskahefta konu, sem gat ekki spornað við vegna andlegra annmarka sinna. Einar var handtekinn 26. júlí 1972, rúmum mánuði eftir þjófnaðinn, og Tryggvi tveimur dögum síðar. Þeir neit- uðu staðfastlega að vera sekir um þjófn- aðinn. Þeim var stillt upp í hegningar- húsinu með tug manna og gat finninn hildaust bent á Einar, en ekki Tryggva. Sólrún viðurkenndi að hún hefði reynt að selja jenin fyrir Einar eftir að hafa hitt hann og Soffíu á veitingastað í Austur- stræti. I næstu yfirheyrslu, með Einar til samprófunar, breytti hún framburði sín- um - dró allt til baka og vissi nú ekki neitt í sinn haus. Daginn eftir, við sam- prófun með Soffíu og leigubílstjóranum, breytti hún aftur um framburð og sagði fyrri skýrslu sína rétta. Hún hefði reynt að skipta eitt þúsund jenum í Búnaðar- bankanum við Hlemm, en svörin voru þau að ekki væri tekið við japönskum peningum. Fékk hún sömu móttökur í Landsbanka Laugavegi 77. Skömmu síðar hafi þau heyrt þegar leigubílstjórinn var í gegnum talstöðina beðinn um að fara með farþegana á lög- reglustöð. Stukku þau þrjú út úr bílnum og fóru heim til Tryggva að sukka. Ekki ónáða fjarvistarsönnunina! Vitnið Soffía gat strax bent á Einar og Tryggva við sakbendingu, en hún þekkti hitt fólkið ekki persónulega, hitti þau þennan umrædda dag. Hún rauk ekki heldur út við tíðindin úr talstöðinni. Hinir ákærðu vildu ekkert við þjófnað- inn í farfuglaheimilinu kannast og heldur ekki við leigubílaferðina með Soffíu og Sólrúnu. Sagðist Einar aldrei hafa séð Soffíu fyrr en við sakbendinguna. Hann hefði á fimmtudagskvöldinu og fram á nótt verið við drykkju með Tryggva og fleirum og gætu 10 til 15 manns staðfest það, en hann kærði sig ekki um „að fólk þetta verði ónáðað". Hefði hann ekki séð Tryggva frá því þá nótt og því ekki getað verið með honum á föstudagsmorgnin- um. Sagðist hann telja að Soffía og leigu- bílstjórinn hefðu tekið sig f misgripum fyrir einhvern annan. Tryggvi sagðist ekki vita með Einar, en að hann hefði ekkert nálægt þessum mál- um komið. Þeir hefðu flækst saman en orðið aðskila umrætt fimmtudagskvöld um 9 leytið og hann ekkert drukkið. Hann kannaðist ekkert við téða leigubíla- ferð, hvað þá vitnin sem bentu á hann. En bæði faðir Tryggva og bróðir hans báru fyrir dómi að þeir Einar hefðu verið sofandi á föstudagsmorgninum á því heimili og þá fór sú saga félaganna fyrir lítið. Bland í poka með Héraðsdómari taldi sannanir um þjófnað- inn í farfuglaheimilinu nægar á Einar og sakfelldi hann, en ekki á Tryggva og sýkn- aði hann. Fyrst þeir voru í höndum yfirvalda voru þeir ákærðir í Ieiðinni íyrir ýmsar aðrar sakir; stuld á veski af drykkjubróðir, pen- ingum og úri af kunningja, að valda tjóni á bifreið fyrir utan Klúbbinn, innbrot f lyfjabúð og fleira. Dæmdi héraðsdómar- inn Einar í árs fangelsi en Tryggva í 6 mánaða fangelsi. