Dagur - 13.04.2000, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
Leeds -
Arsenal
í úrslit?
Þjálfari Leeds, David O Le
ary, neitar að vonir Leeds
um að komast í úrslitaleik-
inn á Parken í Kaupmanna-
höfn 17. maí sénhrostnar
þrátt fyrir 2-0 tap gegn
Galatasary í fyrri leiknum.
Seinni leikur Leeds og Galatasary í Evr-
ópubikarkeppninni fer fram á Elland
Road í Leeds á skírdag, 20. apríi nk.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, vill
fá nánari upplýsingar um öryggisgæslu og
fleira áður en ákveðið yrði hugsanlega að
banna áhangendum tyrkneska liðsins að
fylgjast með leiknum. Akvörðunar UEFA
er að vænta í dag. UEFA óttast að upp úr
sjóði þegar Tyrkirnir mæti á Elland Road,
og vill fá vissu fyrir að öryggi þeirra verði
tryggt. Einnig kann að verða heitt í kolun-
um ef áhangendurnir mæta til Leeds án
þess að fá aðgang að Ellan Road.
Ástæðan er morð á tveimur áhangend-
um Leeds í Istanbul í Tyrklandi fyrir fyrri
ieik liðanna þar í iandi. UEFA fékk kröfu
frá stjórn Leeds og Enska knattspyrnu-
sambandinu strax eftir leikinn á Ali Samy
Yen-Ieikvanginum í Tyrklandi 6. apríl sl.
þess efnis að áhangendum Galatasary
yrði meinaður aðgangur vegna þeirra til-
finninga sem hugsanlega fengju útrás hjá
breskum áhorfendum þegar þær sæju
Tyrkina. UEFA hefur þegar krafist þess
að að stjórn Galatasary hætti sölu á þeim
1.700 aðgöngumiðum sem komu í hlut
tyrkneska Iiðsins.
Þjálfari Leeds, David O'Leary, neitar
að vonir Leeds um að komast í úrslita-
leikinn á Parken í Kaupmannahöfn 17.
maf nk. séu brostnar þrátt fyrir 2-0 tap
gegn Galatasary f fyrri leiknum. O'Leary
telur að Tyrkjunum hafi verið færð mörk-
in tvö á silfurfati sem skoruð voru af Hak-
an Súkúr og Brasilíumanninum Capone.
Arsenal vann franska liðið Lens á Hig-
hbury 1-0 í hinni undanúrslitakeppninni
með marki Bergkamps, en seinni leikur-
inn fer fram 20. apríl í Frakklandi. - GG
Leikmaður Leeds, Lee Bowyer, hefur betur í viðureign við Arif Erdem, leikmann Galtasary í leik
liðanna á Ali Sami Yen 6. apríl sl.
Ótrúlega mtkill snjör
á skí ð as væ ðimuin
Nú helur snjó löngu tekið upp í
þéttbýli, en á skíðasvæðum
Reykjavíkurborgar er enn ótrú-
lega mikill snjór þrátt fyrir hlýj-
indakaflann um daginn. I Skála-
felli er nú meiri snjór en verið
hefur síðastliðin tíu ár og í Blá-
fjöllum er jafn mikill snjór og um
miðjan vetur í meðalári. Margir
halda að skfðatímabilið sé búið,
en það er öðru nær því þetta er
einmitt besti tíminn til að vera á
skíðum, orðið bjart langt fram á
kvöld og góðar líkur á góðu veðri.
Þegar hlýnar á ný eftir þetta
kuldakast, þá eiga starfsmenn á
skíðasvæðunum nú tromp upp í
erminni, en það er ný aðferð við
að „frysta brckkurnar". Áburðar-
dreifari fullur af salti er settur
framan á troðara, sem síðan
keyrir um brekkurnar og blandar
saltinu saman við snjóinn í leið-
inni. Svigbrautir hafa áður verið
frystar „handvirkt" fyrir skíða-
mót, en þá hefur það aðeins ver-
ið takmörkuð svæði. Þetta er
hins vegar í fyrsta sinn sem
brekkur lyrir almenning eru
„frystar" og er almenn ánægja
með þessa tilraun meðal skíða-
manna. I gær var meiriháttar
veður til að fara á skíði í Bláfjöll-
um, Skálafelli og Hengilssvæð-
inu, og er útlitið gott fyrir næstu
daga og helgina framundan.
