Dagur - 13.04.2000, Side 9
FIMMTIIDAGUH 13 . APRÍI. 20 00 - 9
því líklegt að mörg þeirra eigi eftir
að skila góðum tekjum þegar fram
líða stundir. Hátt í 100 manns
vinna beint við hvalaskoðun auk
fjölmargra sem koma óbeint að
greininni í ferðaþjónustunni.
A fundinum kom einnig fram að
ísland sé komið á heimskortið
meðal áhugafólks um hvalaskoð-
un. Meðal annars hefói komið
hingað dagskrárgerðarfólk frá
Astralíu til að taka mynd sem á að
vera hluti af þætti um hvalaskoð-
un. Þar hefði Island verið valið lir
hópi rúmlega 60 landa. I skýrsl-
unni vekur eftirtekt hörð gagnrýni
á umgengni landsmanna um hafið
Reinhard Reynisson bæjarstjóri á
Húsavík: Hvalaskoðun vítamín-
sprauta fyrir bæjarfélagið
í kringum landið. Meðal þess sem
ber fýrir augu hvalaskoðunarfólks
eru saltpokar, fiskibakkar, tunnur
og plastrusl af ýmsu tagi á floti. Þá
er skorað á hafnaryfirvöld að vera
mun virkari þátttakendur í hreins-
un hafnarsvæða og stuðla að al-
mennri snyrtimennsku og fallegri
ásýnd hafnarsvæða víðsvegar á
Iandinu.
Stefnir í 50 þiísiiiid iiiainis
í skýrslunni kemur fram að árið
1995 fóru 2.200 fcrðamenn í
hvaðaskoðunarferðir hérlendis.
Ari seinna var fjöldi þeirra kominn
í 9.500 manns. Árið 1997 var
slegið met þegar 20.450 farþegar
fóru í hvalaskoðunarferðir, sem
var um 116% aukning á milli ára.
Árið eftir fóru 30.330 ferðamenn í
hvalaskoðun sem var aukning
uppá 48%. Á síðasta ári voru þess-
ir ferðamenn 35.250, eða 16%
fleiri en árið áður. Áætlað er þessi
fjöldi geti numið allt að 50 þús-
und manns innan fárra ára. Af
þessum fjölda í fyrra er áætlað að
íslendingar hafi verið um 5.250
og erlendir ferðamenn um 30 þús-
und. Þar af komu 3500 manns
gagngert tíl hvaðaskoðunarferða.
Þá er gert ráð fyrir að þrjú þúsund
ferðamenn hafi komið til landsins
í og með vegna þess að boðið var
uppá hvalaskoðunarferð í þeim
ferðapakka sem keyptur var. At-
hygli vekur að í skýrslunni er ekki
gefið upp hvern þessi fjöldi skipt-
ist á milli einstakra íyrirtækja og
kemur fram að það sé gert vegna
óska fyrirtækjanna sjálfra. Sé litið
á áætluð útgjöld þessara ferða-
manna kemur fram í skýrslunni að
þeir sem koma gagngert til að
skoða hvali eyða mestu, eða 120
þúsund krónur á hvern ferða-
mann. Þeir sem skoða hvali vegna
þess að það sé hluti af ferðaáætl-
un þeirra eyða um 15 þúsund
krónum, Islendingar um 5 þúsund
krónum á mann og þeir sem
ákveða á staðnum að skoða hvali
eyða um 3 þúsund krónum hver
einstaklingur. Þótt tekjur af þess-
um ferðamönnum hafi nuinið alls
um 560 miljónum króna í fyrra,
þá skiptast þær á milli fjölmargra
fyrirtækja, svo sem flugfélaga,
hópferðabíla, veitingahúsa, hót-
ela, gististaða, verslana, hvala-
skoðunarfyrirtækja og annarra
þeirra sem koma að þjónustu
ferðamanna.
Jákvæð áhrif
Það kostar um 2.800 til 3.500
krónur að fara í þessar ferðir scm
taka um þrjá tíma í siglingu.
Helga Ingimundardóttir hjá fyrir-
tækinu Sjóskoðun, „Sea Marvels"
í Keflavík segir að ef enginn hval-
ur sést f ferð hjá sér sé farþegum
boðið að fara í aðra ferð sér að
kostnaðarlausu. Hún segist jafn-
framt kaupa eitt tré til gróðursetn-
ingar fyrir hvern farþega auk þess
sem Skógræktin leggur til annað,
eða tré á hvern ferðamannafót.
