Dagur - 13.04.2000, Síða 12
12- FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000
ERLENDARFRETTIR
Fujimori hárs-
breidd frá sigri
MiMl ólga hefur ver-
ið í Perú vegna tafa
við talningu atkvæða
og ásakana uin kosn-
ingasvindl.
Talning atkvæða eftir forseta-
kosningarnar í Perú, sem fram
fóru um helgina, hefur dregist
töluvert á langinn. I gær benti
allt til þess að Alberto Fujimori,
sem gegnt hefur forsetastarfinu
í áratug, hafi ekki náð hreinum
meirihluta. Síðustu tiilur í gær
hcntu til þess að Fujimori
myndi fá 49,79% atkvæða, sem
þýðir að hann var aðeins hárs-
breidd frá sigri.
Nái Fujimori ekki meirihluta
atkvæða, þá fer fram önnur
umferð seint í maí eða byrjun
júní þar sem kosið verður milli
hans og Alejandros Toledos,
sem virtist ætla að fá nærri 41 %
atkvæða. Seinagangurinn í
talningunni og ásakanir um
kosningasvindl hafa örugglega
aukið stuðning kjósenda við
Tuledo til muna, og aflað Fu-
jimoris óvinsælda, þannig að
sigurlíkur hans í seinni umferð-
inni eru nú mun minni en þær
voru íyrir kosningarnar, hvort
sem það dugir Toledo til sigurs
eða ekki.
Stuöningsmenn Toledos hafa
fjölmennt tugþúsundum saman
á útifundi í Lima, höfuðborg
Stuðningsfólk Toledos bíður endanlegra úrslita.
landsins, til þess að mótmæla
meintu kosningasvindli og
hrópuðu: „Niöur með einræð-
ið“. Mótmælafundir hafa líka
verið haldnir víða um landið.
Toledo hvatti stuðningsmenn
sína til þess að viðhafa „frið-
samlegt andóf' gegn Fujimori
og efna til allsherjarverkfalls.
Toledo Iofaði öflugum mótmæl-
um ef úrslitin yrðu þannig að
Fujimori hefði sigrað í fyrstu
umferð.
Jafnt alþjóðlegir sem inn-
lendir eftirlitsmenn með kosn-
ingunum gagnrýna þær tafir
sem orðið hafa á talningu at-
kvæða, segja hugsanlegt að
brögð hafi verið í tafli og hvetja
eindregið til þess að önnur um-
ferð verði haldin. Stjórnvöld í
Bandaríkjunum og mörgum
Evrópuríkjum taka undir þær
kröfur og segjast ekki ætla að
viðurkenna úrslitin fái Fujimori
sigur í fyrstu umferð.
Sjálfur hafnar Fujimori því
alfarið að nokkuð hafi verið átt
við kosningaúrslitin, en viður-
kennir þó „smávægilegar uppá-
komur" sem eigi þó ekki að
hafa nein áhrif á útkomuna.
Síðast þegar kosningar voru
haldnar í Perú var talningu at-
kvæða lokiö á miðnætti á kosn-
ingadaginn og endanleg úrslit
hirt strax daginn eftir.
HEIMURINN
Læknar ljúga
BANDARÍKIN - Ný rannsókn bendir til þess að fjórir af hverjum
tíu bandarískum læknum ljúgi að tryggingafyrirtækjum um ástand
og sjúkdómsgreiningu sjúklinga sinna, eða ýki að minnsta kosti til
þess að fyrirtækin borgi fyrir þá læknismeðferð sem læknarnir telja
að sjúklingarnir þurfi á að halda. Frá þessu var skýrt í nýju tölu-
hlaði tímarits bandarísku læknasamtakanna American Medical
Association. Það var siðfræðistofnun læknasamtakanna sem lét
gera rannsóknina.
