Dagur - 13.04.2000, Blaðsíða 8
8 -FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
FRÉTTASKÝR
Hvalaskoðim sldk
GUÐMUNDUR
RÚNAR
HEIÐARSSON
SKR/FAR
Hvalaskoðun vin-
sælasta afþreyingin í
ferðameimsku. Rúm-
lega 30 þiísund inaims
í hvalaskoðuu í fyrra.
Tæpur miljarður fyrir
þjóðarbúið. Fjórar
miljónir í sjö manna
sendinefnd.
Hagsmunaðilar í hvalaskoðun
telja að hvalaskoðun sé orðin ein
vinsælasta grein afþreyingarferða-
mennsku hérlendis og sé meðal
annars búin að skjóta hestinum
ref fyrir rass. Þetta er umtalsverð-
ur vöxtur þegar haft er í huga að
hvalaskoðunarferðir hófust ekki
að neinu marki fyrr en 1995. A
milii 10 og 15 fyrirtæki starfa á
sviði hvalaskoðunar. A síðasta ári
fóru rúmlega 35 þúsund manns í
hvalaskoðunarferðir og áætlað er
að þær hafi gefið af sér rúniar 560
miljónir króna. Aætlaðar heildar-
tekjur þjóðarbúsins af þessari at-
vinnugrein í fyrra námu rúmlega
900 miljónum króna þar sem
hundruð manns koma beint og
óbeint að þessum vaxtarbroddi í
ferðamennskunni.
Miljónir í sendinefnd
Þetta kom meðal annars fram á
blaðamannafundi þar sem kynnt
var skýrsla um hvalaskoðun sem
unnin var af Asbirni Bjögvinssyni
forstöðumanni Hvalamiðstöðvar-
innar á Húsavík. A sama tíma og í
skýrslunni er lögð áhersla á mikil-
vægi hvalaskoðunarferða fyrir
þjóðarbúið og nauðsyn á enn
frekari rannsóknum áður en
heimilað verður að hefja hvalveið-
ar á ný við Island er sjö manna
sendinefnd frá íslandi á ráðstefnu
í Nairobi í Kenya um dýr og
plöntur í útrýmingarhættu. Talið
er að kostnaður ríkissjóðs vegna
þessarar sendinefndar sé um 7
miljónir króna en það hefur ekki
fengist staðfest. I sendinefndinni
eru tveir fulltrúar frá utanrílds-
ráðuneytinu, tveir frá sjávarút-
vegsráðuneytinu, einn frá um-
hverfisráðuneyti, einn frá Haf-
rannsóknastofnun og einn frá
Náttúrufræðistofnun. Þar syðra
fer fram 11. þing aðildarríkja
samningsins um alþjóðlega versl-
un með dýr og plöntur í útrýming-
arhættu. Sem kunnugt er hafa
stjórnvöld ekki útilokað að sjálf-
bærar hvalveiðar hefjist hér á ný
þótt djúpt virðist á ákvarðanatöku
í þeim efnum. I það minnsta verð-
ur ekly veitt leyfi fyrir hrefnuveið-
um í sumar hvað sem síðar kann
að verða.
Áhersla á vísindi
I ávarpi sínu á ráðstefnunni gerði
Eiður Guðnason sendiherra grein
fyrir fyrirvörum Islands vegna
hvalategunda sem enn eru á skrá
í viðaukum samningsins yfir teg-
undir sem eru í útrýmingarhættu.
I ræðu sinni áréttaði Eiður að
skýrar vísindalegar ástæður verði
að liggja að baki ákvörðunum um
að setja einstakar dýra- og plöntu-
tegundir í viðauka samningsins,
en ekki tilfinningalegar, siðrænar
eða siðferðislegar ástæður. Jafn-
framt var lögð áhersla á að starf
samningsins beinist að þeim teg-
undum sem vísindalegar niður-
stöður sýna að séu í útrýmingar-
hættu og sem sé ógnað af alþjóð-
legum viðsldptum. Því væri nauð-
synlegt að skráning tegunda í við-
auka samningsins sé endurmetin
með tilliti til nýrra viðmiðunar-
reglna. I þessu samhengi lagði
sendiherrann áherslu á í ávarpi
sínu að horft yrði til einstakra
stofna og stöðu þeirra í stað þess
að horfa eingöngu til tegunda.
Skerðir afrakstursgetu
þorsks
Jóhann Sigurjónsson forstjóri
Hafrannsóknarstofnunar segir að
afstaða stjórnvalda til hvala sé að
þeir séu endurnýjanleg auðlind
sem ber að nýta á sjálfbæran hátt.
Þá sé ekki annað að skilja á sjáv-
arútvegsráðherra að stefnt sé að
því að hefja hvalveiðar á ný en þá
í takmörkuðum mæli, undir vís-
indalegu eftirliti og jafnvel svæð-
isbundið. Jóhann telur að það eigi
ekki að verða neinar árekstrar á
milli þeirra sem vilja hvalaskoðun
og þeirra sem vilja veiðar, enda
geti þetta tvennt geti farið saman.