Þessi tré séu síðan gróðursett á
Reykjanesi. Engin virðisauka-
skattur er greiddur af farmiðum í
hvalaskoðunarferðir. Fyrir utan
hin beinu efnahagslegu áhrif
hvalaskoðunarferða á þjóðarbúið
er fullyrt í skýrslunni að þessi nýja
tegund ferðamennsku hafi einnig
haft mjög jákvæð áhrif á mannlíf-
ið í fjölmörgum bæjum og sveitar-
félögum utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Aukinn fjöldi ferðamanna
skapi aukna tiltrú og bjartsýni
íbúa í byggðarlaginu. 1 því sam-
bandi er m.a. bent á að verið sé
t.d. að byggja nýja álmu við hótel-
ið á Olafsvík sem er að hluta til
vegna þcirra væntinga sem menn
hafa á svæðinu í tengslum við
hvalaskoðunarferðir. Þá hafa ein-
nig risið upp ný veitingahús í
tengslum við hvalaskoðunarferðir
eins og m.a. á Húsavík.
Nýir fímar á Húsavík
1 skýrslunni kemur fram að hlut-
fallsleg skipting farþega í hvala-
skoðun eftir Iandshlutum í fyrra
hafi verið langmest á Húsavík, eða
rúmlega 20 þúsund inanns. Þar á
eftir voru 9.500 manns sem not-
færðu sér þjónustu hvalaskoðun-
arfyrirtækja á suðvesturlandinu,
Kcflavík og Hafnarfirði. Á Vestur-
landi, eða Snæfellsnesi voru það
um 3 þúsund manns og 2.450 á
Eyjafjarðarsvæðinu. Reinhard
Reynisson bæjarstjóri á Húsavík
segir að áhrifin sem hvalaskoðun
hefur haft á bæjarfélagið séu
hreint út sagt frábær og þvf mjög
jákvæð í efnahagslegu tilliti. I því
sambandi bendir hann á að vöxt-
urinn í ferðaþjónustunni á Húsa-
vík og í Þingeyjarsýslu með til-
heyrandi fjölgun ferðamanna sé
nær eingöngu vegna markaðssetn-
ingar á hvalaskoðunarferðum.
Hann segir að áður hefðu ferða-
menn varlað stoppað á Húsavík á
leið sinni í Ásbyrgi nema þá
kannski til að fá sér kók og pylsu.
Það sé liðin tíð eftir að hvalaskoð-
unin hófst þar nyðra. Þessi góði
árangur í markaðssetningu hvala-
skoðunarferða hefur einnig að
mati bæjarstjórans haft jákvæð
andleg áhrif á íbúana. Hann segir
að þetta hafi sýnt mönnum fram á
að með kraftmikilli og góðri vinnu
sé hægt að gera nýja hluti, byggja
upp frá grunni á auðlind sem er
búin að vera lengi rétt við túnfót-
inn.
Nauðsyit á regliun
Athygli vekur að hvalaskoðunar-
íyrirtæki eru starfandi í öllum
landshlutum nema einna helst á
Vestfjörðum og Austfjörðum. í
skýrslunni kemur fram að fjöldi
hvala á grunnslóð virðist almennt
minni en undanfarin ár. Sérstak-
lega hefur þess orðið vart á Eyja-
firði þar sem þeim hefur fækkað
yfir sumartímann. Algengustu
hvalirnir sem sjást í hvalaskoðun-
arferðum eru hrefnur og höfrung-
ar. A Vesturlandi hefur þó sést
töluvert af steypireyð og hnúfu-
bakur sést á flestum stöðum.
Hinsvegar eru bundnar miklar
væntingar við aukningu ferða-
manna í stórhvalaskoðun út af
Snæfellsnesi, Talið er að enginn
annar staður í heiminum geti stát-
að sig af því að sjá steypireyð í nær
hverri ferð yfir hásumarið. I
skýrslunni kernur einnig frain að
nauðsynlegt sé að setja reglur um
hvalaskoðunarferðir, reglur sem
tryggja öryggi farþega og góða um-
gengni við hvalina. Væntanleg
samtök hvalaskoðunarfyrirtækja
séu reiðubúin til að beita sér í
þessu máli og hafa forgöngu um
það í samvinnu við opinbera aðila.
Þá séu fyrirtækin einnig tilbúin til
að taka þátt í rannsóknarverkefn-
um á hegðun, fari, fjölda og jafn-
vel fæðuöflun hvala í samvinnu
við opinbera aðila, enda séu
hvalaskoðunarbátarnir tilvaldir
„rannsóknarpallar" fýrir vísinda-
menn.
Flugeldar eru orsök um 1/4 þeirra slysa sem komu til kasta slysadeildar
um áramót.
Pabbamir og
bomin slasast
Enginn þeirra 23, að-
allega feðra og bama,
sem slasaðist af ára-
mótaskoteldum, not-
aði hlifðargleraugu.
Um 83% slösuðust í
andliti og augum.
Af um 100 manns með áverka
sem leituðu til slysadeildar Borg-
arspítalans á einum sólarbring
um áramótin hafði tæpur fjórð-
ungur, eða 23, slasast vegna ára-
mótaelda; blysa-, tertu-,
sprengju- eða flugelda, hvar af
leggja þurfti þrjá inn á sjúkrahús.