Clinton vill hitta Arafat og Barah í maí
BANDARÍKIN - Bill Clinton Bandaríkjaforseti stefnir að því að
halda leiðtogafund með þeim Ehud Barak, forsætisráðherra Isra-
els, og Jasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í næsta mánuði til
þess að koma friðarsamningum þeirra á skrið að nýju og ryðja úr
vegi þeim hindrunum sem eru í vegi fýrir því að tvíhliða ramma-
samkomulag um lausn á helstu deilumálum þeirra takist. Israels-
menn og Palestínumenn stefna að því að Ijúka gerð slíks ramma-
samkomulags fyrir 13. maí næstkomandi, en það samkomulag á að
vera grunnurinn að varanlegri lausn á deilum þeirra.
Spáir ;i ii knu m hagvexti
Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn telur horfurnar í efnahagsmálum
heimsins hafa lagast mjög, og spáir nú 4,2% hagvexti aö meðaltali
á þessu ári. Það er 0,8 prósentum meira en sjóðurinn spáði í haust.
Það eru einkum Evrópusambandsríkin og Bandaríkin sem sjóður-
inn telur að standi undir þessum aukna hagvexti.
Skaðabætur vegna geislaskaða
BANDARÍKIN - BandarísK stjórnvöld hafa fallist á að greiða skaða-
bætur til starfsmanna vopnavcrksmiðja sem sýkst hafa af krabba-
meini eftir að hafa orðið fyrir geislamengun. I Iver cinstaklingur á
að fá jafnvirði um 7 milljóna króna, og að auki eiga þeir að njóta
góðs af öðrum aðgerðum sem gripið verður til. Með þessu kúvenda
bandarísk stjórnvöld, sem áratugum saman hafa þverneitað að
þetta vandamál sé til staðar.
Forseti
Lettlands
segir af sér
Andris Skele,
forsætisráð-
herra Lett-
lands, skýrði
frá því í gær
að hann hafi
sagt af sér.
Við blasti að
Andris Skele.
stjórnin
myndi falla þegar vantrausts-
tillaga yrði borin fram á þjóð-
þingi landsins, en Skele kom í
veg fyrir þau málalok með því
að segja af sér áður.
Astæða þessara málaloka
eru deilur um einkavæðingu
innan stjórnarinnar. Skele rak
í síðustu viku efnahagsmála-
ráðherrann Vladimir Makarov,
og í framhaldi af því mögnuð-
ust deilur milli Þjóðarflokks-
ins, sem er flokkur forsætis-
ráðherrans, og samstarfs-
flokksins sem nefnist I þágu
föðurlands og frelsis. Skele
vildi selja ríkisfyrirtæki fyrir
lægra verð en Makarov.
Ekki er talið að kosningum
verði flýtt, heldur verði ný
stjórn mynduð fljótlega með
sömu flokkum ásamt þriðja
flokknum, Vegur Lettlands, en
þá verði nýr forsætisráðherra
fyrir valinu. Ekki er búist við
öðru en að stefna þeirrar
stjórnar verði í aðalatriðum
svipuð stcfnu fráfarandi
stjórnar, sem lagt hefur áhcr-
slu á að Lettland hljóti aðild
að bæði Nató og Evrópusam-
bandinu.
ÍÞRÓTTIR
Oddaleikur KA gegn Fram um sæti í úrslitaviðureigninni um Islandsmeist-
aratitilinn gegn Haukum fór fram í KA-heimilinu í gærkvöld. Honum var
ekki lokið er blaðið fór í prentun. Úrslitakeppnin hefst þriðjudaginn 18.
apríl nk. og komi til þess að leiknir verði 5 leikir eru aðrir leikdagar 20.,
22., 25. og 27. apnl Þrjá sigra þarf til þess að hampa íslandsmeistaratitlin-
um. Myndin er frá fyrsta leik KA og Fram í undanúrslitunum sem fram fór
í KA-heimilinu. Erlingur Kristjánsson KA tekur á Framaranum Guðmundi
Helga Pálssyni. Jónatan Magnússon hefur nánar gætur á framgangi mála.
mynd:brink
Óvíst iim Óskar
Oskar Armannsson, var langbestur leik-
manna Hauka í leiknum gegn Aftureld-
ingu á þriðjudagskvöldið ásamt Halldóri
Ingólfssyni og skoraði 8 mörk. Hann hélt
Haukum við efnið þegar útlitið var hvað
dekkst í stöðunni 12-6 fyrir Aftureldingu.
