Dagur - 13.04.2000, Síða 11
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 - 11
Ðugur
FRÉTTIR
Fimmti hver karl
með brotin beiit
Um fimmti hver karl
á besta aldri má búast
við að beinbrotna á
næstu tveim áratug-
um, þriðjunguriun
tvisvar eða oftar.
Um fimmtungur reykvískra karla
milli þrítugs og sextugs má gera
ráð fyrir að beinbrotna einhvern
tímann á næstu 20 árum, þar af
nær þriðji hver oftar en einu
sinni, miðað við reynslu síðustu
tveggja áratuga. En hún byggist
á brotasögu um 4.400 karla í
Reykjavík sem lentu í slembiúr-
tökum Hjartaverndar á árunum
1967 til 1971 og fylgt var eftir í
21 ár að meðaltali, eða til ársloka
1996. A tímabilinu höfðu rúm-
lega 820 þessara karla beinbrotn-
að samtals um 1.200 sinnum.
Um 250 karlanna (30%) höfðu
brotnað tvisvar sinnum eða oftar.
En þeir sem höfðu brotnað tvis-
var sinnum reyndust í þriðjungi
meiri hættu að fá þriðja brotið.
Handarbrot reyndust algengust
(19%), þá úlnliðsbrot (14%) og
mjaðmarbrot (8%).
Astmi, lyfjataka og reyking-
ar auka hættuna
Rannsókn á beinbrotum reyk-
vískra karla gerðu Brynjólfur Y.
Jónsson, læknir á handlækn-
ingadeild Sjúkrahúss Akraness,
ásamt læknum á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og Landspitala.
Þeir athuguðu sjúkraskýrslur
karlanna sem tóku þátt í hóp-
rannsókn Hjartaverndar, á slysa-
deild og öllum sjúkrahúsum
borgarinnar. Beinbrotum vegna
æxla og gömlum brotum var
haldið utan við könnunina.
íslenskir karlmenn eru brothættari
en breskir.
Athugun á svörum við innrit-
un í hóprannsóknina leiddi m.a.
í ljós 20% til 97% aukna bein-
brotahættu meðal karla með
astma, nýrnasteina, fyrri áverka-
sögu, slen, óróleika og þyngdar-
tap. Regluleg notkun svefn- og
verkjalyfja og reykingar auka
einnig brotahættuna, sem sömu-
leiðis jókst með aukinni líkams-
hæð. Svipað kom í ljós við
athugun þeirra 260 karla sem
sfðar fengu beinþynningarbrot
við fall á jafnsléttu.
.Bíleigendur beinbrotna síður
Aftur á móti reyndust beinbrot
um þriðjungi fátíðari meðal
karla sem tóku þátt í íþróttum,
voru atvinnurekendur og áttu
bíla. Þar sem samband virðist
milli sjúkdóma, lffsstíls og
áhættu á seinni beinbrotum í körl-
um ætti, að mati læknanna, að
vera mögulegt að nota breytilegan
lífsstíl sem líkan til að rannsaka
áhrifín á beinþynningu.
Framangreindar niðurstöður
benda til að tíðni beinbrota reyk-
vískra karla sé svipuð og þekkist í
Svíþjóð en hins vegar hærri en á
Bretlandseyjum og í Astralíu. -HEl
íil ENGIN HÚS fíft
JJJ ÁN HITA JjJ
ARABIA
hreinlætistæki
Sementsverksmiðjan braut sam-
keppnislög.
Skaðaði
samkeppni
Samkeppnisráð telur að Sem-
entsverksmiðjan (SV) hafi brotið
samkeppnislög og baft skaðleg
áhrif á samkeppni, en svo segir í
úrskurðarorðum ráðsins í máli
Hlaðbæjar-Colas gegn SV. í því
máli kærði Hlaðbær-Colas til-
boð SV á semcnti vegna stækk-
unar flughlaða við Flugstöð
Leifs Finkssonar og taldi ráðið
að sá afsláttur sem SV bauö í út-
boðinu haf’i brotið gegn 17. gr.
samkeppnislaga um skaðleg
áhrif á samkeppni.
Þá lækkun SV taldi ráðið „sér-
tæka verðlækkun undir kostnað-
arverði'1 sem hefði skaðleg áhrif
á þeim mörkuðum sem hún nær
til. Þeirri samkeppni sem hefði
átt að ríkja á milli þátttakenda í
umræddu útboði var raskað með
því verði sem SV bauð á sementi
til framkvæmdarinnar. Slík
hegðun markaðsráðandi fyrir-
tækis er að mati ráðsins sam-
keppnishamlandi.
Samkeppnisráð beinir þeim
fyrirmælum til SV að við sölu
SV á sementi „skulu viðskipta-
vinum almennt bjóðast þau við-
skiptakjör sem samræmast því
hagræði sem magn viðskiptanna
gefur tilefni til. Viðskiptakjör
skulu vera almenn þannig að
viðskiptavinir sem eiga f sams-
konar viðskiptum við Sements-
verksmiðjuna hf. að magni til
njóti sömu kjara og verð sé ekki
lægra en heildareiningakostnað-
ur“. - FÞG
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Grand Vitara hefur margt fram yfir
aðra jeppa í sínum verðflokki
Grand Vitara er grindarbyggður sem
eykur styrk hans verulega og gerir kleift
að hækka hann ef þess er óskað. Svo er
hann jafn auðveldur í meðförum og um-
Það fyrsta sem þú tekur eftir þegar þú
sest inn í Grand Vitara eru vel bólstruð
sætin og hve góðan bakstuðning þau
veita. Fjórhjóladrifið stóreykur notagildi
bilsins en háa og lága drifið gerir hann
að ekta hálendisbíl.
gengni og venjulegur fólksbíll og fæst á
svipuðu verði!
Grand Vitara - Þægilegi jeppinn
TEGUND: VERÐ:
GR. VITARA 3 dyra 1.789.000 KR.
GR.VITARA 2,0 L 2.199.000 KR.
GR.VITARA 2,5 LV6 2.449.000 KR.
Sjálfskipting 150.000 KR.
$ SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson,
Grænukinn 20, sími 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95.
Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.