Flestir með sprengjuáverka komu
á slysadeildina á sama klukku-
tímanum, frá miðnætti til klukk-
an eitt, eða um 60% allra sem
slösuðust vegna skotelda þennan
eina sólarhring. Stór meirihluti,
eða nær 80% voru karlmenn og
flestir í aldurshópunum 3-10 ára
(9) og 37-47 ára (10). Eða eins
og Ásgeir Thoroddsen læknir
slysa- og bráðasviðs Sjúkrahúss
Reykjavíkur orðar það: „Hinir
slösuðu skiptust annars vegar í
börn undir 10 ára aldri og hins
vegar heimilisfeður um um fer-
tugt“.
Alvaileg slys af Tívolí-
bombum
Ásgeir ásamt Brynjólfi Mogensen
á slysadeild SHR gerðu úttekt á
því hvað margir komu á slysa- og
bráðamótttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur um síðustu áramót,
á tímabilinu frá hádegi á gaml-
ársdag til hádegis á nýársdag, og
skýrðu frá niðurstöðunum á ný-
afstöðnu skurðlæknaþingi. Ás-
geir sagði ekki vitað um magn
sprengja og annarra skotelda sem
notað er á þjónustusvæði Sjúkra-
húss Reykjavíkur. „Það virðist þó
sem hlutfallslega fáir slasist".
Áverkar í andliti og/eða augum
voru lang algengastir eða í 83%
tilvika. I nær öllum tilfellum var
um einhvern bruna var að ræða
en helmingurinn hlaut skurði og
5 einstaklingar beinbrot. Tíu
hinna 23 slösuðu voru áhorfend-
ur. Flugeldar áttu þátt í 9 slys-
um, sprengjur í 5, tertur í 4, blys
eða kínverjar í 2 en hjá öðrum
tveim var tegundin óljós. Tívolí-
sprengjur orsökuðu alvarleg slys í
2 tilvikum.
Hlifðargleraugu fyrir næstu
áramót
Ásgeir telur ekki vera um áber-
andi klaufaskap að ræða. Enginn
hinna slösuðu notaði hins vegar
öryggisbúnað eins og hlífðargler-
augu og aðeins einn þeirra var
með hanska. Flestir hafi þó
sloppið með fremur litla áverka,
en sprengjurnar hafi valdið alvar-
legustu áverkunum. „Niðurstöð-
urnar gefa til kynna að með því
að nota hlífðargleraugu og hans-
ka megi fækka áverkum enn frek-
ar,“ segja læknar slysadeildar.
- HEl
10 þúsirnd með
slasaðar hendur
Um 3.900 borgarbúar leituðu
læknishjálpar vegna handarslysa
1998, sem samsvarar um 10.000
manns á landinu öllu.
„Handaráverkar eru algengir
meðal Reykvíkinga,“ segja lækn-
arnir Andri Kristinn Karlsson og
Brynjólfur Mogensen á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem kyn-
ntu niðurstöður könnunar sinnar
á handarslysum borgarbúa árið
1998 á nýafstöðnu skurðlækna-
þingi. Um 3.900 Reykvíkingar
leituðu til Slysadeildar SHR með
skornar, marðar eða brotnar
hendur á árinu 1998, eða meira
en 10 að meðaltali hvern einasta
dag ársins. Karlar voru mun
fleiri, eða tæplega 2.500 en urn
1.400 konur. Þetta svarar til þess
að um næstum 1 af hverjum 20
körlum í borginni og 40. hver
stúlka/kona hafi slasað sig svo illa
á höndum umrætt ár að ástæða
þótti til að fara á slysadeild.
Meðalaldur þeirra var 29 ár.
Ef aðrir landsmenn slasast
áb'ka oft á höndum og Reykvík-
ingar, og árið 1998 er nokkuð
dæmigert, þá lætur nærri að um
10.000 lslendingar þurfi árlega
að leita sér læknishjálpar vegna
handarslysa, eða um 27 að jafn-
aði dag hvern.
Ríflega 40% áverkanna voru
sár, um fimmti hver hafði tognað
á hendi, um sjötti hver var með
brotin handarbein eða fingur og
um sjötti hver marinn á hendi.
Algengast var að þeir slösuðu
höfðu skorið sig (26%), rekið
hendi eða fingur illilega í eitthvað
(21%), kramist (15%) og dottið
(12%).
Langflestir gátu farið heim eft-
ir þjónustu slysadeildar en 50
voru svo illa slasaðir að þá þurfti
að leggja inn á spítalann og rúm-
lega 100 fóru annað en afdrif
þeirra voru ekki skráð í skýrslur
SHR. - HEI