Þegar leiktíminn var að renna út varð
hann fyrir „árás“ Gintas Galkauskas, sem
sá þá einu von í stöðunni til að hindra að
Óskar næði að skjóta. Óskar fór haltrandi
af velli og við fyrstu skoðun var talið lík-
legt að hann yrði ekki meira með Haukum
f úrslitakeppninni sem framundan er. Það
er auðvitað skarð fyrir skildi hjá Haukum.
- GG
Óskar Ármannsson.
Líniir skýrast
í deildarbíkar-
keppninni
Leiftur frá Ólafsfirði er efstur í
A-riðli deildarbikarkeppninar í
knattspyrnu með 12 stig, jafn-
mörg stig og nágrannarnir frá
Dalvík, með sama markamun en
fleiri skoruð mörk. Fylkir kemur
síðan með 6 stig. Einn leikur fór
fram í riðlinum um helgina, þá
vann Fylkir lið Víðis í Garði með
3-1 og á mánudag vann Leiftur
Létti 5-2 og Dalvíkingar unnu
Hauka 1-0 með marki Atla Við-
ars Björnssonar.
í B-riðli eru Grindvíkingar
efstir með 10 stig en síðan koma
Reykjavíkurliðin Víkingur með 8
stig og Þróttur með 6 stig.
Spútnikliðið Sindri á Hornafirði
kemur síðan með 4 stig. Frá
fimmtudegi til sunnudags voru
leiknir fjórir leikir í riðlinum.
Víkingur vann Sindra 4-0,
Grindavík vann sameiginlegt lið
Hugins-Hattar frá Austurlandi
8-0 eftir að staðan var í hálfleik
2-0, Þróttur og Huginn-Höttur
gerðu 2-2 jafntefli og Grindavfk
vann Aftureldingu 4-0.
Islandsmeistarar KR leiða C-
riðil með 11 stig, FH er með 9
stig, Tindastóll er með 8 stig, og
Fram með 4 stig. Tindastóll
gerði tvö jafntefli um helgina,
fyrst 2-2 gegn FH og síðan
markalaust jafntefli gegn KR.
Framarar, sem hafa verið mjög
daprir í vor og leikmenn virkað
mjög þungir unnu KS 2-0, en
Siglfiröingarnir gerði daginn
áður 1-1 jafntefli við Njarðvík-
inga. A mánudag unnu FH-ingar
Narðvíkinga 5-0.
Skagamenn leiða örugglega í
D-riðli með 12 stig og hafa ekki
tapað leik og virðast vera til alls
líklegir í sumar. Stjarnan kemur
svo með 9 stig ásamt Skalla-
grími. Skagamenn unnu KIB 5-0
á laugardeginum og sama dag
vann Stjarnan Selfyssinga 4-3. A
sunnudeginum vann Skallagrím-
ur Fjölni 5-4.
Valsmenn eru efstir í E-riðli
með 12 stig, Breiðablik er einnig
með 12 stig en Iakari markamun,
KA og HK með 4 stig og Þór og
Hamar/Ægir með 3 stig. Breiða-
blik vann HK 3-1 á fimmtudag
og á laugardeginum vann KA
Hamar/Ægi 8-0 og HK vann Þór
2-1. Valur vann KA 5-1 á sunnu-
deginum og á mánudeginum
vann Breiðablik lið Þórs 6-0.
I F-riðli eru Keflavíkingar
cfstir með 10 stig en Vestmanna-
evingar hafa jafn mörg stig en
mun lakari markamun. IR er
nieð 4 stig og Leiknir Reykjavík
með 3 stig. IR-ingar unnu lið
Bruna um helgina 6-0 og Kefl-
vfkingar og Vestmannaeyingar
gerðu stórmeistarajafntefli, 1-1
en bæði þau lið virðast til alls li'k-
leg í úrvalsdeildinni í sumar. Þau
mætast í Vestmannaeyjum í 4.
umferð deildarinnar. LJrslita-
keppni deildarbikarsins hefst 1.
maí næstkomandi en úrslitaleik-
urinn verður laugardaginn 13.
maí. - GG