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðuna. Friðrik Þór Guðmundsson skrifar Björk á Breiðafirði. í fréttir komst um síðustu helgi að söngkonan Björk Guðmundsdóttir hefði lýst yfir áhuga sínum á því að kaupa eyju á Breiða- firði. Hver er eyjan? Blaðasalinn. Við Stjórnarráðshúsið í Lækjargötu í Reykjavík er stytta eða líkneski af Kristjáni sem þar stendur með blað í hendi og er fyrir vikið gjarnan talað um Kristján blaðasala. En hver er Kristján þessi og hvert er blaðið sem hann heldur á? Selamaðurinn. Á fyrstu dögum ársins frumsýndi Páll Steingrímsson kvik- myndagerðarmaður mynd sem hann hefur gert um Iff sela hér við land. Myndin þykir sérstæð og vel gerð. Titill hennar er sóttur í fræga þulu þar sem um seli er kveðið. Hver er hann? Brúasmíðin. Nú er unnið að því að reisa eina lengstu bogabrú landsins og mun leiðin milli Grenivíkur og Ak- ureyrar greiðast mikið með brúnni, sem er yfir hvaða á? Kynlífssýning. Framandleg sýning er þessa dagana í Listasafninu á Akureyri þar sem er sýnt sitthvað um hið for- boðna. Hvað heitir sýningin sem hefur vakið athygli - og hneykslan sumra? LflND OG ÞJOÐ 1. „Áður hengdu menn ræningja á krossa, nú hengja menn krossa á ræn- ingja.“ Hver komst svo að orði í frægri blaðagrein og um hvað fjallaði hún? 2. Eftir hvem eru skáldverkin Skálholt og Vér morðingjar? 3. Hvert var söngparið sem skipaði söngdúettinn Þú og ég sem var afar vin- sæll fyrir um tuttugu árum, eða svo? 4. Fyrsta þota landsins kom til landsins árið 1967. í hverra eigu var hún og hvað var þotan nefnd? 5. Hvar á landinu eru Suðurárbotnar? 6. „Efst á Arnarvatnshæðum, / oft hef ég fáki beitt. / Þar er allt þakið f vötn- um, / þar heitir Réttarvatn eitt.“ Hver orti þetta litla Ijóð? 7. Hver er fjallvegurinn sem liggur milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar? 8. Hver er biskup kaþólskra á íslandi? 9. Sjaldan er gýll fyrir góðu ... Hvemig hljómar þetta orðatiltæki í heild sinni - og hver er merking þess? 10. Hvaða ríkisstjórn var nefnd Stefan- ía? skrifar '6(761 >|0|SJB Jjpun IUBJJ 6o L1j&\. SJB BUJUJOUS wcj BJJJBS UI8S JBU0SSUBJ9JS SUUBljOf SUBJ8JS Ujoþssispj JBA BHScJ '01 'BQOq QB H06 pBAqHjB J>U|S l6|0 JBfjtj BJBA QB JACj BQJ9A JULUjq B J||0SB>|nV 'IUUJIpS jqjB B UBJ ‘}QJqSp[| Bp9 |0SB>|nB J>|J9UJ 6|UU|9 jnj36 QJO QBCj U9 'jnj|n BUI9U H06 1>|>|9 !QOq J>(!|S QB BUUBLU njj QBCj J0 n|OS UBpun B bjbj jj9|qsof| BQ9 |0SB>|nB UU9LU |b[s Óo jojqsof) ji>|jaui ||A6 qiqjq *iuu9J jijj9 b jnj|n Buiau nQ06 juAj ||A6 J9 uspiBfs :|>|æjQJ0 BHOcj JBUiofiq mu|S p||9q j ‘6 'U9sf!0 sguusqpr J9 !puB|S| b Bj>|S|pcjB>j dn>|S!g ‘8 '!Q!9qs||Bjn|ui9g l 'uossluij6||BH SBUOf !P0 oas '9 'uinujoqjBjnpns J iQBSsgui spuB|S| dn>|S!q uossujofqjnójs |Je» BJjgq jBögcj jsuins '|s jsuu^ui jba Bssgq 'puBS!6u9jds uin jba qijbj jsÓgcj -s cj - uinp|g b jjAj !Qjy b jnjsns' B| bjj!9c| p;s| jBöacj uin njoj jBdn»S!qsj|oq|B>(s cugs jnBjqopfcj ijjiscj b J9 uuunpBJS jBpjBpjBg j !JO>|jbjjbas JB VS 'lu>| oi uq QBcj uin JunBjqBQBpp i njg jBUjoqjBjnpns 'S '!xej||ng pujgu jba 6o spuB|sj s6B|aj6n|j n6raj jba UBjoq y uosb8|9H uuBqop 60 js||0|/\j b6|9h '£ 'UBquiBX punuipng z '0961 uin6uu>| j jba Bjjaq !|Buis6B|9jnj|o npujguoAS qb susq jbpuqb buÓba j»ss j jnpuiæp qu9a uuBq jpjsq jnpp nj»>|ou U9 ‘jBuunQj0B>||Bj ssoj>|BJBppujpjs h|ba jba joq !ui|Bfq|!A JBÖacj pecj uin !uu;s u!9j6BQB|q j !QJ0 qb uossubpb[>j snu6s|/\j jsuio>| oas 'I '000Z !JS01 J!J!3lJ uiBujuÁs, 'BJjsofuj jjj/ ja bqo6 u^njg , 'uinfj9>jsjn b ujoqnjm bjos , 'W81 pu? uin6uaj qw ui9S B6u!pua|sj B>|SJBUjpfjs bjsjAj b jnppq uusq ui9S p;66e|d 6o '6 uwq jn6unuo>|BUB(] uefjsu» J9 ]|BSBQB|q uefjS!J» , 'A9BQ!||3 ,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.