Skíðasvæðin eru opin til tfu á
kvöldin. - GG
Isfirðmgar sigursælir
Fannar Gíslason,
BreiöabiiM, sigraöi í
stórsvigi 13 til 14 ára
drengja og alpa-
tvíkeppni.
Unglingameistaramót íslands var
haldið á Isafirði um helgina. 1
svigi 13 til 14 ára stúlkna sigraði
Elín Arnarsdóttir Ármanni en í
drengjaflokki Kristinn Ingi Vals-
son Dalvík. í svigi 15 til 16 ára
stúlkna sigraði Eva Dögg Ólafs-
dóttir Akureyri, en í drengjaflokki
Ingvar Steinarsson Akureyri. I
stórsvigi 13 til 14 ára sigraði Ás-
laug Eva Björnsdóttir Akureyri í
stúlknaflokki en Fannar Gfslason
Breiðabliki í flokki drengja. I
stórsvigi 15 til 16 ára sigraði
Arna Arnardóttir Akureyri í flokki
stúlkna en Bragi S. Oskarsson í
flokki drengja. I alpatvíkeppni 13
til 14 ára sigraði Iris Daníelsdótt-
ir Dalvík, en í flokki drengja
Fannar Gíslason Breiðabliki. I
alpatvíkeppni 1 5 til 16 ára sigr-
aði Arna Arnarsdóttir Akureyri en
Ingvar Steinarsson í flokki dreng-
ja-,
I göngu 13 til 14 ára með frjál-
sri aðferð sigraði Elsa Guðrún
Jónsdóttir Olafsfirði í flokki
stúlkna en Hjörvar Maronsson í
flokki drengja. 1 göngu 15 til 16
ára með frjálsri aðferð sigraði
Katrín Árnadóttir ísafirði en Jak-
ob Einar Jakobsson í flokki
drengja. I boðgöngu stúlkna 13
til 16 ára, 3 x 3,5 km, sigraði A-
lið ísfirðinga, Akureyringar voru í
2. sæti og B-lið Isfirðinga í 3.
sæti. I sigurliði Isfirðinga voru
Eygló Valdimarsdóttir, Oddný
Kristín Kristbjörnsdóttir og
Katrín Árnadóttir. I boðgöngu
drengja, 3 x 3,5 km, sigraði lið Is-
firðinga, lið Akureyringa í 2. sæti
og Olafsfirðingar í 3. sæti. Sigur-
sveit Isfirðinga skipuðu Einar
Birkir Sveinbjörnsson, Markús
Þór Björnsson og Jakob Einar
Jakobsson. - GG
Meiming
og æska á
Laugardals-
vellií júní
íslensk ungmenni hvött til
þess að vera virkir þátttak-
endur á mótinu Kultur og
ungdom, t.d. með þátttöku
í setningarhátíð á Laugar-
dalsvelli, fatahönnunnar-
keppni, karaokekeppni og
íþróttum.
Dagana 21. til 28. júní nk. koma
3000 ungmenni til lslands frá
Norðurlöndunum, 14 ára og
eldri, og skemmta sér saman í
heila viku undir kjörorðunum
„Menning & æska“. Einnig er
gert ráð fyrir um 1000 innlend-
um þátttakendum.
Kultur & ungdom eða „Menn-
ing & æska", er ungmennamót á
vegum Norrænna samtaka um
ungmennastarf, NSU, sem eru
félagasamtök 1 5 norrænna ung-
mennasamtaka með samtals yfir
tvær milljónir félagsmanna.
Ungmennafélag Islands ber
ábyrgð á framkvæmd mótsins,
sem nýtur stuðnings íslenska rík-
isins, Norrænu ráðherranefndar-
innar, Reykjavíkurborgar og
Flugleiða en auk þess er Kultur
og ungdom innan dagskrár
Reykjavíkur menningarborgar
Evrópu. Hugmyndin er að fá ís-
lensku þátttakendurna til að vera
virkir á mótinu, t.d. með þátt-
töku í setningarhátíð á Laugar-
dalsvelli, fatahönnunnarkeppni,
karaokekeppni og íþróttum en
keppt verður m.a. í fótbolta,
handbolta, körfubolta, blaki,
seglbrettasiglingum, badminton
og frjálsum íþróttum. - GG