Hann bendir einnig á að rann-
sóknir Hafró hafi sýnt fram á að
ef hvalur sé ekki veiddur á næstu
árum, þá muni það væntanlega
skerða afraksturgetu þorskstofns-
ins verulega, eða allt að 10 - 20%
til Iangs tíma litið. Af einstökum
hvalategundum bendir forstjóri
Hafró á að talið sé að 56 þúsund
hrefnur séu á íslensku strand-
svæði að sumarlagi af stofni sem
telur eitthvað um 70 þúsund dýr.
Af þessum fjölda sé talað um að
veiða kannski 200-250 hrefnur
sem sé aðeins dropi í hafið.
Gæludýr og ímynd
Asbjörn Björgvinsson höfundur
skýrslunnar og forstöðumaður
Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík
er ekki sammála því að hvalveiðar
og hvalaskoðun eigi samleið.
Hann telur að áður en hvalveiðar
verða leyfðar á ný þurfi að fara
fram víðtækar rannsóknir á því
hvað áhrif veiðar mundu hafa á
hvalaskoðunina. „Ef það á að fara
að skjóta gæludýrin fyrir okkur að
órannsökuðu máli, þá er ég ekki
alveg sammála því,“ segir Asbjörn.
Hann Ieggur einnig þunga áher-
slu á þá skoðun hvalaskoöunar-
manna að þetta mál verði fyrst og
fremst að byggjast á efnahagsleg-
um forsendum. I því sambandi
bendir hann á það séu að skapast
það mikil efnahagsleg verðmæti í
hvalaskoðun að það geti verið
erfitt að sýna fram að það sé meiri
efnahagslegur ávinningur af því
að veiða 100 - 200 hrefnur. Þá
telur hann að hvalveiðar muni
ekki styrkja ímynd Islands eins og
hvalaskoðunin hefur gert. Máli
sínu til stuðnings benti hann m.a.
niðurstöður skoðanakönnuar sem
Ása Sigríður Þórisdóttir stjórn-
málafræðinemi við HI gerði 1998
um afstöðu erlendra ferðamanna
til hugsanlegra hvalveiða Islend-
inga. Þar kom fram að 78% er-
lendra ferðamanna sögðust al-
mennt vera á móti hvalveiðum og
33% svarenda höfðu farið í hvala-
skoðunarferð hérlendis. í sömu
könnun hefði komið fram að 40%
svarenda sögðust vera tilbúnir að
styðja harkalegar aðgerðir gegn
útflutningsafurðum Islendinga ef
hvalveiðar verða hafnar á ný og
64% töldu að hvalveiðar og hvala-
skoðun geti ekki farið saman. I
þessari könnun bárust svör frá
924 einstaklingum frá 23 þjóð-
löndum. Ásbjörn vitnaði m.a. í
ummæli forsætisráöherra þcss
efnis að annaðhvort verður farið í
alvöru hvalveiðar með stórhvala-
veiðum og öllu eða ekki neitt.
Það sé ekki hægt að of’fra hags-
munum þjóðarbúsíns fyrir nokkr-
ar hrefnur, eins og hann orðaði
það. Hann benti einnig á að Iítið
Ásbjörn Björgvinsson forstöðumað-
ur Hvalamiðstöðvarinnar: Hvalveiðar
og hvalaskoðun eiga ekki samleið.
hafi verið um hvalarannsóknir frá
1995, aðrar en þær sem hvala-
skoðunarfyrirtækin hafa staðið
fyrir í tengslum við sína hags-
muni, eins og t.d. talningar á
hvölum. Hann gat þess þó að í
sumar sé ráðgert af hálfu Hafró
og erlendra aðila að rannsaka
hrefnur í sumar og m.a. með þvf
að koma fyrir f þeim gervihnatta-
sendum til að geta fylgst með
ferðum þeirra.
Umgengni til skammar
Af hálfu hvalaskoðunarfyrirtækja
er að störfum undirbúningsnefnd
sem vinnur að stofnun hags-
Eiður Guðnason sendiherra: I/ís-
indalegar ástæður en ekki tilfinn-
ingalegar
munafélags þeirra. Gert er ráð
fyrir að félagið geti orðið að veru-
leika á þessu eða í byrjun næsta
árs. Hinsvegar er ekki vitað sem
skyldi um afkomu þessara fyrir-
tækja og því er talin þörf á úttekt
á því sviði. I skýrslunni kemur
fram að brýnt sé að óháðir aðilar
taki að sér að útreikninga á efna-
hagslegu gildi hvalaskoðunar fyrir
þjóðarbúið svo hægt verði að hafa
það til hliðsjónar þegar verið sé að
mcta kosti þess og galla hvort
ástæða sé til að hefja hvaðveiðar
að nýju hér við land. Asbjörn tel-
ur þó að flest fyrirtækin séu enn á
svokölluðu fjárfestingarsviði og
Jóhann Sigurjónsson forstjóri
Hafró: Afrakstursgeta þorskstofns-
ins skerðist um 10 - 20% ef hvalur
er ekki veiddur.